Greinar föstudaginn 2. maí 2003

Forsíða

2. maí 2003 | Forsíða | 241 orð | 1 mynd

Allt að 1500 manns vinna við álversframkvæmdir

TREVOR Adams, verkefnisstjóri Alcoa við byggingu álvers á Reyðarfirði segir líklegt að hafist verði handa við að ráða í störf í álverinu seinni hluta árs 2006 en framleiðsla í því á að hefjast árið 2007. Meira
2. maí 2003 | Forsíða | 191 orð | 1 mynd

Dani tekur við í Basra

ÁKVEÐIÐ hefur verið að Daninn Ole Wøhlers Olsen stjórni borgaralegum málefnum í Basra-héraði sem breskir hermenn tóku í Íraksstríðinu, að sögn Berlingske Tidende . Meira
2. maí 2003 | Forsíða | 145 orð

Lýðræðisþróun mun taka sinn tíma

GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti segir að það hafi verið mikilvægur áfangi í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi að steypa Saddam Hussein af stóli í Írak. Meira
2. maí 2003 | Forsíða | 87 orð

Margir bjóða fram aðstoð

GRANNAR Tyrkja, Grikkir, urðu meðal fyrstu þjóða til að bjóða aðstoð vegna hamfaranna í Austur-Tyrklandi. Sögðust þeir senda flugvél með hjálpargögn, þ.á m. Meira
2. maí 2003 | Forsíða | 262 orð | 1 mynd

Tugir fórnarlamba enn grafnir undir braki

LEITARMENN í austurhluta Tyrklands háðu í gærkvöldi örvæntingarbaráttu við tímann er þeir reyndu að finna fleira fólk í rústum húsa sem hrundu í jarðskjálftanum sem reið yfir skömmu fyrir fjögur aðfaranótt fimmtudags að staðartíma. Meira

Fréttir

2. maí 2003 | Stjórnmál á miðopnu | 551 orð | 1 mynd

Að þekkja ekki eigin stefnu

"Það skiptir kjósendur máli ef flokkur sem býður fram til Alþingis í öllum kjördæmum landsins á grundvelli eins málefnis hefur aðeins á að skipa örfáum einstaklingum sem þekkja stefnu flokksins í því máli." Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 105 orð

Á 120 km hraða í Áslandshverfi

LÖGREGLAN í Hafnarfirði stöðvaði tæplega tvítugan ökumann á 120 km hraða á Ásbraut í Áslandshverfi í gærkvöldi. Hámarkshraði er 50 km/klst. Samkvæmt reglugerð um sektir vegna umferðarlagabrota mun hann hljóta 60. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 306 orð

Bannmerki tvöfaldast í nýju símaskránni

BANNMERKI tvöfölduðust á milli ára, úr 45 í 90 þúsund í nýju símaskránni sem kemur út seinna í þessum mánuði. Nú er svo komið að tæpur þriðjungur allra símanúmera er merktur þannig að fólk vill ekki að sölumenn af ýmsu tagi hringi í það. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 269 orð | 1 mynd

Björgunarflekana rak 160 kílómetra

TVEIR björgunarflekar og Zodiac-gúmbjörgunarbátur, sem týndust í kjölfar prófana á flekunum fyrir fimm dögum, komu í leitirnar um hádegið í gær þegar skipverjar á togaranum Barða NK komu auga á þá um 55 sjómílur vestur af Öndverðarnesi. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 175 orð

B-listinn í Norðvesturkjördæmi fundar Frambjóðendur B-listans...

B-listinn í Norðvesturkjördæmi fundar Frambjóðendur B-listans í Norðvesturkjördæmi halda fundi í dag, föstudaginn 2. maí, kl. 20.30 í Dalabúð, Búðardal og í Gunnubúð, Hvammstanga. Laugardaginn 3. maí kl. 13. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 216 orð

Borað eftir heitu vatni í Grímsey

ÚTLIT er fyrir að boranir hefjist í tilraunaskyni í Grímsey í byrjun júní til þess að leita að heitu vatni. "Við erum að leggja drög að því að það verði byrjað að bora í byrjun júní. Meira
2. maí 2003 | Erlendar fréttir | 188 orð

Drápu 12 manns í Gazaborg

ÍSRAELSKIR hermenn drápu í gær 12 Palestínumenn í umfangsmikilli árás á fjögurra hæða hús í Gazaborg. Meðal þeirra sem lét lífið var tveggja ára gamall drengur, Amer Ayad, sem fékk kúlu gegnum höfuðið. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 261 orð

Félag hjartasjúklinga á Vesturlandi og Landssamtök...

Félag hjartasjúklinga á Vesturlandi og Landssamtök hjartasjúklinga bjóða öllum í mælingu á kólesteróli og blóðþrýstingi á morgun, laugardaginn 3. maí, kl. 10-14, í safnaðarheimilinu Ólafsvík. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 46 orð | 1 mynd

Fjölmenni í kröfugöngu

FJÖLMENNI var í kröfugöngu í Reykjavík á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins. Kalt var en sól skein í heiði. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 241 orð

Fylgi Frjálslynda flokksins eykst

FYLGI Frjálslynda flokksins eykst um fimm prósentustig frá síðasta mánuði og er nú tæp 10%, samkvæmt nýjustu könnun Gallup fyrir RÚV, sem birt var í gærkvöldi. Aðrar breytingar eru litlar og innan skekkjumarka. Meira
2. maí 2003 | Miðopna | 323 orð | 1 mynd

Gerum skýra kröfu um kvenfrelsi og réttlæti

"Kvenfrelsi er haft að leiðarljósi í öllum málaflokkum." Meira
2. maí 2003 | Miðopna | 628 orð | 1 mynd

Hræðsluáróður Samfylkingarinnar

"Með þessu er Jóhann Ársælsson raunverulega að lýsa því stöðumati sínu, að verði stjórnarandstöðuflokkarnir ofan á í kosningunum 10. maí verði stjórnarkreppa í landinu." Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 80 orð | 1 mynd

ÍBV meistari í annað sinn

ÍBV hampaði Íslandsmeistaratitlinum í handknattleik kvenna í annað sinn í sögu félagsins þegar liðið bar sigurorð af Haukum, 22:20, í Eyjum í gærkvöldi. Um 1000 manns sem mættu í íþróttahúsið í Vestmannaeyjum urðu vitni að æsispennandi leik . Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 297 orð

Jafna á skatta á laun, fjármagn og fyrirtæki

UNNT yrði að lækka skattaprósentur umtalsvert án þess að rýra tekjur ríkissjóðs með því að samræma skatta á launatekjur, fjármagnstekjur og fyrirtæki. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 133 orð | 1 mynd

Kalt hjá smáfuglunum á Norðurlandi

EFTIR einmuna blítt veðurfar í allan vetur hefur kuldakastið nú um sumarmál komið mörgum á óvart og vakið litla hrifningu. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 252 orð | 1 mynd

Kastað í kulda og trekki

"ÞAÐ hafa komið hérna milli 50 og 60 manns og þeir hörðustu voru mættir hér á hlaðinu um klukkan sjö í morgun en það er frekar kalt hérna, hvasst og hiti um frostmark og veiði þess vegna verið lítil. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 140 orð | 1 mynd

KJARTAN FRIÐBJARNARSON

KJARTAN Friðbjarnarson kaupsýslumaður lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 29. apríl síðastliðinn, 83ja ára að aldri. Kjartan fæddist hinn 23. nóvember árið 1919. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 180 orð | 1 mynd

Leica-myndavélar níutíu ára

UM þessar mundir eru 90 ár síðan var farið að framleiða hinar þekktu Leica myndavélar, en það voru fyrstu vélarnar gerðar fyrir 35 mm filmu. Leica er enn að framleiða hágæða myndavélar fyrir filmu og ennfremur stafrænar vélar. Meira
2. maí 2003 | Erlendar fréttir | 218 orð

Mannskæður eldsvoði í Bagdad

MINNNST sjö manns brunnu til bana og um 20 slösuðust, sumir hættulega, er eldur varð laus í bensínstöð í fátækrahverfi í Bagdad síðdegis í gær. Björgunarmenn og bandarískir hermenn á staðnum sögðu í gærkvöldi að eldurinn logaði enn. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 193 orð

Málþing í félagsfræði í tilefni 60...

Málþing í félagsfræði í tilefni 60 ára afmælis Þorbjarnar Broddasonar verður haldið í dag, föstudaginn 2. maí kl. 14-17.30, í stofu 101 Lögbergi. Fluttir verða sex fyrirlestar um félags- og fjölmiðlafræði af fyrrverandi nemendum Þorbjarnar. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 744 orð | 1 mynd

Metnaður til að skara fram úr

Þorsteinn Baldur Friðriksson fæddist í Reykjavík 30. júní 1979. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1999. Á árunum 1999 til 2001 var hann verkefna- og markaðsstjóri hjá BT en er nú nemi á öðru ári í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Þorsteinn er einnig formaður Visku, stúdentafélags Háskólans í Reykjavík. Unnusta Þorsteins er Dóra Gunnarsdóttir. Meira
2. maí 2003 | Stjórnmál á miðopnu | 691 orð | 1 mynd

Nýtt afl, breyttar áherslur, breytt þjóðfélag

"Nýtt afl er að fást við grundvallarbreytingar á þjóðfélaginu en flestir aðrir stjórnmálaflokkar eru að fást við lítilsháttar lagfæringar..." Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 203 orð

Nær 30 umsóknir um eldi á þorski

NÆRRI 30 umsóknir bárust til AVS rannsóknasjóðs um kvóta vegna áframeldis á þorski. Sjóðurinn er á vegum sjávarútvegsráðuneytisins og var stofnaður sl. vetur í tengslum við átak um aukið verðmæti sjávarfangs. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 188 orð | 1 mynd

"Þetta er skemmtilegasta boð sem ég hef haldið"

ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri tók á móti tæplega 500 Reykvíkingum sem verða 70 ára á þessu ári í afmælisveislu í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. "Þetta er skemmtilegasta boð sem ég hef haldið. Þetta var alveg yndisleg stund. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 515 orð

Réttindi óháð vinnuveitanda kæmu til greina

SVIPAÐ kerfi veikindaréttar og tíðkast á öðrum Norðurlöndum og réttindi óháð vinnuveitanda eru meðal hugmynda um breytingar á velferðarkerfinu sem komu fram í 1. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 151 orð

Sala á nýjum bílum áfram að aukast

SALA á nýjum bílum hélt áfram að aukast í aprílmánuði miðað við fyrstu þrjá mánuði fyrra árs þótt heldur hafi dregið úr. Í apríl voru skráðir 839 nýir bílar en í sama mánuði í fyrra voru skráðir 593 bílar. Aukningin er 41,5%. Meira
2. maí 2003 | Stjórnmál á miðopnu | 726 orð | 1 mynd

Samfylkingin vill markvissa menntasókn

"Ég hika ekki við að halda fram, að áætlun Samfylkingarinnar er metnaðarfyllsta og vandaðasta áætlun sem nokkur íslenskur stjórnmálaflokkur hefur lagt fram um gagngerar endurbætur á menntakerfinu." Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 344 orð

Talið á einum stað í öllum kjördæmum

EKKERT kjördæmanna sex á landinu hyggst nýta sér heimild í kosningalögum til að telja á fleiri en einum stað. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 705 orð

Telja ráðningu sviðsstjóra lyfjasviðs LSH vera lagabrot

LYFJAFRÆÐINGAFÉLAG Íslands hefur í bréfi til embættis ríkissaksóknara óskað eftir rannsókn á því hvort Landspítali - háskólasjúkrahús, LSH, hafi brotið gegn 34. grein lyfjalaga með því að velja viðskiptafræðing sem sviðsstjóra lyfjasviðs spítalans. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 304 orð

Til álita að ákvæði laganna verði gert virkara

DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að til álita komi að kanna hvort unnt sé að gera forkaupsréttarákvæði sveitarfélaga á kvóta samkvæmt lögum virkara en nú er. Meira
2. maí 2003 | Erlendar fréttir | 202 orð

Tugir fórust í rútuslysi

TALIÐ er að minnst 65 manns hafi farist í gær er rúta með um 90 manns innanborðs steyptist í uppistöðulón skammt frá borginni Bethlehem í Suður-Afríku. Tíu manns tókst að komast út og upp á þak bílsins og voru fluttir á sjúkrahús. Meira
2. maí 2003 | Erlendar fréttir | 344 orð | 2 myndir

Tyrknesk stjórnvöld gagnrýnd fyrir sinnuleysi

ENN var óljóst í gærkvöldi hve margir hefðu farist í jarðskjálftunum í Tyrklandi í fyrrinótt en talið víst að þeir væru yfir eitt hundrað. Upptökin voru í austurhluta landsins en þar er víða erfitt yfirferðar og vegir slæmir. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 128 orð

Útboð vegna jarðganga verði afturkallað

SAMGÖNGURÁÐHERRA, Sturlu Böðvarssyni, hefur borist bréf frá Trausta Sveinssyni, bónda í Bjarnargili í Fljótum, með beiðni um að ráðherra afturkalli auglýst útboð vegna jarðgangaframkvæmda á milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Meira
2. maí 2003 | Erlendar fréttir | 160 orð | 1 mynd

Víða mótmæli gegn stríði á 1. maí fundum

ÞÁTTTAKA var mikil í hátíðarhöldum víða um heim í gær í tilefni af hátíðisdegi verkalýðsins, 1. maí. Í mörgum Evrópulöndum var lýst hefðbundnum kröfum um bætt kjör, einnig bar mikið á mótmælum gegn Íraksstríðinu. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 126 orð | 1 mynd

Vöknuðu við snjókomu í Eyjum

ÞRÁTT fyrir óvenjuhlýjan vetur í Vestmannaeyjum vöknuðu Eyjamenn við snjókomu í gær. Snjó kyngdi niður á Stórhöfða og á flugvallarsvæðinu var jafnfallinn snjór klukkan 9 að morgni að minnsta kosti 10 sentimetrar og snjóaði þá enn. Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 637 orð | 2 myndir

Þriðjungur frjálslyndra er frá Sjálfstæðisflokknum

KÖNNUN Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið á fylgi flokkanna leiðir í ljós að þriðjungur þeirra kjósenda sem ætla að kjósa Frjálslynda flokkinn nú kaus Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum, 26,5% frjálslyndra kusu Samfylkinguna síðast, aðeins... Meira
2. maí 2003 | Innlendar fréttir | 60 orð

Ölvaður ökumaður velti í hálku

RÚMLEGA tvítugur karlmaður velti bílnum á fljúgandi hálum veginum um Lónssveit á sjöunda tímanum í gærmorgun. Ökumaðurinn slapp ómeiddur, enda í bílbelti, en bíllinn skemmdist töluvert. Lögreglan á Höfn í Hornafirði grunar hann um ölvun. Meira

Ritstjórnargreinar

2. maí 2003 | Leiðarar | 795 orð

Staðan í kosningabaráttunni

Skoðanakannanir sýna, að miklar sviptingar eru enn á milli flokka í kosningabaráttunni. Meira
2. maí 2003 | Staksteinar | 322 orð

- Tapar alltaf einhver á frjálsum viðskiptum?

Eyjólfur Eyvindarson, öðru nafni Sesar A, talar frá Spáni í nýju blaði ungra vinstri grænna, sem dreift hefur verið í hús. Eyjólfur er harður vinstrimaður og liggur ekki á skoðunum sínum, frekar en aðrir í stjórnmálaflokknum. Hann skipar 19. Meira

Menning

2. maí 2003 | Leiklist | 722 orð | 1 mynd

Ár í leikhúsi

Höfundar upphaflegs kvikmyndahandrits: Mogens Rukov og Thomas Vinterberg. Leikgerð: Bo hr. Hansen. Þýðandi: Einar Kárason. Leikstjóri: Stefán Baldursson. Leikmynd: Þórunn S. Þorgrímsdóttir. Búningar: Filippía I. Elísdóttir og Þórunn S. Þorgrímsdóttir. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 114 orð | 1 mynd

Ballöðubolti!

ÞAÐ er tvennt sem Rod karlinn Stewart ann heitast þessa dagana, ballöður og boltinn. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 371 orð | 1 mynd

Bíóin í borginni

Aðlögun/ Adaptation Mjög óvenjuleg, fersk, frumleg og áhugaverð. Sannarlega gleðiefni. (H.L.) ***½ Háskólabíó, Sambíóin. Chicago Kyngimögnuð og kynþokkafull söng- og dansamynd. (S.V.) ***½ Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó, Akureyri. Meira
2. maí 2003 | Menningarlíf | 48 orð

Breiðfirðingakórinn syngur

BREIÐFIRÐINGAKÓRINN verður með tónleika í Fella- og Hólakirkju á laugardaginn kl.17. Stjórnandi kórsins er Hrönn Helgadóttir og einsöngvari Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir, undirleikari er Guðríður Sigurðardóttir. Meira
2. maí 2003 | Menningarlíf | 601 orð | 1 mynd

Dansinn á Sikiley

M acmahon-bíóið á samnefndri breiðgötu bak við Sigurbogann (metróstöð Etoile) er margra heimsókna virði, sérlega fallegt, frá því um 1930. Þar er öðru hvoru boðið upp á helstu myndir helstu leikstjóra. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 227 orð | 1 mynd

Hlutu verðlaun fyrir uppfinningar sínar

TVÆR íslenskar konur, Elinóra Inga Siguðardóttir og Kolfinna Knútsdóttir, hlutu á dögunum alþjóðleg verðlaun á þingi Heimssamtaka frumkvöðla og uppfinningakvenna sem haldið var í Lundúnum. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 130 orð | 1 mynd

Indverskt, já takk!

ÞAÐ er makalaust hvað eitt lag getur komið sér kirfilega fyrir í heilabúi mannskepnunnar. "Indverska lagið", þetta úr auglýsingunni fyrir toppplötu Tónlistans, 31. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 75 orð | 1 mynd

Í ljósaskiptunum!

CARDIGANS er hljómsveit með sál - og hún er sænsk. Fimmta plata sveitarinnar, Long Gone Before Daylight, hefur fengið fínustu dóma gagnrýnenda, sem flestir eru á því að um frambærilegasta grip sveitarinnar sé að ræða fram til þessa. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 400 orð | 1 mynd

Íslensk upptaka Strokes á safnplötu

UPPTAKA Rásar 2 af laginu "New York City Cops" með The Strokes frá tónleikum sveitarinnar á Broadway í apríl á síðasta ári verður á nýrri safnplötu, sem kemur út 3. júní á Wolfgang Morden, dótturfyrirtæki Vice Records. Meira
2. maí 2003 | Menningarlíf | 141 orð | 1 mynd

Kilja

Vaka-Helgafell hefur gefið út í kilju glæpasöguna Synir duftsins eftir Arnald Indriðason . Synir duftsins var fyrsta bók Arnaldar og kom hún út árið 1997. Meira
2. maí 2003 | Menningarlíf | 130 orð

Lágmyndir í glugga

SARI Maarit Cedergren myndhöggvari heldur þessa dagana sýningu í glugga Meistara Jakobs gallerís, Skólavörðustíg 5 og einnig inni í galleríinu. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 584 orð | 2 myndir

Nexus gefur myndasögur

MYNDASÖGUVERSLUNIN Nexus fagnar hinum alþjóðlega Free Comic Book Day , eða Ókeypis myndasögur í einn dag , með því að gefa yfir 2.000 myndasögublöð. Hátíðin verður haldin í verslun Nexus við Hverfisgötu á morgun, laugardaginn 3. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 246 orð | 2 myndir

Ný lög með Hreimi og Bubba

HREIMUR Örn Heimisson, söngvari Lands og sona, hljóðritaði lag í stúdíó Sýrlandi síðdegis á miðvikudag sem var síðan hljóðblandað og sett beint á Netið um klukkan 18:30. Lagið er að finna á nýrri íslenskri Netsíðu sem heitir tónlist.is . Meira
2. maí 2003 | Menningarlíf | 70 orð | 1 mynd

Salurinn kl.

Salurinn kl. 20. Frumflutt verða verk nemenda sem stunda nám á I. og II. ári í tónsmíðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 97 orð | 1 mynd

Sleðakappar frá Jamaíka

FJÖLSKYLDU- og gamanmyndin Sleðaferðin ( Cool Runnings ) er Disneymynd kvöldsins hjá Sjónvarpinu. Myndin er í leikstjórn Jons Turteltaubs frá árinu 1993 og er byggð á sannri sögu. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 91 orð | 1 mynd

... slóð hugsanlegs banamanns Palme

SÆNSKA sakamálamyndin Síðasta morðið fjallar um ungan lögreglumann sem kemst á slóð leigumorðingja sem fengið hefur það verkefni að ráða af dögum Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 287 orð | 1 mynd

Spennandi vinaleit

Leikstjórn: Christian Bauer. Kvikmyndataka: Michael Gööck og fleiri. Framleiðandi: Tangram Film. 92 mín. Þýskaland 2002. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 165 orð | 1 mynd

Tilgangsleysi neyslusamfélagsins

SPENNUMYNDIN Bardagaklúbburinn ( Fight Club ) eftir David Fincher er á dagskrá Stöðvar 2 seint í kvöld. Í myndinni leikur Edward Norton ungan mann í skrifstofuvinnu sem getur ekki sofið. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 52 orð | 1 mynd

Vann silfurverðlaun á heimsmeistaramóti

ÍSLANDSMEISTARI kaffibarþjóna, Ása Jelena Pétursdóttir, vann um síðustu helgi silfurverðlaun á heimsmeistaramóti kaffibarþjóna sem fram fór í Boston í Bandaríkjunum um helgina. Meira
2. maí 2003 | Fólk í fréttum | 93 orð | 1 mynd

Þetta líf!

HÚN er eldri en tvævetur í skemmtanabransanum og nú sér hún ástæðu til að syngja um þetta líf. Þetta líf sem allir þrá en fæstir fá að kynnast. Svo kvarta hinir útvöldu gjarnan undan öllu saman; allri þessari athygli, allri pressunni. Meira
2. maí 2003 | Leiklist | 962 orð | 1 mynd

Þyngra en tárum taki

Höfundur skáldsögu sem leikurinn er byggður á: Einar Már Guðmundsson. Þýðandi: Bernard Scudder. Höfundur leikgerðar: Neil Haigh. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Hönnuður leikmyndar. Guðrún Øyahals. Leikari: Neil Haigh. Þriðjudagur 15. apríl. Meira

Umræðan

2. maí 2003 | Aðsent efni | 263 orð | 1 mynd

Aðgát skal höfð

"Í vopnaskaki veraldar má ekki gleyma því að penninn er vandmeðfarið vopn ekki síður en eldflaugar." Meira
2. maí 2003 | Bréf til blaðsins | 422 orð | 1 mynd

Ágætu frambjóðendur ÞAÐ hefur verið mikið...

Ágætu frambjóðendur ÞAÐ hefur verið mikið rætt um bág kjör öryrkja, einstæðra og fleiri minnihlutahópa. En hvað með t.d. húsmæður, sem hafa ekki verið úti á vinnumarkaðnum á síðustu árum? Meira
2. maí 2003 | Bréf til blaðsins | 626 orð | 1 mynd

Breyttar áherzlur - Betra líf

FYRIR skömmu hélt Svæðisráð Bindindissamtakanna IOGT í Reykjavík opinn fund í Iðnó, Gúttófund eins og það var orðað í auglýsingu . Meira
2. maí 2003 | Aðsent efni | 574 orð | 1 mynd

Ferðaþjónustan blómstrar

"Ferðaþjónustan er orðin næst mikilvægasta atvinnugreinin á landinu." Meira
2. maí 2003 | Aðsent efni | 534 orð | 1 mynd

Menntamál í öndvegi

MENNT er svo sannarlega máttur. Það er því fagnaðarefni að nú verji yfir 100.000 Íslendingar tíma sínum að einhverju leyti til skipulegs náms. Meira
2. maí 2003 | Aðsent efni | 673 orð | 1 mynd

Rétt og rangt um Samfylkinguna

MÁLSVARAR vinstri - grænna hafa lengi haldið því fram að Samfylkingin sé ekkert annað en endurgerður Alþýðuflokkur, óbreytanlegur krataflokkur, nokkuð sem vinstri - grænir telja vera mikið skammaryrði. Í leiðara Morgunblaðsins 26. Meira
2. maí 2003 | Aðsent efni | 375 orð | 1 mynd

Þjórsárver og heimskupör Landsvirkjunar

"Ég sá þá ekki fyrir þau dæmalausu heimskupör ábyrgðarmanna Landsvirkjunar, sem nú eru komin á daginn." Meira

Minningargreinar

2. maí 2003 | Minningargreinar | 732 orð | 1 mynd

ANNA EINARSDÓTTIR

Anna Einarsdóttir fæddist á Sellátranesi í Rauðasandshreppi 2. september 1927. Hún lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, 25. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðfreður Einar Sigurðsson, f. 29. ágúst 1903, d. 30. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 1411 orð | 1 mynd

ÁSGEIR KRISTINN ÁSGEIRSSON

Ásgeir Kristinn Ásgeirsson fæddist 6. maí 1931 í Reykjavík. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 26. apríl síðastliðinn. Foreldrar Ásgeirs Kristins voru Ásgeir Ásgeirsson, kaupmaður í Reykjavík, f. 11.8. 1885, d. 25.5. 1972, og Kristín Matthíasdóttir, f. 9.8. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 9322 orð | 10 myndir

Björn Jóhannsson

Björn Jóhannsson var einn þeirra manna sem setja svip á umhverfið með sterkri nærveru og því skilur brotthvarf hans eftir stórt skarð. Þær eru ófáar minningarnar sem koma upp í hugann þegar við rifjum upp samverustundir fjölskyldunnar á liðnum árum. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 145 orð

Björn Jóhannsson

Ég kveð með söknuði góðan samstarfsmann til margra ára og skoðanabróður í öllum meginmálum til heilla fyrir okkur Íslendinga. Að fylgjast með Birni Jóhannssyni við fréttastjórn var líkt og að kynnast verklagi frábærs listamanns. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 972 orð | 1 mynd

Björn Jóhannsson

Þegar Björn Jóhannsson varð fréttastjóri Morgunblaðsins á sjöunda áratugnum hafði það starf verið í höndum ritstjóra blaðsins á annan áratug, eða frá því Ívar Guðmundsson lét af því starfi snemma á sjötta áratugnum og fór til Sameinuðu þjóðanna. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 473 orð | 1 mynd

Björn Jóhannsson

Björn Jóhannsson fæddist í Hafnarfirði hinn 20. apríl 1935. Hann lést á heimili sínu að morgni miðvikudagsins 23. apríl síðastliðins. Foreldrar hans voru hjónin Jóhann Kristinn Björnsson iðnverkamaður, f. 15.6. 1916, d. 8.12. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 811 orð | 1 mynd

BJÖRN ÞORGEIRSSON

Björn Þorgeirsson fæddist á Helgafelli í Helgafellssveit 27. júlí 1917. Hann lést á Droplaugarstöðum 19. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ingibjörg Björnsdóttir og Þorgeir Jónasson. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 1752 orð | 1 mynd

EGILL SÆMUNDSSON

Egill Sæmundsson fæddist í Minni-Vogum, Vogum, 3. febrúar 1918. Hann lést í Landspítalanum við Hringbraut 24. apríl síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 550 orð | 1 mynd

GUÐRÚN JÓHANNA SIGTRYGGSDÓTTIR

Guðrún Jóhanna Sigtryggsdóttir fæddist á Auðbjargarstöðum í Kelduhverfi í N-Þing. 18. desember 1906. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Seli á Akureyri 21. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Hólmfríður Sigurgeirsdóttir og Sigtryggur Jósefsson. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 793 orð | 1 mynd

HELGA BÆRINGSDÓTTIR

Helga Friðrika Bæringsdóttir fæddist að Furufirði í Grunnavíkurhreppi 27.8. 1908. Hún lést að öldrunardeild Landakotsspítala að kvöldi sumardagsins fyrsta 24.4. 2003. Foreldrar hennar voru Bæring Bæringsson bóndi í Furufirði f. 15.7. 1863, d. 10.4. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 879 orð | 1 mynd

HULDA SIGURBJÖRNSDÓTTIR

Elínborg Hulda Sigurbjörnsdóttir fæddist í Sigurðarbæ á Blönduósi 1. október 1917. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 25. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurrós Jóhanna Sigurðardóttir, f. 26.8. 1894, d. 4. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 1038 orð | 1 mynd

JAKOB JÓN KRISTJÁN SNÆLAUGSSON

Jakob Jón Kristján Snælaugsson fæddist á Árbakka, Árskógsströnd 3. júlí 1928. Hann andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 27. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Snælaugur Baldvin Stefánsson f. 18.12. 1981, d. 18.2. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 788 orð | 1 mynd

KRISTBJÖRG ÓLAFÍA ÓSKARSDÓTTIR

Kristbjörg Ólafía Óskarsdóttir fæddist að Stóru-Borg undir Eyjafjöllum 9. nóvember 1927. Hún lést á líknardeild Landsspítala, Landakoti í Reykjavík 23. apríl síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 1643 orð | 1 mynd

SNORRI ÞÓR JÓHANNESSON

Snorri Þór Jóhannesson fæddist í Vestmannaeyjum 19. júlí 1940. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut 23. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhannes Pálmason, f. 10. jan. 1914, d. 22. Meira  Kaupa minningabók
2. maí 2003 | Minningargreinar | 1220 orð | 1 mynd

STELLA SIGURLEIFSDÓTTIR

Stella Sigurleifsdóttir fæddist á Bíldudal 12. janúar 1928. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Viktoría Kristjánsdóttir, f. á Gljúfurá í Arnarfirði 12. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

2. maí 2003 | Viðskiptafréttir | 419 orð | 1 mynd

Færir út kvíarnar

BANDARÍSKA líftæknifyrirtækið Nimblegen Systems, sem hefur verið með rannsóknarstofu á Íslandi frá því í febrúar á síðasta ári, hefur verið að færa út kvíarnar að undanförnu. Meira
2. maí 2003 | Viðskiptafréttir | 160 orð

Hætt að deila um sæljón?

NÚ virðist sjá fyrir endann á langri og strangri deilu umhverfisverndarsinna og útgerðarmanna um takmarkanir á fiskveiðum til verndar sæljónum. Sáttatilboð var lagt fram í alríkisréttinum í Seattle í málinu af samtökum útvegsmanna og eftirlitsmanna. Meira
2. maí 2003 | Viðskiptafréttir | 173 orð | 1 mynd

Samningar undirritaðir

Sjávarútvegsráðherrar Íslands og Máritaníu hafa undirritað samning um framtíðarsamvinnu landanna á sviði sjávarútvegs. Meira

Daglegt líf

2. maí 2003 | Afmælisgreinar | 1254 orð | 1 mynd

SIGURÐUR SIGURÐSSON

Dr. med. Sigurður Gísli Sigurðsson berklayfirlæknir og landlæknir fæddist 2. maí 1903, hann lést 5. apríl 1986. Í dag, 2. maí, eru liðin 100 ár frá fæðingu Sigurðar Sigurðssonar berklayfirlæknis og landlæknis. Meira

Fastir þættir

2. maí 2003 | Í dag | 505 orð | 1 mynd

Aldarafmæli Vopnafjarðarkirkju

HINN 4. maí n.k. mun verða haldið upp á aldarafmæli Vopnafjarðarkirkju en byggingu hennar lauk vorið 1903 og var hún vígð 3. maí það ár. Meira
2. maí 2003 | Dagbók | 67 orð

ÁLFTIRNAR KVAKA

Bráðum er brotinn bærinn minn á heiði. Hlýtt var þar stundum, - hann er nú í eyði. Man ég þá daga. Margt var þá á seyði. Ungur ég undi úti í varpa grænum. Horfði á reykinn hverfa fyrir blænum. - Þar heyrði ég forðum þytinn yfir bænum. Meira
2. maí 2003 | Fastir þættir | 355 orð

BRIDS - Umsjón Guðmundur Páll Arnarson

LANDSLIÐ opna flokksins atti kappi við úrvalslið Suðurnesja á laugardaginn og hafði nauman sigur í 28 spila leik. Um helgina voru svokallaðir Frístundadagar í Reykjanesbæ og var bridskeppnin liður í þeim hátíðahöldum. Spilað var á Flughóteli í Keflavík. Meira
2. maí 2003 | Í dag | 235 orð

Hallgrímskirkja: Eldriborgarastarf í dag kl.

Hallgrímskirkja: Eldriborgarastarf í dag kl. 13. Leikfimi, æfingar við allra hæfi, undir stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa, kaffi og spjall. Allir velkomnir. Laugarneskirkja: Mömmumorgunn kl. 10. Kaffispjall fyrir mæður. Góð upplifun fyrir börn. Meira
2. maí 2003 | Dagbók | 505 orð

(Hebr. 10, 36.)

Í dag er föstudagur 2. maí, 122. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Þolgæðis hafið þér þörf, til þess að þér gjörið Guðs vilja og öðlist fyrirheitið. Meira
2. maí 2003 | Fastir þættir | 182 orð | 1 mynd

SKÁK - Umsjón Helgi Áss Grétarsson

1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 a6 6. Be2 d6 7. Be3 Rf6 8. f4 Bd7 9. Bf3 Hc8 10. De2 b5 11. a3 Dc7 12. g4 Rxd4 13. Bxd4 Dc4 14. Dxc4 Hxc4 15. O-O-O h6 16. Hhe1 Be7 17. e5 dxe5 18. Bxe5 Bc8 19. Be2 Hc6 20. h4 O-O 21. g5 Rd7 22. Meira
2. maí 2003 | Fastir þættir | 363 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

VÍKVERJA brá svolítið þegar hann las frétt á mbl.is um að nú væru vísindamenn við virtar brezkar rannsóknastofnanir búnir að komast að þeirri niðurstöðu að fiskar fyndu sársauka og sýndu streitueinkenni þegar þeir fyndu til í vörunum. Meira

Íþróttir

2. maí 2003 | Íþróttir | 469 orð | 1 mynd

Alla og Vigdís í aðalhlutverkunum

ÞAÐ var sannarlega mikil dramatík í Eyjum í gærkvöldi þegar kvennalið ÍBV tók á móti Haukum í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. ÍBV hafði unnið fyrstu tvær viðureignirnar og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Haukana í miklum baráttuleik, 22:20, og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í þremur leikjum. Það var gríðarleg stemmning í íþróttahúsinu í Eyjum og voru áhorfendur hátt í þúsund og létu vel í sér heyra. Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 183 orð | 1 mynd

Árni Gautur áfram úti í kuldanum

MEIÐSL norska landsliðsmarkvarðarins Espen Johnsen eru ekki eins alvarleg og í fyrstu voru talin en hann tognaði í lærvöðva á æfingu norska landsliðsins á Írlandi s.l. þriðjudag. Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 246 orð

Berti Vogts, þjálfari Skota, óttast ekki uppsögn

BERTI Vogts, landsliðsþjálfari Skota, óttast ekki að sér verði sagt upp störfum í kjölfar ósigurs á móti Austurríkismönnum á Hampden Park í fyrrakvöld, 2:0. Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 401 orð | 1 mynd

* HEIMIR Örn Árnason , handknattleiksmaður,...

* HEIMIR Örn Árnason , handknattleiksmaður, hefur ákveðið að ganga til liðs við Val. Heimir lék í vetur með norska 2. deildarliðinu Haslum en var áður í herbúðum KA og einn af lykilmönnum þess þegar það innbyrti Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 272 orð

KR skoraði 11 mörk

Íslandsmeistarar KR skoruðu 11 mörk gegn Þrótti í 8-liða úrslitum Deildabikarkeppni KSÍ í gær. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 5:5, en í framlengunni var aðeins eitt lið á vellinum og bættu KR-ingar við sex mörkum. Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 50 orð

KSÍ tilkynnir ný nöfn

Á FUNDI félaga í efstu deild karla í knattspyrnu í gær kynnti Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, nýtt heiti á efstu deild karla og kvenna ásamt bikarkeppninni. Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 92 orð

Nú fagnaði Alla í Eyjum

ALLA Gorkorian varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti í gær en þessi snjalla rússneska handknattleikskona, sem komin er með íslenskt ríkisfang, var í tapliði Gróttu/KR þegar liðið beið lægri hlut fyrir ÍBV í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn árið... Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 171 orð

"Mikil seigla"

UNNUR Sigmarssdóttir, þjálfari ÍBV, var að stýra liðinu í fyrsta sinn á þessum vetri og landaði hún tveimur titlum, þeim stóra í gær og deildarmeistaratitlinum - hún var sátt í gærkvöldi, þegar stóri bikarinn var kominn í höfn. Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 338 orð | 1 mynd

"Sá síðasti alltaf sá ljúfasti"

INGIBJÖRG Jónsdóttir, fyrirliði Íslandsmeistaraliðs ÍBV, var að vonum sátt eftir leikinn enda hampaði hún Íslandsmeistaraverðlaunagripnum á ný eftir þriggja ára bið - og sagði að leikurinn hefði þróast eins og áhorfendur vildu. "Fólkið vill spennu og það er okkar að láta það eftir því. Ég held að við höfum komið upp á réttum tíma í leiknum og náðum að klára þetta á lokasprettinum, sem var æsispennandi fyrir okkur og áhorfendur," sagði Ingibjörg. Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 265 orð

úrslit

HANDKNATTLEIKUR ÍBV - Haukar 22:20 Vestmannaeyjar, 1.maí 2003, þriðji úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki. Meira
2. maí 2003 | Íþróttir | 56 orð

Viggó stýrði Haukaliðinu

VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari karlaliðs Hauka, var mættur til Vestmannaeyja í gær til að stjórna kvennaliði Haukanna í stað Gústafs Adolfs Björnssonar sem úrskurðaður var í þriggja leikja bann af aganefnd HSÍ eftir annan úrslitaleik Hauka og ÍBV. Meira

Daglegt líf (blaðauki)

2. maí 2003 | Daglegt líf (blaðauki) | 768 orð | 3 myndir

Háski eða heilsubót

TÍSKAN teymir fólk út í lífshætti af ýmsum toga og sumir fylgihlutir hafa beinni áhrif á skrokkinn en aðrir. Meira
2. maí 2003 | Daglegt líf (blaðauki) | 394 orð | 1 mynd

Unglingur í vændum

SAMVINNA hjúkrunarfræðinga Heilsugæslunnar í Árbæ hefur getið af sér námskeið fyrir foreldra sem eiga ungling í vændum. Námskeiðið verður haldið næsta þriðjudagskvöld og hefur það markmið að styrkja foreldra í foreldrahlutverkinu. Meira

Ýmis aukablöð

2. maí 2003 | Ferðablað | 401 orð | 1 mynd

Eðalhráefni úr Breiðafirði

V EITINGAHÚS sem þjóna ferðamönnum sérhæfa sig í síauknum mæli í því hráefni sem hendi er næst á hverjum stað - og því kannski ekki óeðlilegt að finna víða um land veitingahús sem sérhæfa sig í sjávarfangi. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 975 orð | 4 myndir

Fjölskylduparadís við Breiðafjörð

Jarðfræði, fuglaskoðun, hvalaskoðun og botnsjávarlífið er meðal þess sem boðið er upp á hjá fyrirtækinu Sæferðum í Stykkishólmi. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 599 orð | 2 myndir

Friðsæld og fegurð í íslenskri náttúru

Bændagisting er góður kostur sem býður upp á fjölbreytta möguleika í gistingu, segir Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 90 orð | 1 mynd

Frjálst er í fjallasal

N úpsstaðarskógur er fagurt kjarrlendi í hlíðum Eystrafjalls fyrir vestan Skeiðarárjökul. Þar er hægt að fara upp á Kálfsklif með því að handstyrkja sig upp á festi sem liggur upp klettabeltið. Frá 20. júní til 28. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 115 orð | 2 myndir

Gönguleiðir á Hengilssvæðinu

H engilssvæðið er fjalllendi milli Suðurlandsvegar og Þingvallavatns, frá Mosfellsheiði austur að Grafningsfjöllum. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 696 orð | 2 myndir

Hús með sögu og sál

Ensku húsin á Mýrunum eru elstu veiðihús landsins, en hafa einnig verið óðalssetur Skota og Englendinga. Í dag eru þau gistihús fyrir einstaklinga og hópa. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 418 orð | 4 myndir

Jöklaferðir af öllum gerðum

Vélsleðar og fjögurra öxla jöklatrukkur eru meðal þeirra farartækja sem Arcanum ehf. notar til ferða á Mýrdalsjökli og á hálendinu. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 384 orð | 3 myndir

Kajakar á lygnum vogum

Fjölskrúðugt fuglalíf og margbreytilegar siglingaleiðir gera kajakaróður í Stykkishólmi að ævintýri, segir Þorsteinn Sigurlaugsson. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 1055 orð | 4 myndir

Leikið við náttúruöflin

Magnús Sigmundsson hjá Hestasporti/Ævintýraferðum í Skagafirði segir Íslendinga leita í afþreyingu sem býður upp á spennu og útiveru. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 278 orð | 2 myndir

Lífið er saltfiskur

S ALTFISKSETUR Íslands var opnað 6. september í fyrra og er í Grindavík, við Hafnargötu 12A. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 556 orð | 2 myndir

Sjávarréttir við fjörukambinn

R ÉTT við sjávarkambinn á Eyrarbakka stendur Rauða húsið þar sem einn af þekktari veitingastöðum landsins er til húsa. Rauða húsið, áður þekkt sem Gunnarshús, hefur verið rekið af Inga Þór Jónssyni frá því snemma árs 2001. "Ég tók húsið á leigu 1. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 784 orð | 1 mynd

Við þurfum að læra að njóta landsins

Pétur Rafnsson, formaður Ferðamálasamtaka Íslands, segir Íslendinga eiga völ á ótrúlegri flóru afþreyingar alls staðar á landinu. Meira
2. maí 2003 | Ferðablað | 630 orð | 2 myndir

Vinaleg hótelkeðja

Susanne E. Götzinger, sölustjóri Fosshótelanna, segir Íslendinga ekki leita að lúxus, heldur vingjarnlegu viðmóti og hlýju. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.