Saga úr frostinu – 56 fiskar á tíu tímum

Tveir gaddfreðnir. Jóhann Birgisson með góðan birting úr Vatnamótunum.
Tveir gaddfreðnir. Jóhann Birgisson með góðan birting úr Vatnamótunum. Ljósmynd/HG

Veiði í Vatnamótunum hefur verið virkilega góð í apríl, þegar aðstæður hafa verið í lagi. Sporðaköst hafa heyrt frá nokkrum veiðimönnum sem hafa lent í moki. Þeir félagar og laxveiðileiðsögumenn Jóhann Birgisson og Helgi Guðbrandsson voru við veiðar um páskana og eins og flestir veiðimenn muna var ríkjandi kuldakast þá daga.

„Þann tíma sem við náðum að veiða var bara fín veiði, bæði uppi við efra bílastæði og niðri við bakkann,“ sagði Helgi Guðbrandsson í samtali við Sporðaköst. Hann upplýsti að Blue Ghost, Black Ghost og Rektor hefðu gefið best. Hann þurfti að hugsa sig um þegar hann var spurður um fjölda fiska sem hann hefði fengið. „Sennilega voru þeir 23.“

Það var hvasst og hitastigið fór niður í mínus fjórar. …
Það var hvasst og hitastigið fór niður í mínus fjórar. Samt veiddu þeir vel þann tíma sem hægt var að standa í þessu. Ljósmynd/HG

Jóhann Birgisson landaði 22 sjóbirtingum. „Þetta voru ýmist geldfiskur og stærri birtingar í bland. Veðrið var samt þannig að á endanum gáfumst við upp. Ég var mest hræddur um að brjóta veiðijakkann þegar ég var að fara úr honum. Hann var beinfrosinn.“ Jóhann sagði svipaða sögu um flugur sem virkuðu. Black Ghost og Rektor gáfu honum flesta fiska.

Eftir kuldakaflann tóku við leysingar og Vatnamótin urðu kakólituð. Veiðimenn sem mættu til leiks þegar vatn var sjatnandi gerðu mikla veiði og hafa Sporðaköst staðfest dæmi um 26 á eina stöng á tveimur dögum.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert