Stuð strax í morgun í Ytri Rangá

Einar Snorri Magnússon með fyrsta laxinn úr Ytri Rangá sumarið …
Einar Snorri Magnússon með fyrsta laxinn úr Ytri Rangá sumarið 2025. Veiddur á Borg, í fyrsta rennsli. Ljósmynd/IO

Það var stuð í Ytri Rangá, strax í morgun þegar opnunarhollið hóf laxveiði í ánni. Á fyrstu 45 mínútunum var þremur löxum landað. Menn litu hver á annan og spurningin var: Er við lentir í bingói? Svarið er bæði já og nei. Það er frábær fyrsta vakt að landa níu löxum, eins og opnunarhollið gerði. Allt voru þetta stórlaxar á bilinu 80 til 87 sentímetrar. Kynjahlutfallið var í takt við það sem gerist í opinberum stöðum á Íslandi í dag. Átta hrygnur og einn hængur. Stallmýrarfljóti

Einar Snorri Magnússon setti í og landaði fyrsta laxinum í Ytri Rangá á nýju veiðisumri. Hann fékk laxinn neðst í ánni á Borg, eins og svæðið er kallað. „Þetta var bara mjög skemmtilegur morgun og gaman að sjá lax er að dreifa sér og kominn á öll svæði,“ upplýsti Harpa Hlín Þórðardóttir rekstraraðili Ytri. Harpa staðfesti svo sannarlega að laxar eru komnir um allt og landaði sjálf laxi úr Stallmýrarfljóti sem er einn af efstu veiðistöðum árinnar.

Harpa Hlín fékk þennan í Stallmýrarfljóti. Af níu löxum voru …
Harpa Hlín fékk þennan í Stallmýrarfljóti. Af níu löxum voru átta hrygnur. Ljósmynd/Matthías Stefánsson

„Það má ekki gleyma að hafa gaman. Við erum happy hour klukkan sex. Þannig að það er stutt pása í dag. Flýtum okkur að hvíla okkur og flýtum okkur að veiða og svo verður stemming,“ hló Harpa hin kátasta.

Veitt er á tólf stangir til að byrja með í Ytri Rangá en þeim fjölgar í áföngum þar inn í sumarið og verða tuttugu talsins þegar allt verður komið á fullt.

Opnunardagurinn í fyrra í Ytri gaf 13 laxa og stefnir í svipaða opnun og þá. Harpa segist reyndar hafa á tilfinningunni að það sé aðeins meiri lax en í fyrra. Það á eftir að koma í ljós eftir því sem fram vindur.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
103 cm Miðfjarðará Eduardo 2. júlí 2.7.
100 cm Sandá í Þistilfirði Eiður Pétursson 24. júní 24.6.
Veiðiárið 2024:
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert