Hið fullkomna eintak af birtingi

Magnaður sjóbirtingur. Kristján Páll mældi þennan 93 sentímetra. Veiðistaðurinn er …
Magnaður sjóbirtingur. Kristján Páll mældi þennan 93 sentímetra. Veiðistaðurinn er Syðri-Hólmi í Tungufljóti. Ljósmynd/Aðsend

Sjóbirtingsveiðin er nú stigvaxandi enda besti tíminn að bresta á. Kristján Páll Rafnsson, einn af leigutökum Tungufljóts í Vestur-Skaftafellssýslu, setti í morgun í magnaðan birting í veiðistaðnum Syðri-Hólma.

„Þetta er bara fullkomið eintak af birtingi,“ sagði hann eftir að hafa landað 93 sentímetra sjóbirtingi. „Þessi var bara einhvern veginn svo fullkominn. Ummálið mældi ég ekki en náði engan veginn utan um stirtluna á honum. Það er mikið af 75 og upp í 85 sentímetra fiski á ferðinni en þegar þú lendir í þessari stærð er það bara allt annar leikur. Þeir eru svo sterkir og berjast af svo miklum krafti,“ sagði hróðugur Kristján í samtali við Sporðaköst.

Glænýr birtingur. Þessi fékkst líka í Syðri-Hólma. Veiðimaður er Brynjar …
Glænýr birtingur. Þessi fékkst líka í Syðri-Hólma. Veiðimaður er Brynjar Arnarsson. Ljósmynd/Aðsend

Hann missti annan aðeins minni á sama stað eftir mikil læti.

Hollið er komið með 31 fisk. Eins og gefur að skilja er uppistaðan í aflanum sjóbirtingur en líka lax í bland. Samtals hafa veiðst um 270 birtingar í Tungufljóti í ár, með vorveiðinni. Stærsti fiskurinn til þessa mældist 100,5 sentímetrar en það var vorfiskur og var greint frá þeim metfiski hér á síðunni og birt myndband með viðureigninni.

Sindri Hlíðar Jónsson með 80 sentímetra birting frá í morgun. …
Sindri Hlíðar Jónsson með 80 sentímetra birting frá í morgun. Sami veiðistaður. Ljósmynd/Aðsend

Fiskurinn sem Kristján Páll veiddi er tuttugu pund plús, enda virkilega þykkur og ekki búinn að vera lengi í ánni.

Almættinu þakkað, fyrir þennan 93 sentímetra fisk.
Almættinu þakkað, fyrir þennan 93 sentímetra fisk. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert