Hnúðlax hellist inn í Haukadalsá

Þrír af hnúðlöxunum sem Sævar Þór og félagar veiddu á …
Þrír af hnúðlöxunum sem Sævar Þór og félagar veiddu á örskotsstundu í Haukadalsá í kvöld. Þeir sáu torfu hnúðlaxa neðarlega í ánni. Þeir létu vita og heimamenn eru að gera ráðstafanir. Ljósmynd/Sævar Þór

Veiðimenn sem eru við veiðar í Haukadalsá rákust á hnúðlaxatorfu sem var að ganga inn í ána í töluverðu magni. Þeir köstuðu fyrir torfuna, fjórum sinnum og lönduðu jafn mörgum hnúðlöxum. Sævar Þór Jónsson er einn þeirra sem sá hnúðlaxatorfuna. „Þetta var mikið magn af fiski og ég veit ekki hvort þetta voru tíu hnúðlaxar eða tuttugu eða jafnvel fleiri. Við létum vita af þessu,“ sagði Sævar í samtali við Sporðaköst.

Eftir því sem næst verður komist var kallaður út mannskapur til að meta stöðuna og reyna að fanga sem flesta hnúðlaxa.

Nýrunninn hnúðlax. Margir segja að hægt sé að borða hann …
Nýrunninn hnúðlax. Margir segja að hægt sé að borða hann þegar hann er alveg nýr. Auðveldast er að þekkja hann á svörtum blettum á sporðinum. Ljósmynd/Sævar Þór

Nú er hnúðlaxaár og viðbúið að vart verði við þennan nýbúa á fjölmörgum stöðum. Hafrannsóknastofnun hefur hvatt til þess að menn skrái þessa fiska sem veiðast, þannig að áreiðanlegar upplýsingar fáist um fjölda og dreifingu. Þá er ráðlegt að hafa samband við Hafró og kanna hvort þeir hafi áhuga á fiskum til rannsókna.

Hnúðlaxar ganga í ár á tveggja ára fresti og er að á oddatöluári. Síðast varð þeirra vart í töluverðu magni hér á landi, sumarið 2023. Hnúðlaxinn er byrjaður að veiðast fyrir nokkru, bæði í Noregi og í Finnlandi.

Sporðaköst hafa áhuga á að heyra af því ef hnúðlax veiðist. 

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
103 cm Miðfjarðará Eduardo 2. júlí 2.7.
100 cm Sandá í Þistilfirði Eiður Pétursson 24. júní 24.6.
Veiðiárið 2024:
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert