Áfram gott í Urriðafossi í Þjórsá

Ingvar með tvo stórlaxa. Í Þjórsá má drepa fiska, en …
Ingvar með tvo stórlaxa. Í Þjórsá má drepa fiska, en þó er kvóti á stöng og þetta er herramanns matur. Ljósmynd/aðsend

Dagur tvö í Urriðafossi. Fimmtán löxum var landað og margir misstir. Oft er það sem opnunardagur tekur hrollinn úr svæðum, en því var ekki að heilsa í Þjórsá í dag. Ingvar Stefánsson og félagar áttu frábæran dag. Ingvar hafði á orði við Sporðaköst að hann hefði aldrei áður séð svona þykka og þétta laxa eins og þeir voru að landa í dag. Er það í takt við það sem opnunarhollið var að upplifa.

Sigurður Arnar Jónsson með stórlaxa úr Urriðafossi í dag.
Sigurður Arnar Jónsson með stórlaxa úr Urriðafossi í dag. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta var reytingur allan daginn. Það komu hlé inn á milli en svo var eins og kæmu göngur inn. Reyndar var bara einn lax lúsugur en þeir voru allir glænýir. Hreisturlos var mikið og af þessum fimmtán voru fimm hængar. Lengdin var á bilinu 76 sentímetrar til 87 og voru hængarnir stærstir,“ sagði Ingvar á heimleið eftir flottan veiðidag í Urriðafossi.

Feðgarnir Jón Guðbjörnsson og Sigurður Arnar á hafnum, landa stórlaxi …
Feðgarnir Jón Guðbjörnsson og Sigurður Arnar á hafnum, landa stórlaxi í Huldu í dag. Ljósmynd/Aðsend

Þeir félagar misstu marga fiska og það var alltaf eitthvað að gerast. „Ég hafði á tilfinningunni að það væri ekki neitt rosalega mikið af fiski, en eins og ég heyrði frá Stefáni leigutaka í gær, þá voru alltaf að koma inn fiskar.“

Þeir félagar tóku kvótann og var allur fiskurinn veiddur á maðk, eins og algengast er í Urriðafossi. Þeir voru býsna ánægðir með lífið og tilveruna á heimleið í samtali við Sporðaköst.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert