Bakkað um 60 ár í Laxá í Aðaldal

Veiðimaður á Breiðunni neðan við Æðarfossa í Laxá í Aðaldal. …
Veiðimaður á Breiðunni neðan við Æðarfossa í Laxá í Aðaldal. Í fyrsta skipti í sextíu ár verður nú hægt að veiða alla ána í einum og sama túrnum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Eitt mest spennandi veiðisvæði sumarsins er án efa Laxá í Aðaldal. Þar verða gerðar umfangsmiklar breytingar. Stöngum er fækkað í tólf talsins og áin öll fer í sameiginlega skiptingu fyrir utan jarðirnar Jarlsstaði og Árbót.

Fara þarf aftur til ársins 1960 til að finna sambærilega skiptingu, því eftir það fór hluti af Nessvæðinu í sérskiptingu. Nú veiða veiðimenn Laxá frá Laxhólma, ofan Óseyrar og niður á Hyl fyrir neðan Æðarfossa.

Lilla Rowcliffe og Árni Pétur Hilmarsson fylgdarmaður hennar á Nessvæðinu …
Lilla Rowcliffe og Árni Pétur Hilmarsson fylgdarmaður hennar á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal, með fallega hrygnu sem hún veiddi á Lönguflúð á lognkyrru ágústkvöldi. Nessvæðið sem er eitt mesta stórlaxasvæði landsins er nú komið inn í heildarskiptingu í Laxá. Einar Falur Ingólfsson

„Já þetta er mjög spennandi. Á sama tíma er þetta líka mikil áskorun, að reka tvö veiðihús og einhvern veginn að reyna að vera alls staðar og meiri yfirferð og allt það. En ég held að verði miklu skemmtilegra að bæði veiða og leiðseigja. Menn eru að fara yfir svo miklu meira vatn og möguleikar á hverju svæði eru svo margir. Þetta sumar er svona prufa og það verður gaman að sjá hverju þetta breytir,“ sagði Árni Pétur Hilmarsson í samtali við Sporðaköst.

Eitt af því sem Árni Pétur bendir á, er að þetta geti einfaldlega leitt til meiri veiði. Stórir staðir sem aldrei fá hvíld allt sumarið, munu nú af og til fá frið. „Þetta eru einfaldlega svo margir staðir sem um er að velja að veiðimenn komast aldrei yfir alla veiðistaði á vaktinni. Þá eru þessir lykilstaðir af og til hvíldir og það eykur líkur þeirra sem á eftir koma.“

Jón Helgi Björnsson, frá Laxamýri með lax úr Kistukvísl í …
Jón Helgi Björnsson, frá Laxamýri með lax úr Kistukvísl í Laxá í Aðaldal. mbl.is/Ingibjörg Sigurjónsdóttir

Ánni verður skipt í sex tveggja stanga svæði og því ljóst að menn hafa mikið vatn að veiða. En það er fleira sem vekur athygli. Bæði veiðihúsin, Vökuholt og húsið í Nesi verða rekin samhliða í sumar.

„Við erum að leggja mikið á okkur til að tryggja gæði í þjónustu og viðhalda því að hópar geti átt sömu möguleika og voru áður. Við vorum ekki tilbúnir að gera bara Vökuholt að tólf stanga hóteli, þó að þar séu tólf herbergi og pláss fyrir alla. Stærsti hluti okkar viðskiptavina eru vinahópar sem hafa haldið tryggð við okkur lengi og það eru hópar sem vilja geta verið út af fyrir sig. Þetta er meiri kostnaður fyrir okkur, en við teljum þetta einu réttu leiðina til að geta haldið áfram að selja þessu einstöku lífsreynslu að veiða Laxá og vera prívat.“

Jóhann Hafnfjörð Rafnsson með 104 sentímetra fisk úr Laxá í …
Jóhann Hafnfjörð Rafnsson með 104 sentímetra fisk úr Laxá í Aðaldal. Hann veiddist á stórlaxasvæðinu í Nesi og veiðistaðurinn heitir Beygjan. Ljósmynd/Aðsend

Ef um er að ræða tvískiptan hóp, sem nýtir bæði veiðihúsin geta veiðimenn samt séð hvað er gerast hjá hinum stöngunum. Laxá gerist aðili að Angling iQ, rafrænu veiðibókinni. iPad verður í báðum húsum og veiði skráð samdægurs þannig að hægt verður að sjá hvað er að gerast í allri ánni.

Eitt af því sem hefur verið áhyggjuefni í Laxá í Aðaldal eins og víða annars staðar er minnkandi veiði. Árni Pétur bendir þó á að meðaltal síðustu tíu ára fyrir Laxá er um 900 fiskar. Og eins og hann bendir á, ef við erum að ná um þúsund laxa veiði á tólf stangir þá er það eitthvað sem menn yrðu mjög sáttir við.

„Við sjáum líka þann kost að hvenær sumars sem menn koma þá er alltaf eitthvað svæði inni og stundum fleiri. Menn fara alla ána á sex vöktum. Auðvitað færist veiðin til og margir hafa á því skoðanir að við eigum að breyta svæðum eftir því sem líður á veiðitímann. Við erum líka að læra og það verður mjög forvitnilegt að sjá hvernig þessu vindur fram. Ef við sjáum skynsemina í því þá munum við gera það eftir þetta sumar.“

Er byrjað að vora. „Nei, það er ekki þannig. Það snjóar hér annan hvern dag, en það á nú eitthvað að hlýna um helgina. Vonum að það gangi eftir.“

Enn er góður tími til stefnu því Laxá í Aðaldal opnar 20. júní og þá verður komið sumar fyrir norðan, allavega vor.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert