Hundrað fiska holl í Vatnamótunum

Páll Gísli Jónsson tók þennan á Dímon í Vatnamótunum. Mældist …
Páll Gísli Jónsson tók þennan á Dímon í Vatnamótunum. Mældist 74 sentímetrar. Páll segir að aðstæður hafi verið hreint úr sagt frábærar. Þeir hafa veitt þarna árum saman og séð allar útgáfur. Ljósmynd/PGJ

Hópur sem lauk veiðum í Vatnamótunum á hádegi í dag gerði hreint út sagt frábæra veiði. Þegar upp var staðið lönduðu félagarnir 106 birtingum á tveimur veiðidögum.

Páll Gísli Jónsson var einn þeirra sem var við veiðar í hollinu. „Þetta var alveg magnað. Mikið af fiski og við vorum að finna hann út um allt. Fengum náttúrulega frábært veður og þetta voru magnaðir dagar. Þetta er mikið labb og maður er að leita að álum til að kasta á. Ég persónulega fíla svoleiðis veiðiskap,“ sagði Páll í samtali við Sporðaköst.

Ólafur Þórir með 85 sentímetra birting. Þessi var stærsti í …
Ólafur Þórir með 85 sentímetra birting. Þessi var stærsti í hollinu. Ljósmynd/PGJ

Hollið á undan þeim félögum gerði líka góða veiði en ekkert hafði verið bókað eftir fyrstu dagana. Páll vissi ekki hvort að menn hefðu ekki haft tíma til að skrá eða hreinlega engin verið að veiða.

Fiskurinn sem þeir félagar fengu var mikið í kringum fimmtíu til sextíu sentímetrar en líka gott hlutfall af birtingi sem var á bilinu 74 og upp í 85 sentímetrar.

Mikið af fiskinum var í kringum sextíu sentímetrar. Eiður Ingvarsson …
Mikið af fiskinum var í kringum sextíu sentímetrar. Eiður Ingvarsson er hér með einn slíkan. Ljósmynd/PGJ

„Við vorum að fá þetta á allskonar. Best var að virka fyrir mig hvítt og silfur. Dímon var að gefa mér vel. Já ég hugsa að ég hafi fengið mest á hana. Svo voru menn að fá á Dýrbít og ýmislegt. Það var fiskur úti um allt. Við höfum veitt þarna í mörg ár og oft hefur fiskurinn verið á þremur til fjórum stöðum. Núna var hann úti um allt. Efst upp frá og niður úr öllu.“ upplýsti Páll.

Aðstæður voru eins góðar og hægt er að hugsa sér. Þeir fengu milt veður og skýjað. Oft hefur frost bitið á þessum tíma og snjór verið mikill. „Það var svo sannarlega vor í lofti fyrir austan,“ sagði Páll að lokum.

Veitt er á fimm stangir í Vatnamótunum

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert