Þúsundasti laxinn í Hofsá í sumar veiddist í dag. Veiðin í Hofsá hefur verið mun betri í ár en mörg undanfarin ár. Síðast fór áin yfir þúsund laxa, sumarið 2020. Þá endaði hún í 1.017 löxum og veiddist sá þúsundasti 20. september. Þar áður hafði hún náð þessari tölu árið 2013 þegar 1.160 laxar veiddust. Síðasti áratugur hefur verið frekar rýr í Hofsá sérstaklega árin 2014 til 2019. Veiði í Hofsá lýkur ekki fyrr en langt er liðið á september svo ljóst má vera að hún endar í tölu á bilinu 1.200 til 1.300 sem yrði þá besta veiði frá árinu 2007.
Það var Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs villtra laxastofna eða North Atlantic Salmon Fund (NASF) sem setti í og landaði þúsundasta laxinum í Hofsá í dag. Fiskurinn veiddist á einum efsta veiðistað árinnar í Fossi 1. Þúsundasta eintakið var Hofsá til sóma eða 85 sentímetra hrygna og tók hún lítinn Frances kón.
Ljóst er að næsta ár lítur vel út fyrir Hofsá því mikið er af smálaxi í ánni sem gefur góð fyrirheit um að tveggja ára laxinn muni skila sér í meira mæli á næsta ári.
Laxveiðin á NA – landi hefur verið undantekningin frá slöku meðalsumri sem annars einkennir veiðina í öðrum landshlutum. Selá, Hofsá, Jökla, Sandá, Svalbarðsá og Hafralónsá eru allar á góðu róli og eru að skila mun betri veiði en í fyrra.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Lagarfljót | Jóhannes Sturlaugsson | 2. október 2.10. |
100 cm | Stóra - Laxá | Vigfús Björnsson | 30. september 30.9. |
102 cm | Laxá í Aðaldal | Aðalsteinn Jóhannsson | 19. september 19.9. |
103 cm | Víðidalsá | Rob Williams | 17. september 17.9. |
101 cm | Stóra - Laxá | Jim Ray | 16. september 16.9. |
102 cm | Víðidalsá | Svanur Gíslason | 15. september 15.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Stebbi Lísu | 14. september 14.9. |