Annar „hundraðkall“ úr Grímsá

Gunnlaugur Karl Hreinsson með hundrað sentímetra fisk úr Töðunefi í …
Gunnlaugur Karl Hreinsson með hundrað sentímetra fisk úr Töðunefi í Grímsá. Ekki hefur veiðst slíkur fiskur í tuttugu ár og svo koma tveir á jafn mörgum dögum. Ljósmynd/SVB

Eftir tuttugu ára bið eftir hundrað sentímetra fiski úr Grímsá veiddist loksins slíkur fiskur í gærkvöldi. Hann veiddist í Oddstaðafljóti og mældist 101 sentímetri. Það sem meira er að hundrað sentímetra fiskur veiddist svo í morgun. Sá veiddist í Töðunefi og var veiðimaður Gunnlaugur Karl Hreinsson. Báðir þessir stórlaxar veiddust á rauða Frances með keilu.

Sigurður Veigar sem veiddi 101 sentímetra fiskinn er einmitt veiðifélagi Gunnlaugs og þeir báðir búnir að landa slíkum merkisfiski.

Leigutakar Grímsár staðfestu í gær að ekki hefði veiðst svo stór fiskur í tvo áratugi. Það er því magnað þegar þessi múr er loks rofinn að tveir slíkir fiskar veiðist á jafn mörgum dögum.

„Þetta var svakalegur fiskur. Hann negldi fluguna og lagðist strax. Sigurður Veigar hjálpaði mér að landa og þetta var svo þykkur og sterkur fiskur. Þetta var bara rosalegt,“ sagði mjög kátur Gunnlaugur í samtali við Sporðaköst nú fyrir skömmu.

Sigurður Veigar með 101 sentímetra fiskinn sem veiddist í Grímsá …
Sigurður Veigar með 101 sentímetra fiskinn sem veiddist í Grímsá í gær. Ljósmynd/GKH

Jón Þór Júlíusson, framkvæmdastjóri Hreggnasa ehf. sem leigir Grímsá, sagði í samtali við Sporðaköst að þeir hefðu séð þessa fiska síðustu ár en ekki tekist að veiða þá. Hann gladdist mjög yfir því að þessi múr hefði verið rofinn.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert