Stórlaxinn dýrvitlaus nýkominn í netið

Stefán Haraldsson með stórlaxinn. Fiskurinn kom í grásleppunet þann 30. …
Stefán Haraldsson með stórlaxinn. Fiskurinn kom í grásleppunet þann 30. apríl og hefur verið óvenju snemma á ferðinni. Ljósmynd/Aðsend

Það voru þeir feðgar Haraldur Árnason og Stefán Haraldsson á Björgu NS 11 sem veiddu risalaxinn undir Skálanesbjargi þann 30. apríl. Sporðaköst náðu tali af Haraldi í morgun og hann sagðist ekki búinn að ákveða hvað hann gerði við fiskinn. „Hann er bara til og var frystur beinn og flottur á bretti. Ég er ekkert farinn að spá í hvað ég geri við hann, maður er bara á fullu í grásleppunni og búinn að vera fjörutíu daga í beit á sjó,“ sagði Haraldur í samtali við Sporðaköst. Haraldur sagðist telja fiskinn vera ótrúlega snemma á ferðinni, en hann veiddist 30. apríl.

Haraldur Árnason með stórlaxinn - hann hefur verið frystur og …
Haraldur Árnason með stórlaxinn - hann hefur verið frystur og Haraldur hefur ekki ákveðið hvað verður gert við hann. Ljósmynd/Aðsend

Laxinn stóri sem mældist 112 sentímetrar og fimmtán kíló var sprækur. „Hann kom að innanverðu við Skálanesbjargið sem er að sunnanverðu í mynni Seyðisfjarðar. Hann kom í netið á einhverjum ellefu föðmum. Ég held að hann hafi komið í netið þegar ég var draga það inn. Hann var svo dýrvitlaus.“

Hélt hann myndi slíta netið

Haraldur segir að það hafi verið sólskin og logn þennan eina dag sem þeir hafa verið á sjó. „Það voru engin netaför eða neitt á honum. Hann var ekkert búinn að þvælast í netinu. Ég hélt að hann myndi slíta það áður en við næðum honum um borð. Það eru mikil átök í svona karli.“

Enn sem komið er hefur enginn falast eftir fiskinum og eins og Haraldur bendir á þá á að hirða allan meðafla á grásleppunni.

Þetta er virkilega fallegur fiskur.

„Já, hann er bara eins og flottur íþróttamaður. Ekkert smá stæltur og flottur. Þessi er ekki kviðsíður og uggaskemmdur eins og eldisfiskar.“

Þessi fiskur er engin smásmíði og svo stórir laxar eru …
Þessi fiskur er engin smásmíði og svo stórir laxar eru afar sjaldséðir á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Þeir feðgar sáu ekki fleiri laxa og Haraldur segir þetta eina laxinn sem hann hefur fengið frá því hann hóf að stunda grásleppu fyrir fimm árum.

„Vorum ekkert að kyssa hann“

„Það var ekkert annað í stöðunni en að drepa hann. Við vorum ekkert að kyssa hann og segja honum að fara heim aftur. Ég er ekkert fyrir svoleiðis veiðiskap. Annað hvort er ég að veiða eða ekki. Ég er ekki í því að pína og sleppa. Hef aldrei skilið þá áráttu. Fiskar hafa tilfinningu og þeir kippast við ef þú potar í þá. Þeir berjast fyrir lífi sínu í langan tíma og svo kemur veiðimaður í næsta holli og krækir í hann aftur. Hvar eru allir dýraverndunarsinnarnir í þessu? Mér finnst þetta ekki mannúðlegar aðfarir. Mér var kennt  í gamla skólanum að ef þú værir að veiða þá ætti maður að aflífa bráðin sem fyrst og gera það mannúðlega. Ég er ekki sammála svoleiðis veiðimennsku. Þá er betra að láta skepnurnar í friði,“ sagði Haraldur.

Hann segir grásleppuvertíðina hafa gengið ágætlega. „Ég er núna að standsetja seinni bátinn, færa yfir spil og svoleiðis. Það voru komin einhver tuttugu tonn á Björgu. Rauðmaginn var líka ágætur á undan. Það var alveg þokkalegt.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert