Það er ekki á hverjum degi sem tvær stórstjörnur úr alþjóðlega veiðiheiminum leggja saman í flugukastnámskeið á Íslandi. Í maí bjóða þau Simon Gawesworth og Katka Svagrova upp á flugukastnámskeið í Bugðu í Laxá í Kjós, Einnig er farið í margháttaða tækni er tengist fluguveiði og er áherslan fyrst og fremst á silung.
Þeir dagar sem í boði eru, eru 13 maí þar sem er blandaður hópur og einnig þann 14 maí. Þann 15 maí er svo boðið upp á kvennadag þar sem einungis konur mæta í Bugðuna. 16. maí var einnig í boði en hann seldist upp strax.
Þau Katka og Simon eru stór nöfn í stangaveiðiheiminum. Simon Gawesworth er eitt stærsta nafnið í fluguveiðibransanum í Bandaríkjunum og hefur getið sér afar gott orð sem leiðbeinandi bæði þar í landi og víðs vegar um heim.
Katka Svagrova er margfaldur heimsmeistari í fluguveiði í kvennaflokki. Í þrígang hefur hún verið hluti af tékkneska landsliðinu sem hampað hefur titlinum frá því að keppnin var sett á laggirnar. Hún hefur einnig fengið alla málma í einstaklingskeppni. Brons, silfur og orðið heimsmeistari kvenna.
Fyrir þá sem ekki komast á námskeiðin hjá þessum tveimur snillingum þá er hægt að hitta þau á spjallkvöldi í Veiðihorninu í Síðumúla klukkan 18:30 þann 16, maí þar sem þau munu fara yfir tækni og veiðiaðferðir með straumflugum, þurrflugum og púpuveiði. Yfirskrift kvöldsins er „Become a better trout fisher“ sem gæti útlagst sem lærðu að verða betri silungsveiðimaður.
Daginn eftir, eða 17. maí ætla þau Simon og Katka að taka á móti allt að tólf manns til að kenna fluguköst og veiðiaðferðir þegar kemur að silungi. Þar er um að ræða morgunnámskeið frá klukkan 9 til 12 og haldið á vegum Veiðihornsins.
Katka bauð upp á sambærileg námskeið í fyrra og vöktu þau mikla lukku. En nú þegar Simon Gawesworth hefur bæst í hópinn er um að ræða einstæðan viðburð fyrir áhugafólk um silungsveiði.
Fyrir áhugasama er best að senda tölvupóst á Kötku varðandi námskeiðin. Netfangið hennar er svagrovakat@gmail.com og vegna námskeiðsins þann 17. maí er best að senda fyrirspurn á olafur@veidihornid.is.
Simon Gawesworth var í viðtali í tímariti Veiðihornsins, Veiði sem kom út vorið 2024. Þar sagði meðal annars um þessa rokkstjörnu í heimi stangveiðinnar.
„Simon er fæddur og uppalinn í Bretlandi, í nágrenni Kent og lærði ungur að kasta flugu. Pabbi hans, sem var lærður flugukastkennari, kenndi honum undirstöðuatriðin þegar hann var átta ára gamall og verandi ungur drengur vakti hann mikla athygli þegar hann sigraði í kastkeppni sem hann tók þátt í á bæjarhátíð í Kent. Þetta var upphafið að keppnisferli Simons. Hann tók þátt í keppnum víðsvegar í Bretlandi og gat sér gott orð fyrir afburða tækni.
Í framhaldinu af keppnisferli sínum hóf Simon að kenna fluguköst. Hann hefur ferðast heiminn á enda að kenna áhugasömum veiðimönnum að ná tökum á flugustöngum. Sérstaklega er hann þekktur fyrir Speyköst hvort sem er með ein- eða tvíhendu.
Rétt fyrir aldamót réði svo Jim Vincent, sem þá var einn af eigendum Rio Products, Simon til Rio og varð það upphafið að farsælu samstarfi sem veiðimenn víða um heim hafa notið góðs af.“
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |