Tveir krókódílar úr Eystri-Rangá

Hannes Gústafsson með hundraðkallinn. Á bak við hann er Óskar …
Hannes Gústafsson með hundraðkallinn. Á bak við hann er Óskar Örn Ólafsson og dást þeir í sameiningu að þessum magnaða hæng. Hann lét blekkjast af rauðri Frances númer 14. Veiðistaður, Hrafnaklettar í Eystri-Rangá. Ljósmynd/Kolskeggur

Krókódílatíminn í laxveiðinni er svo sannarlega genginn í garð. Þetta er tímabilið þar sem stóru hængarnir eru aftur orðnir árásargjarnir og taka þá gjarnan flugur veiðimanna. Tveir sannkallaðir krókódílar veiddust í Eystri-Rangá á föstudag og í dag.

„Já, það kom einn 100 sentímetra af Bátsvaði á föstudaginn. Það var Hilmar Ingimundarson sem veiddi hann á rauða Frances kón. Og í dag kom svo annar hundraðkall sem var sléttir hundrað líka. Hann veiddist á Hrafnaklettum, sem er veiðistaður rétt neðan við Hótel Rangá. Hannes Gústafsson veiddi hann og það var rauð Frances númer fjórtán sem fékk hann til að taka,“ sagði Jóhann Davíð Snorrason framkvæmdastjóri Kolskeggs í samtali við Sporðaköst. Kolskeggur annast sölu á veiðileyfum og sér um rekstur Eystri-Rangár og Þverár í Fljótshlíð og Affallsins.

Hilmar Ingimundarson með stórglæsilegan hæng sem mældist sléttir hundrað sentímetrar …
Hilmar Ingimundarson með stórglæsilegan hæng sem mældist sléttir hundrað sentímetrar og veiddist á Bátsvaði í Eystri-Rangá, þann 10. september. Ljósmynd/Kolskeggur

Samtals eru komnir fimm laxar sem teljast hundraðkallar á svæðum Kolskeggs fyrir austan. Þrír hafa veiðst í Eystri-Rangá. Þessir tveir sem nú er sagt frá og í lok júní veiddist einn sem mældist 101 sentímetri. Í byrjun júlí veiddust svo tveir á eystri bakka Hólsár og Affallið gaf einn slíkan höfðingja þann 18. ágúst.

Veiðimenn í Eystri-Rangá hafa líka veitt marga níutíu plús fiska síðustu daga og ef að magnið er ekki til staðar, því oft hefur veiðst meira í Eystri, þá geta gæðin bætt það upp.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert