Hnúðlaxinn umhverfisslys í Noregi

Sjálfboðaliðar háfa hnúðlax úr laxastiga í ánni Jakobselva. Á einni …
Sjálfboðaliðar háfa hnúðlax úr laxastiga í ánni Jakobselva. Á einni viku háfuðu þau 3600 hnúðlaxa, bara í þeirri á. Norðmenn líta þetta mjög alvarlegum augum og óttasta að vandinn eigi bara eftir að aukast. Ljósmynd/Hanne Wilhelms/NRK

Ótrúlegt magn af hnúðlaxi hefur gengið í margar laxveiðiár í Norður-Noregi síðustu daga og vikur. Norðmenn hafa af þessu miklar áhyggjur og tala um teppalagðar ár og umhverfisslys. Dæmi eru um að háfaðir hafi verið 3600 hnúðlaxar úr einni og sömu ánni á nokkrum dögum.

Fjöldi sjálfboðaliða vinnur nú hörðum höndum að því að fanga fiskinn og farga honum. Til þess eru notuð öll tiltæk ráð. Dregið er á með netum og laxastigum lokað og hnúðlaxinn háfaður upp úr þrepunum. Fjöldi myndbanda hefur verið birtur af þessum aðferðum, meðal annars á heimasíðu norska ríkissjónvarpsins NRK.

Forsvarsmenn í sveitarstjórnum, umhverfismálum og veiðifélögum hafa af þessu miklar áhyggjur. Eins og er heldur hnúðlaxinn sig mest í ám í Norður-Noregi en þeirra hefur líka orðið vart miklu sunnar og alveg inn í Oslóarfjörð. Talsmenn stangaveiðimanna segja þetta alvarlegasta hætta sem steðji nú að öllum norskum laxveiðiám og þetta mál snúist um að bjarga villta norska laxinum.

Opinberir aðilar hafa lýst því yfir að fjármagn verði fundið til að styðja við baráttuna gegn „rússalaxinum,“ eins og margir Norðmenn kalla hann.

Fyrst sást hnúðlaxinn í töluverðu mæli í norskum ám, árið 2017. Lífsferill hans er tvö ár og mikil aukning varð árið 2019 en árið í ár er fordæmalaust og hefur orðið alger sprenging í fjölda þessara fiska. Óttast er að toppurinn verði enn stærri árið 2023.

Hnúðlaxinn drepst eftir hrygningu og rotnar þá í ánni. Ekki er vitað hvaða áhrif það getur haft á aðrar tegundir ef mikið magn rotnandi fiska er í sama hylnum, en víst er að það er ekki fögur sjón.

Hér á landi hefur verið umtalsverð aukning í hnúðlaxi. Fyrst árið 2017, en þá veiddust nokkrir tugir af honum í íslenskum ám. Mikil aukning varð svo árið 2019 en þá voru skráðir um 230 hnúðlaxar, af veiðimönnum. Óttast er að árið í ár verði mun stærra hér á landi.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert