„Augnablik sem maður gleymir aldrei“

Darrell með voldugu hrygnuna sem mældist 72 sentímetrar á lengdina …
Darrell með voldugu hrygnuna sem mældist 72 sentímetrar á lengdina og sverleikinn leynir sér ekki enda kölluð sú digra. Glæsilegur fiskur í alla Staði. Ljósmynd/Unnur Guðný

Þurrflugan er farin að virka og leiðsögumenn í veiði eru að skríða úr vetrardvalanum  Þannig er fyrrum flugfreyjan Unnur Guðný María Gunnarsdóttir löngu búin að taka fram vöðlurnar. Hún átti góða daga með heiðursmönnum frá Bandaríkjunum við Villingavatn um helgina. Þeir félagar  Ken og Darrell nutu leiðsagnar Unnar og skemmtu sér konunglega. Raunar öll þrjú segir Unnur  Vorið er fyrr á ferðinni í ár en oft áður. Þetta sá Unnur svo glögglega í vikulok.

„Fyrsti fiskurinn á þurrflugu tók hjá veiðimanni sem ég var að leiðsegja á Þingvöllum á föstudag. Félagarnir Darrell og Ken komu hingað frá Bandaríkjunum til að freista þess að ná í ísaldarurriða. Þeir voru við veiðar með mér á Þingvöllum í tvo daga en halda svo í Vatnamót í sjóbirting,“ upplýsir Unnur. Hún heldur áfram frásögninni.

Félagarnir Darrell og Ken á góðri stundu við Villingavatn. Það …
Félagarnir Darrell og Ken á góðri stundu við Villingavatn. Það sést líka langar leiðir að leiðsögumaðurinn hefur gaman af. Ljósmynd/Unnur Guðný

„Fyrri daginn hafi Ken fengið þrjá fiska á straumflugu en misst einn stóran sem stökk og losaði sig. Við vildum því reyna aftur við vatnið á föstudag.
Morguninn hafði verið rólegur en þegar við snérum til baka úr hádegismat hafði hitastigið hækkað upp í níu gráður og viti menn, fluga á yfirborðinu og vatnið iðaði. Þrátt fyrir rokið mátti vel sjá þetta.
Við vorum að veiða með dry dropper en „sú digra“ var sá fyrsti sem lét vaða í þurrfluguna sem var Black Gnat númer 12. Við fengum svo fleiri fiska en þeir tóku dropperinn.
Þetta var bara eitt af þessum augnablikum sem maður gleymir aldrei þegar kjafturinn kemur og rífur í þurrfluguna og ríkur í burtu. Ég er ennþá með hjartslátt! Þessi hrygna sem mældist 72 sentímetrar var svakalega sterk og spólaði út nokkrum sinnum út af veiðihjólinu hjá Darrell. Ég var að fá hjartaáfall við að háfa hrygnuna, því ennþá var góður kraftur í fisknum en þetta var bara svo lítil fluga að allt getur auðvitað gerst í slíkum eltingaleik.“

Um leið og lofthiti var kominn í níu gráður fór …
Um leið og lofthiti var kominn í níu gráður fór vatnið að iða af lífi. Unnur stakk upp á þurrflugu. Ljósmynd/Unnur Guðný

Það var hörð keppni á milli þeirra félaga enda verið saman í sportinu mjög lengi. „En leikar enduðu fimm á hvorn veiðimann en keppnisskapið og óvæginn húmor svo ekki sé meira sagt þeirra á milli sem létu hvorn annan hafa það óþvegið skapaði brjálæðislega fyndna stemningu þessa tvo daga, ég er eiginlega ennþá að hlæja og spennandi verður að sjá hvernig þeim gengur í birtingum.“

Þeir hafa veitt saman um allan heim og fara nokkrar ferðir á ári. Það var mikil spenna að koma til Íslands og var stór áfangi hjá þeim að koma Íslandi á kortið.
„Þeir mæta aftur, ég er viss.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert