Eitthvað til að prófa í vatnaveiðinni

Að veiða úr tröppu er aðferð sem nokkrir veiðimenn hafa …
Að veiða úr tröppu er aðferð sem nokkrir veiðimenn hafa tileinkað sér. Þá er hægt að sjá fiskinn þegar kastað er á hann. Ljósmynd/ES

Nú þegar vatnaveiðin er að komast almennilega í gang er rétt að benda á tækni sem nokkrir veiðimenn hafa tileinkað sér. Þeir veiða úr tröppu sem komið er fyrir úti í vatninu á góðum botni. Þessi aðferð er einkar hentug þegar vatn er stillt og hægt er að sjónkasta á fisk. Það getur líka verið gott að komast upp úr vorköldu vatninu. En mikilvægt er að finna hentugan botn. Það gæti orðið kalt bað ef stiginn er valtur.

Guðlaugur Helgason veiðimaður hefur notað þessa tækni með góðum árangri í Heiðarvatni og víðar. „Ég lærði þetta af félaga mínum og þetta hefur oft gefið mér skemmtilega veiði. Það er svo dásamlegt að geta séð fiskinn og kastað á hann. Maður er kominn með allt annað sjónarhorn og getur séð hvort fiskurinn er að skoða það sem maður er að sýna honum,“ sagði Guðlaugur í samtali við Sporðaköst.

Þegar vötn eru köld á vorin getur verið gott að …
Þegar vötn eru köld á vorin getur verið gott að komast í eilítið hærra hitastig. Ljósmynd/ES

Hann notar jöfnum höndum straumflugur og púpur þegar hann veiðir úr stiganum og á stilltum degi segir hann þennan veiðiskap alveg frábæran.

„Ég hef líka notað þetta í ám ef ég er að hitcha til dæmis. Það munar svo mikið um að geta hækkað sig og breytt sjónarhorninu,“ segir Guðlaugur.

Myndirnar sem fylgja með greininni eru frá opnun Heiðarvatns 2015. Þá nýtti Guðlaugur sér stigann og nú styttist í þetta magnaða veiðivatn opni, en það gerist um mánaðamótin. Bleikjan í Heiðarvatni er afskaplega falleg og á vorin má þar oft gera góða bleikjuveiði í bland við urriða. Fyrstu daga veiðitímans eru líka sjóbirtingar enn á sveimi í vatninu og er það iðulega geldfiskur sem ekki er genginn til sjávar, sína leið niður Vatnsá og í framhaldinu um Kerlingadalsá og með henni til sjávar.

Þær eru fallegar bleikjurnar úr Heiðarvatni. Guðlaugur er hér nýbúinn …
Þær eru fallegar bleikjurnar úr Heiðarvatni. Guðlaugur er hér nýbúinn að háfa bleikju sem tók púpu. Ljósmynd/ES

Guðlaugur mun taka tröppuna góðu með sér þegar hann fer í Heiðarvatn í maí. „Já hún verður í bílnum og ef að aðstæður skapast verður hún dregin fram. Það er á hreinu,“ hlær Guðlaugur.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert