Sunray yfirburðafluga í Vopnafirði

Franskur veiðimaður með stórlax úr Hofsá. Þessi veiddist í fyrradag …
Franskur veiðimaður með stórlax úr Hofsá. Þessi veiddist í fyrradag og mældist 87 sentímetrar. Verulegar líkur er á að hann hafi tekið Sunray. Fiskurinn tók í Þvottalækjarhyl en var ekki landað fyrr en á Nesbreiðu. Ljósmynd/Aðsend

Sunray Shadow er yfirburðafluga í Vopnafjarðaránum í vor. Raunar á það við í fleiri ám, eins og í Miðfjarðará, en sérstaklega er þetta áberandi í Vopnafirði. Í Selá hafa 96 laxar af 213 tekið Sunray, eða Skugga sem er útgáfa Sigga Haugs af þessari þekktu flugu. Stundum er hún einnig bókuð í veiðibækur sem einfaldlega SRS sem er ekkert annað en skammtstöfun. 

Í Hofsá í sama firði hafa 75 af 224 löxum tekur Sunray eða Skugga. Miðfjarðará sem er í Bakkafirði er með svipað hlutfall eða 23 af 64 löxum, sem eru bókaðir á annað hvort Sunray Shadow eða Skugga. Samtals hafa þessar þrjár ár gefið 501 lax og hafa 194 þeirra verið bókaðir á Sunray, SRS eða Skugga. Það er býsna hátt hlutfall.

Erlendur veiðimaður búinn að setja í lax rétt neðan við …
Erlendur veiðimaður búinn að setja í lax rétt neðan við Narra í Selá. Hátt í helmingslíkur eru á því að þessi lax hafi tekið Sunray. Menn hafa mikla trú á þeirri flugu og hún er að gefa. Ljósmynd/Aðsend

Þetta er ótrúlega hátt hlutfall en Sunray er þekkt fyrir að vera öflug í vorfiski og margir veiðimenn nota hana til að leita að fiski. Oftar en ekki tekur hann Sunray en gott ráð er að kasta ekki aftur á fisk sem ólgar á Sunray, heldur taka eitt tvö skref til baka og setja undir smáflugu. Oftar en ekki neglir hana. Nú ef menn vilja kasta aftur getur verið árangursríkt að láta fluguna reka án þess að strippa hana og passa bara að rétta strax úr tauminum.

Bæði Hofsá og Selá hafa skilað 99 sentímetra fiskum og sýnir það vel að málbandið í Vopnafirði er að virka vel. Sama má segja um Miðfjarðará í Miðfirði en þar er stærsti laxinn líka 99 sentímetrar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert