„Mamma sleit úr stórfiski, mér að kenna“

Benedikt Andrason með glæsilegt eintak af urriða úr landi Kárastaða. …
Benedikt Andrason með glæsilegt eintak af urriða úr landi Kárastaða. Þessi mældist 75 sentimetrar og tók þá klassísku flugu Black Ghost á sökkenda. Ljósmynd/Aðsend

Kárastaðir í Þingvallavatni er eitt af þessum skemmtilegu svæðum á vorin. Benedikt Andrason var með stórfjölskylduna við veiðar þar í gær og settu þau í nokkra fiska og lönduðu einum.

„Þetta var fyrsti dagurinn sem ég upplifði við Þingvallavatn í ár, þar sem mér fannst komið sumar,“ sagði Benedikt í samtali við Sporðaköst seint í gærkvöldi eftir að veiðitíma var lokið.

„Þetta byrjaði með fjöri hjá okkur og við vorum að setja í fiska og missa. Fyrsti fiskurinn sem kom á land var 75 sentimetra vel haldinn urriði. Ég fékk hann í veiðistað sem heitir Rauðkusunes. Hann tók hefðbundinn Black Ghost á sökkenda. Ég hef svo mikla trú á Black Ghost að ég vil nota hana sem mest. Auðvitað erum við með nokkur afbrigði af þessari flugu en hún er bara svo sterk í urriða.“

Svona leit Þingvallavatn út í gærkvöldi. Spegilslétt í sumarblíðu. Ekki …
Svona leit Þingvallavatn út í gærkvöldi. Spegilslétt í sumarblíðu. Ekki bestu aðstæður til veiða. Ljósmynd/Aðsend

Vatnið var spegilslétt í gærkvöldi og kannski ekki besta veður til veiða en fjölskyldan naut blíðunnar. Þegar nokkuð var liðið á dag varð Benedikt uppiskroppa með taumefni. „Ég er að nota þarna tuttugu punda plús taum. Ég var hins vegar búinn með það og setti undir tólf punda taum hjá mömmu eftir að hún hafði slitið í botni. Fljótlega tók hjá henni svaka fiskur og hann sleit þennan taum eins og tvinna. Þetta var mér að kenna,“ hlær Benedikt.

Hann segir botninn erfiðan þarna eins og víðar í Þingvallavatni ef þú ert að veiða djúpt. „Það er ástæðan fyrir því að ég nota sterka tauma. Vil frekar rétta aðeins út króknum og lagfæra hann svo heldur en að vera skilja þessar flugur eftir á botninum.“

Hann var búinn að festa Black Ghostinn tvisvar og rétta upp krókinn, áður en fyrsti fiskurinn tók. „Ég var búinn að laga krókinn tvisvar með töng og í annað skiptið beygði ég niður agnhaldið og  mundi eftir því þegar ég var að slást við hann. Úff, ég hugsaði bara með mér, þetta verður spennandi.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert