Greinar sunnudaginn 17. ágúst 2003

Forsíða

17. ágúst 2003 | Forsíða | 143 orð

Einvígið við orminn

BÚIST var við, að tölvur, sýktar af tölvuorminum "MSBlast", myndu hefja fyrstu árásina á vefsíðu Microsoft á miðnætti aðfaranótt laugardags. Meira
17. ágúst 2003 | Forsíða | 166 orð | 1 mynd

Idi Amin allur

IDI Amin, fyrrverandi einræðisherra í Úganda, lést í gær í Sádi-Arabíu, líklega 80 ára að aldri. Hann rændi völdum í landi sínu árið 1971 en var steypt átta árum síðar og hann hrakinn í útlegð eftir blóðugan valdaferil. Meira
17. ágúst 2003 | Forsíða | 252 orð

Líkur á að byggðakvóti verði nýttur til línuívilnunar

LÍNUÍVILNUN verður tekin upp eigi síðar en fyrsta september 2004. Jafnframt verður úthlutun byggðakvóta endurskoðuð og líklegast er að hann verði felldur niður í núverandi mynd og nýttur til línuívilnunar. Meira
17. ágúst 2003 | Forsíða | 55 orð | 1 mynd

Metþátttaka í maraþonhlaupi

379 hlaupagarpar voru í gærmorgun ræstir af stað í maraþonhlaupi Reykjavíkurmaraþonsins. Þetta er metþátttaka, eins og í hálfmaraþonhlaupinu þar sem 558 keppendur voru skráðir. Um 500 útlendingar kepptu í hlaupinu í ár sem er einnig met. Alls voru 3. Meira
17. ágúst 2003 | Forsíða | 155 orð | 1 mynd

New York fær aftur rafmagn

BÚIÐ var að koma á rafmagni í New York í gærmorgun og neðanjarðarlestakerfið var komið í gang. Einnig var búið að koma á rafmagni í Toronto í Kanada en yfirvöld vöruðu við því að þar og í fleiri borgum gætu orðið truflanir næstu daga. Meira

Baksíða

17. ágúst 2003 | Baksíða | 177 orð | 1 mynd

Kristjaníubúar vilja frið og ró

MÉR finnst ekkert sjálfsagt að hægt sé að kippa tilverugrundvellinum undan okkur þegar mönnum dettur í hug," segir Edna Mikaelsdóttir sem búið hefur í Kristjaníu í átján ár. Meira
17. ágúst 2003 | Baksíða | 367 orð | 1 mynd

Neyðast til að læsa fjallaskálum

FERÐAFÉLAGIÐ Útivist hefur ákveðið að læsa skálum sínum yfir vetrartímann, eða frá og með 1. september, en félagið er m.a. með skála á Fimmvörðuhálsi og í Básum í Þórsmörk. Meira
17. ágúst 2003 | Baksíða | 165 orð | 1 mynd

Norðurlandamót í skák á Netinu

NORÐURLANDAMÓT skákfélaga fór fram í gær í fjórða sinn en meðal þátttökuliða voru tvö íslensk skáklið, Íslandsmeistarar Hróksins og silfurlið Hellis sem mættust strax í fyrstu umferð. Meira
17. ágúst 2003 | Baksíða | 237 orð

Stúdentaráð gerir nýja neyslukönnun

STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands hyggst standa fyrir umfangsmikilli neyslukönnun meðal nemenda á háskólastigi í nóvember næstkomandi. Sú framfærsla sem LÍN veitir námsmönnum í dag byggir á neyslukönnun sem unnin var árið 1995. Meira
17. ágúst 2003 | Baksíða | 306 orð

Sveitarfélagið hefur tapað umtalsverðum tekjum

EINKAHLUTAFÉLÖGUM hefur fjölgað um 58% í Bolungarvík frá ársbyrjun 2001. Fjölgun á landinu öllu á sama tímabili er um 30%. Meira

Fréttir

17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 120 orð

12. Subway staðurinn opnaður á Íslandi

VETINGASTAÐURINN Subway hefur opnað nýjan stað við Vetrargarðinn í Smáralind. Veitingastaðurinn er tólfti Subway staðurinn sem opnaður er á Íslandi. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 61 orð | 1 mynd

Atlantsskip gera samning við Vörubíl

ATLANTSSKIP og Vörubíll hafa gert með sér samning um að Vörubíll muni annast alla lausavöruflutninga til viðskiptavina Atlantsskipa. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 117 orð | 1 mynd

Austfjarðatröllið fundið

Mikil stemning ríkti í Breiðdalnum þegar kraftakeppnin Austfjarðatröll fór þar fram á dögunum. Mótsstjórinn, Njáll Torfason, fór á kostum þegar hann dró bíl með tönnunum um leið og hann gekk berfættur yfir glerbrot. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 37 orð | 1 mynd

Á fullu

Þessi mynd sem Kinnat Sóley Lydon, 10 ára, tók hlaut verðlaun í ljósmyndakeppninni "Úti er fjör". Dómararnir komust að þeirri niðurstöðu að myndin væri tekin á hárréttu augnabliki og kæmi því fjörlegu myndefninu sérlega vel til... Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 344 orð | 2 myndir

Átján nýjar námsmannaíbúðir

BYGGINGAFÉLAG námsmanna er að taka í notkun 18 nýjar íbúðir á Laugarvatni í tveimur íbúðarblokkum sem standa við Laugarbraut. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 224 orð | 1 mynd

Bestu flugskutlukappar Íslands

FLUGMÁLAFÉLAG Íslands hélt fyrir skömmu fjölskylduflughátíðina Flugdúndur 2003 í Smáralind, einn af fjölmörgum viðburðum sem félagið mun gangast fyrir í ár í tilefni af 100 ára afmæli flugs í heiminum. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 128 orð | 1 mynd

Egilsstaðabúar sungnir á fætur í morgunsárið

Krakkar á Egilsstöðum eru duglegir og hugmyndaríkir. Snemma á föstudagsmorgun þrömmuðu þau að húsdyrum bæjarbúa með fulltingi Lagarfljótsormsins. Erindið var að vekja fólk í Ormsteitið sem stendur nú yfir með braki og brestum á Fljótsdalshéraði. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 419 orð

Ekki útlit fyrir slátrun í Búðardal

ENGIN slátrun verður á vegum Ferskra afurða í Búðardal eða á Hvammstanga í haust og óvissa ríkir um áframhaldandi kjötvinnslu fyrirtækisins í Búðardal en vinnslan er þriðji stærsti vinnustaðurinn í Búðardal. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 129 orð

Fá ekki að sjá Keikó

HINN heimsfrægi háhyrningur Keikó, sem um tíma bjó í Vestmannaeyjum, dvelur nú við strendur Noregs nálægt bænum Taknes. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 111 orð | 1 mynd

Ferðamenn halda í gamlar venjur

ÞEGAR komið er austur yfir Mýrdalssand kemur í ljós lágur hóll þakinn vörðum, stórum og smáum, sem eru hlaðnar af ferðalöngum. Staðurinn nefnist Laufskálavarða og var það venja að hlaða þar vörðu þegar menn færu yfir Mýrdalssand í fyrsta sinn. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 917 orð | 2 myndir

Flestar vita hvað bíður þeirra

Konurnar sem leita til ráðgjafarstofu fyrir vændiskonur í Helsinki eru ekki spurðar hvort þær stundi vændi. Það kom því ekki fram hvort þær sem unnu á Íslandi áður en þær fóru til Helsinki hefðu stundað vændi hér á landi. Þetta er meðal þess sem Jaana Kauppinen, framkvæmdastjóri ráðgjafarstofunnar, sagði í samtali við Rúnar Pálmason. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 51 orð | 1 mynd

Gaman í vinnunni

VINNAN göfgar manninn og þessir kátu menn slógu á létta strengi í vinnunni og brostu sínu blíðasta til ljósmyndara. Þeir eru að vinna við Stekkjarbakkabrú, mislæg gatnamót í Breiðholti. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 458 orð

Gætu nýst í landbúnaði

ÍSLENSKA lamadýrafélagið, Íslama, hyggur á innflutning á lamadýrum frá Kanada. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 60 orð

Heimasíða nemenda í Hólabrekkuskóla 1978-1979

NEMENDUR í Hólabrekkuskóla árin 1978-1979, árgangur 1963, halda bekkjarmót 6. september næstkomandi. Af því tilefni hefur undirbúningsnefndin sett á laggirnar nýja heimasíðu. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 173 orð

Hollendingar afhenda lífsýni

LÍFSÝNI úr líkama Hjálmars Björnssonar, sem fannst látinn á bökkum árinnar Maaz í Rotterdam í fyrrasumar, hafa verið afhent fulltrúa íslenskra stjórnvalda í Hollandi og verða flutt til Íslands innan tíðar. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 80 orð

Hús opnað fyrir heimilislausa

SAMHJÁLP og Félagsþjónustan í Reykjavík hafa gert samning um rekstur heimilis fyrir heimilislausa Reykvíkinga. Heimilið er að Miklubraut 18 í Reykjavík, en þar verður rými fyrir átta einstaklinga. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 267 orð

Höfði ehf. óskar eftir gjaldþrotaskiptum

ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Höfði á Hofsósi lagði fram beiðni um gjaldþrotaskipti sl. föstudag. Höfði er stærsti atvinnurekandi á Hofsósi, með um tuttugu manns í vinnu. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 503 orð | 1 mynd

Kynnir sér störf lögreglunnar

DANSKUR rannsóknarlögreglumaður, Sten Nørgaard, frá lögreglunni í Álaborg, er staddur hér á landi um þessar mundir til að kynna sér starf lögreglunnar í Reykjavík og einnig á Selfossi og Húsavík. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 185 orð | 1 mynd

Ljósmyndasafn Stykkishólms opnað

LJÓSMYNDASAFN Stykkishólms hefur formlega verið tekið í notkun með opnun vefjar sem hefur að geyma myndir safnsins. Ljósmyndasafnið stendur líka fyrir sýningu í Norska húsinu á ljósmyndum úr safninu. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 253 orð | 1 mynd

Minnisvarði afhjúpaður um Halldór frá Kirkjubóli

ÞAÐ var hátíðleg stund að Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði laugardaginn 9. ágúst sl. er minnisvarði um Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli var afhjúpaður. Um 100 manns komu saman til að heiðra minningu Halldórs í góðu veðri. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 96 orð

Mælir gegn innflutningi á marðardýri

UMHVERFISSTOFNUN mælir gegn því að innflutningur á tegundinni mustela putoris , sem er marðardýr, verði heimilaður. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 100 orð

Office 1 Superstore í Smáralind

Office 1 Superstore hefur opnað verslun á milli BT og Body Shop á 1. hæð í Smáralind. Office 1 á Íslandi er hluti af alþjóðlegri keðju Office 1-verslana og býður upp á mikið og fjölbreytt úrval skrifstofuvara, segir í fréttatilkynningu. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 608 orð | 1 mynd

Samband á milli kannabisneyslu og geðklofa

NEYSLA kannabisefna getur valdið geðklofa í mönnum, segir Robin M. Murray, prófessor í geðlækningum við Institute of Psychiatry í London, en hann flutti fyrirlestur á Norrænu geðlæknaþingi í Háskólabíói í gærmorgun. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 142 orð | 1 mynd

Seftjörn fegurst gatna í Árborg

UMHVERFISNEFND Árborgar hefur valið fallegustu götuna í Árborg árið 2003 eins og gert var fyrir árið 2002 og mæltist vel fyrir. Það var Seftjörn á Selfossi sem varð fyrir valinu að þessu sinni. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 259 orð | 1 mynd

Skapar nýja möguleika á brunastað

SLÖKKVILIÐ Brunavarna Árnessýslu hefur fengið nýjan körfubíl sem var keyptur frá Slökkviliði Stavangurs í Noregi og kostaði hingað kominn 9 milljónir króna. Bíllinn kom með Norrænu til Seyðisfjarðar í síðustu viku og var síðan ekið til Selfoss. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 106 orð | 1 mynd

Uppsveitatröllið birtist í Grímsævintýri

HALDIÐ var Grímsævintýri á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi 9. ágúst sl. Þar mættu flestir sterkustu menn landsins og kepptu um titilinn Uppsveitatröllið. Keppnin var sú þriðja í röð fjögurra liða keppni. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 799 orð | 1 mynd

Úr bæjum í borgríki

Jón Rúnar Sveinson er fæddur á Seyðisfirði 1951. Hann lauk B.A. prófi í þjóðfélagsfræðum frá HÍ árið 1975 og fil.lic. í félagsfræði frá Háskólanum í Uppsölum 1999. Jón Rúnar starfaði hjá Húsnæðisstofnun ríkisins og Íbúðalánasjóði 1982-2001. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 261 orð

Vanskil aukast um 37,5%

RÁÐGJAFARSTOFA um fjármál heimilanna afgreiddi 25% fleiri umsóknir í fyrra en árið áður. Athygli vekur að vanskil þeirra sem leituðu til stofunnar hafa aukist gríðarlega á milli ára eða um 37,5%. Meira
17. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 73 orð

Ævintýramenn ljúka siglingu

HÓPUR ævintýramanna sem freistaði þess að sigla á opnum uppblásnum báti frá Halifax í Kanada til Skotlands komst á áfangastað sinn á föstudag. Meira

Ritstjórnargreinar

17. ágúst 2003 | Leiðarar | 2396 orð | 2 myndir

16. ágúst

UMRÆÐA um utanríkis- og varnarmál hefur sjaldan verið jafnlífleg í Bandaríkjunum og undanfarin ár vegna breyttrar heimsmyndar og aðstæðna á alþjóðavettvangi. Lok kalda stríðsins og hryðjuverkin í New York og Washington 11. Meira
17. ágúst 2003 | Staksteinar | 342 orð

- Afsökun til að ganga á bak orða sinna

Þegar kom að því að Ingibjörg Sólrún vildi hugsa sér til hreyfings úr borgarmálum í landsmálin átti hún við gamalkunnan vanda að etja að mati Andrésar Magnússonar blaðamanns: sín eigin orð. Meira
17. ágúst 2003 | Leiðarar | 632 orð

Amerískt sjónvarp?

Athyglisverðar upplýsingar um uppruna sjónvarpsefnis á Íslandi koma fram í nýlegri skýrslu Hagstofu Íslands um fjölmiðlun og menningu. Þar eru nýjustu tölur frá árinu 2001, en gefa ágæta mynd af því hver þróunin hefur verið á undanförnum árum. Meira
17. ágúst 2003 | Leiðarar | 272 orð

Ritstjórnargreinar Morgunblaðsins

15. ágúst 1993 : "Fyrirhugaðar veiðar íslenzkra fiskiskipa í Barentshafi, sem a.m.k. 15-20 skip stefna nú á, ef ekki fleiri, eru á góðri leið með að verða að stórpólitísku deilumáli innanlands og utan. Á þessu máli eru margar hliðar. Meira

Menning

17. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 160 orð | 2 myndir

Allt að gerast

FIMMTA Iceland Airwaves-hátíðin verður haldin um miðjan október næstkomandi og mun hún standa yfir í fimm daga, frá miðvikudegi til sunnudags. Meira
17. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 544 orð | 2 myndir

Annað eins Riggarobb

Lögin á Þjóðsögu eru flutt af Pöpum og gestum til heiðurs Jónasi Árnasyni. Papa skipa þeir Dan Cassidy (fiðla, mandólín), Eysteinn Eysteinsson (trommur, slagverk, röddun), Georg Ó. Meira
17. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 419 orð | 1 mynd

Auðunn fær aðstoð

AUÐUNN Blöndal, eða Auddi eins og hann er kallaður, er búinn að missa félaga sína tvo, þá Simma og Sveppa, en saman hafa þeir stjórnað þættinum 70 mínútum á Popptíví við miklar vinsældir. Meira
17. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 248 orð | 1 mynd

Fimm diskar og bók

Á MORGUN kemur út fimm diska kassi með Björk, titlaður Livebox . Eins og nafnið gefur til kynna er hér um að ræða tónleikaupptökur og spanna þær allan sólóferil Bjarkar. Meira
17. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 113 orð | 1 mynd

Í ferðalag með Ferðalög

PLATA þeirra Magnúsar Eiríkssonar og KK, 22 Ferðalög , hefur verið með söluhæstu plötum í sumar. Þegar hafa selst um 12.000 eintök af plötunni en á henni leika þeir marga ástsælustu útilegu- og bíltúrasöngva þjóðarinnar. Meira
17. ágúst 2003 | Tónlist | 1552 orð | 1 mynd

Kammertónleikar með slavnesku ívafi

Flytjendur: Ásdís Valdimarsdóttir á víólu, Bryndís Halla Gylfadóttir á selló, Claudio Puntin á klarínett, Edda Erlendsdóttir á píanó, Gerður Gunnarsdótttir á 1. Meira
17. ágúst 2003 | Menningarlíf | 1187 orð | 2 myndir

Leyndardómur svörtu myndanna

Svörtu myndir Francisco Goya þykja byltingarkenndustu verk þessa spænska listamanns. En hvað ef það var ekki Goya heldur sonur hans, Javier, sem á heiðurinn af verkunum? Meira
17. ágúst 2003 | Menningarlíf | 52 orð | 1 mynd

Ljóð

Ásgrímur Ingi Arngrímsson hefur gefið út ljóðabókina Óðs manns kvæði sem inniheldur 46 ljóð. Meira
17. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 806 orð | 2 myndir

Melvins

Rokksveitin ógurlega Melvins á sér langa og merkilega sögu auk þess að eiga þá eitilhörðustu aðdáendur sem þekkjast í rokkinu. Aðdáandinn Arnar Eggert Thoroddsen var svo heppinn að fá spjall við "trommara dauðans", Dale Crover. Meira
17. ágúst 2003 | Menningarlíf | 743 orð | 2 myndir

Menningarlegur vímuritúall

Menningarnótt er merkisviðburður í Reykjavík. Heilmikill kostnaður er við í hátíðina. Mest fer þó í umgjörðina, ekki ólíkt og þegar listamaður opnar myndlistarsýningu í Listasafni Íslands eða Listasafni Reykjavíkur. Meira
17. ágúst 2003 | Menningarlíf | 86 orð | 1 mynd

Nýjar bækur

KOMIN er út ljóðabókin Þríhendur eftir Gunnar Dal. "Bókin er í vasabrotsformi og inniheldur 332 hækur sem höfundur kýs að nefna þríhendur vegna þess að þær eru í þremur línum. Meira
17. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 735 orð | 3 myndir

Nýtt af nálinni

Þ EGAR spáð er í það sem helst er á seyði í nýrri tónlist ber mjög á mikilli grósku í gítarrokki, hvort sem borið er niður vestan hafs eða austan. Meira
17. ágúst 2003 | Menningarlíf | 116 orð | 1 mynd

Raddbandafélagið í Stykkishólmskirkju

Raddbandafélag Reykjavíkur heldur tónleika í Stykkishólmskirkju í dag, sunnudaginn 17.ágúst, kl. 14. Raddbandafélagið skipa 10 einstaklingar sem flestir hafa sungið í ýmsum kórum um árabil og margir eru jafnframt í einsöngsnámi. Meira
17. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 744 orð | 1 mynd

Rokkstjörnur síns tíma

Hauskúpur, höfuðklútar, gulltennur og víðar ermar. Inga Rún Sigurðardóttir kannaði tísku sjóræningjanna. Meira
17. ágúst 2003 | Bókmenntir | 464 orð | 1 mynd

Sá sem kemur aftur

Eftir Gunnar Þorsteinsson. Agenda 2003 - 188 bls. Meira
17. ágúst 2003 | Menningarlíf | 178 orð | 2 myndir

Spenna fyrir unglinga

Tvær spennubækur fyrir unglinga, Setuliðið og Tara , eru komnar út hjá Bókaútgáfunni Sölku. Höfundur er Ragnar Gíslason og um kápuhönnun sá Arnar Geir Ómarsson. Setuliðið segir frá krökkum í Hafnarfirði sem finna beinaleifar auk fjársjóðs. Meira
17. ágúst 2003 | Menningarlíf | 27 orð

Sýningu lýkur

MYNDLISTARSÝNINGU Geirþrúðar Finnbogadóttur Hjörvar, The weight of significance, í Galleríi Dverg, Grundarstíg 21 í Reykjavík, lýkur sunnudaginn 17. ágúst. Sýningin er opin fimmtudag til sunnudags kl.... Meira
17. ágúst 2003 | Menningarlíf | 351 orð | 1 mynd

Tónlistardagar í Vestmannaeyjum

Tónlistarhátíðin Tónlistardagar í Vestmannaeyjum hefst í dag kl. 17 er fyrstu tónleikar hátíðarinnar verða í Höllinni. Meira

Umræðan

17. ágúst 2003 | Bréf til blaðsins | 737 orð | 1 mynd

Gay Pride skrúðgangan/ foreldrar og börn

ÞAÐ FÓR varla framhjá neinum sem hlustaði á eða las fréttir fjölmiðla nýverið að mikið stóð til hjá Samkynhneigðum. Sitt sýndist hverjum um sum uppátækin, en sannarlega vöktu þau athygli svo um munaði. Meira
17. ágúst 2003 | Aðsent efni | 2868 orð | 5 myndir

Hvaða Reykvíkingar voru minnisstæðastir breska ljóðskáldinu Auden frá Íslandsdvöl árið 1937?

BRESKA ljóðskáldið W.H. Auden dvaldist hér á landi um skeið árið 1937. Hann ferðaðist um landið ásamt félaga sínum Louis Macneice. Auden var tengdasonur þýska skáldsins Thomas Mann. Meira
17. ágúst 2003 | Bréf til blaðsins | 507 orð | 3 myndir

Kveðja til skotvarganna

ÞEIR sem friðar fugla deyða fá nú enga rjúpu að veiða, hafa gert sig heiftarreiða heldur en að skammast sín. Jeti þeir um jólin svín . Rósa B. Blöndals. Afskaplega góð þjónusta hjá Expert MIG langar að segja frá ægilega fínni afgreiðslu í Expert. Meira
17. ágúst 2003 | Aðsent efni | 2638 orð | 6 myndir

Verndun rjúpunnar

RJÚPAN er þýðingarmikill fugl í íslensku vistkerfi. Hún er ríkjandi grasbítur meðal hryggdýra á þurrlendi, skipar mikilvægan sess í fæðuvefnum og er m.a. forsenda fyrir tilvist fálka á Íslandi. Rjúpan er að auki vinsælasta bráð íslenskra skotveiðimanna. Meira

Minningargreinar

17. ágúst 2003 | Minningargreinar | 360 orð | 1 mynd

ALEJANDRO TANGOLAMOS

Alejandro Tangolamos fæddist í Mantalongon, Barili, Cebu á Filippseyjum hinn 3. maí 1923. Hann lést á heimili sínu í Barili 8. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru María Companion og Canuto Tangolamos. Hinn 7. Meira  Kaupa minningabók
17. ágúst 2003 | Minningargreinar | 1064 orð | 1 mynd

ÁLFHILDUR GUNNARSDÓTTIR

Álfhildur Gunnarsdóttir fæddist á Kúðá í Þistilfirði 9. júní 1924. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík 5. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Vigdís Vigfúsdóttir, f. 30. maí 1899, d. 22. Meira  Kaupa minningabók
17. ágúst 2003 | Minningargreinar | 1918 orð | 1 mynd

ÁSA JÓHANNSDÓTTIR

Ása Jóhannsdóttir fæddist á Goddastöðum í Dalasýslu hinn 21. janúar 1914. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 7. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhann Jóhannsson, bóndi á Goddastöðum, f. 21. okt. 1873, d. 27. Meira  Kaupa minningabók
17. ágúst 2003 | Minningargreinar | 433 orð | 1 mynd

ELÍN KJARTANSDÓTTIR

Elín Sigurrós Kjartansdóttir fæddist í Reykjavík 9. apríl 1922. Hún lést á heimili sínu 3. ágúst síðastliðinn og var jarðsungin frá Fossvogskirkju 14. ágúst. Meira  Kaupa minningabók
17. ágúst 2003 | Minningargreinar | 2596 orð | 1 mynd

HJÖRDÍS BJARNADÓTTIR

Hjördís Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík 8. nóvember 1922. Hún lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Reykjavík 4. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Hjördísar voru hjónin Margrét Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. í Sandaseli í Meðallandi 29. ágúst 1891, d. Meira  Kaupa minningabók
17. ágúst 2003 | Minningargreinar | 211 orð | 1 mynd

INGUNN GUÐLAUGSDÓTTIR

Ingunn Guðlaugsdóttir fæddist á Akranesi 18. apríl 1973. Hún lést á heimili sínu 6. ágúst síðastliðinn og var jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 15. ágúst síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
17. ágúst 2003 | Minningargreinar | 328 orð | 1 mynd

KRISTJÁN A. HJARTARSON

Kristján Arinbjörn Hjartarson fæddist á Blönduósi 21. apríl 1928. Hann lést á Skagaströnd 2. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hólaneskirkju 9. ágúst. Meira  Kaupa minningabók
17. ágúst 2003 | Minningargreinar | 1179 orð | 1 mynd

ÓLAFUR JÓNSSON

Ólafur Jónsson fæddist í Reykjavík 10. október 1925. Hann lést 2. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Guðni Gunnar Pétursson frá Nýjabæ á Seltjarnarnesi, f. 1. okt. 1896, d. 3. Meira  Kaupa minningabók
17. ágúst 2003 | Minningargreinar | 82 orð | 1 mynd

SIGURSTEINN GUÐMUNDSSON

Sigursteinn Guðmundsson fæddist á Núpi í Fljótshlíð 30. júní 1931. Hann andaðist á heimili sínu, Birkigrund 32 á Selfossi, 2. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Selfosskirkju 11. ágúst. Meira  Kaupa minningabók

Daglegt líf

17. ágúst 2003 | Ferðalög | 200 orð | 2 myndir

Algengast að fólk noti kortið í útlöndum

Það er mismunandi kostnaður við að skipta íslenskum krónum í gjaldeyri þegar fólk er á ferð í útlöndum. Meira
17. ágúst 2003 | Ferðalög | 174 orð | 2 myndir

Auga Lundúnaborgar

ÚTSÝNISFERÐ í Lundúnaaugað eða London Eye sem trónir tignarlega á suðurbakka Thames-ár, vestan við Westminster-brúna, er upplifun sem fáir ættu að láta fram hjá sér fara sem á annað borð heimsækja London. Meira
17. ágúst 2003 | Ferðalög | 343 orð | 1 mynd

Haustferðir á Marriott Hanbury Manor GB...

Haustferðir á Marriott Hanbury Manor GB Ferðir hafa ákveðið að bjóða upp á skipulegar ferðir á Marriott Hanbury Manor í London í haust. Gist er í fjórar nætur á hótelinu og innifalið í verði eru fimm golfhringir, leiðsögn, morgunverður og kvöldverður. Meira
17. ágúst 2003 | Ferðalög | 420 orð | 2 myndir

Sex skemmtigarðar í fjölskylduvænum bæ

Margir muna örugglega eftir Lignano Sabbiadoro á Ítalíu því lengi var það einn af vinsælustu áfangastöðum sólþyrstra Íslendinga. Bergljót Leifsdóttir Mensuali brá sér þangað nú í sumar. Meira
17. ágúst 2003 | Ferðalög | 51 orð | 1 mynd

Upplýsingar um tjaldsvæði í Evrópu

Ef til stendur að gista á tjaldsvæðum í Evrópu er slóðin www.findAcamping.com athyglisverð. Þar er getið um á sjötta þúsund tjaldsvæði í níu Evrópulöndum. Meira
17. ágúst 2003 | Ferðalög | 129 orð

Vikan fram undan

ÁGÚST 17.-22. Ormsteiti á Fljótsdalshéraði Uppskeruhátíðin hófst í síðustu viku og stendur fram á næsta föstudag. Ýmislegt er um að vera, engjarómantík, kvöldsigling, tónleikar, pallasöngur, skipulagðar gönguferðir, grillveislur og kökuhlaðborð. Meira
17. ágúst 2003 | Ferðalög | 147 orð | 1 mynd

Þjónustumiðstöðin í Húsafelli

GAGNGERAR endurbætur hafa farið fram á veitingahúsinu og versluninni í Húsafelli en í febrúar á þessu ári skipti Þjónustumiðstöðin í Húsafelli um eigendur. Við tóku þau Sigríður Snorradóttir, Þorsteinn Sigurðsson og Hrafnhildur Guðmundsdóttir. Meira

Fastir þættir

17. ágúst 2003 | Árnað heilla | 27 orð | 1 mynd

60 ÁRA afmæli .

60 ÁRA afmæli . Reynir Guðnason skólastjóri, Kríuási 47, Hafnarfirði, er sextugur í dag, 17. ágúst. Eiginkona hans er Ingigerður María Jóhannsdóttir . Reynir er að heiman á... Meira
17. ágúst 2003 | Árnað heilla | 37 orð | 1 mynd

80 ÁRA afmæli.

80 ÁRA afmæli. Áttræð verður á morgun, mánudaginn 18. ágúst, Erika Einarsson, Hjallabraut 3, Hafnarfirði. Af því tilefni tekur hún á móti gestum á afmælisdaginn í veitingahúsinu Gaflinum, Dalshrauni 13, Hafnarfirði, á milli kl. 16.00 til... Meira
17. ágúst 2003 | Fastir þættir | 753 orð | 1 mynd

Bartólómeus

Hans er einungis getið á nafnalistum samstofna guðspjallanna og Postulasögunnar; að öðru leyti er persóna hans falin. Sigurður Ægisson fjallar í dag um Bartólómeus, sem e.t.v. hefur þó verið sami maður og Natanael. Og þá rofar aðeins til. Meira
17. ágúst 2003 | Fastir þættir | 267 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson

SÚ gamla regla að spila út fjórða hæsta í lengsta og besta lit gegn þremur gröndum hefur staðist tímans tönn með miklum glæsibrag. En engin regla er án undantekninga. Sumir halda því fram að ekki sé skynsamlegt að spila út frá ás fjórða. Meira
17. ágúst 2003 | Dagbók | 52 orð

Fossaniður

Þá væri, Sjáland, sælla hér sumarið þitt og blómin, ef þú gætir gefið mér gamla fossaróminn. Hefði allur auður þinn eitthvað slíkt að bjóða, léti ég fyrir lækinn minn leikhússönginn góða. Þó að vanti þennan nið, þér finnst ekki saka. Meira
17. ágúst 2003 | Dagbók | 118 orð

Háteigskirkja.

Háteigskirkja. Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Pútt alla daga kl. 10 ef veður leyfir. Hallgrímskirkja . Sumarkvöld við orgelið. Orgeltónleikar kl. 20. Steingrímur Þórhallsson leikur á orgel. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Meira
17. ágúst 2003 | Dagbók | 534 orð

(Lúk. 12, 34.)

Í dag er sunnudagur 17. ágúst, 229. dagur ársins 2003, Hólahátíð. Orð dagsins: Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. Meira
17. ágúst 2003 | Fastir þættir | 161 orð | 1 mynd

SKÁK - Umsjón Helgi Áss Grétarsson

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 0-0 8. c3 d5 9. exd5 Rxd5 10. Rxe5 Rxe5 11. Hxe5 c6 12. d4 Bd6 13. He1 Dh4 14. g3 Dh3 15. Df3 Be6 16. Dg2 Dh5 17. Bd1 Dg6 18. Rd2 Hae8 19. Re4 Bf5 20. f3 c5 21. Bd2 cxd4 22. cxd4 Bb8... Meira
17. ágúst 2003 | Fastir þættir | 412 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

VÍKVERJI varði hluta sumars á Snæfellsnesi sem er í hans huga fallegasti staður á Íslandi. Arnarstapi ber að mati Víkverja af öðrum stöðum þar. Höfnin, sem er full af mann- og dýralífi á sumrin, er ótrúlega skemmtileg í sérstöku landslaginu. Meira
17. ágúst 2003 | Dagbók | 23 orð | 1 mynd

Þessar stúlkur héldu tombólu og flóamarkað...

Þ essar stúlkur héldu tombólu og flóamarkað á Akureyri og söfnuðu 8.782 kr. Þær afhentu peningana Elliheimilinu Hlíð. F.v. Meira

Sunnudagsblað

17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 682 orð | 2 myndir

Aldrei komið að tómum kofanum

Nú í vor kom út annað bindið af Íslensku vatnaveiðihandbókinni eftir Eirík St. Eiríksson, blaðamann og fyrrverandi ritstjóra Veiðimannsins. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 1286 orð | 1 mynd

Allir hljóta að vera femínistar inn við beinið

GÍSLI Hrafn Atlason segist vera femínisti og segir að allir hljóti að vera femínistar inn við beinið. "Hver er ekki fylgjandi launajafnrétti eða hver er fylgjandi ójöfnuði, nauðgunum eða öðru ofbeldi á konum?" spyr hann. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 1065 orð | 1 mynd

Allt í einu opnaðist einhver rás og nýr farvegur

ÞORGERÐUR Einarsdóttir, lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands, segist halda að bakslag í jafnréttismálum hafi komið þessu af stað. "Allir hafa verið hopandi," segir hún. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 405 orð | 2 myndir

Casa Lapostolle, Frakki í Chile

Casa Lapostolle hefur sérstöðu um margt í vínheimi Chile. Fyrirtækið er í eigu frönsku fjölskyldunnar Marnier-Lapostolle, sem líklega er þekktust fyrir að framleiða líkjörinn Grand Marnier í samvinnu við Rabat-fjölskylduna í Chile. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 407 orð | 1 mynd

Ef það stæði aðeins betur á...

Fyrir mörgum árum heyrði ég þátt í útvarpinu þar sem verið var að láta reyna á hina margrómuðu hjálpsemi Íslendinga. Hringt var í fólk úti á landi og það beðið að hjálpa manni sem átti von á stórum farmi með vörubíl. En að sögn þess sem hringdi hafði bíllinn því miður farið skakka leið og því var nauðsynlegt að bjarga málunum í bili. Hann fór þess á leit við þann sem hann hringdi í að sá hinn sami sæi um að taka á móti bílnum og koma farminum fyrir til bráðabirgða. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 195 orð | 3 myndir

Ellefu fyrirtæki rækta krækling

TALIÐ er að kræklingarækt hafi hafist á þrettándu öld, þegar skipreika Íri setti staura út í sjó til að festa net við. Hann sá þá að kræklingur settist á staurana og ákvað að hefja kræklingarækt. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 885 orð | 4 myndir

Enginn þarf að láta sér leiðast um borð

Það er skipt um handklæði hjá gestum þrisvar á dag og búið um rúmin morgna og kvölds. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir skoðaði sex stjörnu skemmtiferðaskip sem lagðist fyrir skömmu að bryggju í Sundahöfn. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 645 orð | 1 mynd

Engin veiði án ullarnærbuxna

Togaðu í tauminn strákur, hrópar bóndi á bæ við Vatnsdalsá. Brúnn hestur hleypur um túnið og lítill strákur með hjólahjálm á baki honum. Þegar hesturinn hleypur niður brekku meðfram girðingunni veinar drengurinn af hræðslu. - Togaðu í tauminn! Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 151 orð | 1 mynd

Framfærsla LÍN nægir í Danmörku

SNORRI Arnar Viðarsson, meistaranemi í viðskiptafræði við Verslunarskólann í Árósum, segir að þau lán sem hann fái frá LÍN dugi honum ágætlega en Snorri á konu og tvö börn. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 1990 orð | 5 myndir

Framfærslugrunnurinn átta ára gamall

Háskólarnir hefja kennslu í lok mánaðarins og mörg þúsund námsmenn hafa sótt um lán fyrir veturinn en umsóknarfrestur um lán rann út á föstudaginn. Árni Helgason ræddi við nemendur og nemendasamtök ásamt fulltrúum stjórnvalda um stöðu lánamála hjá íslenskum háskólanemum. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 41 orð

Framfærslutafla

Háskólanemar eiga rétt á eftirfarandi hlutfalli af grunnframfærslunni: *Foreldrahús 0,70 *Leigu- eða eigin húsnæði 1,00 *Hjón með 1 barn 1,25 *Einstætt foreldri með 1 barn 1,45 *Hjón með 2 börn 1,50 *Hjón með 3 börn 1,75 *Einstætt foreldri með 2 börn... Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 5106 orð | 1 mynd

Galdurinn er að brosa framan í spegilinn

Fyrri eiginkona Friðgeirs Grímssonar var dauðvona af berklum þegar hún gaf honum þýsk-íslenska orðabók og lét hann heita því að halda utan til framhaldsmenntunar. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 3642 orð | 2 myndir

Hjón og félagar á framabraut

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því Karen Björk Björgvinsdóttir var lítil stelpa í Hlíðunum. Með eiginmann sinn, Adam Reeve, sér við hlið náði hún þeim frábæra árangri að hampa heimsmeistaratitlinum í 10 dönsum á heimsmeistaramótinu í samkvæmisdönsum í Tokýó 22. júní sl. Anna G. Ólafsdóttir kynntist fólkinu á bakvið titilinn bjartan morgun í Barmahlíðinni. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 144 orð

Hlý og köld tímabil

Rannsóknarverkefnið Hlý og köld tímabil: Rannsóknir á þróun veðurfars síðustu 10-12 þúsund árin er samstarf hóps alþjóðlegra vísindamanna undir stjórn dr. Áslaugar Geirsdóttur og dr. Gifford H. Miller. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 147 orð

Hvers vegna stendur LÍN ekki undir sér?

ÝMSIR þættir valda því að LÍN stendur ekki undir sér og vegur þar þyngst sá að sjóðurinn tekur sjálfur lán með um 5-6% vöxtum en lánar námsmönnum með 1% vöxtum. Nemendur borga auk þess ekki vexti af lánum meðan á námstíma stendur. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 630 orð | 4 myndir

Í Austurdal við Tindfjallajökul

Austurdalur er afar einkennilegur og fagur dalur við Tindfjallajökul. Nýlega fór hópur frá Ferðafélagi Íslands dagsferð þangað og var það fyrsta hópferð félagsins á þær slóðir. Gerður Steinþórsdóttir segir frá ferðinni og lýsir staðháttum. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 679 orð | 1 mynd

Kræklingur

K ræklingur nýtur gífurlegra vinsælda víða í Evrópu ekki síst í Belgíu, Lúxemborg og Frakklandi þar sem á vissum árstímum er vart hægt að finna annað á matseðlum veitingahúsa en krækling í margvíslegum útfærslum. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 86 orð

Lánaútreikningur

Á heimasíðu LÍN má finna dæmi um útreikning námslána. Hér verða tekin tvö dæmi, annars vegar af námsmanni A, sem býr í eigin húsnæði og er með 600.000 krónur í árstekjur og hins vegar af námsmanni B sem býr í eigin húsnæði og hefur nám eftir langt leyfi. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 1182 orð | 2 myndir

Maður getur vart annað en hlegið

Þegar Edna Mikaelsdóttir var tíu ára fékk hún stundum að vera inni með vinum elsta bróður síns, hippum með langt hár og fléttur. Hún greiddi á þeim hárið, hlustaði á þá spila á bongó og ræða náttúrufræði, jóga, hugleiðslu, tónlist og fleira. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 2774 orð | 1 mynd

Mamma var minn góði engill

Einhverfa og lesblinda mótuðu æsku og uppvaxtarár Ron Davis verkfræðings, sem er höfundar Davis-kerfisins gegn lesblindu. Hann segir hér Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá lífi sínu og baráttunni við að læra að tala og lesa og verða "eðlilegur" maður, eins og hann orðar það. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 1514 orð | 1 mynd

Mikilvægt, jákvætt pólitískt afl á ferðinni

GUÐRÚN Agnarsdóttir læknir hefur komið víða við í kvennabaráttunni. Hún dvaldist erlendis við framhaldsnám og störf á árunum 1968 til 1981. "Ég var í útlöndum allt rauðsokkutímabilið," segir hún. "Á þeim árum var mikið á seyði í Bretlandi. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 455 orð

Myndræn hugsun orsök lesblindu

Hjá Lesblind.com er nýkomin út bókin "Náðargáfan lesblinda", eftir Ronald D. Davis og væntanlegt er myndband sem stuðningur við bókina. "Við ákváðum að þýða þessa bók sem svar við gífurlegri eftirspurn sem fram kom m.a. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 247 orð

Mý með hitamæli í hausnum

Á meðan borað var í vötnin þrjú, Hvítárvatn, Hestvatn og Haukadalsvatn, í sumar var hópur íslenskra og bandarískra framhaldsnema í jarðfræði á ferð um landið þvert og endilangt að safna vatnssýnum og rykmýi. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 94 orð

Orðskýringar

Hvað er grunnframfærsla? Grunnframfærsla er sú upphæð sem námsmenn eiga rétt á að fá mánaðarlega. Grunnframfærsla er miðuð við námsmann sem býr einn og á ekki börn. Hann fær 77.500 krónur á mánuði. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 265 orð | 1 mynd

Ójafnrétti og klám ástæða nýju femínísku bylgjunnar

Umræða um femínisma hefur verið mjög áberandi á undanförnum mánuðum og svo virðist sem áhugi á málefninu sé skyndilega að aukast. Hér á landi hafa sprottið upp spjallrásir á netinu og netsíður og í vor var Femínistafélag Íslands stofnað. Ásdís Haraldsdóttir kynnti sér málið. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 1302 orð | 9 myndir

Óvissa um framtíðina

S TUNDUM er hann kallaður Frank Sinatra Kristjaníu; maðurinn sem rekur djassklúbbinn í Barnaleikhúsinu tvö kvöld í viku og situr núna fyrir framan blaðamann rauður og stokkbólginn á nefinu. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 252 orð

Punktar um Lánasjóðinn og námslán

* Allir þeir sem eru í lánshæfu háskólanámi eiga rétt á námslánum. * Námslán voru fyrst veitt hér á landi árið 1952 og Lánasjóður íslenskra námsmanna var stofnaður árið 1961. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 2531 orð | 5 myndir

Sagan í botnseti stöðuvatna

Við boranir í þrjú íslensk stöðuvötn í sumar fengust setkjarnar sem eru vísindamönnum sem gullnáma. Ragnhildur Sverrisdóttir ræddi við dr. Áslaugu Geirsdóttur sem vonast til að rannsóknirnar varpi ljósi á loftslagsbreytingar síðustu árþúsunda. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 225 orð | 1 mynd

Segir lánin ekki duga til að ná endum saman

KATRÍN Jónsdóttir, nemandi í sálfræði við Háskóla Íslands, segir að námslánin sem hún fái dugi henni ekki til að ná endum saman. Katrín býr með kærasta sínum í leiguhúsnæði og þrátt fyrir að eyða ekki miklu, dugðu þær 75. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 4 orð | 1 mynd

Spurt er

15. Hver er... Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 107 orð

Torres og Chile á Sögu

Á Hótel Sögu hófust á föstudag þemadagar á veitingastöðum hótelsins, Skrúði og Grillinu, sem tileinkað er Chile. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 784 orð | 1 mynd

Tókum samfélagið alvarlega

Þau eru ófá kaffihúsin við Strikið og allt um kring. Fólk sötrar kaffi; svelgir það í sig ef það er að flýta sér. Það verður að fá kaffið sitt. En Bergur Thorberg finnur önnur not fyrir kaffið. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 125 orð

Villtir fiskar og fuglar á Sommelier

Veitingastaðurinn Sommelier við Hverfisgötu hefur undanfarna mánuði boðið gestum sínum upp á fjórrétta matseðla af ýmsu tagi. Í tilefni Menningarnætur í Reykjavík um helgina var kynntur nýr fjögurra rétta seðill þar sem áherslan er lögð á fiska og fugla. Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 45 orð | 1 mynd

Yfirvöld í Danmörku ætla að stöðva...

Yfirvöld í Danmörku ætla að stöðva hasssölu í fríríkinu Kristjaníu á næstunni og endurskipuleggja gömlu herbúðirnar, þar sem utangarðsfólk og hippar hreiðruðu um sig á áttunda áratugnum. Pétur Blöndal skoðaði þetta litla samfélag og talaði við þrjá Íslendinga sem komið hafa við sögu þess. 10 Meira
17. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 1180 orð | 1 mynd

Það óx tré upp úr eldhúsinu

ÞAÐ er ekki amalegt að ganga um Kristjaníu með Fríðu Arnardóttur, sem þekkir þar hvern krók og kima og íbúana líka. Hún kom fyrst til Kristjaníu sumarið 1972. Meira

Úr verinu

17. ágúst 2003 | Úr verinu | 3689 orð | 1 mynd

Ég hef ekkert svikið

Umdeildar ákvarðanir Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra að undanförnu hafa vakið upp sterk viðbrögð, bæði hér heima og erlendis. Hjörtur Gíslason ræddi við ráðherrann um línuívilnun, hvalveiðar og fleiri þætti í íslenzkum sjávarútvegi.Hann telur að ekki sé hægt að koma á línuívilnun fyrr en í upphafi næsta fiskveiðiárs og hugsanlega falli byggðakvótar þá niður. Meira

Barnablað

17. ágúst 2003 | Barnablað | 175 orð | 1 mynd

Fjör í íþróttaskóla

Krakkarnir í Sumarskóla Þróttar voru uppi í Indíánagili í Elliðaárdal þegar Barnablaðið rakst á þau í vikunni. Krakkarnir voru með háva, sigti og dollur að reyna að veiða síli. Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 20 orð | 1 mynd

Flottasta myndin

Þessi mynd eftir Elísu Valdísi Einarsdóttur á Akranesi var valin flottasta myndin í ljósmyndasamkeppninni "Úti er fjör". Til hamingju,... Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 39 orð | 1 mynd

Flókið heimboð

Ormurinn á myndinni er boðinn í mat til moldvörpunnar sem er þegar sest til borðs. Það er bara verst að hann ratar ekki niður í holuna hennar. Getið þið hjálpað honum svo að hann verði ekki allt of... Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 144 orð | 1 mynd

Gleði í ausandi rigningu

Eitt af því sem er gaman að gera á sumrin er að fara niður í miðbæ Reykjavíkur og fylgjast með skrúðgöngu homma og lesbía á Hinsegin dögum. Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 66 orð | 1 mynd

Hverjum viltu hjálpa?

Kóngulóin á myndinni er örugglega að vona að flugan fljúgi beint í vefinn hennar. Ef þið viljið hjálpa flugunni að forðast hann getið þið litað kóngulóna og vefinn hennar í skærum litum þannig að flugan taki betur eftir þeim. Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 1 orð

k h b m þ v...

k h b m þ v b s ó u e r e e p h n g á f r i ý g g ð u j n ð a i u r a n i r n r l m a o r m a r... Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 134 orð

Kónguló sem gæludýr

Marga krakka dreymir um að eignast gæludýr en hefur ykkur nokkurn tíma dottið í hug að kónguló gæti verið skemmtilegt gæludýr? Þið ættuð kannski að prófa það því það er auðvelt að hugsa um þær og gaman að fylgjast með þeim. Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 76 orð

Ljósmyndaverðlaun

Lesendur Barnablaðsins eru greinilega mjög góðir ljósmyndarar. Það bárust margar góðar myndir í ljósmyndasamkeppnina "Úti er fjör" en það kom samt nokkuð á óvart að það tóku engir strákar þátt í keppninni. Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 1 orð

Orðin eru:

kónguló berjamó vefur ungar hýði spinna þráður ormar... Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 36 orð | 1 mynd

Ormaþraut

Ormarnir á myndinni virðast í fljótu bragði allir vera eins en í raun eru það bara tveir þeirra sem eru nákvæmlega eins. Getið þið hjálpað vísindamönnunum á myndinni við að finna þá sem eru alveg... Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 41 orð

Stafarugl

Hér kemur svolítið kóngulóar-stafarugl fyrir ykkur að ráða fram úr. Lesið línurnar hægt og athugið hvort þið getið fundið orðin á orðalistanum. Stafirnir eru allir í réttri röð og flest orðin liggja lárétt eða lóðrétt. Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 99 orð | 1 mynd

Varðveitið kóngulóarvef

Það sem þarf: kóngulóarvefur málning í spreybrúsa blað í öðrum lit skæri *Svona farið þið að: 1. Finnið fallegan kóngulóarvef úti í náttúrunni. 2. Meira
17. ágúst 2003 | Barnablað | 579 orð | 2 myndir

Vísaðu mér á kónguló . . .

Rétt eins og það hefur verið óvenju mikið af geitungum á sveimi vegna veðurblíðunnar í sumar er útlit fyrir að það verði mikið af berjum í sumar. Meira

Ýmis aukablöð

17. ágúst 2003 | Kvikmyndablað | 101 orð

Arthúr konungur "bruckheimskaður"

ENN ein forn goðsögn hefur nú verið tekin til endurmats af Hollywood. Er þar um að ræða sögnina um Arthúr konung og riddara hringborðsins en hasarsmellaframleiðandinn Jerry Bruckheimer stendur nú fyrir gerð nýrrar myndar um þá félaga á Írlandi. Meira
17. ágúst 2003 | Kvikmyndablað | 208 orð | 1 mynd

Bier og Moodysson að byrja á nýjum myndum

TVEIR fremstu og vinsælustu leikstjórar Norðurlanda, Svíinn Lukas Moodysson og Daninn Susanne Bier eru um þessar mundir að hefja tökur á næstu kvikmyndum sínum eftir mikla velgengni þeirra síðustu, Lilja 4-Ever og Elsker dig for evigt, sem báðar voru... Meira
17. ágúst 2003 | Kvikmyndablað | 79 orð | 1 mynd

Gamlir snillingar enn að störfum

ÞEIR Eric Rohmer og Jean-Luc Godard teljast til höfuðsnillinga franskrar kvikmyndagerðar og þótt þeir séu nú vel við aldur, Rohmer 83 ára og Godard 73 ára, eru þeir enn að búa til bíómyndir. Meira
17. ágúst 2003 | Kvikmyndablað | 731 orð

Keppnismaðurinn

Rétt eins og leikarar festast stundum í ákveðnum tegundum hlutverka eru sumir leikstjórar æ ofaní æ ráðnir til að stýra samskonar eða svipuðum myndum, segjum t.d. hasarmyndum, glæpamyndum, fölbláum myndum o.s.frv. Meira
17. ágúst 2003 | Kvikmyndablað | 97 orð | 1 mynd

Liv Ullmann leikstýrir Slóð fiðrildanna

NORSKA leikkonan og leikstjórinn Liv Ullmann segir að hún hafi tekið að sér að leikstýra kvikmynd sem byggð er á skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Slóð fiðrildanna. Í samtali við norska ríkisútvarpið kveður Ullmann tökur geta jafnvel hafist á næsta... Meira
17. ágúst 2003 | Kvikmyndablað | 121 orð | 1 mynd

Mótmæli dynja á Kristsmynd Gibsons

KVIKMYNDIN The Passion sem Mel Gibson leikstýrir eftir píslarsögunni um krossfestingu Krists hefur fengið yfir sig dembu mótmæla frá trúarleiðtogum gyðinga og kaþólikka löngu fyrir frumsýninguna, nú síðast frá áhrifamiklum samtökum sem nefnast The... Meira
17. ágúst 2003 | Kvikmyndablað | 59 orð | 1 mynd

Ron Shelton

er nú 58 ára að aldri, innfæddur Kaliforníubúi, en menntaður í Arizonaháskóla í listfræði. Um hríð velti hann fyrir sér að helga sig höggmyndalist en varð að taka að sér ýmis störf til að hafa í sig og á. Meira
17. ágúst 2003 | Kvikmyndablað | 103 orð | 1 mynd

Von Trier og Leth saman í Feneyjakeppni

TVEIR af þekktustu leikstjórum tveggja kynslóða í Danmörku Lars von Trier og Jörgen Leth standa saman að gerð heimildamyndarinnar De fem bespænd/ Hindranirnar fimm sem valin hefur verið til keppni á Feneyjahátíðinni 27. ágúst til 6. september. Meira
17. ágúst 2003 | Kvikmyndablað | 925 orð | 2 myndir

Þetta er bara bíómynd!

Kvikmyndagerðarmenn komast fljótt að því að þeirra starf er ekkert spaug, öfugt við það sem margir álíta þegar þeir virða fyrir sér allt húllumhæið og glamúrinn í kringum frumsýningarnar. Því hafa Marteinn Þórsson og Jeff Renfroe félagi hans fengið að kynnast á undanförnum misserum í erfiðri baráttu við að gera myndina 1.0 að veruleika. Sæbjörn Valdimarsson náði tali af Marteini í Hollywood þar sem þeir félagar eru önnum kafnir við eftirvinnsluna. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.