Einar Sigfússon hættir með Norðurá

Vel fór á með Guðrúnu formanni Veiðifélagsins og Einari í …
Vel fór á með Guðrúnu formanni Veiðifélagsins og Einari í morgun þegar veiði hófst í Norðurá. Ljósmynd/Einar Falur

„Einar Sigfússon hefur sagt upp samningi sínum við okkur og verður bara fram á haustið. Þar með lýkur hans aðkomu að ánni. Það var samþykkt á aðalfundi félagsins í gær að leita eftir nýjum aðila til að vinna með okkur á svipuðum nótum og Einar hefur verið að gera,“ sagði Guðrún Sigurjónsdóttir, formaður Veiðifélags Norðurár í samtali við Sporðaköst í morgun.

Guðrún var viðstödd opnun Norðurár í morgun og var afskaplega ánægð með hvernig veiðin byrjaði.

Samningur Einars við veiðifélagið rennur út í haust, en í samningnum er framlengingarákvæði sem Einar ákvað að notfæra sér ekki. „Ég held að hann sé nú að fara að njóta lífsins meira og sinna áhugamálum,“ hló Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í Norðurárdal.

Samstarfið gekk með ágætum og nú verður leitað að arftaka …
Samstarfið gekk með ágætum og nú verður leitað að arftaka Einars Sigfússonar til að vinna með veiðifélaginu á svipuðum nótum, eftir þessu sumri lýkur. Ljósmynd/Einar Falur

Hún sagði að Veiðifélag Norðurár myndi ekki auglýsa með beinum hætti eftir nýjum samstarfsaðila. „Við munum heyra í aðilum sem eru að sinna verkefnum af svipuðum toga og svo er þetta fljótt að berast út og væntanlega hafa einhverjir samband við okkur. Við ætlum að gefa okkur smá tíma til að finna rétta samstarfsaðila."

Einar Sigfússon hefur annast rekstur og sölu veiðileyfa í Norðurá í átta ár. Ljóst er að landeigendum fellur vel umboðssölu fyrirkomulagið og verður leitað að nýjum „Einari" í sumar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert