Sá stærsti úr Blöndu í sumar

Nigel Hawkins með hænginn myndarlega sem mældist 105 sentímetrar. Róbert …
Nigel Hawkins með hænginn myndarlega sem mældist 105 sentímetrar. Róbert Haraldsson leiðsögumaður sáttur við morgunverkin. Ljósmynd/Aðsend

Stærsti fiskur sumarsins í Blöndu veiddist í morgun á Breiðunni að norðanverðu. Það var breski veiðimaðurinn Nigel Hawkins sem setti í þennan risa hæng og landaði honum eftir ævintýralega baráttu. Leiðsögumaður Nigels var Róbert Haraldsson.

Fiskurinn mældist 105 sentímetrar en áður hafði veiðst 101 sentímetra hrygna í Blöndu. Fiskurinn tók rauða Frances þyngda.

Hængurinn fékk frelsið á ný eftir myndatöku.
Hængurinn fékk frelsið á ný eftir myndatöku. Ljósmynd/Aðsend

Í þrígang fór laxinn niður flúðirnar fyrir neðan Breiðuna en náðist ávallt upp aftur en bardaginn var langur og strangur. Veiðin í Blöndu er að glæðast að sögn Erik Koberling staðarhaldara.

Þetta er ekki bara stærsti laxinn úr Blöndu í sumar, heldur einnig sá stærsti sem veiðst hefur á Norðvesturlandi og einungis 107 sentímetra hængurinn af Nesveiðum er stærri. Sá mældist 107 sentímetrar.

Nigel og Alex spilandi kátir eftir ævintýri morgunsins. Sashimi er …
Nigel og Alex spilandi kátir eftir ævintýri morgunsins. Sashimi er við hæfi. Ljósmynd/Aðsend

Það var svo haldið upp á þennan risa fisk með tilheyrandi hætti. Nigel skellti sér í heita pottinn með félaga sínum Alex Rutherford. Þar var borið fram sashimi sem gert var úr smálaxi sem veiddist daginn áður. Eins og myndin ber með sér er gleðin við völd eftir að hafa landað stærsta laxi árinnar í sumar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert