Metnaðarfullt merkinga verkefni er hafið á sjóbirtingi í Vatnamótum í Vestur–Skaftafellssýslu. Það er rannsóknarfyrirtækið Laxfiskar ehf og leigutaki svæðisins Fish Partner sem standa að verkefninu. Ætlunin er að merkja þrjú hundruð sjóbirtinga í Vatnamótum og á vatnasvæði Skaftár.
„Það eru ýmsar kenningar um að sjóbirtingurinn þvælist á milli áa á svæðinu. Það hefur hins vegar ekki verið rannsakað og við viljum varpa ljósi á þetta. Vatnamótin eru kjör staður til að merkja. Þau eru eins konar umferðarmistöð fyrir svæðið. Vatnamótin eru fyrsta eða síðasta stoppistöð fyrir fiskinn sem er að ganga upp eða niður í hliðarár á svæðinu. Þetta er mjög mikilvæg staðsetning og þarna fara um allir stofnar sem eru á svæðinu. Við erum að tala um Tungulæk, Geirlandsá, Stjórn, Þverá, Rauðá, Fossála, Hörgsá, Syrði–ál og fleiri svæði að ógleymdri Skaftánni sjálfri,“ upplýsir Kristján Páll Rafnsson hjá Fish Partner þegar hann er spurður út í verkefnið.
„Þetta er svæði sem ég hef alltaf haft miklar taugar til. Ég held að þessar merkingar muni brjóta ákveðið blað. Þarna hefur ekki verið merkt áður og ég tel að menn muni í gegnum þetta verkefni sjá hvað skiptir miklu máli að fiskurinn fái að fara sína leið á heimaslóðir. Það munu svo margir njóta góðs af þeim upplýsingum sem þarna safnast vonandi með merkingum á þessa mikla umferðarsvæði sjóbirtings,“ sagði Jóhannes Sturlaugsson eigandi Laxfiska, aðspurður um verkefnið.
Hann segir spennandi að sjá ferðalag til dæmis geldfiskanna. Þeir eru að ferðast nokkrum sinnum til sjávar áður en þeir verða kynþroska. Áhugavert verði að sjá hvert þeir fara og þekkt sé að þeir geti flakkað töluvert á þessum tíma fyrir kynþroska. Yfirleitt leiti svo þessar fiskar á heimaslóðir þegar kemur að hrygningu.
Jóhannes Sturlaugsson hefur áður tekið þátt í merkingum á sjóbirtingum í Skaftafellssýslu. Hann merkti mikið magn fiska bæði í Tungulæk og Grenlæk í gamla daga, eins og hann kallar að. Árið 2009 merkti hann tuttugu sentímetra sjóbirting. „Þessi fiskur út Tungulæk veiddist í Vatnamótunum sumarið 2017 og var þá orðinn risavaxinn, mig minnir áttatíu sentímetrar og átta kíló. Þetta var mjög merkilegt því þessi slöngumerki vaxa úr fiskholdinu en þessi fiskur var enn með merkið í sér og hann hafði líka verið örmerktur. Þetta skilaði merkilegum gögnum og ég held einmitt að þetta verkefni geti skilað afar merkilegum gögnum."
Merkingar eru þegar hafnar og eru Kristján og félagar búnir að merkja tugi birtinga á svæðinu og stefna að því í þessum fasa að merkja um þrjú hundruð fiska á svæðinu á þessu ári. Merkingar eru ekki einskorðaðar við sjóbirting og merkja þeir alla fiska sem þeir veiða, óháð tegund eða stærð.
„Ég vil endilega hvetja alla veiðimenn sem verða við veiðar á svæðinu og fá fisk með slöngumerki að þeir taki niður númerið, eða taki bara mynd af því og mæli lengd fisksins. Við værum afar þakklátir ef menn sendu þær upplýsingar á annað hvort Fish Partner eða Jóhannes hjá Laxfiskum svo við getum safnað þessum upplýsingum um för fiskanna," sagði Kristján Páll. Hann vill jafnframt hvetja veiðimenn að sleppa þessum fiskum þó svo að þeir veiðist á svæðum þar sem heimilt er að drepa fisk.
Slöngumerkin eru í nokkrum litum. Blá, græn og rauðleit og eru merkt Laxfiskum og þar að auki er númer á hverju merki. Búast má við upplýsingum úr þessu verkefni strax í haust þegar hinir merktu fiskar ganga á ný úr sjó.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |
101 cm | Víðidalsá | Nils Folmer Jorgensen | 17. september 17.9. |