Stefnir í magnað sumar í Mýrarkvísl

Pamela Moss með fallegan fisk úr gljúfrinu. Veiðin er komin …
Pamela Moss með fallegan fisk úr gljúfrinu. Veiðin er komin töluvert yfir það sem Matthías þekkir á þessum tíma sumars. Ljósmynd/MÞH

Það sem af er sumri hefur veiðst 61 lax í Mýrarkvísl, sem fellur í Laxá í Aðaldal. Þessi tala vekur mikla athygli því hún er svo miklu hærri en síðustu ár á þessum tíma. Matthías Þór Hákonarson er með kvíslina á leigu og hann segir fisk víða og meira en hann hefur áður séð.

„Það hefur verið stöðug veiði og fiskur er að veiðast um alla á. Efsta svæðið hefur gefið sérstaklega vel og mest er þetta heilbrigður og flottur smálax frá sextíu til ríflega sjötíu sentímetrar. Stórlaxinn er ekki farinn að taka af neinum krafti og stærst höfum við fengið 93 semtímetra fisk,“ sagði kátur leigutakinn.

Matthías tók við Mýrarkvísl 2014 og besta árið hans til þessa er 2015. Þá var lokatala sumarsins 171 lax. Það sem vekur hins vegar nokkra undrun er að á þessum tíma það ár var aðeins kominn 21 lax á land, en ágúst og september eru alltaf bestu mánuðirnir í kvíslinni.

Sebastion Adgnot, náði þessari tveggja ára hrygnu. Annars er uppistaða …
Sebastion Adgnot, náði þessari tveggja ára hrygnu. Annars er uppistaða aflans enn sem komið er fallegur smálax. Ljósmynd/MÞH

Árið 2019 gaf 166 laxa í Mýrarkvísl og hinn 9. ágúst það ár hafði 39 löxum verið landað. Síðasta ár var slakt í ánni og var lokatalan 84 laxar. Á þessum tíma í fyrra voru komnir fjórtán laxar.

Ef aðstæður haldast bara í meðallagi það sem eftir lifir veiðitímans má gera ráð fyrir að áin fari jafnvel yfir veiðina sem var 2015. Matthías segir þó að fari ekki að rigna á næstunni þá fari það að hafa áhrif fljótlega.

Pamel með annan og að þessu sinni var hann tekinn …
Pamel með annan og að þessu sinni var hann tekinn ofarlega í ánni. Það stefnir í magnað sumar í Mýrarkvísl. Ljósmynd/MÞH

Hann var spurður hvort hann hefði einhverja skýringu á því að þetta ár byrjaði svona vel?

Matthías treysti sér ekki til að meta það en nefndi þó sem mögulega ástæðu að árið 2016 var byrjað að grafa hrogn á efsta svæði árinnar. „Síðasta holl var með tíu laxa og þar af voru sjö á efsta svæðinu. Kannski er þetta að skila sér, en það er erfitt að segja eitthvað ákveðið. Aðalatriðið er að þetta gengur vel og veiðimenn fara héðan ánægðir,“ sagði Matthías Þór.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert