Opnunarhollið landaði 93 fiskum

Hópmyndin 2023 af Veiðipöddum. Frá vinstri: Þorgerður Ólafsdóttir, Katrín Sif …
Hópmyndin 2023 af Veiðipöddum. Frá vinstri: Þorgerður Ólafsdóttir, Katrín Sif Einarsdóttir, Guðfinna Pétursdóttir, Guðný Vilhjálmsdóttir, Sandra Hrönn Traustadóttir og Hrönn Jónsdóttir. Gími leiðsögumaður úr Kjarrá aðstoðaði hópinn þriðja árið í röð. Ljósmynd/Guðfinna Pétursdóttir

Sex veiðikonur sem kalla sig Veiðipöddurnar áttu ógleymanlega ferð í Fremri Laxá þegar þær opnuðu ána um og eftir helgi. Með í för var leiðsögumaðurinn Hallgrímur Gunnarsson, betur þekktur sem Gími og af mörgum kallaður súpergæd.

Þetta er þriðja árið sem hópurinn opnar Fremri Laxá og sagði Guðfinna Pétursdóttir sem var í opnuninni að þetta væri besta árið þeirra. „Veiðin var bara stórkostleg og það var fiskur um alla á. Hann var hoppandi í kringum okkur hvert sem við fórum. Eitt kvöldið lægði alveg og þá kom fluga og það var fiskur um allt. Ekkert smá líf. Það kvöld var alveg hræðilegt að þurfa að hætta og fara í hús,“ hlær Guðfinna.

Þorgerður Ólafsdóttir. Fremri Laxá er ein af betri urriðaám landsins. …
Þorgerður Ólafsdóttir. Fremri Laxá er ein af betri urriðaám landsins. Þessi opnun gefur góð fyrirheit um sumarið. Ljósmynd/Guðfinna Pétursdóttir

Hún segir að veðrið hafi verið allavega en ekkert sem aftraði þeim og yfirleitt gekk hann aðeins niður seinnipartinn. Reyndar var síðasti morguninn sem var þriðjudagur, þannig að þær slepptu honum. Þá var veðrið eiginlega bara ömurlegt. Gul viðvörun og bylur. Það er rétt að minna á að það er rúmlega mánuður síðan að Íslendingar fögnuðu Sumardeginum fyrsta.

Hrönn Jónsdóttir með einn af mörgum úr opnuninni.
Hrönn Jónsdóttir með einn af mörgum úr opnuninni. Ljósmynd/Guðfinna Pétursdóttir

„Þetta er langbesta opnunin hjá okkur. Við veiddum miklu meira en hin árin sem við höfum verið þarna. Við lönduðum 93 urriðum þannig að við fengum allar fullt af fiski. Við slepptum nánast öllum nema örfáum sem voru svo illa teknir að við urðum að drepa þá.“

Fremri Laxá var vatnsmikil, eins og sést glögglega á bak …
Fremri Laxá var vatnsmikil, eins og sést glögglega á bak við Söndru Traustadóttur. Ljósmynd/Guðfinna Pétursdóttir

Það er sjálfsmennska í veiðihúsinu við Fremri Laxá og þær skiptust á að elda. Hver stöng sá um hádegismat einu sinni, Happy hour einu sinni og kvöldmat í eitt skipti. Eins og vinsælt er í kvennahópum var ólíkt þema í hverju Happy hour. Þau voru kúrekar, Mexíkóar og svo gamlárskvöld án flugelda, þar sem nokkuð var um hesta í nágrenninu. Þær létu stjörnuljós duga.

Katrín Sif og Gími með fallegan urriða sem tók lítinn …
Katrín Sif og Gími með fallegan urriða sem tók lítinn kúluhaus eins og svo margir. Ljósmynd/Guðfinna Pétursdóttir

Í kvöldmáltíðir var borið fram chilli con carne, þorskur og kjúklingur. „Þetta var allt svo gott að það er ekki hægt að gera upp á milli hvaða máltíð var best,“ svaraði Guðfinna aðspurð um bestu máltíðina.

„Mest vorum við að fá þessa fiska á litla kúluhausa sem við veiddum á andstreymis. Þegar var mjög kalt þá stækkuðum við aðeins flugurnar til að koma þessu betur niður og það virkaði vel.“

Guðfinna segir veiðina hafa verið mun betri núna en í …
Guðfinna segir veiðina hafa verið mun betri núna en í fyrri opnunum sem þær hafa tekið þátt í. Ljósmynd/Guðfinna Pétursdóttir

Fremri Laxá er ein besta urriðaá landsins og þar veiðast árlega hátt í fjögur þúsund urriðar. Áin fellur í Svínavatn og Laxá á Ásum rennur úr því sama vatni. Fiskurinn í Fremri Laxá er fremur smár en sprettharður. Innan um má þó alltaf finna fiska sem eru allt að sextíu sentímetrar. Þegar líður á sumar gerist það oft að veiðimenn verða varir við lax og dæmi eru um ár þar sem nokkrir laxa hafa veiðst í ánni.

Veðrið var allt frá logni upp í gula viðvörun og …
Veðrið var allt frá logni upp í gula viðvörun og byl. Guðný Vilhjálmsdóttir og aðrar Veiðipöddur létu það ekki stoppa sig. Ljósmynd/Guðfinna Pétursdóttir

Veiðipöddurnar voru rétt að byrja sumarið og gerðu það með glæsibrag en framundan er fleiri veiðitúrar í sumar. Guðfinna segir þrjár ferðir til viðbótar þegar skipulagðar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert