Þetta er stór spurning, en margir spyrja sig einmitt þessarar spurningar eftir tvö erfið sumur í laxveiði á Íslandi. Auðvitað voru undantekningar en heilu landssvæðin voru ekki að skila þeirri veiði sem búist var við, bæði af fiskifræðingum og reynsluboltum.
Nú klukkan 17:30 mun mbl.is streyma klukkustundarlöngu spjalli um stöðuna. Fyrst verða þrír frummælendur sem hver um sig fer yfir stöðuna á fimm mínútum. Fyrstur Guðni Guðbergsson sviðsstjóri ferskvatnssviðs hjá Hafró. Því næst er það framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga, Elías Blöndal Guðjónsson og loks Páll Magnússon alþingismaður sem fulltrúi hins almenna veiðimanns.
Eftir framsögurnar verða pallborðsumræður. Þar verður leitast við að svara spurningunni. Hvað er að gerast í laxveiði á Íslandi? Þátttakendur í umræðunum eru Bjarni Júlíusson, Einar Páll Garðarsson, Árni Baldursson og Arthúr Bogason. Allir eru þeir reynsluboltar í stangaveiði til áratuga.
Fundarstjóri er Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og veiðiblaðamaður. Eggert Skúlason stjórnar pallborðsumræðunum.
Mbl.is og Sporðaköst standa saman að fundinum í samstarfi við Veiðihornið í Síðumúla og verður efnið aðgengilegt á síðu Sporðakasta eftir að útsendingu lýkur.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |