Tekist á við stórlaxa Noregs

Nils með þrjátíu pundara úr Lakselva. Veiðifélagi hans landaði fjörutíu …
Nils með þrjátíu pundara úr Lakselva. Veiðifélagi hans landaði fjörutíu punda fiski. Þessi sem Nils er með var grálúsugur. Ljósmynd/Aðsend

Margir íslenskir veiðimenn eiga sér þann draum að prófa veiði erlendis. Margir hafa látið þennan draum rætast, en aðrir gæla enn við hugsunina. Stórlaxahvíslarinn Nils Folmer Jörgensen er við veiðar í einni af laxveiðiperlum Noregs. Það er áin Lakselva og á svæðið er kennt við Olderö. Sporðaköst slógu á þráðinn til Noregs og forvitnuðust um hvernig veiðin gengi þar.

Lakselva er töluvert minna vatnsfall en Alta og auveldlega veidd …
Lakselva er töluvert minna vatnsfall en Alta og auveldlega veidd með 12 til 13 feta stöngum. Ljósmynd/Nils Folmer

„Ég er svo feginn að vera loksins kominn. Í tvígang hef ég lent í frestun. Bæði vegna flóða og einnig vegna Covid-19. En loksins gekk þetta upp. Þegar við hófum veiðar voru skilyrði afar góð. Nýlega hafði rignt og áin vaxið hressilega í vatni. Framundan var svo þurrkatíð,“ sagði Nils í símtali við Sporðaköst.

Svona skilyrði eru ávísun á veiði og strax fyrsta kvöldið landaði hann tveimur löxum. Annar vigtaði þrjátíu pund og var lúsugur. Fjörið hélt áfram og morguninn eftir landaði hann tveimur löxum og sá stærri var 25 pund. 

Veiðihúsið við Olderö er hið huggulegasta og veiðimenn geta slakað …
Veiðihúsið við Olderö er hið huggulegasta og veiðimenn geta slakað á að veiðidegi loknum. Ljósmynd/Nils Folmer

„Eftir þriggja daga veiði var ég búinn að landa sex löxum og það var vonum framar því Noregur er ekki þekktur fyrir magnveiði, miklu frekar eru það þeir stóru sem daga veiðimenn hingað. Og veiðifélagi minn Dan fékk svo sannarlega að handleika eitt slíkt eintak, en hann landaði fjörutíu punda laxi.“

Nils hefur verið að taka þessa fiska á Sunray afbrigði og fluguna Metallicu sem hann hannaði.

Olderö eru einkasvæði í ánni Lakselva. Hún er ekki langt frá hinni nafntoguðu Alta og einnig þekkt fyrir stóra laxa. Það sem Nils finnst sérstaklega ánægjulegt við Olderö svæðið er að fyrirkomulag veiðanna er svipað og á Íslandi. Tvær veiðivaktir á dag og fullt fæði í veiðihúsinu. Þar sem Lakselva er mun minni á en Alta segir Nils þægilegt að veiða hana með tólf til þrettán feta stöngum. Á svæðinu eru einungis sex stangir og því rúmt um veiðimenn.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert