Góðar laxagöngur í Sogið

Cezary og félagi hans voru með tvíhendur, enda Sogið mikið …
Cezary og félagi hans voru með tvíhendur, enda Sogið mikið fljót. Hér er hann búinn að setja í kröftugan lax. Ljósmynd/Aðsend

Sogið hefur verið að skila góðri veiði síðustu daga. Hörkuveiði var í Alviðru í gær og hefur Ásgarðssvæðið einnig verið að gefa góða veiði. Þrastalundarsvæðið er einnig að skila sínu og þar kom 102 sentímetra maríulax í gær, eins og við greindum frá.

Bíldfellssvæðið sem er á móti Ásgarði hefur ekki enn sem komið er verið að gefa mikla veiði, en afar líklegt er að það breytist með þeim göngum sem nú eru að skila sér.

Cezary með einn ný genginn fisk. Þeir voru að veiða …
Cezary með einn ný genginn fisk. Þeir voru að veiða lúsuga fiska sem voru að mæta. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsti laxinn sást í Soginu snemma í júní. Hann sást stökkva á veiðistaðnum Ystu nöf. Það er því ljóst að hann mætti snemma í Sogið í vor. Hins vegar er það nú að göngurnar eru að aukast. Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi fyrir aðdáendur Sogsins en áin tók nokkra dýfu en þar er vonandi að verða breyting á.

Þá hefur bleikjan í Soginu einnig verið að veiðast í töluverðu magni. Þannig landaði veiðimaður í Ásgarði átján bleikjum á seinniparti, fyrir tveimur dögum.

Þeir félagar eru öflugir veiðimenn, en þeir lýstu svæðinu þannig …
Þeir félagar eru öflugir veiðimenn, en þeir lýstu svæðinu þannig að þar hefði verið mikið af laxi og vænum fiski. Ljósmynd/Aðsend

Cezary Fijalkowski og félagi hans Michal Osby gerðu góða veiði í Alviðru í Sogi í gær. Á fabooksíðu sinni skrifar Cezary, „Áin er stútfull af stórum og fallegum villtum fiski. Það var eins og að koma aftur til fortíðar.“

Vonandi er Sogið aftur komið til að vera enda var áin þekkt fyrir öflugan stórlaxastofn.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert