„Nú er lag en þetta er klikkuð þolinmæði“

Þolinmæði er leynivopnið og finna rétta staðinn þar sem fiskur …
Þolinmæði er leynivopnið og finna rétta staðinn þar sem fiskur er að vaka. Hrafn með einn af fiskum gærdagsins. Ljósmynd/Hrafn Ágústsson

Nú er lag í Elliðavatni. Toppflugan er að klekjast út og mun það ástand vara næstu daga og jafnvel vikur. Hrafn Ágústsson annar af Caddisbræðrum var við veiðar í vatninu í gær, á sjálfan plokkdaginn og veiddi á flugu sem hnýtt var úr rusli.

Ef þú ert einn af þeim veiðimönnum sem átt erfitt með að fá fisk í Elliðavatni, eins og er með ritstjóra Sporðakasta þá er nú lag. Hrafn Ágústsson landaði níu urriðum í gær og öllum á þurrflugu. Hann var með litla cdc Shipman buzzer undir. „Já. Næstu dagar gætu orðið góðir. Toppflugan er að klekjast og urriðinn er að éta hana. En þetta er klikkuð þolinmæði,“ sagði sérfræðingurinn Hrafn Ágústsson þegar Sporðaköst leituðu til hans.

Buzzerarnir sem líka eftir Toppflugunni. Hrafni fannst viðeigandi að veiða …
Buzzerarnir sem líka eftir Toppflugunni. Hrafni fannst viðeigandi að veiða á þær á sjálfan plokkdaginn. Ljósmynd/Hrafn Ágústsson

„Langur taumur og frammjókkandi. Svona 4 til 5 pund næst flugunni,“ upplýsir Hrafn. Hann segir það betra að aðeins sé gára á vatninu. Svo er að komast í tæri við vakandi fisk. Þegar hann er að vaka er hann nefnilega að taka toppfluguna rétt undir eða í yfirborðinu.

Hver er svo leyndardómurinn?

„Ef maður er í yfirborðsveiði þá þarf að bíða eftir klaki og síðan að finna stað þar sem golan hjálpar til við að skila flugunni í stemminguna og bara bíða og stara,“ segir Hrafn. Spurður um tímasetningar dags þá horfir hann mest til klukkan 10 til 12 fyrir hádegi og svo aftur seinnipartinn milli klukkan 16 og 18. Auðvitað er þetta ekki undantekningalaust og fer væntanlega eftir hvernig dagurinn þróast. Bæði hitastig og vindur. 

Þessi urriði taldi sig vera að ná gómsætri Toppflugu en …
Þessi urriði taldi sig vera að ná gómsætri Toppflugu en ó nei. Fluga sem Hrafn hafði hnýtt. Hann fékk frelsið aftur. Vonandi ekki reynslunni ríkari. Ljósmynd/Hrafn Ágústsson

Í gær var plokkdagurinn þar sem margir keppast við að tína upp rusl eftir veturinn. Hrafn er kominn skrefi lengra. Hann hnýtti buzzerana sem sjást á myndinni úr rusli að hluta. Bæði búkur og stél eru úr plastpokaræmu. Notar smá brúnt túss og cdc fjöður.

Hér er komin uppskrift sem vert er að reyna við í Elliðavatninu einhvern næstu daga þegar skilyrði eru rétt. Mikilvægt að muna að þetta er mikil þolinmæði. Hrafn landaði sjálfur níu urriðum í gær í vatninu, eins og fyrr segir og það var með þeim hætti sem lýst er hér að ofan.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert