Tekur úr sér hrollinn í Elliðaánum

Sindri hefur lagt það vana sinn að taka eina vakt …
Sindri hefur lagt það vana sinn að taka eina vakt í vorveiðinni í Elliðaánum til að ná úr sér hrollinum. Að setja í fallegan urriða hjálpar mikið. Ljósmynd Sindri Rósenkranz

Það er stöðugt að bætast við þá möguleika sem veiðimenn hafa úr að spila  Vorveiðin í Elliðaánum er hafin og er það kærkomið fyrir marga veiðimenn. Leiðsögumaðurinn Sindri Rósenkranz leit við í borgarperlunni í gær. Hann féllst á að senda okkur skýrslu um vaktina.

„Skrapp á morgunvakt í Elliðaárnar á öðrum degi veiðitímabilsins en þær opnuðu þann 1. maí. Hef lagt það í vana minn að taka eina vakt á þessum tíma til að ná úr mér hrollinum. Byrjaði í Höfuðhyl og það var augljóst að sumarið er komið, hef aldrei séð jafn mikið af flugu á yfirborðinu á þessum tíma, nóg á boðstólum.

Kominn í háfinn. Veiðisumarið formlega hafið.
Kominn í háfinn. Veiðisumarið formlega hafið. Sindri Rósenkranz


Landaði einum fínum urriða þar á Pheasant tail áður en gengið var niður að Ármótum. Þar voru fiskar einnig í uppítöku en ég reyndist ekki vera með aðalrétt dagsins í boxinu þennan daginn, flest allt prófað. Það er stundum þannig að maður skilur réttu fluguna eftir heima. Pheasant tailinn vakti aftur áhuga áður en heim var haldið en sá festi sig ekki nægilega vel. Það er gaman að sitja við bakkann á þessum árstíma og virða fyrir sér lífríkið og láta sér hlakka til frekari veiða þetta tímabilið.

Gleðilegt veiðitímabil.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert