Helluvatn að gefa á þurrflugur og púpur

Marteinn Már Jakobsson með fallegan urriða úr Helluvatni. Hann er …
Marteinn Már Jakobsson með fallegan urriða úr Helluvatni. Hann er búinn að landa fimm á síðustu dögum og missa nokkra. Fengið tvo á þurrflugu og hina á smáar púpur. Ljósmynd/Aðsend

Þeir sem hafa verið að stunda Elliðavatn og Helluvatn í borgarlandinu hafa sumir hverjir lent í ágætri veiði. Einn þeirra er Marteinn Már Jakobsson. Hann hefur verið að setja í urriða í Helluvatni og í dag landaði hann tveimur flottum urriðum og annar tók þurrflugu númer 16.

„Ég er búinn að fara síðustu þrjá daga. Veðrið er búið að vera svo frábært. Ég hef verið að koma um hádegi, þegar heitasti tíminn er að renna upp. Í dag fékk ég þessa tvo milli tólf og tvö. Annar tók þurrflugu, Black Gnat númer sextán. Frá því á mánudag hef ég landað fimm flottum urriðum og misst nokkra,“ sagði Marteinn í samtali við Sporðaköst.

Virkilega fallegur fiskur úr Helluvatni.
Virkilega fallegur fiskur úr Helluvatni. Ljósmynd/Aðsend

Smáar púpur hafa líka verið að gefa honum veiði. Pheasant Tail, og Peacock. Svo notar hann gjarnan Burton-púpu í dropper.

„Það er að kvikna líf í vatninu. Ég var að sjá uppítökur rétt við land. Ég fékk líka einn flottan á Gray Wulf-þurrflugu. Það er svo sturlað að nota þurrfluguna í Helluvatni og vá hvað er gaman að þetta sé aftur byrjað,“ sagði afar ánægður veiðimaður. 

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert