Nýir leigutakar taka við Hítará á Mýrum

Frá undirritun samninga í hinu rómaða veiðihúsi Lundi, sem reist …
Frá undirritun samninga í hinu rómaða veiðihúsi Lundi, sem reist var af Jóhannesi á Borg um miðja síðustu öld. Frá vinstri Haraldur Eiríksson, Sigurjón Helgson, Ólafur Sigvaldson og Reynir Þrastarson. Ljósmynd/Hítará

Undirritaður hefur verið leigusamningur milli Veiðifélags Hítarár á Mýrum og Grettisstilla ehf. um leigu á veiðirétti Hítarár, hliðaráa og Hítarvatns. Hluthafar í Grettisstillum eru þeir Haraldur Eiríksson og Reynir Þrastarson, báðir hafa þeir áratuga reynslu af Hítará. Þeir voru leiðsögumenn við ána á sínum tíma og hafa mikil tengsl við svæðið.

Báðir áttu þeir sæti í árnefnd Hítarár um langt skeið og tengjast ánni fjölskylduböndum. Halli var ráðinn staðarhaldari við Hítará aðeins sautján ára að aldri og kom að sölu hennar í hartnær áratug í starfi sínu hjá SVFR.

Í dag er hann með Laxá í Kjós á leigu og skuldbindingar þar, og segir að Reynir Þrastarson fái hitann og þungann af daglegum rekstri, en auðvitað starfi þeir saman að verkefninu.

Ertu ekki svolítið að koma heim?

„Það má kannski segja það. Laxá í Kjós og Hítará hafa í gegnum tíðina verið mínar ár. Ég hef verið í þeim báðum í leiðsögn og ýmsum hlutverkum. Jú, ætli megi ekki segja að hringnum sé lokað og ég kominn heim. Ég er nokkuð viss um að Reynir frændi minn er sama sinnis.“

Hítará 1 og 2 gáfu 708 laxa í sumar og er það betri veiði en verið hefur undanfarin ár. Fara þarf aftur til ársins 2016 til að finna betri veiði. Þetta eru ánægjulegar fréttir fyrir aðdáendur Hítarár þar sem stór skriða breytti farvegi árinnar í júlí árið 2018. Áin stíflaðist en fann sér á endanum nýjan farveg. Veiðin sumarið eftir skriðuna er sú lélegasta á þessari öld en þá gaf Hítará ekki nema 204 laxa. Árið 2020 varð strax bati þegar 503 laxar veiddust og í fyrra voru þeir tæplega 548 og nú fór hún yfir sjö hundruð.

„Okkur finnst þetta mjög spennandi verkefni og við hlökkum til að taka á móti veiðimönnum næsta sumar,“ sagði Halli í samtali við Sporðaköst.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert