Eggert B. Halldórsson setti í og landaði draumalaxinum í Víðidalsá skömmu eftir að hann hóf veiðar eftir hádegi. Hann og Þórir bróðir hans áttu neðsta svæðið og byrjuðu í Dalsárósi. Fljótlega reistu þeir fisk á hitch og sást strax að þetta var mjög stór fiskur.
„Við vorum búnir að vera að tala um Green But á leiðinni frá veiðihúsinu. Svo mætti Jóhann Hafnfjörð, leigutaki og stakk upp á Green But númer fjórtán. Hún fór undir og ég fékk svaka yfirborðsneglu á hana. Ég áttaði mig ekki á hversu stór hann var. Vissi samt að þetta var stór fiskur. Ég sá hann aldrei almennilega fyrr en við hreinlega lönduðum honum,“ Sagði Eggert í samtali við Sporðaköst.
Fiskurinn var mældur 101 sentímetri og er sá stærsti sem veiðst hefur í Víðidalsá í sumar. Þetta var sannkallaður draugur eins og stórfiskarnir í Víðidalsá eru gjarnan kallaðir. Viðureignin stóð í um það bil hálftíma og þumbaðist stórlaxinn upp og niður hylinn. „Hann var ekki lúsugur en þetta er samt glænýr fiskur,“ sagði afar ánægður veiðimaður.
Dalsárósinn er mjög líflegur þessa dagana og sagði Eggert að fiskur væri víða á lofti og að sýna sig. Nokkuð er af laxi í veiðistaðnum Þorra og einnig í Ármótum. Þá er nokkuð farið að ganga af fiski upp Fitjá eftir rigningar. Víðidalsá í Kolugljúfrum var einungis 2,3 rúmmetrar áður en fór að rigna en fór upp í þrjá rúmmetra eftir síðustu nótt. Nokkuð hefur sést af laxi í neðstu veiðistöðunum í hliðaránni Fitjá og veit það á gott.
Þá er laxinn mættur í Stekkjarfljót, einn af efstu veiðistöðum Víðidalsár, rétt neðan við Kolugljúfur.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |