Elliðavatnið tók vel á móti veiðimönnum

Alfreð Maríusson er alltaf með einn af fyrstu fiskum sumarsins. …
Alfreð Maríusson er alltaf með einn af fyrstu fiskum sumarsins. Þennan urriða tók hann í Helluvatni. Ljósmynd/Veiðikortið

Það var hátíðarbragur yfir Elliðavatnsbænum í morgun þegar veiði- og útivistarfólk fagnaði komu sumars. Fjöldi fólks var mættur til að þiggja kleinur, kaffi og visku djúpvitra veiðisérfræðinga. Svo voru aðrir sem voru mættir til að veiða.

Þarna tók hann, benti Geir Thorsteinsson í átt að Engjunum. …
Þarna tók hann, benti Geir Thorsteinsson í átt að Engjunum. Hann hefur veitt í Elliðavatni í sjötíu ár. Geir nældi sér í tvo og það dugar í soðið. Ljósmynd/Sporðaköst

Það er misjafnt hvar Íslendingar velja að láta sér verða kalt á sumardaginn fyrsta. Eftir kalsasama ríflegan norðanvind snemma í morgun, hægði aðeins þegar leið á morguninn. Menn voru að setja í hann. Geir Thorsteinsson var að vanda mættur og hann valdi að fara á Engjarnar. „Ég náði tveimur urriðum og er kominn með í soðið, þá er ég góður. Þeir tóku báðir brúnan Nobbler. Hann er líkastur hornsílinu eða seiði,“ sagði Geir í samtali við Sporðaköst.

Brúnn Nobbler gerði það sem þurfti hjá Geir.
Brúnn Nobbler gerði það sem þurfti hjá Geir. Ljósmynd/Sporðaköst

Fjölmargir veiðisérfræðingar voru mættir til að fræða viðstadda um lífríkið og leyndardóma Elliðavatns. Toppflugan er mætt og Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri Veiðikortsins og Stangaveiðifélags Reykjavíkur sagðist hafa séð þær í gærkvöldi. „Það var magnað þegar við vorum að undirbúa hér í gærkvöldi. Þá var stafalogn og vatnið kraumaði fyrir neðan bæinn. Þetta voru ekki tugir fiska. Þetta var örugglega meira en hundrað sem ég sá. Þeir voru að éta á fullu rétt undir yfirborðinu,“ upplýsti Ingimundur.

Það var vart þverfótað fyrir sérfræðingum við Elliðavatn í dag. …
Það var vart þverfótað fyrir sérfræðingum við Elliðavatn í dag. Hér er Caddisbróðirinn Hrafn Ágústsson uppveðraður af því sem hann heyrir. Ljósmynd/Sporðaköst

Eitt af því sem ekki breytist er slæmt ástandið á veginum inn í Heiðmörk og að Elliðavatnsbænum. Vegurinn er þetta árið með betra móti og vel fær fólksbílum. Kári Gylfason verkefnastjóri hjá Skógrækt Reykjavíkur flutti smá tölu í upphafi málstofunnar um Elliðavatn. Eftir að hann hafði lokið máli sínu, þar sem hann fór yfir Heiðmerkursvæðið og hvað það hefði upp á að bjóða fékk hann spurningu úr sal. Hvort hann styddi það að loka Heiðmörk fyrir bílaumferð, eins og Veitur hafa nefnt sem hugmynd. Kári sagðist bara geta talað fyrir sig persónulega en sér fyndist skjóta skökku við að Suðurlandsvegur með sína gríðarmiklu umferð væri spölkorn í burtu en svo veltu menn fyrir sér að loka umferð bíla um Heiðmörk. Það er reyndar áhugaverð hugsun hjá Kára og sýnir kannski best hversu lítt þessi hugmynd Veitna er mótuð.

Feðgarnir Einar Birkir, sem er alveg að verða fjögurra ára …
Feðgarnir Einar Birkir, sem er alveg að verða fjögurra ára og Benedikt voru mættir. Ljósmynd/Sporðaköst

Kynslóðirnar mætast

Þarna mættust kynslóðir. Kynslóðabil þekkist þó ekki í veiðinni. Áhuginn er sá sami hver sem aldurinn er. Geir Thorsteinsson hló að því að sennilega væri þetta sjötugasta árið sem hann væri mættur í vatnið. Sem hann rifjaði þetta upp og henti gaman af var einn þriggja ára, Einar Birkir Benediktsson í fanginu á pabba sínum að sveifla flugustöng. Pabbinn, Benedikt Geir Jóhannesson var mættur með unga veiðiáhugamanninn, sem vel að merkja verður fjögurra ára 13. október. Þeir feðgar eru búnir að vera duglegir í vorveiðinni og hafa landað fjórum fiskum í apríl. Auðvitað var kastað aðeins þó að golan væri köld. Það er þó rétt að nefna það að lofthiti náði tveggja stafa tölu þegar leið á morguninn. Það er ekki sjálfgefið á sumardaginn fyrsta.

Alfreð Maríusson var búinn að gera veiði í Helluvatni, eins og hans er von og vísa á þessum fyrsta veiðidegi í vatninu. Conrad er einn af þeim sem stundar vatnið mikið og hann hafði líka fengið fallegan urriða.

Ekki spurning hvort, heldur hvenær. Björg Rún klár með háfinn …
Ekki spurning hvort, heldur hvenær. Björg Rún klár með háfinn við fyrsta kast hjá sínum mönnum. Ljósmynd/Sporðaköst

Nestið skiptir miklu máli

Svo voru aðrir sem mættu með fullir vissu um að hann myndi bíta á. Þannig var Björg Rún Óskarsdóttir klár með háfinn áður en að Óskar Tryggvason og Tryggvi Ingólfsson náðu að kasta. Það er gott að hafa trú á sínu fólki. „Nestið skiptir miklu máli, sérstaklega fyrir ungu veiðimennina. Reyndar hefur maðurinn minn ekki vaxið upp úr því og það skiptir hann líka miklu máli,“ sagði Björg og lagði ekki frá sér háfinn. Var tilbúin.

Feðgarnir tóku nokkur köst. Hitamælirinn sagði tíu gráður. Þá þurftu …
Feðgarnir tóku nokkur köst. Hitamælirinn sagði tíu gráður. Þá þurftu menn að finna skjól til að njóta þeirra. Ljósmynd Sporðaköst

Fyrir þá sem hugsa sér til hreyfings með unga veiðimenn upp í Elliðavatn er rétt að stíla inn á að fara snemma dags eða þegar langt er liðið á dag. Sérfræðingarnir segja að það sé besta veiðin snemma á morgnana og á kvöldin. Svo er ekkert verra að vindur sé hægur. Þá sjást fiskar vaka og það hjálpar oft að halda veiðimönnum við efnið.

Sumarhátíð veiðimanna er skipulögð af Veiðikortinu, SVFR, Skógræktarfélagi Reykjavíkur og Veiðifélagi Elliðavatns. Dagskrána skipulögðu fræðslunefnd og ungmennafélag SVFR ásamt Skógræktarfélaginu.

Conrad með einn fallegan urriða úr Helluvatni.
Conrad með einn fallegan urriða úr Helluvatni. Ljósmynd/Veiðikortið

Hátíðin er orðin fastur liður hjá mörgum og er til fyrirmyndar. Boðið var upp á kleinur, safa og kaffi fyrir utan alla fræðsluna og skemmtilega afþreyingu fyrir yngri kynslóðina.

Sporðaköst óska öllu veiðifólki gleðilegs sumars og hlökkum til að sjá allar myndirnar af afrekunum sem framundan eru.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert