Það þykir varla fréttnæmt að veiða marga og stóra urriða á ION-svæðinu í Þingvallavatni. En þegar sextíu sentímetra bleikja veiðist á litla púpu fyrri hluta aprílmánaðar er það áhugavert.
Stefán Sigurðsson var ásamt veiðifélögum við veiðar í vetrarríkinu á ION í gær. „Já, ég fékk þarna þessa líka hlussubleikju. Það kemur svo sem alveg fyrir að maður setur í eina og eina bleikju snemma veiðitímans, en þær eru þá litlar. Ég man ekki eftir svona gamalli bleikju á þessum tíma,“ sagði Stefán í samtali við Sporðaköst.
Bleikjan tók litla púpu sem heitir Duracell. „Hrafn Hauksson sendi mér uppskriftina í vetur. Ég hef ekki prófað hana áður. Þetta gerðist þannig að ég sá fisk á hreyfingu nokkuð frá mér. Ég kastaði nálægt staðnum og beið góða stund áður en ég dró inn með snöggum en afar stuttum hreyfingum. Hún negldi þetta. Ég varð hissa að sjá þessa stóru bleikju sem var sextíu sentímetrar.“
En það var fleira sem gladdi ískalda veiðimenn. Einn veiðifélaginn, Ævar Sveinsson, mætti með brauðtertu. „Hann fékk bara hundrað rokk stig fyrir þetta. Hún stóð svo sannarlega með manni og ég gæti alveg hugsað mér að taka svona tertu með mér í hverjum túr,“ hló Stefán.
En þetta er búið að taka á í þessu veðri, ekki satt?
„Heldur betur. Ég er búinn að taka þrjá svona duglega daga í þessum aðstæðum og maður er bara eins og eftir maraþonhlaup. Maður er þurr í munni og bara hugsar varla heila hugsun. Já, þetta er búið að vera mjög erfitt síðustu dagana,“ sagði Stefán. Hann viðurkenndi að svona væri þetta í byrjun tímans - þú getur verið í draumaaðstæðum eða bara hreinlega orðið úti sökum veðurs.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |