Spáir bingó í dag með breyttu veðri

Svona lítur hann út fyrsti laxinn úr Grímsá. Tók Hauginn …
Svona lítur hann út fyrsti laxinn úr Grímsá. Tók Hauginn og veiðimaður er Stefán Þór Bjarnason. Ljósmynd/Hreggnasi

Fyrsti laxinn úr Grímsá í Borgarfirði veiddist síðdegis í gær. Hann fékkst í Lækjarfossi og tók Hauginn. Laxinn mældist 79 sentímetrar og það var Stefán Þór Bjarnason sem veiddi hann. Sett var í stórlax í Strengjum en eins og oft gerist með þessa stærstu þá slapp hann.

Þrátt fyrir rólegan opnunardag eru Grímsárbændur bjartsýnir með Jón Þór Júlíusson fremstan í flokki, en hann stýrir Hreggnasa, félaginu sem leigir Grímsá.

Tekist á við fyrsta laxinn í Grímsá í dag.
Tekist á við fyrsta laxinn í Grímsá í dag. Ljósmynd/Hreggnasi

Laxar sáust víða í Grímsá í gær. Laxfoss, Svartistokkur, Stórlaxaflöt, Hörgshylur og Sýslumannsbrot geymdu allir laxa þó að þeir hafi ekki gefið sig.

Jón Þór Júlíusson horfði til himins og kíkti á veður.is. „Nú eru veðrabrigði í kortunum og það verður bingó á morgun,“ sagði leigutakinn innblásinn bjartsýni eftir að hafa rýnt í veðurkortin. Hann er sem sagt að tala um daginn í dag, enda viðtalið tekið eftir að veiðidegi lauk í gær.

Það er rigning í kortunum og um leið fá laxar og veiðimenn hvíld frá sólinni, sem getur gert báðum lífið leitt. Smá súrefni í vatnið og jafnvel áherslubreyting í vatnsmagni geta gert gæfumuninn. En bingó? Hver veit?

Hítará með þrjá á fyrstu vakt

Hítará opnaði líka í gær og þar byrjuðu veiðimenn eftir hádegi. Þrír laxar komu á land. Tveir úr Flesjufljóti og einn úr Breiðinni. Það verður nú bara að flokkast sem góð byrjun þar vestra. Það var hinn knái veitingamaður, Ingvar Svendsen sem fékk einn af opnunarlöxunum í Flesjufljóti. 

Þrír laxar veiddust á fyrstu vakt í Hítará. Hér er …
Þrír laxar veiddust á fyrstu vakt í Hítará. Hér er Ingvar Svendsen með einn þeirra. Veiðistaðurinn er Flesjufljót. Ljósmynd/Haraldur Eiríksson

Í dag er svo Víðidalsá að opna og við flytjum ykkur fréttir af gangi mála þar í dag.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
103 cm Miðfjarðará Eduardo 2. júlí 2.7.
100 cm Sandá í Þistilfirði Eiður Pétursson 24. júní 24.6.
Veiðiárið 2024:
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert