„Brotaflóinn er loðinn af fiski“

Árni Friðleifsson kampakátur með fallegan urriða úr Mývatnssveit. Þeir félagar …
Árni Friðleifsson kampakátur með fallegan urriða úr Mývatnssveit. Þeir félagar lönduðu níu vel höldnum í morgun. Opnunin er með því besta sem menn hafa séð þó að svæðinu hafi verið misgóð. Ljósmynd/JJÍ

Laxá í Mývatnssveit stóð undir öllum væntingum veiðimanna sem hófu veiðitímabilið þar í morgun. Vel yfir hundrað urriðum var landað á vaktinni og víða urðu veiðimenn varir við mikið líf. „Brotaflóinn er loðinn af fiski,“ sagði Bjarni Júlíusson í samtali við Sporðaköst í morgun.

Veiðinni var aðeins misskipt og efstu svæðin voru að gefa vel á meðan að neðstu svæðin voru rólegri. Skurðurinn gaf 25 fiska og mörgum finnst Geirastaðaskurðurinn einn af skemmtilegri veiðistöðum svæðisins á meðan að aðrir sneiða hjá honum. En það var víðar góð veiði. Þannig tók stöngin sem byrjaði í Brotaflóa í Hofstaðalandi tíu fiska í morgun.

Jóhann Jón Ísleifsson. Flestir fiskarnir sem þeir félagar fengu voru …
Jóhann Jón Ísleifsson. Flestir fiskarnir sem þeir félagar fengu voru á púpur. Garðsendi og Lambeyjarstrengur gáfu þeim bestu veiðina. Ljósmynd/ÁF

Svæðið Geldingaey gaf fimmtán fiska og Helluvað tuttugu. Árni Friðleifsson og félagi hans Jóhann Jón Ísleifsson áttu mjög góðan morgun. Settu í tólf fiska og lönduðu níu flottum urriðum og voru þeir flestir á bilinu 55 til 60 sentímetrar. „Við mældum tvo og þeir voru báðir 58 sentímetrar. Við vorum að fá þetta mest á púpur. Slæðuna og fasana útgáfur og fleiri góðar. Við fengum flesta fiska í Garðsenda og það var gaman að sjá hvað fiskurinn er vel haldinn. Þetta eru ekta Mývatnssveitareintök eins og maður þekkir þá best," sagði Árni Friðleifsson í samtali við Sporðaköst.

Sigurjón Bjarni Bjarnason tekur hraustlega á fiski í Brotaflóa. Þar …
Sigurjón Bjarni Bjarnason tekur hraustlega á fiski í Brotaflóa. Þar var mikið líf og sagði Bjarni Júl að flóinn væri loðinn af fiski. Ljósmynd/Bjarni Júl.

Bjarni Júlíusson og synir voru að fá mikil viðbrögð við straumflugum í Brotaflóanum. Grannar tökur en margar. Rektorinn var að gefa og er það ein af þessum klassísku flugum sem glatt hafa margan urriðan í Mývatnssveit. Sum árin eru það stærstu Rektorarnir sem gefa best.

Í fyrra voru þessir menn að kafna úr hita og veiddu á stuttermabolum. Þá lá við að kvartað væri undan hitastiginu. Nú er rok og allir þeir sem Sporðaköst ræddu við, kvörtuðu undan roki. Það er erfitt um vik fyrir veiðigyðjuna að skapa hið fullkomna andrúmsloft með svo kröfuharða menn. En veiðin á þessari fyrstu vakt er eins góð og hægt er að búast við. Sennilega flokkast þessi opnun sem ein af þeim betri og hafa þær þó verið ágætar síðustu ár. Það spáir hlýnandi fyrir norðan og þá kemur að því að neðstu svæðin, Brettingsstaðir og Hamar detti inn með veiði líka.

Löggan aftur búinn að setja í hann. Það var skammt …
Löggan aftur búinn að setja í hann. Það var skammt stórra högga á milli í morgun. Ljósmynd/JJÍ

Á morgun hefst svo veiðin í Laxárdal, sem er neðan við Mývatnssveitina og iðulega haldast þessi svæði í hendur þegar kemur að veiði. Raunar gefur Laxárdalurinn oftast aðeins færri fiska. En á mótir státar dalurinn af stærri fiskum að jafnaði.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert