Með laxahaus en sjóbirtingssporð

Magnús með sjóbirting eða mögulega laxbirting. Hausinn er miklu líkari …
Magnús með sjóbirting eða mögulega laxbirting. Hausinn er miklu líkari laxi en sporðurinn er dæmigerður fyrir sjóbirting. Ljósmynd/Aðsend

Þessi líka glæsilegi sjóbirtingur veiddist í veiðistaðnum Gullkistu í Eldvatni í gær. Það sem vekur sérstaka athygli er að hann er með fullkomið sjóbirtingslag á búk og sporð en hausinn er miklu líkari laxi.

Magnús Ásmundsson veiddi þennan fisk og mældist hann 87 sentímetra langur. „Hann tók eins og lax og hegðaði sér miklu frekar eins og lax og ég hélt ég væri með lax. En þetta er örugglega birtingur þó að hausinn á honum sé mjög stór og laxalegur,“ sagði Magnús Ásmundsson í samtali við Sporðaköst. Hann var nýbúinn að landa 83 sentímetra birtingi á Sandeyrinni þannig að hann fékk samanburðinn alveg í æð.

Frá löndun í Gullkistu. Þetta er sennilega ófrjór laxbirtingur.
Frá löndun í Gullkistu. Þetta er sennilega ófrjór laxbirtingur. Ljósmynd/Aðsend

Þekkt er að laxar og sjóbirtingar geta æxlast en þá er alltaf um að ræða ókynþroska fisk að sögn Guðna Guðbergssonar sviðstjóra hjá Hafrannsóknastofnun. Sporðaköst sendu honum myndina til skoðunar. Hann svaraði um hæl:

„Varðandi fiskinn á myndinni er klárt að afturhlutinn er klár sjóbirtingur. Fremri hlutinn er laxalegur,“ sagði Guðni. Hann vildi ekki kveða upp dóm í málinu og benti á að hreistursýni væri besta leiðin. Ekki var tekið slíkt sýni af þessum fiski en ástæða er til að hvetja menn til að gera það komi upp grunur um laxbirting, eins og þessir blendingar eru kallaðir.

Hér sést goggurinn vel á hængnum og litbrigðin á haus …
Hér sést goggurinn vel á hængnum og litbrigðin á haus og búk eru afar mikil. Ljósmynd/Aðsend

„Það eru til blendingar laxa og sjóbirtings. Getur verið allt að 6% samkvæmt erlendum rannsóknum. Við seiðamælingar t.d. í Geirlandsá þar sem er bæði lax og sjóbirtingur, koma seiði sem eru klárir sjóbirtingar og annar hópur sem er klár lax. Þriðji hópurinn sem er reyndar lítill hefur ekki skýr tegundareinkenni og því mögulega um blendinga að ræða,“ sagði Guðni Guðbergsson.

Magnús veiðimaður var í skýjunum með þessa veiði. „Þessi 83ja sentímetra var minn stærsti fiskur og svo kom þessi í Gullkistunni og ég var varla búinn að ná úr mér hrollinum,“ sagði kátur veiðimaður á heimleið.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert