Stóra-Laxá státar af bestu opnuninni

Baldur Magnússon, betur þekktur sem
Baldur Magnússon, betur þekktur sem "Muraren" tekst á við lax í opnun í Stóru. Samtals veiddust 27 laxar sem er ein besta opnun sem menn muna eftir á svæði I og II. Ljósmynd/SMG

Stóra-Laxá í Hreppum státar af bestu opnun laxveiðiáa í sumar. Opnun á svæði fjögur og eitt og tvö skilaði samtals 45 löxum í bók. Harðsvírað veiðigengi opnaði þessi svæði með Árna Baldursson leigutaka í broddi fylkingar.

Fyrst var svæði fjögur opnað, en það er efsta veiðisvæði árinnar. Samtals var þar landað átján löxum og voru smálaxar og lúsugir í bland.

Svæði I og II var opnað í beinu framhaldi og eftir tvo og hálfan dag, sem er lengd opnunarhollsins, var búið að landa 27 löxum. Fiskar fengust um allt svæðið og er þetta afar góð opnun í Stóru-Laxá. Í fyrra var opnunin á neðstu svæðunum með 25 laxa og þótti mjög gott. 

Svæði III verður nú opnað í framhaldinu en það er tveggja stanga svæði og gefur iðulega fæsta laxa, en miðað við þessa stöðu er aldrei að vita hvað þriðja svæðið hefur að geyma.

Eins og væntanlega marga veiðimenn rekur minni til var stórlaxaveisla í lok tímabils í Stóru í fyrra og þessi veiði núna bendir til þess að fram undan geti verið áhugavert sumar í Hreppunum.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert