Veiði lauk í Reykjadalsá í Borgarfirði í hádeginu í dag og venju samkvæmt var það stjórn Stangveiðifélags Keflavíkur sem lokaði ánni og eru menn þar á bæ ánægðir með afrakstur sumarsins.
Að sögn Óskars Færseth hjá félaginu þá var áin bólgin og mikið vatn í kjölfar rigninga daganna á undan þegar veiði hófst þar á föstudag. Byrjaði að lækka í ánni efir hádegið á laugardag og aðstæður urðu þá skaplegri og tók veiðin kipp og endaði lokahollið með 19 laxa sem Óskar sagði að væri fráær veiði á tvær stangir í tvo daga.
Þegar búið var að leggjast yfir veiðibókin í hádeginu í dag kom í ljós að lokatölur urðu 267 laxar og 60 urriðar. Þetta er talsvert yfir meðalveiði síðustu 12 ára að sögn Óskars og voru auk þess sem óvenju margir sjógegnir urriðar veiddust á þessu sumri.
Algjör metveiði var í júní og júlí þegar að 151 laxi var landað sem er óvanalegt því áin er þekktari sem síðsumarsá. Stærstu laxar sumarsins voru 93 og 91 sm höfðingjar sem veiddust um miðjan ágúst og undir lok veiðitímans í september.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |