Fyrsti nýgengni laxinn 2022

Írski veiðimaðurinn Garrett Bryne með fyrsta Atlantshafslaxinn sem vitað er …
Írski veiðimaðurinn Garrett Bryne með fyrsta Atlantshafslaxinn sem vitað er um árið 2022. Þessi er nýgenginn og veiddist í ánni Drowes á Írlandi. Ljósmynd/GB

Fyrsti nýgengni Atlantshafslax ársins veiddist í dag rétt eftir hádegi í írsku ánni Drowes. Nokkrar laxveiðiár bæði á Írlandi og einnig í Skotlandi hafa opnað fyrir veiði og sá fyrsti kom á land í dag eins og fyrr segir. Það var Garrett Bryne írskur veiðimaður sem setti í og landaði þessum fallega tólf punda laxi.

Veiðistaðurinn heitir Eel Weir og veiðisvæðið nefnist Lareen. Garrett sagði í samtali við Sporðaköst í kvöld að viðureignin hefði tekið rúmar tíu mínútur og verið snörp. „Ég var búinn að landa tveimur niðurgöngulöxum en svo kom þessi og það leyndi sér ekki að hann var alvöru nýrenningur,“ sagði Garrett.

Hann bauðst til að senda okkur mynd af flugunni og birtist hún hér með fréttinni. Þetta er rækju eftirlíking með þyngdum haus og augum.

Flugan sem laxinn tók. Þessi gæti svo sannarlega virkað hér …
Flugan sem laxinn tók. Þessi gæti svo sannarlega virkað hér líka. Laxinum var sleppt. Ljósmynd/GB

Aðspurður hvort þetta væri óvenju snemmt fyrir fyrsta nýgengna laxinn vildi hann ekki meina það. Þetta væri hefðbundinn tími. „Hins vegar vakti athygli hvað hann var stór og nokkrir veiðimenn nefndu það sérstaklega við mig.“

Laxinum var sleppt og Garrett tekur við tveimur bikurum vegna þessa. Í fyrsta lagi er það bikar sem afhentur er þeim veiðimanni sem landar fyrsta laxinum og þá er einnig veittur bikar fyrir fyrsta laxinn sem sleppt er í ánni Drowes. Garrett landaði þeim báðum með þessum happadrætti.

Sjatnandi vatn er í Drowes og hitastig árinnar var sjö gráður þegar laxinn tók. Búist er við fyrstu löxunum úr skoskum ám um helgina. Íslenskir veiðimenn þurfa ekki að bíða nema í fjóra mánuði eftir að kasta fyrir fyrstu laxana.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert