Nýr leigutaki með Litluá og Skjálftavatn

Að aflokinni undirritun var stillt upp í myndatöku í hraglandanum …
Að aflokinni undirritun var stillt upp í myndatöku í hraglandanum í Kelduhverfi. Matthías Þór Hákonarson lengst til vinstri, þá stjórn veiðifélagsins. Jónas Þór Viðarsson, Kristinn Rúnar Tryggvason og Kristjana Sigurðardóttir. Gylfi Kristjánsson framkvæmdastjóri R&M er á hægri vængnum. Ljósmynd/Matthías Þór

Félagið R&M ehf hefur gert leigusamning um veiðirétt í Litluá og Skjálftavatni í Kelduhverfi. Matthías Þór Hákonarson er eigandi R&M en hann leigir meðal annars Mýrarkvísl og Lónsá svo eitthvað sé nefnt. Samningur milli Matta og stjórnar Veiðifélags Litluárvatna var undirritaður í vikunni á hótelinu í Skúlagarði.

Matti, eins og hann er ávallt kallaður var hinn ánægðasti með samninginn sem hefur verið undirritaður og er til fimm ára, frá og með sumrinu 2026.

Eftir að tilboð voru opnuð í Litluá og í ljós kom að félagið var með hæsta boð hefur borist mikið af fyrirspurnum um veiðileyfi. „Já. Það er greinilega mikill áhugi og einn breskur viðskiptavinur sem er búinn að vera hjá mér í nokkra daga með hóp er strax búinn að panta daga þar á næsta ári,“ sagði Matthías í samtali við Sporðaköst.

„Hæ, þetta er Alistair hér. Ég veiddi oft Litluá með Matta hér áður fyrr. Ég get ekki beðið eftir því að komast þangað aftur. Í síðasta lagi í apríl,“ segir Alistair sem hafði tekið við símanum af Matta. Þessi breski herramaður er kominn á eftirlaun og segist elska Ísland. „Ég myndi búa hérna ef veðrið væri aðeins betra,“ hlær hann.

Þessi bátar eru einkar hentugir þegar færð er þung á …
Þessi bátar eru einkar hentugir þegar færð er þung á bakkanum og veiðimenn fótafúnir. Hér er Alistair í stafni og sonur Matta skipstjóri. Ljósmynd/Matthías Þór

Hann flaug beint með Easy Jet til Akureyrar og fannst það alveg himneskt. „Þetta er svo stutt ferðalag á móti því að lenda í Keflavík og taka leigubíl þaðan á Reykjavíkurflugvöll og fljúga svo norður. Vonandi mun Easy Jet halda áfram beinu flugi til Akureyrar. Eini mínusinn er að Brynja var lokuð svo við náðum ekki að fá okkur ís. Annars allt upp á tíu.“

Síðustu daga hafa þeir verið að veiða ár fyrir norðan. Mýrarkvíslina, urriðasvæðið og fleiri staði. Þeir voru mikið til á bátum og gátu þar af leiðandi farið yfir mun fleiri staði en gangandi. Bátarnir eru vel útbúnir og henta frábærlega fyrir veiðimenn með sæti að framanverðu og handfang til að styðja sig við.

Matthías segir engin áform um breytingar í Litluá, enda hafi þeir ákveðið, hann og Gylfi Kristjánsson framkvæmdastjóri R&M að vera ekki að spá í þetta fyrr en búið væri að ganga frá samningi með formlegum hætti.

Alistair búinn að setja í vænan urriða. Hann er afskaplega …
Alistair búinn að setja í vænan urriða. Hann er afskaplega hrifinn af Íslandi og þeirri aðstöðu sem R&M hefur byggt upp. Hann myndi vilja búa á Íslandi ef veðrið væri aðeins betra. Ljósmynd/Matthías Þór

„Nú er það frágengið og auðvitað er maður spenntur að endurnýja kynnin við Litluá. Ég veiddi þarna í mörg ár en svo var maður bara komin sjálfur með svo mörg svæði að maður fór frekar að veiða á þeim. Þá líka til að læra betur og betur á staðina. En nú endurnýjum við þessi kynni og það verður mjög ánægjulegt.“

Veiðivertíðin hjá Matta er löng og byrjar ávallt 1. apríl. Hann er með töluverðan fjölda af erlendum veiðimönnum sem koma í vorveiðina fyrir norðan og finnst mörgum það mikið ævintýri og ekki síst þegar vetur konungur lætur til sín taka.

R&M ehf tekur formlega við Litluá og Skjálftavatni 1. apríl á næsta ári.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert