Metbirtingur úr Tungufljóti

Þeir veiðast ekki margir sjóbirtingarnir í þessum stærðarflokki. Hann mældist …
Þeir veiðast ekki margir sjóbirtingarnir í þessum stærðarflokki. Hann mældist 100,5 sentímetrar og er sá stærsti í vor. Ljósmynd/Aðsend

Hann Brynjar Vignir Sigurjónsson veiddi sinn fyrsta fisk í Tungufljóti í dag. Lítið hafði gengið en á veiðistaðnum Flögubakka festi Brynjar skyndilega, eða það hélt hann. Eftir smá tog fór festan af stað. Þegar upp var staðið landaði hann 100,5 sentímetra sjóbirtingi.

Þetta er me fiskur á Íslandi í vor og þótt víðar væri leitað. Brynjar sem er sautján ára sagði: „Ertu að meina þetta?“ Þegar honum var bent á af Sporðaköstum að þetta væri eins stór sjóbirtingur og þeir stærstu sem veiðast bara yfir höfuð. Alger metfiskur. 

Brynjar Vignir með metbirtinginn. Veisla sagði hann.
Brynjar Vignir með metbirtinginn. Veisla sagði hann. Ljósmynd/Aðsend

„Já, ég hélt að það væri fast. Bara pikkfast. En svo fór hann af stað og hann var þungur. Var ekkert mikið að sprikla og stökkva en togaði bara og togaði. Ég var ekki nema tíu mínútur með fiskinn og þá fyrst sáum við hvað hann var stór. Þetta var veisla,“ sagði Brynjar afskaplega kátur í samtali við Sporðaköst.

Staðfest mæling. Sjálfur skrifar hann Bingo! 100,5. Þetta er svo …
Staðfest mæling. Sjálfur skrifar hann Bingo! 100,5. Þetta er svo sannarlega Bingo. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta var í morgun sennilega um klukkan tíu. Ég var bara stutt út í og kastið var ekki langt og hann tók grænan Nobbler eða einhverja útgáfu af honum. Sennilega er þetta Olive Nobbler. Þetta var geggjað.“

Flugan sem Stórfiskurinn tók. Til hamingju Brynjar Vignir með þennan …
Flugan sem Stórfiskurinn tók. Til hamingju Brynjar Vignir með þennan met fisk. Ljósmynd/Aðsend

Brynjar hefur veitt frá því að hann var smá gutti og er heltekinn af veiðidellu. Það er alveg ljóst hver á montréttinn í þessu holli í kvöld.

Leiðrétting: 

Veiðistaðurinn var nefndur Fagribakki í fréttinni en það hefur verið leiðrétt og staðurinn er Flögubakki. Það er ekki að undra að veiðimaður sem landar 100,5 sentímetra fiski telji Flögubakka fagrann.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert