Einn sá allra stærsti úr Eyjafjarðará

Karl Olsen með sjóbirtinginn væna, Hann mældist 95 sentimetrar og …
Karl Olsen með sjóbirtinginn væna, Hann mældist 95 sentimetrar og tók lítinn sex gramma spinner. Ljósmynd/Aðsend

Einhver allra stærsti sjóbirtingur sem veiðst hefur í Eyjafjarðará kom á land um helgina. Þetta var 95 sentimetra fiskur og veiddist í hinum magnaða Munkaþverárhyl. Jón Gunnar Benjamínsson, stjórnarmaður í Veiðifélagi Eyjafjarðarár, staðfesti í samtali við Sporðaköst að þetta væri einn sá allra stærsti sem hann myndi eftir úr ánni.

Birtingurinn úr Munkaþverárhyl vigtar yfir tuttugu pund. Hann fékk hins vegar frelsi og mun án efa nýta það til að koma næstu kynslóð á kortið. Karl Olsen, kokkur á snurvoðarbátnum Hafrúnu HU, setti í fiskinn og landaði.

Þetta er engin smá sleggja. Þetta er einn stærsti sjóbirtingur …
Þetta er engin smá sleggja. Þetta er einn stærsti sjóbirtingur sem menn muna eftir úr Eyjafjarðará. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta var geggjuð viðureign. Þetta var á sex gramma spinner. Það var ógeðslega hvasst og ég var með mjög netta stöng. Ég var alla vega í tuttugu mínútur með hann og það var allt í keng allan tímann. Þessi fiskur er örugglega 22 til 23 pund. Það er pottþétt. Ég var hins vegar með silungapundara og setti á girnið og hann sló í botn. Það eru tíu kíló þannig að ég bókaði hann þannig,“ sagði Karl í samtali við Sporðaköst. Hann hefur aldrei áður veitt á svæði eitt í Eyjafjarðará. „Ég fór einu sinni á neðsta svæðið og varð mjög hrifinn. Svo vorum við í bústað núna í nágrenninu og þá sá ég að var laust á svæði eitt og stökk til. Ég landaði fjórum bleikjum og tveimur sjóbirtingum. En þetta var langstærsti fiskurinn.“

Það hefur vakið sérstaka athygli í sumar hversu mikill uppgangur sjóbirtingsins virðist vera og það um allt land. Við höfum sagt margar fréttir hér í sumar af tröllauknum sjóbirtingum og er Suðurlandið alls ekki eini landshlutinn þar sem þessir glæsilegu fiskar hafa verið að veiðast.

Það er enn opið í Eyjafjarðará og verður veitt þar til 10. þessa mánaðar. 

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert