Ævintýri á færibandi síðustu daga

Góður urriði úr Laugarvatni. Víkingur Manúel Elíasson fékk hann á …
Góður urriði úr Laugarvatni. Víkingur Manúel Elíasson fékk hann á maðk og var alsæll en mældist hann ríflega 50 sentímetrar. Ljósmynd/Páll Gísli

Það er víða búið að vera gaman hjá silungsveiðimönnum í ám og vötnum á síðustu dögum. Hlýindin og birtan kveikja á lífinu. Skordýrin fara á stjá og þá aukast líkur á fiski og svo er það veiðimaðurinn sem er kominn á fullt.

Veiðimenn sem hafa verið í sambandi við Sporðaköst hafa sagt frá veiði og ævintýrum í kringum þau. Er engu líkara en að þau ævintýri komi á færibandi þessa síðustu daga. Þeir Víkingur Manúel Elíasson og Páll Gísli Jónsson gerðu góða ferð í það vanmetna veiðivatn Laugarvatn um helgina. Þeir settu í nokkra urriða, bæði á maðk og flugu. „Þetta var þræl skemmtilegt. Aðeins kalt en það fylgir þessum árstíma. Vanalega hef ég verið að veiða bleikju þarna en núna var urriði á svæðinu. Við lönduðum tveimur og þetta voru flottir urriðar,“ sagði Páll í samtali við Sporðaköst. Hann er einn af þessum sem er með ódrepandi veiðidellu. Er það ekki? „Jú. Það er víst. Við fórum eitt árið í Laugarvatnið í febrúar og vorum þá að kasta flugu á ísinn og draga hana fram af skörinni. Við vorum að nota Langskegg og þær negldu þetta um leið og Langskeggurinn datt út í. Við fengum á stuttum tíma einhverjar tíu bleikjur,“ hlær hann. 

Unnur og Árni Kristinn lentu í ævintýrum í Þingvallavatni. Það …
Unnur og Árni Kristinn lentu í ævintýrum í Þingvallavatni. Það var alda en þá er bara að hafa gaman af hlutunum, eins og Unnur er einstaklega lagin við. Ljósmynd/Árni Kristinn Skúlason

Hólaá sem rennur í Laugarvatn er ein af þessum silungsperlum sem frábært er að skreppa í dagstund eða hálfa. Hún Unnur Guðný María Gunnarsdóttir, leiðsögumaður er þegar búin að taka nokkra daga þar í vor. „Kuldaboli var á svæðinu en það er mökkur af fiski í Hólaánni. Svo var gaman að sjá að bleikjan er komin þó að urriðinn sé enn í miklu magni. Æ. Það er svo gaman að vertíðin sé byrjuð,“ sagði þessi öflugi leiðsögumaður.

Góðar stundir. Fluga sem stóð svo sannarlega undir nafni. Það …
Góðar stundir. Fluga sem stóð svo sannarlega undir nafni. Það er það sem skiptir máli. Árni Kristinn hannaði þessa. Ljósmynd/Unnur Guðný

Sjálf hefur hún komist að veiða í vor og lenti í algeru ævintýri. „Bara moki,“ lýsir hún. Árni Kristinn Skúlason var með henni og það var flugan Góðar stundir sem stóð svo sannarlega undir nafni. Áfram var kalt en þegar veiðist þá á kuldaboli ekki roð í veiðimanninn. Villingavatnið hefur líka verið að gefa og þar var Unnur með ánægða og þakkláta veiðimenn sem lönduðu sumir sínum fyrstu fiskum á Íslandi.

Þessi erlendi veiðimaður upplifði skemmtilegt ævintýri í Villingavatni. Unnur var …
Þessi erlendi veiðimaður upplifði skemmtilegt ævintýri í Villingavatni. Unnur var leiðsögumaður og dagurinn varð góður þrátt fyrir smá kulda. Ljósmynd/Unnur Guðný

Enn eitt ævintýrið smíðuðu þau saman veiðiparið Anna Lea Friðriksdóttir og Hafsteinn Már Sigurðsson. Vettvangurinn var Villingavatn og fallegir urriðar sem Anna Lea hélt betur en Hafsteinn Már. Hún landaði tveimur eðal eintökum og mátti heyra á myndbroti sem Hafsteinn deildi á samfélagsmiðlum að hann átti fullt í fangi með háfinn og stöðug hlaup til veiðifélagans að háfa. En þessir fiskar voru vandlátir. „Veðrið var heldur hryssingslegt. Blautt og hvasst og talsverður öldugangur á vatninu og pusaðist upp með bökkunum.

Anna Lea með glæsilegan 62 sentímetra urriða úr Villingavatni. Þessi …
Anna Lea með glæsilegan 62 sentímetra urriða úr Villingavatni. Þessi tók fluguna með langa nafninu Hot Head Blue Flash Damsel. Ljósmynd/Hafsteinn Már

Við ákváðum því að hafa straumflugur undir og prófuðum ýmislegt en það eina sem hann leit við þennan dag var flugan Hot Head Blue Flash Damsel. Ég fékk báða urriðana á hana en ekkert líf á aðrar flugur. Við fengum fleiri tökur á hana og tog. Haffi missti svo einn í lokin sem var vænn. Við sáum hann vel þegar hann hreinsaði sig alveg upp úr. Það var einmitt á þessa flugu,“ sagði Anna Lea í samtali við Sporðaköst.

Svona lítur Damsel út eftir að hafa tekið sundsprett. Það …
Svona lítur Damsel út eftir að hafa tekið sundsprett. Það eina sem urriðinn leit við þann daginn. Ljósmynd/Hafsteinn Már

Framundan er skemmtilegasti tími ársins í vatnaveiðinni. Þegar allt er að kvikna og margir veiðimenn reyna að líkja eftir klaki skordýra sem nú er á mikilli ferð. Svo eru straumflugurnar einmitt oft gott ráð þegar er vindur og lítið um flugu.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert