Greinar föstudaginn 29. ágúst 2003

Forsíða

29. ágúst 2003 | Forsíða | 266 orð | 1 mynd

Ferðafólk bjargaðist úr jökulá

UNGT par og barn þeirra á öðru aldursári lentu í miklum háska þegar Land Rover-jeppi þeirra festist hálfur í kafi í Jökulsá vestari við Ingólfsskála norðan Hofsjökuls í gærmorgun. Meira
29. ágúst 2003 | Forsíða | 104 orð

Hagvöxtur 3,1% í Bandaríkjunum

HAGVÖXTUR í Bandaríkjunum var meiri en vonir stóðu til á öðrum ársfjórðungi en í gær tilkynnti ríkisstjórnin að hann hefði verið 3,1% á ársgrundvelli. Spár gerðu ráð fyrir 2,4% hagvexti. Meira
29. ágúst 2003 | Forsíða | 264 orð | 1 mynd

Hefði sagt af sér væri fréttin sönn

TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, neitar að stjórnvöld hafi breytt skýrslu um vopnaeign Íraka og segir að hefði frétt BBC, þar sem því var haldið fram, verið sönn hefði hann orðið að segja af sér. Meira
29. ágúst 2003 | Forsíða | 259 orð

Minni spurn sjóðfélaga eftir lánum hjá lífeyrissjóðum

TÖLUVERT dró úr lánveitingum nokkurra stórra lífeyrissjóða til sjóðfélaga á fyrri hluta ársins en forsvarsmenn sjóðanna vilja þó fara varlega í að túlka samdráttinn og segja erfitt að átta sig á því hverjar orsakirnar séu og hvort þessi samdráttur muni... Meira
29. ágúst 2003 | Forsíða | 136 orð | 1 mynd

Ógreiddar lífeyrisskuldbindingar 1,4 milljarðar

REKSTRARVANDA Sinfóníuhljómsveitar Íslands má að talsverðu leyti rekja til ákvörðunar ríkisins árið 1993 um að B-hluta-stofnanir ríkisins skyldu framvegis sjálfar standa undir lífeyrishækkunum, sem ríkið greiddi áður beint. Meira
29. ágúst 2003 | Forsíða | 129 orð | 1 mynd

Öngþveiti er rafmagn fór af London

HUNDRUÐ þúsunda íbúa Lundúnaborgar komust hvorki lönd né strönd þegar rafmagn fór af borginni á háannatíma í gærkvöldi með þeim afleiðingum að stór hluti lestarkerfa borgarinnar stöðvaðist. Meira

Baksíða

29. ágúst 2003 | Baksíða | 391 orð

1911 Andrés

Andrés Fjöldi manns vann við saumaskap og umsvifin voru mikil ANDRÉS Andrésson var umsvifamikill klæðskeri allt frá árinu 1911 þegar hann stofnaði fyrirtæki sitt nýkominn úr framhaldsnámi frá Kaupmannahöfn. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 439 orð

1916 Lífstykkjabúðin

Lífstykkjabúðin Verðandi brúðir kaupa sér lífstykki undir brúðarkjólinn LÍFSTYKKJABÚÐIN var stofnuð árið 1916 af Elísabetu Kristjánsdóttur Foss. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 409 orð

1919 Brynja

Brynja Alls konar smáhlutir sem stórmarkaðirnir nenna ekki að vera með EITT af akkerum miðbæjarverslunarinnar er Brynja sem hefur staðið við Laugaveginn í nær 84 ár og stendur enn. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 295 orð

1942 Þorsteinn Bergmann

Þorsteinn Bergmann Fatalitur lagði grunninn að rekstrinum - og fæst enn ÞEGAR Helena Bergmann og fjölskylda fóru að skoða gamlan lager verslunarinnar Þorsteinn Bergmann kom ýmislegt í ljós og þar á meðal súkkulaðibúðingur og nærföt. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 393 orð

1959 Bernharð Laxdal

Bernharð Laxdal Verslunin gengur á viðskiptatryggð en yngra fólk kemur líka ATHYGLI vakti þegar Hillary Clinton kom við í þeirri fornfrægu verslun Bernharð Laxdal á ferð sinni hér á landi árið 1999, í tilefni af ráðstefnunni Konur og lýðræði. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 127 orð | 1 mynd

86,6% hækkun frá árinu 1999

IÐGJÖLD á lögboðnum bifreiðatryggingum hafa hækkað um 86,6% frá því í ársbyrjun 1999, en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 20,1%. Hækkunin á fyrri hluta þessa tímabils var þó verulega meiri en sú hækkun sem orðið hefur frá ársbyrjun 2002. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 96 orð

Atlaga að tyggjóklessum

ÖFUGT við aðra ferðamenn á Markúsartorginu í Feneyjum í sumar sögðust hjónin Hildur Björg Ingibertsdóttir og Erlingur Snær Erlingsson hafa gónt á göturnar og virt fyrir sér allar tyggjóklessurnar. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 67 orð | 1 mynd

Banaslys í Borgarfirði

ÖKUMAÐUR flutningabíls lét lífið þegar bíll hans fór út af Borgarfjarðar-brúnni við Borgarnes og lenti í sjónum á mánudag. Lögreglan telur slysið hafa orðið er eitt dekkið á bílnum sprakk. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 1251 orð | 4 myndir

Daður í dulargervi

AF efnisþáttum margra erlendra kvennatímarita má ráða að þeim sé ætlað að höfða til stúlkna, ekki mikið eldri en sautján ára. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 164 orð | 1 mynd

Draumurinn sem rættist

Á ÞRIÐJUDAGINN hélt bandaríska rokk-hljómsveitin Foo Fighters tónleika í Laugardals-höll. Í hljómsveitinni er Dave Grohl sem einu sinni lék á trommur með rokk-sveitinni Nirvana. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 95 orð

Engir fjármunir til varðveislu yfir 700 minja

ENGIR fjármunir eru fyrir hendi hjá Fornleifavernd ríkisins til að halda við yfir 700 fornleifum og minjum víðs vegar um land, að sögn Kristínar Huldar Sigurðardóttur, forstöðumanns stofnunarinnar. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 341 orð | 1 mynd

Fornleifavernd ríkisins harmar framkvæmdina

FORSTÖÐUMAÐUR Fornleifaverndar ríkisins, Kristín Huld Sigurðardóttir, segist harma það að gamli hitaveitustokkurinn milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur verði rifinn að mestu leyti og aðeins skilinn eftir stuttur bútur í miðbæ Mosfellsbæjar. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 287 orð | 5 myndir

Gamlar búðir blómstra enn

GAMLAR búðir með sögu og upprunalegt nafn eru nokkrar í miðborginni. Hver kannast ekki við Eymundsson, Guðstein, Bernhöftsbakarí og Liverpool, að ekki sé talað um Lífstykkjabúðina eða Andrés? Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 96 orð | 1 mynd

Góð uppskera víða

ÚTLIT er fyrir mikla uppskeru á korni, kartöflum og úti-ræktuðu grænmeti á Suðurlandi og víðar. Byrjað er að þreskja korn þremur vikum fyrr en venjulega. Þá er grænmeti tíu dögum til tveimur vikum á undan því sem gerist í meðalári. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 1025 orð | 5 myndir

klessurnar burt

Erlingur Snær Erlingsson og Hildur Björg Ingibertsdóttir stofnuðu nokkuð sérstakt fyrirtæki í vor sem leið. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti hjón sem fara um bæinn með umhverfisvæna tyggjóhreinsivél. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 151 orð | 1 mynd

Kristján Örn eini nýliðinn í lands-liðinu

KRISTJÁN Örn Sigurðsson , varnar-maður úr KR, er eini nýliðinn í íslenska lands-liðinu. Kristján var valinn af landsliðs-þjálfurunum, Ásgeiri Sigurvinssyni og Loga Ólafssyni , til að taka þátt í leiknum á móti Þjóðverjum. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 59 orð

Mikill reykur í Kópavogi

ALLT tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út á ellefta tímanum í gærkvöld vegna mikils reyks frá atvinnuhúsnæði á horni Auðbrekku og Skeljabrekku í Kópavogi. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 166 orð | 1 mynd

Múslímum kennt um hryðjuverk á Indlandi

MEIRA en 50 manns fórust og hátt á annað hundrað manns særðist er tvær sprengjur sprungu í borginni Bombay á Indlandi. Tilræðið átti sér stað síðast liðinn mánudag og er ekki enn vitað hverjir bera ábyrgð á ódæðinu. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 141 orð | 1 mynd

Nýnemavígsla í Verzló

Í framhaldsskólum hefur lengi viðgengist sá siður að bjóða nýnema, "busa", velkomna í skólann. Það hefur verið gert með ýmsum hætti í gegnum tíðina. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 52 orð | 21 mynd

Nöfnin þekkt að góðu

Útlensk nöfn og síbreytilegar innréttingar í verslunum eru ekki endilega ávísun á farsælan og langlífan rekstur. Steingerður Ólafsdóttir og Jim Smart spókuðu sig um í nokkrum af elstu verslunum borgarinnar. Ein er kennd við Brynju, þrjár við stofnendurna, Andrés, Bernharð og Þorstein, og sú fimmta við nærplagg kvenna. Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 220 orð | 2 myndir

Smjattað og blásið

ÞÓTT mannskepnan sé ekki jórturdýr þá virðist hún vera haldin mikilli þörf til að tyggja eitthvað annað en mat. Hver kannast ekki við þá ró sem færist yfir þegar strá er tuggið? Eða þegar tannstöngull er nagaður að lokinni góðri máltíð? Meira
29. ágúst 2003 | Baksíða | 81 orð | 1 mynd

Turnarnir rifnir út

TVEGGJA turna tal, kvikmyndagerð annars hluta Hringadróttinssögu, hefur selst gríðarlega vel síðan hún kom út á myndbandi og mynddiski á þriðjudaginn. Á útgáfudegi voru afgreidd frá útgefanda yfir 13 þúsund eintök, 8.500 á mynddiski og 4. Meira

Fréttir

29. ágúst 2003 | Akureyri og nágrenni | 76 orð | 1 mynd

02 Gallery á laggirnar

MYNDLISTARMENNIRNIR Jónas Viðar og Þórarinn Blöndal opna á morgun nýjan sýningarsal á Akureyri. 02 Gallery, eins og þeir kalla staðinn, er staðsettur í Amarohúsinu í Hafnarstræti 101. Meira
29. ágúst 2003 | Austurland | 222 orð

Aðeins 105 laxar hafa verið veiddir

STARFSMENN Síldarvinnslunnar í Neskaupstað vinna enn að því að leita að laxinum sem slapp úr sjókví í höfninni í Norðfirði fyrir rúmri viku en að sögn Björgólfs Jóhannssonar, forstjóra Síldarvinnslunnar, hefur árangurinn verið lítill. Meira
29. ágúst 2003 | Austurland | 70 orð

Austrakjallarinn Egilsstöðum : Stofnfundur Hestaeigendafélags Austur-Héraðs,...

Austrakjallarinn Egilsstöðum : Stofnfundur Hestaeigendafélags Austur-Héraðs, 29. ágúst kl. 21:00. Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum : Ágústdansleikur Harmónikkufélags Héraðsbúa 30. ágúst kl. 22:00-03:00. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 226 orð

Ágæt úthafskarfaveiði síðustu daga við Hvarf

FRYSTITOGARINN Venus HF hefur verið í ágætri karfaveiði rúmlega 500 km suður af Hvarfi á Grænlandi síðustu fimm daga. Haraldur Árnason skipstjóri sagði í gærkvöldi að veiðin hefði aðeins dottið niður þá um daginn. Meira
29. ágúst 2003 | Höfuðborgarsvæðið | 446 orð | 3 myndir

Ánægjulegt samstarf norrænna kennaranema

NÝTT útivistarsvæði á Víðistaðatúni í Hafnarfirði var formlega tekið í notkun við afar litríka og gleðilega athöfn í gær. Meira
29. ágúst 2003 | Akureyri og nágrenni | 18 orð

ÁRLEGT ágústhraðskákmót Skákfélags Akureyrar verður haldið...

ÁRLEGT ágústhraðskákmót Skákfélags Akureyrar verður haldið á sunnudagskvöldið í Íþróttahöllinni. Mótið hefst kl. 20 og eru allir... Meira
29. ágúst 2003 | Austurland | 72 orð | 1 mynd

Birkikörfur til yndisauka

GUÐRÚN Sigurðardóttir, handverkslistakona á Egilsstöðum, hefur um árabil glatt heimamenn og ferðafólk á Egilsstöðum með litskrúðugum blómakörfum sem standa vítt um bæinn til yndisauka. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 542 orð

Brúarhlaup Selfoss fer fram í 13.

Brúarhlaup Selfoss fer fram í 13. skipti laugardaginn 6. september nk. Keppnisvegalengdir verða hálfmaraþon (21,1 km), 10 km, 5 km og 2,5 km. Einnig er keppt í hjólreiðum 5 km (malbik) og 12,5 km (leiðin er bæði malbik og malarvegur). Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 99 orð | 1 mynd

Dagskránni dreift á landsbyggðinni

MORGUNBLAÐIÐ og Dagskrá vikunnar hafa gert með sér samkomulag um að dreifa Dagskrá vikunnar framvegis með föstudagsblaði Morgunblaðsins á landsbyggðinni og verður næsta tölublaði Dagskrár vikunnar dreift með Morgunblaðinu í dag, 29. ágúst. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 83 orð

Eldur út frá sjónvarpstæki

ELDUR kom upp í íbúð á þriðju hæð í fjölbýli við Gyðufell í Reykjavík í gær. Lögregla rýmdi allar íbúðir í stigaganginum en enginn var í íbúðinni þar sem eldurinn kom upp. Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins á um þrjátíu mínútum. Meira
29. ágúst 2003 | Akureyri og nágrenni | 205 orð

Eldur, vatn og allir regnbogans litir

AKUREYRARVAKA verður haldin á morgun, laugardag, frá morgni til kvölds. Formleg setning verður reyndar í kvöld, á afmælisdegi Akureyrarbæjar. Meira
29. ágúst 2003 | Akureyri og nágrenni | 112 orð | 1 mynd

Evrópumeistarar heiðraðir

AKUREYRINGAR áttu þrjá fulltrúa í hinu bráðefnilega piltalandsliði Íslendinga í handknattleik, sem nýlega vann frækilegan sigur á Evrópumeistaramótinu. Þetta voru þeir Arnór Atlason og Árni Björn Þórarinsson úr KA og Árni Þór Sigtryggsson úr Þór. Meira
29. ágúst 2003 | Suðurnes | 237 orð | 2 myndir

Fallegasti garðurinn er að Suðurvör 1

EIGANDI Suðurvarar 1 fékk aðalverðlaun umhverfisnefndar Grindavíkurbæjar fyrir árið 2003. Verðlaun og viðurkenningar nefndarinnar fyrir fallegustu garðana voru afhent fyrr í vikunni. Meira
29. ágúst 2003 | Erlendar fréttir | 305 orð | 1 mynd

Frakkar vilja alþjóðalið í umboði SÞ

FRAKKAR hvöttu í gær til þess að "raunverulega alþjóðlegt herlið" yrði látið gæta öryggis í Írak í umboði öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 186 orð

Fundað um Kárahnjúka eftir helgi

SAMTÖK atvinnulífsins og Alþýðusambandið funda á mánudag um stöðu mála á Kárahnjúkasvæðinu að beiðni ASÍ, en eins og fram hefur komið vill ASÍ funda bæði með Samtökum atvinnulífsins og ríkisstjórn um málið. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 154 orð | 1 mynd

Fundu nýborinn hreindýrskálf

NÝBORINN hreindýrskálfur fannst á dögunum þar sem hreindýraveiðimenn voru við veiðar undir leiðsögn Sigurðar Aðalsteinssonar eftirlitsmanns. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 228 orð

Getur sparað fjármuni í heilbrigðiskerfinu

MEÐ ÞVÍ að nota tölvur í samskiptum sjúklings og læknis má ná fram sparnaði í heilbrigðisþjónustu samkvæmt erlendum rannsóknum og draga úr innlögnum sjúklinga. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 262 orð

Golfsamtök fatlaðra bjóða upp á námskeið

GOLFSAMTÖK fatlaðra á Íslandi voru stofnuð í nóvember árið 2001. Fram að þeim tíma hafði verið starfandi nefnd á vegum Golfsambands Íslands og Íþróttasambands fatlaðra frá 1995 sem skipulagði árlega golfmót fyrir fatlaða. Meira
29. ágúst 2003 | Akureyri og nágrenni | 227 orð

Hótelreksturinn ekki fjármagnaður með ríkisfé

GUÐMUNDUR Magnússon, framkvæmdastjóri Lundar, sem á og rekur nýju nemendagarða framhaldsskólanna á Akureyri, telur að gagnrýni hótelhaldara í bænum á rekstur sumarhótels á nemendagörðunum sé að hluta til á misskilningi byggð. Meira
29. ágúst 2003 | Suðurnes | 106 orð

Hugmynd um stofnun eignarhaldsfélags

BÆJARRÁÐ Grindavíkur hefur heimilað bæjarstjóra að vinna að greiningu á kostum og göllum þess að stofna eignarhaldsfélag fyrir fasteignir bæjarins í félagi við sveitarfélögin á Suðurnesjum, önnur en Reykjanesbæ. Meira
29. ágúst 2003 | Erlendar fréttir | 224 orð

Hvalir ekki í hættu

BRESKA vísindatímaritið New Scientist gagnrýnir umfjöllun um hvalveiðar í nýjasta hefti sínu og segir að tími sé kominn til að menn tali skýrt. Meira
29. ágúst 2003 | Miðopna | 1662 orð | 1 mynd

Hver vill starfrækja sinfóníuhljómsveit?

Ríkisútvarpið, Reykjavíkurborg og Seltjarnarnesbær hafa óskað þess að losna undan ábyrgð sinni sem rekstraraðilar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en ríkið er fjórði og stærsti þátttakandinn í rekstri sveitarinnar. Bergþóra Jónsdóttir skoðaði nýja skýrslu um fjárhag og rekstur hljómsveitarinnar, þar sem fram kemur að ákvarðanir um fjárhag eru teknar af ríkinu, án þess að hinir rekstraraðilarnir þrír hafi nokkuð um þær að segja. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 71 orð

Hækkun OR stendur

FULLTRÚAR R-listans í borgarráði felldu tillögu fulltrúa sjálfstæðismanna í ráðinu þess efnis að hækkun Orkuveitu Reykjavíkur á heitu vatni yrði dregin til baka. Var tillagan felld með fjórum atkvæðum gegn þremur. Meira
29. ágúst 2003 | Erlendar fréttir | 345 orð | 1 mynd

Hærri eftirlaunaaldur og bætur lækkaðar

ÞJÓÐVERJAR verða að hækka eftirlaunaaldurinn úr 65 árum í 67 ár og draga úr bótagreiðslum til þess að bregðast við auknum byrðum sem leggjast munu á almannatryggingakerfið í kjölfar þess að hlutfall aldraðra af þjóðinni hækkar. Meira
29. ágúst 2003 | Akureyri og nágrenni | 244 orð

Höfðað var um of til annarra en fjölskyldufólks

Í KJÖLFAR nýafstaðinnar verslunarmannahelgar tók bæjarráð Akureyrar þá ákvörðun að fjalla um og meta hvernig til tókst um framkvæmd hátíðarinnar "Ein með öllu" sem haldin var í bænum. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 695 orð

Höfundar seilast mjög langt í túlkun á niðurstöðum

Í BANDARÍSKA tímaritinu Education Next er því haldið fram að íslenskir kennarar hafi ónóga menntun til þess að hafa stjórn á fjölmennum bekkjum, en Morgunblaðið skýrði frá rannsókninni í gær. Meira
29. ágúst 2003 | Landsbyggðin | 364 orð | 1 mynd

Íbúðarhús tekið í tvennt og flutt um Skagafjörð

UNDANFARNA daga hefur verið unnið að því að taka eitt íbúðarhúsið við Lambanes-Reyki í Fljótum í tvennt og það var síðan flutt. Fyrsti áfangastaður hússins er Lambeyri í áður Lýtingsstaðahreppi þar sem unnið verður við breytingar á því. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 378 orð | 1 mynd

Ísland stendur framarlega í launamálum kennara

TÓMAS Ingi Olrich menntamálaráðherra telur að það beri að hafa það í huga að ritgerðin í tímaritinu Education Next sé eftir tvo hagfræðinga. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 266 orð

Íslenskir vísindamenn vantrúaðir á kenninguna

ÍSLENSKIR jarðvísindamenn eru margir hverjir vantrúaðir á kenningar Gillian Foulgers og félaga, og segja þennan hóp vísindamanna eiga mikið verk fyrir höndum við að sannfæra aðra vísindamenn. Meira
29. ágúst 2003 | Austurland | 474 orð | 1 mynd

Kanadískur prófessor með einstakt áhugamál

Hann er kanadískur, prófessor í verndunarlíffræði villtra dýra og garða við Háskólann í Alberta í Kanada, hefur sem slíkur starfað úti um allan heim og fléttað starf sitt saman við umhverfisvæna ferðaþjónustu. Guðrún G. Bergmann hitti dr. James Butler og fékk að vita meira um þetta áhugamál hans. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 46 orð | 1 mynd

Kíkt á mannlífið á Austurvelli

SENN líður að september en þrátt fyrir það er enn sumarlegt um að litast á Austurvelli. Gott er að tylla sér á bekkina og virða fyrir sér fjölskrúðugt mannlífið. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 56 orð | 1 mynd

Kústur á heitu blikkþaki

Vopnaður kústi klifraði þessi ungi maður upp eftir húsi og teygði sig að heitu blikkþakinu í því skyni að ná þar niður bolta. Félagi mannsins beið spenntur á jörðu niðri en í hita leiks þeirra á Austurvelli hafði boltinn ratað í þessar ógöngur. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 295 orð

Landsvirkjun tekur við rekstri MIL

IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ og Landsvirkjun hafa komist að samkomulagi um að Landsvirkjun taki alfarið við rekstri markaðsskrifstofu ráðuneytisins og Landsvirkjunar (MIL) sem þessir aðilar hafa starfrækt frá árinu 1988, nú síðast undir nafninu Fjárfestingarstofa -... Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 755 orð | 1 mynd

Leitað nýrra tækifæra

Ingunn Guðmundsdóttir er fædd árið 1957 á Selfossi og uppalin þar. Hún er með verslunarpróf úr gagnfræðaskólanum á Selfossi og próf frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands í opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Hún vann hjá Landsbankanum áður en hún tók við starfi sveitarstjóra Skeiða- og Gnúpverjahrepps í fyrra. Hún sat í bæjarstjórn á Selfossi og síðar í Árborg um tólf ára skeið. Ingunn á þrjú börn og tvö barnabörn. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 156 orð

Levi's-búðin opnuð í Smáralind í dag,...

Levi's-búðin opnuð í Smáralind í dag, föstudaginn 29. ágúst. Verslunin er staðsett á milli Benetton og Vila í plássi sem Sisley var áður í en Sisley hefur flutt starfsemi sína inn í Benetton. Meira
29. ágúst 2003 | Erlendar fréttir | 122 orð | 1 mynd

Lloyd's lofar verðlaunum

BRESKA tryggingafélagið Lloyd's of London hét í gær "verulegum verðlaunum" fyrir upplýsingar, sem komið gætu lögreglunni á slóð þeirra, sem stálu einni kunnustu Maríumynd Leonardos da Vincis í fyrradag. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 64 orð

Lýst eftir vitnum

LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að árekstri á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls hinn 27. ágúst laust fyrir klukkan 10. Meira
29. ágúst 2003 | Suðurnes | 160 orð

Lægsta tilboð var 94% af áætlun

HÚSAGERÐIN ehf. í Keflavík átti lægsta tilboð í byggingu húss í miðbæ Sandgerðis sem hýsa mun bæjarskrifstofur, íbúðir Búmanna og fleira. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 74 orð

Meirihluti fylgjandi að Ingibjörg fari ekki fram nú

RÚM 66% kjósenda eru fylgjandi því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gefi ekki kost á sér í formannskjöri Samfylkingarinnar á landsfundi í október gegn Össuri Skarphéðinssyni. Þetta kemur fram í skoðanakönnun DV sem birt var í fyrradag. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 273 orð | 1 mynd

Miklar umferðartafir vegna malbikunarframkvæmda í borginni

NOKKRAR tafir urðu á umferð um Miklubraut síðdegis á miðvikudag vegna malbikunarframkvæmda á gatnamótum Lönguhlíðar og Miklubrautar. Umferð í vestur var beint um Stakkahlíð og af Bústaðavegi um Snorrabraut meðan á framkvæmdunum stóð. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 146 orð

Nýr stjórnarformaður Byggðastofnunar

HERDÍS Sæmundsdóttir, framhaldsskólakennari og varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, tekur við formennsku í stjórn Byggðastofnunar frá og með 1. október nk., en þá lætur Jón Sigurðsson af störfum. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 60 orð

Oddsskarðsgöng lokuðust í um 40 mínútur

GÖNGIN um Oddsskarð, á milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar, lokuðust um tíma í gær þegar tveir flutningabílar með tengivagna mættust í göngunum. Göngin eru einbreið og svona stórir bílar geta ekki nýtt sér útskot í göngunum til þess að mætast. Meira
29. ágúst 2003 | Austurland | 32 orð | 1 mynd

Óvenjulegur ferðamáti

ÞESSI sjaldséðu mótorhjól voru á bensínstöð á Egilsstöðum á dögunum. Hjólin eru með hliðarvagna og spókuðu sig tvö börn í öðrum þeirra meðan foreldrarnir tóku bensín og gerðu klárt í næsta... Meira
29. ágúst 2003 | Austurland | 31 orð | 1 mynd

Plægt inn að Kárahnjúkum

NÚ er verið að plægja niður háspennurafstreng og ljósleiðara úr Fljótsdal inn að Kárahnjúkum. Verkið er langt komið og eru allir rafstrengirnir og rörið fyrir ljósleiðarann plægð niður í einu... Meira
29. ágúst 2003 | Akureyri og nágrenni | 420 orð | 1 mynd

"Leikur með umhverfið"

HVERNIG væri umhorfs á Akureyri ef íbúar bæjarins væru margfalt fleiri en þeir eru nú? Fólk hefur e.t.v. velt því fyrir sér, og einhvers konar svar kann að vera í augsýn. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 402 orð | 2 myndir

"Líklega stærsta jarðfræðigabb sögunnar"

ÍSLAND liggur ekki á heitum möttulstrók eins og jarðfræðikenningar sem teknar hafa verið trúanlegar í 30 ár segja okkur, og í raun eru kenningar um alla heita bletti á jarðskorpunni rangar, að sögn þekkts jarðfræðings. Meira
29. ágúst 2003 | Suðurnes | 769 orð | 1 mynd

"Lögþvingun er það vitlausasta sem hægt er að gera"

BÚIST er við að umræður um sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum hefjist að nýju á næstu mánuðum en ljóst að skoðanir eru skiptar í sveitarstjórnunum. Meira
29. ágúst 2003 | Landsbyggðin | 153 orð | 1 mynd

Réttir í Mývatnssveit

RÉTTAÐ verður í báðum skilaréttum Mývetninga sunnudaginn 31. ágúst. Heildarfjártala í sumarhögum er á þrettánda þúsund. Búast má við að um 1. Meira
29. ágúst 2003 | Suðurnes | 40 orð

Sandgerðisdagar verða settir við upphaf dagskrár...

Sandgerðisdagar verða settir við upphaf dagskrár í safnarðarheimilinu klukkan 20 í kvöld. Söngsveitin Víkingar og Kirkjukórinn koma fram á dagskránni í safnaðarheimilinu auk ýmissa annarra tónlistaratriða og ljóðalesturs. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 290 orð

Siðgæði í hjálparstarfi Rauði kross Íslands...

Siðgæði í hjálparstarfi Rauði kross Íslands og Reykjavíkurakademían verða með málfund um siðgæði í hjálparstarfi á morgun, laugardaginn 30. ágúst, kl. 13 í húsnæði akademíunnar í JL-húsinu að Hringbraut 121. Meira
29. ágúst 2003 | Erlendar fréttir | 94 orð | 1 mynd

Steinsteypt brú hrundi á Indlandi

Að minnsta kosti 18 manns fórust, flest skólabörn, er steinsteypt brú hrundi í Daman Ganga-fljótið á vestanverðu Indlandi í gærmorgun. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 921 orð | 1 mynd

Synda til minningar um látinn bróður

Bræðurnir Jóhannes Páll og Ari Gunnarssynir ætla að synda Viðeyjarsund á morgun til minningar um bróður sinn, Kristján Árna, sem fyrirfór sér. Brjánn Jónasson ræddi um sund í söltum sjó og bróðurmissinn við þá. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 202 orð

Söfnun fyrir utanlandsferð Freyju Haraldsdóttur

FREYJA Haraldsdóttir er 17 ára og fæddist með sjaldgæfan og erfiðan beinasjúkdóm. Beinasjúkdómurinn kallast Osteogenesis imperfecta og er genagalli sem lýsir sér í því að beinin eru stökk og brotna auðveldlega. Meira
29. ágúst 2003 | Erlendar fréttir | 206 orð

Telja galla í erfðaefni orsaka lesblindu

FINNSKIR vísindamenn hafa komist að því að lesblinda kunni að orsakast af galla í erfðaefni og það skýri hvers vegna lesblinda sé algengari í sumum fjölskyldum en öðrum. Telja þeir að í framtíðinni verði jafnvel hægt að þróa lyf gegn lesblindu. Meira
29. ágúst 2003 | Miðopna | 1277 orð | 1 mynd

Trúverðugleiki að veði

ÁGREININGUR Samkeppnisstofnunar og Ríkislögreglustjóra um hlutverk og verkaskiptingu stofnananna gagnvart meintu samráði olíufélaganna hefur þegar staðið í rúma tvo mánuði. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 396 orð | 2 myndir

Tröll á þurrflugu úr Hafralónsá

Pálmi Gunnarsson, tónlistarmaður og dagskrárgerðarmaður, veiddi mikinn hæng í Hafralónsá í Þistilfirði fyrir nokkru. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 453 orð

Um 50% verðlækkun á 20 mánuðum

FULLYRT er í nýju fréttabréfi Sláturfélags Suðurlands að framleiðsluaukning á svína- og kjúklingakjöti hafi haft í för með sér mikla verðlækkun á svínakjöti, að svínabændur séu í miklum taprekstri og séu margir búnir að tapa öllu eigin fé. Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 363 orð | 1 mynd

Vangaveltur byggðar á vanþekkingu á íslensku samfélagi

INGA Dóra Sigfúsdóttir, félagsfræðingur og starfsmaður Rannsókna & greiningar, segir að það sé vel þekkt úr erlendum rannsóknum að það sé lítið eða ekkert samband á milli bekkjarstærða og námsárangurs. Meira
29. ágúst 2003 | Erlendar fréttir | 483 orð | 2 myndir

Varðist af þrótti

TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, varði umdeilda Íraksskýrslu ríkisstjórnar sinnar frá því í september í fyrra af þrótti í gær og sagðist myndu hafa sagt af sér hefðu ásakanir reynzt réttar um að átt hefði verið við skýrsluna til að gera meira úr... Meira
29. ágúst 2003 | Innlendar fréttir | 421 orð | 2 myndir

Þriðja sæti á Evrópumóti fatlaðra í golfi

HELGI Sveinsson, kylfingur hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, náði þeim glæsilega árangri að lenda í þriðja sæti á Evrópumóti fatlaðra kylfinga sem fram fór í Hjörring í Danmörku 14.-16. ágúst sl. en alls tóku um 90 kylfingar frá Evrópu þátt í mótinu. Meira

Ritstjórnargreinar

29. ágúst 2003 | Leiðarar | 570 orð

Réttur forsjárlausra foreldra

Félag ábyrgra feðra efndi á þriðjudag til mótmælastöðu við húsnæði sýslumannsins í Hafnarfirði. Tilefnið var, að sögn forsvarsmanna félagsins, að árétta að í forsjár- og umgengismálum séu hagsmunir barnanna ávallt látnir vera í fyrirrúmi. Meira
29. ágúst 2003 | Leiðarar | 432 orð

Tengsl neytenda og bænda

Sauðfjárrækt hefur átt undir högg að sækja á síðastliðnum áratugum. Ástæður þess eru margar. Breyttar neysluvenjur hafa leitt til að stöðugt dregur úr neyslu lambakjöts. Meira

Menning

29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 128 orð | 1 mynd

2001: Afturförin

Kanada/Bandaríkin 2000. Myndform. VHS (90 mín.) Öllum leyfð. Leikstjóri: Allan A. Goldstein. Aðalleikendur: Leslie Nielsen, Ophélie Winter. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 274 orð | 2 myndir

BANDARÍSKA leikaraparið Uma Thurman og Ethan...

BANDARÍSKA leikaraparið Uma Thurman og Ethan Hawke eru nú sagt vera að skilja þar sem þokkadísin mun hafa gefist upp á kvensemi eiginmannsins. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 216 orð | 1 mynd

Bandarísk brúðkaupsterta

Sambíóin frumsýna í dag bandarísku gamanmyndina Bandarískt brúðkaup (American Pie - The Wedding). Leikstjóri Jesse Dylan (How High). Aðalhlutverk Jason Biggs (American Pie 1 og 2), Sean William Scott (American Pie 1 og 2, Bulletproof Monk, Old School), Eugene Levy (American Pie 1 og 2, Bringing Down The House), Alyson Hannigan (American Pie 1 og 2). Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 318 orð | 1 mynd

Bíóin í borginni

Nói albínói Frumleg og vel gerð mynd í alla staði. Magnað byrjandaverk. Nú sýnd með enskum texta. (S.V.) ***½ Háskólabíó. 28 dögum síðar (28 Days Later) Vægðarlaus, markviss hrollvekja sem fær hárin til að rísa. Ein besta mynd ársins. (S.V. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 345 orð | 1 mynd

Björk og Terry Jones taka þátt

BJÖRK ætlar að ljá sögupersónunni Önnu rödd sína í teiknimyndinni Anna og skapsveiflurnar (Anna and the Moods) og hefur Terry Jones þekkst boð um að vera sögumaður myndarinnar. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 191 orð | 1 mynd

Dýrlingur eða norn?

SAGAN af Jóhönnu af Örk hefur heillað hinn vestræna heim um langa hríð. Allnokkrar kvikmyndir hafa verið gerðar um stormasama en stutta ævi þessarar válegu valkyrju frá Frakklandi sem brennd var á báli langt fyrir aldur fram. Meira
29. ágúst 2003 | Menningarlíf | 163 orð | 1 mynd

Eyrbyggjuþing í Stykkishólmi

STOFNUN Sigurðar Nordal og Snæfellingar gangast fyrir Eyrbyggjuþingi í Grunnskólanum í Stykkishólmi á laugardag og sunnudag. Farið verður á sögustaði í fylgd heimamanna, m.a. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 165 orð | 1 mynd

Hrollvekjandi einvígi

Smárabíó og Regnboginn frumsýna í dag hryllingsmyndina Freddy á móti Jason (Freddy vs. Jason). Leikstjóri Ronny Yu (51st State). Aðalhlutverk Robert Englund (Nightmare on Elm Street 1-7) Ken Kirzinger, Kelly Rowland (Destiny's Child). Meira
29. ágúst 2003 | Bókmenntir | 725 orð

Í hjólförum endurframleiddrar framúrstefnu

Eirík Örn Norðdahl. Nýhil. 2003 - 67 bls. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 179 orð | 1 mynd

...Johnny Depp í gestahlutverki

GAMANÞÁTTURINN The Fast Show þykir með þeim betri sem hafa verið sýndir í bresku sjónvarpi síðustu ár. Meira
29. ágúst 2003 | Menningarlíf | 192 orð | 1 mynd

Landnám Stoppleikhópsins

STOPPLEIKHÓPURINN er nú að hefja 8. leikárið en á verkefnaskránni eru þrjú íslensk leikrit og leikgerðir, ætluð miðstigi grunnskóla, unglingadeildum og leikskólum. Æfingar eru nú að hefjast á nýju íslensku leikriti hjá leikhópnum. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 202 orð | 1 mynd

Leitin að Grislingi

Sambíóin frumsýna í dag teiknimyndina Grislingur - Stórmynd (Piglet's Big Movie). Leikstjórn Francis Glebas (Fantasia 2000). Leikraddir Hjálmar Hjálmarsson, Laddi, Edda Heiðrún Backman, Jóhann Sigurðarson, Óskar Völundarson, Sigurður Sigurjónsson og Guðmundur Felixson. Leikstjóri talsetningar er Jakob Þór Einarsson. Meira
29. ágúst 2003 | Menningarlíf | 436 orð | 2 myndir

Ljósakrónur í kreppu og líkamlegar sveigjur

HÚN er björt og norræn yfirlitum og alls ekkert lík fyrirmyndinni, Grace Jones. Guðrún Benónýsdóttir setti sjálfa sig í hlutverk Grace eins og hún birtist okkur í frægri ljósmynd sem tískukóngurinn Jean-Paul Gaultier lét taka af söngstjörnunni. Meira
29. ágúst 2003 | Menningarlíf | 51 orð

Ljósmyndir á uppboði

Í GALLERÍI Álfi, sem er í Bankastræti 5, hefur undanfarið staðið yfir ljósmyndasýning félagsins Ljósálfanna. Gestum hefur gefist kostur á að bjóða í myndirnar og verður haldið uppboð á myndunum á sunnudag kl. 16. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 168 orð | 1 mynd

Loksins birtir til

GÍTARSVEITIN goðsagnakennda The Shadows ætlar að koma saman á ný á næsta ári - í allra, allra síðasta sinn. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 67 orð | 2 myndir

NASA Sumardjamm með Írafári á Nasa.

NASA Sumardjamm með Írafári á Nasa. Fyrsta ball sveitarinnar frá því um Verlsunarmannahelgina eftir að hún snéri heim frá plötugerð í Orlando í Bandaríkjunum. MIÐGARÐUR Fyrsti dansleikur SSSól í Miðgarði í Skagafirði í heil 4 ár. Meira
29. ágúst 2003 | Tónlist | 367 orð | 1 mynd

Perlur tónleikanna

Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur flutti íslensk þjóðlög og kórverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Nordal, Gunnar Reyni Sveinsson og Agripino V. Diestro. Miðvikudagur 27. ágúst. Meira
29. ágúst 2003 | Menningarlíf | 319 orð | 1 mynd

"Allt sem viðkemur tónlist spennandi"

BIRNA Helgadóttir píanóleikari hlaut í gær styrk úr minningarsjóði Jean-Pierre Jacquillat, sem var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum 1980-86. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 915 orð | 1 mynd

Rokkhetjan mín

Tónleikar í Laugardalshöll þriðjudagskvöldið 26. ágúst 2003. Fram komu bandaríska sveitin Foo Fighters, breska sveitin My Morning Jacket og íslensku sveitirnar Vínyl og Nilfisk. Meira
29. ágúst 2003 | Menningarlíf | 155 orð | 1 mynd

Safnrit um íslenskar bókmenntir á þýsku

ÞÝSK-ÍSLENSKA menningarfélagið í Stuttgart hefur gefið út Isländische Literatur in deutscher Übersetzung 1860-2000. Þetta er safnrit um íslenskar bókmenntir sem út hafa komið í þýskum þýðingum tímabilið 1860-2000. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 505 orð | 1 mynd

Skrefi lengra...

UNDANFARIÐ hafa þeir Sigurður Harðarson (Siggi Pönk), Birkir Fjalar Viðarsson (úr I Adapt), Þorsteinn Kolbeinsson og fleiri íslenskir harðkjarnahausar verið afar atorkusamir við innflutning á erlendum rokksveitum. Meira
29. ágúst 2003 | Fólk í fréttum | 542 orð | 2 myndir

Steinsnar af stað

STEINAR Berg Ísleifsson er með reyndustu mönnum sem komið hafa að útgáfumálum á Íslandi. Hann var lengstum höfuð útgáfunnar Steinar hf. en fyrir einu og hálfu ári sagði hann starfi sínu lausu hjá Norðurljósum, sem yfirtók Steinar hf. á sínum tíma. Meira
29. ágúst 2003 | Menningarlíf | 174 orð

Sýningum lýkur

Listasafn Íslands Sumarsýningu Listasafns Íslands lýkur á sunnudag. Sýningin er ágrip af innlendri listasögu, þar eru sýnd verk frá helstu umbrotatímum íslenskrar listasögu. Meira
29. ágúst 2003 | Menningarlíf | 291 orð | 1 mynd

Sýningu um Lárus Sigurbjörnsson að ljúka

Í BORGARSKJALASAFNI og Árbæjarsafni lýkur um helgina sýningum sem settar voru upp í tilefni aldarafmælis Lárusar Sigurbjörnssonar, borgarskjalavarðar og forstöðumanns Árbæjarsafns, undir heitinu "Lárus Sigurbjörnsson - safnafaðir Reykvíkinga". Meira

Umræðan

29. ágúst 2003 | Bréf til blaðsins | 547 orð

Að verða eða verða ekki gamall - að gefnu tilefni

STUNDUM er sagt: Alla langar til að lifa lengi, en enginn vill verða gamall. Frægur leikari var spurður hvernig honum fyndist að eldast: "Tjaa! Ég væri bara asskoti óheiðarlegur ef ég segði ekki strax að mér þætti það hundleiðinlegt ... Meira
29. ágúst 2003 | Bréf til blaðsins | 7 orð | 1 mynd

Agnar fékk far hjá Sigrúnu á...

Agnar fékk far hjá Sigrúnu á... Meira
29. ágúst 2003 | Aðsent efni | 837 orð | 1 mynd

Lýst eftir 2.800 löxum

EIN AF alvarlegustu fréttum síðustu viku hljóðaði eitthvað á þessa leið: Tæplega 3.000 eldislaxar sleppa úr bráðabirgðakví í höfninni í Neskaupstað. Meira
29. ágúst 2003 | Aðsent efni | 369 orð | 1 mynd

"Hvalveiðar eins og að skjóta á húsdýr"

OFANGREIND fyrirsögn, sem ég sá nýlega í Fréttablaðinu og var höfð eftir forystumanni í ferðaþjónustunni, vakti athygli mína. Meira
29. ágúst 2003 | Bréf til blaðsins | 389 orð | 1 mynd

Rafrænt vegabréf eða vísa ÞEGAR farið...

Rafrænt vegabréf eða vísa ÞEGAR farið er til Bandaríkjanna þarf fólk að vera með rafrænt vegabréf eftir 1. okt. Venjulegt vegabréf virkar ekki nema fá vísa frá sendiráðinu. Meira
29. ágúst 2003 | Bréf til blaðsins | 189 orð

Við getum verið stolt af Flugleiðum

LOFTLEIÐIR, Flugfélag Íslands og síðan Flugleiðir eru án vafa frumherjar alls sem kalla má atvinnuflug á Íslandi. Dugnaður og framsýni Flugleiðamanna er að mínu mati aðdáunarverð, vægt til orða tekið. Meira
29. ágúst 2003 | Aðsent efni | 502 orð | 1 mynd

Viðhorf stjórnenda í fyrirtækjum til öryggis- og heilbrigðismála

SKIPTA öryggis- og heilbrigðismál á vinnustöðum stjórnendur einhverju máli? Á norrænu vinnuvistfræðiráðstefnunni NES 2003 sem haldin var nýlega voru flutt mörg áhugaverð erindi. Meira
29. ágúst 2003 | Bréf til blaðsins | 20 orð | 1 mynd

Þessar ungu stúlkur komu með föt...

Þessar ungu stúlkur komu með föt og gáfu Rauða krossi Íslands. Þær heita Marta Bára Guðmundsdóttir og Guðrún María Pálsdóttir... Meira

Minningargreinar

29. ágúst 2003 | Minningargreinar | 996 orð | 1 mynd

EVA SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR

Eva Sigríður Bjarnadóttir fæddist í Reykjafirði við Ísafjarðardjúp 6. júlí 1919. Hún lést á Borgarspítalanum 20. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Bjarni Hákonarson, f. 28. apríl 1890, d. 20.5. 1965, og Guðrún Ólafsdóttir, f. 14.12.1892, d. 5.5. Meira  Kaupa minningabók
29. ágúst 2003 | Minningargreinar | 790 orð | 1 mynd

GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR

Guðrún Þorsteinsdóttir fæddist í Reykjavík 27. júlí 1929. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Jósefsson, f. 8.11. 1900, d. 1.11. 1982, og Þóra Guðmundsdóttir, f. 29.8. 1904, d. 1.2. 2000. Meira  Kaupa minningabók
29. ágúst 2003 | Minningargreinar | 2174 orð | 1 mynd

GUNNAR MAGGI ÁRNASON

Gunnar Maggi Árnason fæddist í Reykjavík 24. desember 1940. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 23. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Hulda Halldórsdóttir, f. 10. maí 1920, d. 12. febrúar 2000, og Árni Vigfússon, f. 10. júlí 1914, d. Meira  Kaupa minningabók
29. ágúst 2003 | Minningargreinar | 1348 orð | 1 mynd

MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR

Margrét Guðjónsdóttir fæddist í Reykjavík 27. október 1944. Hún andaðist á heimili sínu í Kópavogi föstudaginn 22. ágúst síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Guðjóns Ólafssonar frá Reykjavík, f. 19. febrúar 1906, d. 13. Meira  Kaupa minningabók
29. ágúst 2003 | Minningargreinar | 1681 orð | 1 mynd

MARÍA ÞORGRÍMSDÓTTIR

María Þorgrímsdóttir fæddist á Húsavík í S-Þingeyjarsýslu 22. júlí 1944. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Fossvogi að kveldi laugardagsins 23. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þorgrímur Maríusson sjómaður á Húsavík, f. 4. des. Meira  Kaupa minningabók
29. ágúst 2003 | Minningargreinar | 30 orð

Skúli Júlíusson

Við kveðjum þig með söknuði, elsku afi. Þú varst einstakur. Okkur þykir svo vænt um þig og allar góðu minningarnar sem við eigum um þig. Harpa, Dögg og Skúli... Meira  Kaupa minningabók
29. ágúst 2003 | Minningargreinar | 1361 orð | 1 mynd

SKÚLI JÚLÍUSSON

Skúli Júlíusson fæddist í Reykjavík 4. maí 1925. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 23. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Skúla voru hjónin Júlíus Breiðfjörð Björnsson, f. 24. apríl 1892, d. 9. nóvember 1976, og Ingibjörg Þ. Guðmundsdóttir, f. 14. Meira  Kaupa minningabók
29. ágúst 2003 | Minningargreinar | 1058 orð | 1 mynd

ÞORSTEINN BERGMANN

Þorsteinn Bergmann fæddist í Keflavík 14. júní 1914. Hann andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð 22. ágúst síðastliðinn. Þorsteinn var sonur hjónanna Guðlaugar Karitasar Bergsteinsdóttur, f. 10. maí 1884 d. 22.2. 1952, og Stefáns Magnússonar Bergmann, f. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

29. ágúst 2003 | Viðskiptafréttir | 369 orð | 1 mynd

Batamerki hjá ATV á öðrum ársfjórðungi

REKSTRARTAP Aco Tæknivals, ATV, á fyrri helmingi ársins nam 175 milljónum króna eftir skatta, borið saman við 74 milljónir á sama tíma í fyrra. Rekstrargjöld drógust nokkuð saman og námu 1.564 milljónum króna, miðað við 1. Meira
29. ágúst 2003 | Viðskiptafréttir | 128 orð | 1 mynd

Hampiðjan með 156 milljónir króna í hagnað

HAGNAÐUR Hampiðjunnar hf. eftir skatta á fyrri árshelmingi var 156 milljónir króna samanborið við 190 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 2.163 milljónum á tímabilinu sem er 1% minnkun frá fyrra ári. Meira
29. ágúst 2003 | Viðskiptafréttir | 593 orð | 1 mynd

Iðgjöldin of há

AFKOMA tryggingafélaganna af ökutækjatryggingum hefur batnað og framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda telur iðgjöld bifreiðatrygginga óeðlilega há. Meira
29. ágúst 2003 | Viðskiptafréttir | 419 orð

Norðurljós tapa 400 milljónum

TAP varð af rekstri Norðurljósa samskiptafélags hf. og dótturfélaga á fyrri hluta ársins sem nam 398 milljónum króna en á sama tímabili í fyrra varð hagnaður af rekstrinum sem nam ríflega 145 milljónum. Meira
29. ágúst 2003 | Viðskiptafréttir | 274 orð | 2 myndir

Straumur hækkar um 6%

HLUTABRÉF Fjárfestingarfélagsins Straums hækkuðu um 6% í gær í rúmlega 113 milljón króna viðskiptum í Kauphöll Íslands. Mest viðskipti voru með bréf Eimskipafélags Íslands eða fyrir 447 milljónir króna og hækkuðu þau um 3,8%. Meira
29. ágúst 2003 | Viðskiptafréttir | 177 orð

Verulega dregur úr tapi Heklu

TAP Heklu hf. á fyrstu sex mánuðum ársins nam 8 milljónum króna eftir skatta. Á sama tímabili á síðasta árið var tapið 74 milljónir. Tap félagsins fyrir skatta var á þessu ári 30 milljónir en um 96 milljónir í fyrra. Meira

Fastir þættir

29. ágúst 2003 | Árnað heilla | 31 orð | 1 mynd

75 ÁRA afmæli.

75 ÁRA afmæli. Í dag, föstudaginn 29. ágúst, er 75 ára Sigurjón Friðriksson, bóndi, Ytri-Hlíð í Vopnafirði. Eiginkona hans er Guðrún Björg Emilsdóttir . Þau verða að heiman með fjölskyldunni á... Meira
29. ágúst 2003 | Dagbók | 30 orð

Breiðholtskirkja.

Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10-12. Kaffi og spjall. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarpi Boðun FM 105,5. Allir alltaf... Meira
29. ágúst 2003 | Fastir þættir | 260 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson

Á að dúkka eða drepa? Það vandamál þekkja spilarar vel í ýmsum blæbrigðum, en hin almenna regla er sú að óhætt sé að dúkka þegar sagnhafi er að sækja líflitinn sinn, því hann mun væntanlega spila litnum áfram. Meira
29. ágúst 2003 | Fastir þættir | 315 orð

- Formannsmorð

Stjórnmálaáhugafólki verður um þessar mundir mjög að yrkisefni sú yfirlýsing sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur látið frá sér fara um framtíð sína innan Samfylkingarinnar. Erla Ósk Ásgeirsdóttir skrifar á Deigluna. Meira
29. ágúst 2003 | Dagbók | 294 orð | 1 mynd

Hjónanámskeið að hefjast í Hafnarfjarðarkirkju

MÁNUDAGINN 1. september verður byrjað að skrá á hjónanámskeið haustsins í Hafnarfjarðarkirkju Undanfarna sjö vetur hafa um 6.000 manns tekið þátt í þessum hjónanámskeiðum á vegum kirkjunnar. Meira
29. ágúst 2003 | Viðhorf | 764 orð

Hvað er fyndið?

Það er ómetanlegt að sjá skondnu hliðarnar á hlutunum. Þá skiptir engu máli þótt maður sé einn í sínum furðulega heimi, hlæjandi að því sem engum öðrum finnst fyndið. Meira
29. ágúst 2003 | Dagbók | 466 orð

(Jb. 36, 15.)

Í dag er föstudagur 29. ágúst, 241. dagur ársins 2003. Höfuðdagur. Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. Meira
29. ágúst 2003 | Fastir þættir | 139 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson

1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. Dg4 O-O 8. Bd3 Da5 9. Bd2 Rbc6 10. dxc5 f5 11. Dg3 b6 12. cxb6 axb6 13. Re2 Rg6 14. f4 Ba6 15. O-O Hfb8 16. Kh1 Da4 17. h4 Rf8 18. Hfb1 Bxd3 19. cxd3 Dc2 20. Meira
29. ágúst 2003 | Dagbók | 42 orð

SÓLBRÁÐ

Sólbráðin sezt upp á jakann, sezt inn í fangið á hjarni. Kinn sína leggur við klakann, kát eins og augu í barni. Seytlan úr sporunum sprettir, spriklar sem glaðasta skrýtla. Gutlandi, litlir og léttir, lækirnir niðr eftir... Meira
29. ágúst 2003 | Fastir þættir | 364 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

VÍKVERJI hafði orð á því á dögunum að hann hefði fengið slæma þjónustu á Subway-skyndibitastöðunum, m.a. að áleggið á bátana væri ekki jafn vel útilátið á öllum stöðunum og að hann fengi ekki alltaf kvittun fyrir viðskiptunum. Meira

Íþróttir

29. ágúst 2003 | Íþróttir | 248 orð

Deisler í þýska landsliðið

RUDI Völler, landsliðsþjálfari Þýskalands í knattspyrnu, valdi í gær 22 manna leikmannahóp sem mætir Íslendingum á Laugardalsvelli 6. september og Skotum 10. september í undankeppni EM . Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 386 orð | 1 mynd

* ELDAR Hadzimehmedovic , 18 ára...

* ELDAR Hadzimehmedovic , 18 ára piltur, skoraði öll sex mörk Lyn sem sigraði NSÍ Runavík frá Færeyjum , 6:0, í UEFA-bikarnum í knattspyrnu í gærkvöld. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 229 orð | 1 mynd

* HANNES Haubitz, þjálfari Kärnten ,...

* HANNES Haubitz, þjálfari Kärnten , sagði við Morgunblaðið að sínir menn hefðu svo sannarlega haft heppnina með sér í Grindavík . "Grindavíkurliðið reyndist okkur mjög erfiður mótherji og það mátti engu muna að það stæði í okkar sporum. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 475 orð | 1 mynd

Haustar snemma hjá Fylkismönnum

ÞAÐ var heldur haustlegt í Laugardalnum í gærkvöldi þegar Fylkir tók á móti sænska liðinu AIK Solna í síðari leik liðanna í forkeppni UEFA-bikarsins. Eftir fína frammistöðu í fyrri leiknum í Svíþjóð, þar sem heimamenn unnu 1:0, voru menn vongóðir um að Fylkir næði hagstæðum úrslitum og kæmist áfram í keppninni. Það varð ekki, niðurstaðan markalaust jafntefli og Svíarnir áfram. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 110 orð

Indriði samdi en félögin deila enn

INDRIÐI Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er búinn að semja við belgíska knattspyrnufélagið Genk til þriggja ára. Ekki liggur samt enn fyrir hvort hann verður leikmaður með félaginu því Genk og Lilleström hafa ekki náð samkomulagi sín á milli. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 39 orð

í kvöld

KNATTSPYRNA 1.deild karla: Stjörnuvöllur: Stjarnan - Víkingur 18.30 Akureyrarvöllur: Þór - Haukar 18.30 Kópavogsv.: Breiðablik - Njarðvík 18. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 326 orð

Keflavík þarf eitt stig

Mikil og spennandi lokabarátta er framundan í 1. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 515 orð

KNATTSPYRNA UEFA-bikarinn Forkeppni, síðari leikir: Fylkir...

KNATTSPYRNA UEFA-bikarinn Forkeppni, síðari leikir: Fylkir - AIK 0:0 Laugardalsvöllur; Aðstæður : Gola, rigning og bleyta en völlur ágætur að öðru leyti. Skot: 8 (2) - 11 (7). Horn: 8 - 7. Gul spjöld : Hrafnkell Helgason, Fylki (19.), brot, Ólafur I. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 284 orð

Manchester United og Rangers í sama riðli

Í gær var dregið í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en riðlakeppnin hefst 16. september. Það eru alls 32 lið sem taka þátt í riðlakeppninni og þeim er skipt niður í 8 riðla. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara í 16 liða úrslitin. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 120 orð

Marel skoraði og Lokeren áfram

MAREL Baldvinsson skoraði fyrsta mark Lokeren þegar belgíska liðið sigraði Dinamo Tirana frá Albaníu, 3:1, í síðari leik liðanna í UEFA-bikarnum í knattspyrnu í gærkvöld. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 314 orð

Okkur skorti hugmyndaflug

AÐALSTEINN Víglundsson, þjálfari Fylkis, var ánægður með baráttu sinna manna en óánægður með sóknarleik þeirra. Skortur á hugmyndaflugi, slakar sendingar, of mikil varkárni Fylkismanna og góður varnarleikur AIK gerði það að verkum að Fylkir skapaði sér fá marktækifæri, að mati Aðalsteins. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 234 orð

"Vona að félagar mínir hætti að hlæja að íslenskri knattspyrnu"

"VIÐ vorum heppnir að skora mark og komast þar með áfram. Maður var að verða úrkula vonar. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 789 orð | 1 mynd

Sárt hjá Grindvíkingum

LEIKMENN Grindvíkinga og þeir sem að liðinu standa eiga svo sannarlega um sárt að binda eftir viðureignina við austurríska liðið Kärnten í Grindavík í gærkvöld. Grindvíkingar voru komnir með annan fótinn og rúmlega það í 1. umferð UEFA-keppninnar. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 117 orð

Tveir sigrar hjá TBR

TBR vann í gær tvo góða sigra í Evrópukeppni félagsliða í badminton í Uppsala í Svíþjóð. TBR, sem tapaði 4:3 fyrir Basel frá Sviss í fyrsta leiknum, sigraði fyrst hollenska liðið Duinwijk, 4:3, og vann síðan stórsigur á Ego Sports Club frá Tyrklandi,... Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 232 orð

Við stjórnuðum leiknum

KRISTER Nordin, fyrirliði AIK, taldi að jafntefli hefði verið sanngjörn úrslit og honum fannst Ólafur Ingi Skúlason bestur í liði Fylkis. "Við börðumst vel hver fyrir annan og það skilaði okkur þessum góðu úrslitum í kvöld. Meira
29. ágúst 2003 | Íþróttir | 249 orð

Það er geysilega erfitt að kyngja þessum úrslitum

"ÞAÐ er geysilega erfitt að kyngja þessum úrslitum og maður er gráti næst. Það má segja að reynsluleysi hafi orðið okkur að falli. Strákarnir gerðust allt of gráðugir á lokakaflanum. Þeim fannst greinilega svo gaman að þeir gleymdu sér. Meira

Sunnudagsblað

29. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 63 orð | 1 mynd

Gómsætt með bláberjasósu

Hreindýralundir, um 200-300 g á mann. Salt og pipar. Penslið með olíu og grillið eða steikið á pönnu í 3 til 4 mínútur á hvorri hlið. Bláberjasósa: Smátt skorinn laukur, ólívuolía og bolli af bláberjum léttsteikið síðan og hellið rjóma yfir. Meira
29. ágúst 2003 | Sunnudagsblað | 2623 orð | 8 myndir

Hreindýrasteik á Tunnuverkstæðinu

Íslensku systurnar Sigríður Björnsdóttir veitingamaður og Edda Lyberth matlistarmaður reka veitingastaðinn Napparsivik í Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Ómar Óskarsson kom við hjá þeim systrum þegar hann var á skákhátíð í bænum fyrr í sumar. Meira

Úr verinu

29. ágúst 2003 | Úr verinu | 216 orð

FISKMARKAÐUR AUSTURLANDS Gullkarfi 70 70 70...

FISKMARKAÐUR AUSTURLANDS Gullkarfi 70 70 70 1,140 79,800 Hlýri 102 81 101 82 8,301 Lúða 182 170 181 59 10,690 Skarkoli 137 129 136 751 102,149 Skrápflúra 11 11 11 102 1,122 Steinbítur 94 81 94 1,454 136,338 Ufsi 32 23 26 25,773 672,276 Und. Meira
29. ágúst 2003 | Úr verinu | 169 orð | 1 mynd

Gert klárt fyrir síldina

UNDIRBÚNINGUR fyrir komandi síldarvertíðar er í fullum gangi þessa dagana, þannig að allt verði klárt þegar skipin halda til veiða í byrjun september. Hjá Skinney-Þinganesi hf. Meira
29. ágúst 2003 | Úr verinu | 360 orð | 1 mynd

Talsvert eftir af úthafskvótanum

ÍSLENDINGAR eiga talsvert eftir af úthafsveiðiheimildum sínum á árinu. Aðeins er búið að veiða um fjórðung af leyfilegum rækjukvóta á Flæmingjagrunni og enn standa eftir rúm 10 þúsund tonn af úthafskarfakvótanum. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.