Hann breytist hratt listinn yfir hundrað plús sentímetra laxana þessa dagana. Átjándi laxinn sem nær þeirri stærð veiddist í Nesi í Aðaldal í morgun. Sá mældist 101 sentímetri og 52 sentímetrar í ummál.
Aðalsteinn Jóhannsson setti í laxinn á Hólmavaðsstíflu og landaði honum eftir 45 mínútna viðureign. Þetta er vígalegur hængur eins og myndin ber með sér. Flugan var Autumn Hooker sem er hönnuð af Nils Folmer og hefur hún fyrir löngu sannað sig sem stórlaxafluga.
Leiðsögumaður Aðalsteins var hinn fimmtán ára gamli Hilmar Árnason og að sögn Aðalsteins var þetta annar laxinn sem hann gædar í. Hinn var litlir 108 sentímetrar veiddur fyrr í sumar.
Aðalsteinn hefur fengið fisk í þessum stærðarflokki árlega frá árinu 2015. „Þetta er búið að vera gott sumar; þessi 101 sentímetra lax og svo landaði ég 24 punda urriða í Ölfusvatnsárósi. Sáttur,“ sagði Aðalsteinn í samtali við Sporðaköst.
Hér að neðan má sjá lista yfir stórlaxana sem hafa náð hundrað sentímetrum í lengd og þaðan af stærri í sumar.
Nes í Aðaldal 18 Stærsti lax sumarsins veiddur þar.
Laxá í Aðaldal 10 Óstaðfest, en nærri lagi.
Víðidalsá 8 103 sm í Silungabakka 18. sept
Miðfjarðará 5 Sá síðasti veiddur 19.9.
Þverá/Kjarrá 5 Stærsti 104 sm. Annars 1/4 skipting.
Selá 2 Báðir á Fossbreiðu.
Vatnsdalsá 2 Úr Línufljóti og Þórhöllustaðahyl.
Grímsá 2 Langþráð. Ekki gerst í tuttugu ár.
Eystri Rangá 2 Gætu verið fleiri en ekki staðfest.
Stóra Laxá 2 102 cm hængur veiddur 16.9.
Laxá á Ásum 2 Einn í ágúst og annar í september.
Haukadalsá 1 Þar veiddist 106 sentímetra lax.
Ytri Rangá 1 Sá var 104 sentímetrar.
Mýrarkvísl 1 Veiðin í sumar mun betri en í fyrra.
Hólsá 1 Hér er átt við eystri bakka.
Ölfusá 1 Mældist 105 sm.
Laxá í Leir. 1 100 sm úr Miðfellsfljóti 6. sept.
Jökla 1 102 sm í byrjun ágúst.
Húseyjarkvísl 1 102 sm 13. ágúst í Réttarhyl.
Hítará 1 105 sentímetra, veiddur 6. sept.
Hrútafjarðará 1 102 sentímetrar. Bálkur í ágúst.
Listinn verður áfram uppfærður þegar tilefni verður til.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |