Greinar miðvikudaginn 15. september 2004

Fréttir

15. september 2004 | Innlendar fréttir | 153 orð

16% prófessora konur

KONUR voru 52% starfsmanna skóla á háskólastigi á Íslandi í 879 stöðugildum í mars árið 2003. Karlar voru 48% starfsmanna í 930 stöðugildum. Starfsmenn skólanna voru samanlagt 2.515 í 1.809 stöðugildum. Þá er öll yfirvinna meðtalin. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 119 orð

Af almættinu

JPV hefur tekið að sér útgáfu nýrrar þýðingar Biblíunnar. Þórarinn Eldjárn orti þegar hann heyrði af því: Þetta má kalla viðskiptavit og vörn gegn himnastraffi. Almættið gefur nú öll sín rit út hjá JPVaffi. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 1078 orð | 2 myndir

Allt vald til Kremlar?

Fréttaskýring | Tillögur Pútíns Rússlandsforseta um aukið vald Moskvustjórnarinnar vegna hryðjuverkaógnarinnar eru sagðar grafa undan lýðræðinu, segir í grein Kristjáns Jónssonar, en margir Rússar vilja gefa Pútín tækifæri í von um aukið öryggi. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 117 orð

Atlantsolía meðal sex tilboðsgjafa

TILBOÐ voru opnuð hjá Ríkiskaupum í gær í eldsneyti og olíur fyrir Landhelgisgæsluna, Hafrannsóknastofnun og Flugmálastjórn. Alls bárust átta tilboð frá sex aðilum, þ.á m. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 22 orð | 1 mynd

Á móti einkavæðingu

Starfsmenn í skipasmíðastöðinni Izar í Cadix á sunnanverðum Spáni mótmæltu í gær atvinnuleysi og áformum stjórnvalda um að einkavæða að hluta... Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 606 orð | 1 mynd

Átta sinnum í verkföllum

Komi til verkfalls grunnskólakennara næstkomandi mánudag verður það í níunda sinn sem eitt eða fleiri félög kennara leggja niður störf í verkfalli um lengri eða skemmri tíma. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 157 orð | 1 mynd

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Múlalundi

BORGARFULLTRÚAR og varaborgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins komu í heimsókn í Múlalund, vinnustofu SÍBS, fyrir skömmu, ræddu við starfsmenn og kynntu sér starfsemina. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 86 orð

Breytt reglugerð á leiðinni

SAMKVÆMT upplýsingum úr menntamálaráðuneytinu er verið að leggja lokahönd á breytingu á reglugerð um úthlutun listamannalauna, þar sem taka á tillit til athugasemda umboðsmanns Alþingis í meðfylgjandi áliti. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 303 orð | 1 mynd

Efasemdir á Vesturlöndum

MIKLAR efasemdir eru ríkjandi meðal ráðamanna á Vesturlöndum vegna þeirra ráðstafana sem Valdímír V. Pútín Rússlandsforseti hefur boðað til að efla varnir gegn hryðjuverkum. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 328 orð

Engar upplýsingar um mat á umsækjendum

UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu, að afgreiðsla úthlutunarnefndar Launasjóðs rithöfunda á umsóknum um starfslaun úr sjóðnum árið 2003 hafi ekki fullnægt þeim kröfum sem gera verði til undirbúnings slíkra ákvarðana. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 139 orð

Enginn komst undan

VLADÍMÍR Ústínov, ríkissaksóknari Rússlands, greindi frá því í gær að enginn þeirra sem stóðu fyrir árásinni á barnaskólann í Beslan í Suður-Rússlandi fyrr í mánuðinum hefði komist undan. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 119 orð

Euro eini löglegi rithátturinn

NOTA skal samræmda stafsetningu í löndunum sem nota sameiginlega Evrópugjaldmiðilinn og rita euro. Var þetta samþykkt á fundi fjármálaráðherra Evrópusambandsins á laugardag í Hollandi. Euro hefur sem kunnugt er verið nefnd evra hér á landi. Meira
15. september 2004 | Minn staður | 399 orð | 2 myndir

Fer ekki fyrr en hann er tilbúinn

Vogar | Kristófer Kevin Turner, átján ára strákur úr Vogum á Vatnsleysuströnd sem er í breska hernum, verður sendur til starfa í Írak á næstunni. Hann er nú í strangri þjálfun fyrir verkefnið. "Ég hef engar áhyggjur af honum. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 642 orð

Fleiri fyrirtæki bjóða gæslu fyrir börn starfsmanna

FLEIRI fyrirtæki en Íslandsbanki og Sjóvá-Almennar hyggjast skipuleggja einhvers konar daggæslu fyrir börn starfsmanna komi til verkfalls grunnskólakennara. KB banki, Eimskip og Össur eru t.a.m. öll að skoða möguleika á slíku. Meira
15. september 2004 | Minn staður | 106 orð

Forvarnardagur | Brunavarnir Suðurnesja efna til...

Forvarnardagur | Brunavarnir Suðurnesja efna til opins forvarnardags í dag í 88 húsinu. Ungmenni fædd 1988 eru boðin velkomin. Er þetta liður í umferðar- og öryggisátaki í Reykjanesbæ. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 36 orð

Fylgja Davíð í nýtt ráðuneyti

ILLUGI Gunnarsson, aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, fylgir Davíð í utanríkisráðuneytið. Meira
15. september 2004 | Minn staður | 108 orð

Fyrirlestur | Mannúðaraðstoð á átakasvæðum er...

Fyrirlestur | Mannúðaraðstoð á átakasvæðum er heiti á fyrirlestri Helgu Báru Bragadóttur á Félagsvísindatorgi í dag, miðvikudaginn 15. september kl. 16.30 í stofu L201 á Sólborg. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 265 orð

Geir tekur sæti Björns

BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra mun víkja sæti við skipun dómara við Hæstarétt vegna málefna eins umsækjanda um stöðuna, Hjördísar Hákonardóttur héraðsdómara. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 168 orð

Gestir geta tekið þátt í stóðsmölun

Laxárdalur | Stóði verður smalað á Laxárdal og réttað í Skrapatungurétt dagana 18. og 19. september. Meira
15. september 2004 | Minn staður | 381 orð | 4 myndir

Getum bara ekki annað en verið ánægðir

"ÞIÐ hafið unnið afrek og eigið heiður skilinn," sagði Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, en hann var á Krossanesbryggju um hádegi í gær þegar Vilhelm Þorsteinsson EA kom inn til löndunar eftir mettúr. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 125 orð

Heilsuskóli ekki stofnaður vegna kennaraverkfalls

VEGNA frétta um að Íslandsbanki og Sjóvá-Almennar hyggist bjóða börnum starfsmanna upp á vist í Heilsuskólanum okkar vilja forsvarsmenn hans því á framfæri að til hans var ekki stofnað vegna yfirvofandi verkfalls Kennarasambands Íslands. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 206 orð

Íslandsdeild Amnesty International 30 ára

Í DAG eru þrjátíu ár liðin frá því Íslandsdeild Amnesty International var stofnuð. Upphafið má rekja til fréttar sem birt var sumarið 1974 og bar yfirskriftina "Vilja stofna Amnesty International á Íslandi". Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 235 orð | 1 mynd

Jón Sveinsson formaður einkavæðingarnefndar

GERT er ráð fyrir því að Jón Sveinsson lögmaður taki við formennsku í einkavæðingarnefnd. Kom þetta fram í máli Halldórs Ásgrímssonar, verðandi forsætisráðherra, er hann ræddi við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í gær. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 377 orð | 1 mynd

Kennsludögum fjölgar um tíu

SKÓLAÁRIÐ í framhaldsskólum verður lengt í 180 daga á ári og einingum í framhaldsskólum fækkað úr 140 í 111, ef tillögur höfunda nýrrar skýrslu um breytta námsskipan til stúdentsprófs verða að veruleika. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 90 orð

Krafðir um 290 milljónir kr.

EFNAHAGSBROTADEILD ríkislögreglustjóra hefur ákært fjóra menn fyrir brot á útvarpslögum með því að hafa selt aðgang að læstum útsendingum nokkurra erlendra sjónvarpsstöðva í gegnum einkahlutafélag þeirra. Eru þeir sakaðir um að hafa veitt 1. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 285 orð

Kæling getur komið í veg fyrir taugaskaða

KÆLING getur komið í veg fyrir taugaskaða meðvitundarlausra sjúklinga eftir hjartastopp, að því er fram kemur í niðurstöðu rannsóknar Steinars Björnssonar læknanema og Felix Valssonar, svæfinga- og gjörgæslulæknis. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 184 orð

Landnemar fá greiddar bætur

ÍSRAELSK stjórnvöld hafa samþykkt að greiða fjölskyldum sem gert verður að flytja frá Gaza-svæðinu í samræmi við áætlanir Ariels Sharons forsætisráðherra á bilinu 14 til 21 milljón íslenskra króna. Frá þessu var greint í gær. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 82 orð | 1 mynd

Leikurinn berst til Danaveldis

Mýrdalur | Leikur Bjólfskviðu hefur nú borist til Danaveldis. Tökur eru hafnar í Mýrdalnum en þar eru tekin upp atriði sem gerast þar sem nú er ríkið Danmörk. Verður kvikmyndatökuliðið þar næstu vikurnar. Meira
15. september 2004 | Minn staður | 264 orð | 1 mynd

Lið borgarstjóra tapaði fyrir liði KR

Vesturbær | Þórólfur Árnason borgarstjóri safnaði liði og keppti í knattspyrnu við valda kappa úr KR í opnunarleik á nýjum gervigrasvelli á KR-svæðinu sl. laugardag. Lið KR undir stjórn Guðjóns Guðmundssonar, formanns KR, tók vel á móti borgarstjóra. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 194 orð

Lítil sem engin röskun á starfsemi einkaskóla

KENNARAR við einkaskóla eru ekki allir aðilar að Kennarasambandi Íslands og því leggst starfsemi þeirra ekki niður komi til verkfalls grunnskólakennara á mánudag. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 155 orð | 1 mynd

Meðallestur á öllum dagblöðum minnkar

MEÐALLESTUR allra dagblaðanna þriggja minnkaði frá maí til ágúst, þar af minnkaði lestur DV mest, eða um 2,4 prósentustig, samkvæmt fjölmiðlakönnun sem Gallup gerði 11. til 17. ágúst. Lestur DV var 19,5% í maí en fór niður í 17,1% í ágúst. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 61 orð | 1 mynd

Með seinni skipunum á ferðavertíð

Þessi ferðalangur er með seinni skipunum á ferðavertíð ársins eystra. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 169 orð

Munu ekki afsala sér eigin samningsforræði

"ALMENN skoðun meðal Íslendinga er að við getum ekki gerst aðildarríki Evrópusambandsins án þess að sérstaða okkar, alveg sérstaklega að því er lýtur að sjávarútvegi og fiskveiðiauðlindinni, verði metin og tryggð til frambúðar í aðildarsamningi með... Meira
15. september 2004 | Minn staður | 60 orð

Nýr formaður | Gylfi Þórhallsson var...

Nýr formaður | Gylfi Þórhallsson var kjörinn formaður Skákfélags Akureyrar á aðalfundi í vikunni. Rúnar Sigurpálsson sem gegnt hefur formennsku undanfarin tvö ár óskaði ekki eftir endurkjöri. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 181 orð | 1 mynd

Nýtt skipulag tekið í gagnið 2006

ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að byrja að kenna eftir því skipulagi sem kynnt er í skýrslunni haustið 2006 í grunnskólunum, og tveimur árum síðar í framhaldsskólunum. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 126 orð

Olíunotkun stóreykst í Kína

OLÍUINNFLUTNINGURINN í Kína jókst um tæp 40% á fyrstu átta mánuðum ársins, miðað við sama tímabil í fyrra, að sögn kínversku fréttastofunnar Xinhua . Kínverjar fluttu inn alls 79,9 milljónir tonna af olíu frá janúar til ágúst. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 127 orð

Ólafur Davíðsson verður sendiherra

HALLDÓR Ásgrímsson, verðandi forsætisráðherra, segir ekki búið að ganga frá því hver verði ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, eftir að Ólafur Davíðsson lætur þar af störfum 1. nóvember nk. Meira
15. september 2004 | Minn staður | 129 orð

Pabbi, mamma, börn og bíll

Reykjavík | Morgunverðarfundur um borgarmál undir yfirskriftinni Pabbi, mamma, börn og bíll verður haldinn á Grand hóteli á fimmtudag í tilefni af evrópskri samgönguviku sem stendur yfir 16.-22. september nk. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 323 orð | 1 mynd

"Ég byrjaði og gat eiginlega ekki stoppað"

DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra veitti viðtöku fyrsta eintaki bókarinnar Forsætisráðherrar Íslands - ráðherrar Íslands og forsætisráðherrar í 100 ár, við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 569 orð | 1 mynd

"Þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa hér svo lengi"

DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra stýrði sínum síðasta ríkisstjórnarfundi í gærmorgun eftir rúmlega þrettán ára samfellt starf sem forsætisráðherra. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 305 orð | 1 mynd

"Þeir eru allir dánir"

AÐ minnsta kosti 47 biðu bana og 114 særðust þegar bílsprengja sprakk nærri lögreglustöð í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær auk þess sem þrír menn féllu annars staðar í borginni. Þetta er eitt mannskæðasta sprengjutilræðið í Bagdad um nokkurt skeið. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 99 orð

Ráðstefna um kynjaréttlæti í kjölfar átaka

RÁÐSTEFNA um kynjaréttlæti í kjölfar átaka hefst í New York á morgun og stendur til 17. september. Ráðstefnan er á vegum UNIFEM og ILA og á henni munu koma saman konur frá 12 stríðshrjáðum löndum sem allar gegna mikilvægum stöðum í laga- og dómskerfinu. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 129 orð

RKÍ sendir eina milljón til Beslan

RAUÐI kross Íslands hefur svarað neyðarbeiðni Alþjóða Rauða krossins og sent eina milljón króna til Beslan. Einnig hefur verið farið fram á það við félagið að það útvegaði sérfræðing í áfallahjálp til starfa í Beslan og verið er að kanna möguleika á því. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 25 orð

Röng mynd

Í Morgunblaðinu í gær birtist mynd af Örnu Maríu Geirsdóttur, en þar átti að vera mynd af Önnu Maríu Geirsdóttur. Beðist er velvirðingar á... Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 213 orð | 1 mynd

Sagðir hafa notað efnavopn í Darfur

SÝRLENDINGAR beittu efnavopnum í tilraunaskyni gegn óvopnuðu fólki í Darfur-héraði í Súdan í júní og urðu tugum manna að bana, að því er fram kemur í þýska dagblaðinu Die Welt í dag. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 153 orð

Samráð við heimamenn í húsnæðismálum

BORIST hefur eftirfarandi yfirlýsing frá Alcoa-Fjarðaáli, sem er að reisa álver í Reyðarfirði: "Í tilefni af umfjöllun fjölmiðla þar sem vitnað er til ummæla eins forráðamanna Alcoa Fjarðaáls, vill fyrirtækið koma eftirfarandi upplýsingum á... Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 85 orð

Sauðamessa

Sauðamessa er heiti á óvenjulegri fjölskylduhátíð sem haldin verður í Borgarnesi laugardaginn 9. október. Hátíðin er helguð sauðkindinni og lambakjötsáti. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 310 orð

Segir ESB fylgja nýlendustefnu

PORTÚGALSKUR fulltrúi á þingi Evrópusambandsins (ESB) heldur því fram að við mótun sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu aðildarríkjanna sé ekkert tillit tekið til umhverfis, vísindalegrar þekkingar eða hagsmuna fólks sem býr við sjávarsíðuna. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 151 orð | 1 mynd

Sextíu metra háir turnar?

HUGMYNDIR eru uppi um að reisa þrjár 60 metra háar íbúðabyggingar á svokölluðum Sjallareit á Akureyri. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 94 orð

Skila líklega umsögnum í vikunni

HÆSTIRÉTTUR stefnir að því að skila dómsmálaráðherra umsögnum um hæfi og hæfni umsækjenda um stöðu hæstaréttardómara í þessari viku. Ráðherra óskaði eftir því að Hæstiréttur skilaði umsögnum til sín fyrir 10. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 137 orð | 1 mynd

Skipverji af rússnesku herskipi sóttur á haf út

SLASAÐUR skipverji af rússneska herskipinu Admiral Chabanenko var sóttur á haf út um 230 mílur suðsuðaustur af Reykjavík í gær og fluttur á Landspítalann. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 187 orð

Skoðað hvort bæta megi fræðslu

MENNTAMÁLARÁÐHERRA mun setja námstefnu um menntun fagfólks og meðferð kynferðisbrotamála í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð nk.föstudag kl. 9. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 131 orð | 1 mynd

Slysstaður heimsóttur að nýju

Á MORGUN verða liðin sextíu ár frá því B-17G sprengjuflugvél bandaríska flughersins, Fljúgandi virki, brotlenti ofarlega í norðanverðum Eyjafjallajökli. Af því tilefni var Steven A. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 381 orð | 1 mynd

Stangaveiðin skilar mun meiru en talið var

BEIN, óbein og afleidd áhrif stangaveiði á Íslandi, bæði innlendra og erlendra veiðimanna, eru áætluð 7,8 til 9,1 milljarður króna á ári. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 165 orð | 1 mynd

Stefnir í gott ár í ferðaþjónustunni

VESTNORDEN ferðakaupstefnan, árleg ferðakaupstefna sem Ferðamálaráð Íslands, Grænlands og Færeyja standa að, hófst í Laugardalshöll í gær og stendur til hádegis í dag, miðvikudag. Hjaltlendingar eru sérstakir gestir á kaupstefnunni að þessu sinni. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 153 orð | 1 mynd

Sterk og góð sátt innan stjórnarinnar

DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, stýrði sínum síðasta ríkisstjórnarfundi í gærmorgun eftir rúmlega þrettán ára samfellt starf sem forsætisráðherra. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 145 orð | 1 mynd

Stjórnendaþjálfun fyrir forstöðumenn

Í GÆR var undirritaður samningur um stjórnendaþjálfun fyrir forstöðumenn ríkisstofnana, sem er samstarfsverkefni Fjármálaráðuneytisins, Félags forstöðumanna ríkisstofnana, IMG og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 79 orð

Strætisvagnar í forgang

ÞRJÁR akreinar verða fyrir beina umferð í hvora átt og tvær fyrir allar vinstri beygjur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar samkvæmt tillögum sem samþykktar voru í samgöngunefnd Reykjavíkur í gær. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 174 orð | 1 mynd

Sýnt mikið traust

"MÉR þykir afskaplega vænt um að fá svona einhuga tilnefningu og met það mikils að vera treyst til þess að halda utan um þetta virðulega og þýðingarmikla hlutverk," sagði Rannveig Guðmundsdóttir í samtali við Morgunblaðið, en Rannveig var... Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 294 orð | 1 mynd

Tækifæri framundan

SIV Friðleifsdóttir, fráfarandi umhverfisráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið eftir ríkisstjórnarfund í gær, að það væri auðvitað mjög sérstök tilfinning að láta af ráðherradómi. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 386 orð

Úr bæjarlífinu

Haustferðalög eru nokkuð sem allir ættu að stunda af miklu kappi. Hægt er að fara í margvísleg ferðalög á haustin einkum þegar veðrið er bjart og fallegt eins og það getur oft verið í september. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 259 orð | 2 myndir

Veiði í Fljótaá margfaldaðist

Veiði er nú lokið í Fljótaá í Fljótum og veiddust alls 233 laxar. Er það gífurleg umskipti frá síðasta sumri er aðeins 49 laxar voru færðir til bókar. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 208 orð | 1 mynd

Verðmæti laxveiða kom á óvart

"NIÐURSTÖÐUR skýrslunnar komu okkur aðeins á óvart. Í fyrsta lagi eru beinu tekjuáhrifin nokkuð meiri en við höfðum gert okkur í hugarlund," segir Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga. "Í öðru lagi eru það óbeinu áhrifin. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 75 orð

Verkefnaval vekur umhugsun

VAL Sinfóníuhljómsveitarinnar á verkefnum í vetur var gert að umtalsefni í greinum í Morgunblaðinu í síðustu viku. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 1828 orð | 1 mynd

Við stjórnartaumana

Í bókinni Forsætisráðherrar Íslands, sem kom út í gær í ritstjórn Ólafs Teits Guðnasonar, rekja 24 höfundar feril þeirra 24 manna, sem setið hafa í stóli ráðherra Íslands og forsætisráðherra. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 127 orð | 1 mynd

Vilja endurskoða tengingu skólastiga

TAKA þarf samtengingu skólastiga frá leikskóla að framhaldsskóla til gagngerrar endurskoðunar og endurhanna námskrár, m.a. með það markmið að færa ákveðið námsefni á milli skólastiga, að mati höfunda nýrrar skýrslu um breytta námskipan til stúdentsprófs. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 159 orð

Vilja kaupa jörðina Stað

Grindavík | Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt að óska eftir viðræðum við landbúnaðarráðuneytið um kaup á jörðinni Stað í Grindavík. Hitaveita Suðurnesja hefur áhuga á að eignast það land sem liggur að virkjunarsvæði fyrirtækisins á Reykjanesi. Meira
15. september 2004 | Erlendar fréttir | 251 orð

Vilja nýja innflytjendastefnu

TVEIR norskir prófessorar segja að Norðmenn hafi verið of bláeygðir í afstöðu sinni til innflytjendamála og hugsa þurfi þau mál upp á nýtt, að sögn Aftenposten nýverið. Meira
15. september 2004 | Minn staður | 114 orð

Þrír gervigrasvellir teknir í notkun

TVEIR gervisgrasvellir voru vígðir í Reykjavík um helgina, við Framheimilið í Safamýri og á KR-vellinum í Frostaskjóli. Vellirnir eru í fullri stærð, um 8.100 fermetrar, flóðlýstir og upphitaðir og uppfylla allar nýjustu kröfur UEFA. Meira
15. september 2004 | Minn staður | 437 orð

Þrjár akreinar áfram

Reykjavík | Samgöngunefnd Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hefja undirbúning að breytingum á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar þannig að þrjár akreinar verði fyrir beina strauma og tvær fyrir allar vinstri beygjur. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 330 orð | 1 mynd

Þrýstingur á viðsemjendur mun hverfa

KENNARASAMBAND Íslands (KÍ) lítur á það sem "klárt verkfallsbrot ef fyrirtæki skipuleggja starfsemi fyrir grunnskólanemendur á þeim tímum dags sem börn hefðu annars átt að vera í skóla". Meira
15. september 2004 | Minn staður | 186 orð

Þrælerfitt en skemmtilegt

"ÞETTA var þrælerfitt, en líka skemmtilegt," sagði Guðún Arngrímsdóttir, sem hefur verið um borð í Vilhelm síðustu tvo túra. Kom um borð í lok ágúst og ætlar að fara einn túr til viðbótar áður en hún heldur til Ítalíu að læra tungu þarlendra. Meira
15. september 2004 | Innlendar fréttir | 251 orð | 1 mynd

Ætlar að fara hægt af stað og undirbúa næstu daga

HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, sem tekur við embætti forsætisráðherra í dag, sagði við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í gærmorgun að hann léti af embætti utanríkisráðherra með ákveðnum trega. Meira

Ritstjórnargreinar

15. september 2004 | Leiðarar | 805 orð

Arfleifð Davíðs Oddssonar forsætisráðherra

Davíð Oddsson lætur í dag af embætti forsætisráðherra. Hann hefur setið lengur í því embætti en nokkur annar í hundrað ára sögu Stjórnarráðs Íslands, eða í þrettán ár og rúma fjóra mánuði. Meira
15. september 2004 | Leiðarar | 247 orð | 1 mynd

Hugmyndir Eykons og nútíminn

Í formála bókar sinnar Alþýða og athafnalíf, sem út kom fyrir tæpum fjórum áratugum, sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, ritstjóri Morgunblaðsins og síðar alþingismaður: "En mergurinn málsins er sá, að íslenzka þjóðin vill ekki, að örfáir auðmenn ráði... Meira

Menning

15. september 2004 | Menningarlíf | 708 orð | 1 mynd

Barnaleikhús í 15 ár

Það er ótrúlegt en satt að Möguleikhúsið sem frá upphafi hefur einsett sér að gera leiksýningar eingöngu fyrir börn skuli nú vera að hefja sitt 15. starfsár. Meira
15. september 2004 | Menningarlíf | 174 orð | 1 mynd

Ekki stór afmælisveisla

BRESKA konungsfjölskyldan hefur sent frá sér mynd af Harry prinsi ásamt föður sínum og bróður í tilefni af afmæli þess fyrstnefnda í dag. Meira
15. september 2004 | Menningarlíf | 311 orð | 2 myndir

Fjölmennt í Fríhöfninni

NÝ mynd eftir draumaprinsinn Steven Spielberg vekur ætíð áhuga bíógesta, hvarvetna í heiminum, enda eru fáir núlifandi kvikmyndagerðarmenn sem gert hafa eins margar farsælar myndir og hann. Meira
15. september 2004 | Menningarlíf | 193 orð | 1 mynd

...fréttum að handan

ÞÓRHALLUR Guðmundsson miðill snýr aftur í kvöld í þætti sínum Lífsaugað. Þátturinn hóf fyrst göngu sína í fyrra og vakti mikla athygli enda var þetta í fyrsta sinn sem sýndur var skyggnilýsingaþáttur í íslensku sjónvarpi. Meira
15. september 2004 | Menningarlíf | 88 orð | 7 myndir

Litur sólarinnar

LITUR einn sem hefur ekki látið lengi að sér kveða hefur sést í mörgum sýningum á yfirstandandi tískuviku í New York. Liturinn sá er áberandi og ekki fyrir alla, nefnilega appelsínugulur. Meira
15. september 2004 | Menningarlíf | 100 orð | 1 mynd

Niður eftir Níl

BRESKUR heimildarflokkur um Níl hefur göngu sína í Sjónvarpinu í kvöld. Í þremur þáttum er farið niður eftir Níl, lengsta fljóti heims, um eyðimerkur og frumskóga, hjá snævi þöktum fjallatindum og um vötn sem geyma týndar borgir. Meira
15. september 2004 | Menningarlíf | 230 orð | 1 mynd

Oprah gaf 276 bíla

ÞÁTTASTJÓRNANDINN Oprah Winfrey hélt á mánudaginn myndarlega upp á að nítján ár eru síðan hún byrjaði með hinn vinsæla sjónvarpsþátt sinn. Hún afhenti hverjum og einum hinna 276 áhorfenda - allt konur - í sjónvarpssal nýjan bíl. Meira
15. september 2004 | Menningarlíf | 493 orð | 1 mynd

"Við erum að hugsa um unga fólkið"

VETRARSTARF Íslensku óperunnar var kynnt á dögunum, en að sögn talsmanna Óperunnar er stefnt að því að dagskrá starfsársins verði í senn fjölbreytt og metnaðarfull. Þrjú meginverk verða færð upp, Sweeney Todd, Tosca og Litla stúlkan með eldspýturnar. Meira
15. september 2004 | Tónlist | 131 orð | 1 mynd

Rolling Stone mælir með Singapore Sling

LAGIÐ "Guiding Light" með Singapore Sling er á "Hot List" í nýjasta hefti hins virta tónlistartímarits Rolling Stone . Meira
15. september 2004 | Tónlist | 525 orð | 1 mynd

Sannkallaðir djassgeggjarar í Pétursborg

Þ að má segja að þetta sé fyrir milligöngu ræðismannsins Björgólfs Thors Björgólfssonar. Meira
15. september 2004 | Tónlist | 49 orð

Skipan stjórnar og verkefnavalsnefndar SÍ

Stjórn: Þorkell Helgason , formaður, fulltrúi menntamálaráðuneytis Júlíus Vífill Ingvarsson , fulltrúi fjármálaráðuneytis Hilmar Oddsson , fulltrúi Reykjavíkurborgar Dóra Ingvadóttir , fulltrúi Ríkisútvarpsins Sigurður Þorbergsson , fulltrúi... Meira
15. september 2004 | Tónlist | 120 orð | 2 myndir

Stórsveitasveifla

MIKIL ánægja var meðal áhorfenda á Grand Rokk að loknum tónleikum stórsveita Nix Noltes og BennaHemmHemm á laugardagskvöld. Meira
15. september 2004 | Menningarlíf | 263 orð

Verk á dagskrá Íslensku óperunnar í vetur

Sweeney Todd, rakarinn morðóði eftir Stephen Sondheim Frumsýnt 8. október 2004 Hér er um að ræða stærsta verkefni óperunnar á haustmisseri. Meira
15. september 2004 | Tónlist | 906 orð | 5 myndir

Verkefnavalið gagnrýnt

LISTRÆN stefna og verkefnaval Sinfóníuhljómsveitar Íslands voru gagnrýnd í tveimur greinum í Morgunblaðinu í kring um síðustu helgi. Meira
15. september 2004 | Kvikmyndir | 185 orð | 1 mynd

Öld forvitninnar

Leikstjóri Bernardo Bertolucci. Aðalhlutverk Michael Pitt, Eva Green, Louis Garrel. Bandarísk/bresk/frönsk/ítölsk 2003. (110 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Myndform VHS/DVD. Meira

Umræðan

15. september 2004 | Aðsent efni | 617 orð | 1 mynd

Að gæta þjóðarauðlindar

Jóhann Ársælsson fjallar um ummæli Halldórs Ásgrímssonar: "Það ígildi eignarhalds sem útgerðarmenn á Íslandi hafa á veiðirétti hefur valdið gífurlegum deilum." Meira
15. september 2004 | Aðsent efni | 170 orð | 1 mynd

Bragð er að...

Flosi Eiríksson skrifar um stjórnmál: "Innan flokksins er líka víða heitt í kolunum." Meira
15. september 2004 | Aðsent efni | 736 orð | 1 mynd

Dropar af regni

Jóhanna K. Eyjólfsdóttir fjallar um afmæli Amnesty International: "Amnesty International á Íslandi í 30 ár." Meira
15. september 2004 | Bréf til blaðsins | 292 orð

Er landlæknir hættur?

Frá Hlyni Frey Vigfússyni:: "Undanfarna viku hef ég tekið eftir auglýsingum í sjónvarpi þar sem ég og aðrir sótthræddir landsmenn erum varaðir við fyrirbæri sem kallast lifrarbólga A." Meira
15. september 2004 | Aðsent efni | 782 orð | 1 mynd

FÁR, Félag áfengisráðgjafa, 10 ára

Hörður J. Oddfríðarson fjallar um áfengisvarnir: "Mikilvægt er að til starfa í áfengisráðgjöf veljist heilsteyptir einstaklingar." Meira
15. september 2004 | Aðsent efni | 298 orð | 1 mynd

Hvar verður þú hinn 18. september?

Sigurður K. Harðarson fjallar um "Akureyri í öndvegi": "Er þetta ekki þín framtíðarsýn eins og okkar hinna?" Meira
15. september 2004 | Bréf til blaðsins | 178 orð

Kindur eru skepnur sem finna til

Frá Úrsúlu Jünemann:: "KINDUR eru skepnur sem finna til Um daginn varð óhapp á Austurlandi þar sem flutningabíll valt fullhlaðinn af kindum sem átti að aka til slátrunar. Fjöldi dýranna drapst eða aflífa þurfti þau." Meira
15. september 2004 | Aðsent efni | 711 orð | 2 myndir

Klámvæðing og réttur einstaklinga

Jónína Bjartmarz og Rannveig Guðmundsdóttir fjalla um klámvæðingu: "Einstaklingar og fjölskyldur þeirra eiga skýlausan rétt til að vera laus við klám úr umhverfi sínu. Að tryggja þann rétt er verkefni okkar allra." Meira
15. september 2004 | Bréf til blaðsins | 265 orð | 1 mynd

Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is

Frekja ÞETTA orð dettur mér alltaf í hug þegar ég heyri kennara knýja fram sín mál. Í áratugi hefur þessi stétt rutt í gegn meira kaupi án nokkurs tillits til kjara annarra stétta. Ég gleymi aldrei þeim tíma sem ég vann sem matráðskona fyrir kennara. Meira

Minningargreinar

15. september 2004 | Minningargreinar | 1436 orð | 1 mynd

ÍVAR HAUKUR ANTONSSON

Ívar Haukur Antonsson fæddist í Reykjavík 26. nóvember 1956. Hann lést á heimili sínu á Laugarásvegi 1 í Reykjavík 6. september síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
15. september 2004 | Minningargreinar | 225 orð | 1 mynd

JÓNAS HERMANNSSON

Jónas Hermannsson fæddist á Freyjugötu 30 í Reykjavík 7. mars 1946. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu á Seltjarnarnesi 4. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grafarvogskirkju 13. september. Meira  Kaupa minningabók
15. september 2004 | Minningargreinar | 593 orð | 1 mynd

LÝÐUR ÞRASTARSON

Lýður Þrastarson fæddist á Blönduósi 14. júlí 1974. Hann lést á heimili sínu 13. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 23. ágúst. Meira  Kaupa minningabók
15. september 2004 | Minningargreinar | 1678 orð | 1 mynd

PÁLL GUNNAR JÓHANNSSON

Páll Gunnar Jóhannsson fæddist að Þinganesi í Nesjum 9. júní 1919. Hann lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn 6. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhann Pálsson, f. 24.8. 1893, d. 4.10. 1971, og Ingibjörg Pálsdóttir, f. 18.5. 1900, d.... Meira  Kaupa minningabók
15. september 2004 | Minningargreinar | 311 orð | 1 mynd

SIGRÚN JÓNSDÓTTIR

Sigrún Jónsdóttir fæddist á Akureyri 21. desember 1968. Hún lést á Landspítalanum 5. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Stykkishólmskirkju 11. september. Meira  Kaupa minningabók
15. september 2004 | Minningargreinar | 1566 orð | 1 mynd

VALGERÐUR ANNA EYÞÓRSDÓTTIR

Valgerður Anna Eyþórsdóttir (Lóa) fæddist í Borgarnesi 2. júlí 1912. Hún lést á líknardeild Landakotsspítala 4. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Eyþór Einarsson frá Þverholti í Borgarfirði, f. 1863, d. Meira  Kaupa minningabók
15. september 2004 | Minningargreinar | 1788 orð | 1 mynd

WILHELM MAGNÚS ALEXANDERSSON-OLBRICH

Wilhelm Magnús Alexandersson-Olbrich fæddist í Bonn í Þýskalandi 29. september 1982. Hann lést af slysförum í Zoetermeer í Hollandi 4. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grensáskirkju 14. september. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

15. september 2004 | Sjávarútvegur | 112 orð

10 skip svipt í ágúst

FISKISTOFA svipti 10 báta leyfi til veiða í atvinnuskyni á ágústmánuði sl. Fimm skip voru svipt leyfi vegna afla umfram aflaheimildir. Meira
15. september 2004 | Sjávarútvegur | 704 orð | 1 mynd

Yfirráðin ekki í annarra hendur

STARFSHÓPUR á vegum ráðuneyta utanríkis- og sjávarútvegsmála og hagsmunasamtaka í sjávarútvegi telur hugmyndir brezka Íhaldsflokksins um að endurheimta yfirráðin yfir bresku fiskveiðilögsögunni langsóttar. Meira

Viðskipti

15. september 2004 | Viðskiptafréttir | 75 orð | 1 mynd

Einn tíundi af kaupverði Norðurljósa

VERÐ það sem Síminn greiddi fyrir eignarhaldsfélagið Fjörni , sem á útsendingarréttinn á enska boltanum, auk rúmlega fjórðungshlut í Skjá einum, var undir 500 milljónum króna, að því er kom fram í máli Rannveigar Rist, stjórnarformanns Landsíma Íslands,... Meira
15. september 2004 | Viðskiptafréttir | 284 orð

Fasteignir gætu hækkað um 10-15%

MEGINÁHRIFIN af óvæntri innkomu bankanna á fasteignalánamarkað eru þau að fasteignaverð mun hækka. Aukist framboð nýrra fasteigna ekkert gætu áhrifin orðið þau að fasteignaverð hækki um 10-15%. Taki framboðið hins vegar fljótt við sér verða áhrifin... Meira
15. september 2004 | Viðskiptafréttir | 306 orð | 1 mynd

Hyggst stofna nýtt póstdreifingarfyrirtæki með Frétt hf.

EINAR Þorsteinsson, forstjóri Íslandspósts, hefur sagt starfi sínu lausu. Fram kemur í tilkynningu frá Íslandspósti að stjórnin hafi samþykkt uppsögn forstjórans og lét Einar af störfum í gær. Einar segir að ástæður fyrir uppsögninni séu einfaldar. Meira
15. september 2004 | Viðskiptafréttir | 56 orð

Litlar breytingar

Litlar breytingar urðu á verði á hlutabréfum í Kauphöll Íslands í gær. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,03% og er 3559 stig. Viðskipti með hlutabréf námu 1.235 milljónum, þar af 326 milljónum með bréf KB banka. Meira
15. september 2004 | Viðskiptafréttir | 556 orð | 1 mynd

Segja KB banka reyna að taka fyrirtækið yfir

STARFSMENN KB banka, undir stjórn og samkvæmt heimild skiptastjóra þrotabús Véla og þjónustu hf. (V&Þ), höfðu á föstudag á brott með sér afrit af öllum gögnum fyrirtækisins. Meira
15. september 2004 | Viðskiptafréttir | 101 orð

Stjórnendur Og Vodafone kaupa hluti

STJÓRNENDUR Og Vodafone keyptu í gær hluti í félaginu að nafnvirði samtals um 23,1 milljón króna. Hlutirnir voru keyptir á genginu 4,0 til 4,1 og nemur kaupverðið um 94,3 milljónum. Meira

Daglegt líf

15. september 2004 | Daglegt líf | 137 orð | 1 mynd

Blettalaus skyrta

Hvítar skyrtur eru fallegar þegar þær eru nýþvegnar og straujaðar en verða fljótt blettóttar. Með nýju efni gæti það verið úr sögunni. Efnið á að hrinda frá sér öllu sem getur skilið eftir sig bletti, s.s. Meira
15. september 2004 | Daglegt líf | 336 orð | 3 myndir

Karlmenn alveg eins lagnir við brjóstsykursgerðina

Kóngabrjóstsykur og lakkríshlaup er meðal þess sem hún Sigurbjörg Nielsdóttir dundar sér við að búa til í frístundum. Meira
15. september 2004 | Daglegt líf | 254 orð | 1 mynd

Skemmtilega fámenn þjóð

Í Selvoginum er hin fræga Strandarkirkja. Hún stendur í landi höfuðbólsins Strandar sem fór í eyði á 17. öld. Meira
15. september 2004 | Daglegt líf | 296 orð | 1 mynd

Unglingarnir fá að sofa lengur

Nokkrir sænskir skólar hafa tekið upp sveigjanlegan vinnutíma fyrir nemendurna, unglinga sem eru að vaxa og þurfa þar af leiðandi mikinn svefn. Þetta kemur m.a. fram á vef Dagens Nyheter. Meira

Fastir þættir

15. september 2004 | Viðhorf | 780 orð

Að hætti hússins

Viðhorfshöfundur kann sér ekki læti að geta aftur heimsótt þjóðminjasafnið, hitt þar gamla kunningja og nýja og lesið um Hlutaveltu tímans á nýrri bók. Meira
15. september 2004 | Dagbók | 111 orð | 1 mynd

Andlit trésins

Tónlist og tré | Jóhanni Gunnarssyni er margt til lista lagt. Hann er tónlistarmaður og hefur verið í sveitum á borð við Stolíu og Bang Gang, en síðustu árin hefur hann einnig fengist við tréútskurð og hljóðfærasmíði. Meira
15. september 2004 | Fastir þættir | 241 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is

HM í einmenningi. Meira
15. september 2004 | Dagbók | 33 orð | 1 mynd

Hlutavelta | Þessar stúlkur héldu tombólu...

Hlutavelta | Þessar stúlkur héldu tombólu til styrktar Kópavogsdeild Rauða kross Íslands og söfnuðu þær 6.500 kr. Þær heita Ásta Rún Guðmundsdóttir, Jónína Kristbjörg Björnsdóttir og Sigríður Kristjana Ingimarsdóttir. Á myndina vantar... Meira
15. september 2004 | Dagbók | 37 orð | 1 mynd

Hlutavelta | Þessar tvær ungu dömur...

Hlutavelta | Þessar tvær ungu dömur héldu tombólu laugardaginn 28. ágúst sl. til styrktar Rauða krossi Íslands. Tombólan var haldin fyrir utan verslunina 11/11 á Hvolsvelli og söfnuðust 1.600 kr. Þær heita Hervör Þórhallsdóttir og Katrín... Meira
15. september 2004 | Dagbók | 426 orð | 1 mynd

Í takt við mikla netnotkun

Ólöf Magnúsdóttir er fædd árið 1977 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1997 og lauk B.A.-námi í hagfræði frá HÍ árið 2002. Þá nam Ólöf hagfræði við Universitá Bocconi í Mílanó gegnum Erasmus nemendaskipti. Ólöf hefur starfað við verkefnastjórnun hjá MILAMDEC þróunarlánasjóðnum og UNICEF, en hún gegnir nú starfi ráðgjafa hjá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna. Hún starfar einnig innan Amnesty International. Meira
15. september 2004 | Dagbók | 50 orð

Orð dagsins: En það varð, meðan...

Orð dagsins: En það varð, meðan hann var að blessa þá, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins. (Lk. 24, 51.) Meira
15. september 2004 | Fastir þættir | 164 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is

1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 d6 4. d4 cxd4 5. Dxd4 Da5+ 6. Rc3 Dxb5 7. Rxb5 Rxd4 8. Rfxd4 Kd8 9. c4 Rf6 10. f3 a6 11. Rc3 e6 12. a4 Bd7 13. b3 Hc8 14. Bb2 Be7 15. O-O-O Kc7 16. Ba3 Hhe8 17. Kb2 Bf8 18. Hd2 Hcd8 19. Meira
15. september 2004 | Dagbók | 80 orð | 1 mynd

Vel heppnað málverkahappdrætti

Vinningshafar í happdrætti Gallerís Skugga fengu á sunnudaginn formlega afhent málverkin sem þeir hlutu í vinning fyrir þátttöku sína í viðburðinum "Opnu málverki" á Menningarnótt, en þá var opið hús og gestum gallerísins m.a. Meira
15. september 2004 | Dagbók | 105 orð | 1 mynd

Vinningshafar í Víkingaleik

NÝVERIÐ hleypti kanadískt kvikmyndaframleiðslufyrirtæki af stokkunum ritsmíðasamkeppni meðal íslensks almennings, í samstarfi við Lesbók Morgunblaðsins, þar sem viðfangsefnið á að vera Ísland og nágrannaþjóðir á víkingaöld. Meira
15. september 2004 | Fastir þættir | 288 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

Víkverji hefur starfs síns vegna þurft að lesa aragrúa af skýrslum, ársreikningum, fréttatilkynningum, greinargerðum og sérfræðiritum í gegnum tíðina, og átt um leið samtöl við tilheyrandi "sérfræðinga" á sömu sviðum. Meira

Íþróttir

15. september 2004 | Íþróttir | 113 orð

Annus neitar að skila gullinu

UNGVERSKI sleggjukastarinn Adrian Annus, sem sigraði á Ólympíuleikunum í Aþenu í greininni en var síðan sviptur gullverðlaunum sínum vegna gruns um svindl á lyfjaprófi, neitar að skila gullverðlaunum sínum. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 110 orð

Átta spor í höfuð Eiðs

EIÐUR Smári Guðjohnsen gerði stutt stopp á vellinum þegar Chelsea bar sigurorð af Paris SG í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Á 10. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 349 orð | 1 mynd

Biluð klukka í aðalhlutverki

HANDBOLTAVERTÍÐIN hófst með látum á Akureyri þegar Þór tók á móti FH í norðurriðli Íslandsmótsins. Lengst af var þetta ágæt skemmtun en í seinni hálfleik var biluð klukka í aðalhlutverki og urðu miklar tafir á leiknum. Þetta fór í taugarnar á leikmönnum og í lokin brutust út slagsmál og voru dómararnir lengi að greiða úr flækjunni og ræða við leikmenn. Rauð spjöld fóru á loft enda menn farnir að láta hendur skipta. Úrslitin urðu hins vegar 27:27 eftir frækilegan endasprett Þórsara. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 557 orð | 2 myndir

Drogba svaraði fyrir sig

KEPPNISTÍMABILIÐ í Meistaradeild Evrópu hófst í gær er leikið var í fjórum af alls átta riðlum keppninnar. Úrslit gærkvöldsins komu fæstum á óvart en skoska meistaraliðið Celtic tapaði í fyrsta sinn á heimavelli í keppninni frá upphafi og Eiður Smári Guðjohnsen fór af velli meiddur á 11. mínútu í 3:0 sigurleik Chelsea í París í Frakklandi. Ensku meistararnir úr Arsenal fóru sér hægt gegn PSV frá Hollandi og fengu hjálp frá varnarmanni gestaliðsins til þess að tryggja sér sigur. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 331 orð

Falla glimrandi vel í liðið

"ÉG get ekki kvartað yfir þessari byrjun hjá strákunum. Þeir skiluðu ótrúlega góðum leik og ég var sérlega ánægður með hversu vel menn lögðu sig fram. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 63 orð

Félagslíf

LOKAHÓF KYLFINGA LOKAHÓF Golfsambands Íslands verður haldið á Broadway á laugardaginn en þar verða meðal annars krýndir stigameistarar Toyota-mótaraðarinnar og valdir efnilegustu kylfingar landsins, dómari ársins og fleira í þeim dúr. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 94 orð

Frumsýning í Eyjum

Handknattleiksvertíðin hófst í gær með leik ÍBV og Hauka í Eyjum þar sem barist var um titilinn meistari meistaranna. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 895 orð

HANDKNATTLEIKUR Íslandsmótið, undankeppni karla, þriðjudagur 14.

HANDKNATTLEIKUR Íslandsmótið, undankeppni karla, þriðjudagur 14. september 2004: Norðurriðill: Fram - KA 35:26 Íþróttahúsið í Safamýri: Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 4:4, 8:4, 13:6, 16:8, 18:11 , 20:12, 21:16, 25:16, 32:24, 35:26 . Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 160 orð

Helgi verður að skora meira

SÖREN Åkeby, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins AGF í Árósum, er óhress með samvinnu framherjanna Helga Sigurðssonar, landsliðsmanns í knattspyrnu, og Mortens Rasmussen í leik liðsins við Viborg um síðustu helgi. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 154 orð

ÍBV án Ian Jeffs gegn Skagamönnum

FJÓRIR leikmenn geta ekki tekið þátt í lokabaráttunni á Íslandsmótinu í knattspyrnu á sunnudaginn, vegna leikbanns - Andri Fannar Ottósson, Fram, Ian Jeffs, ÍBV, Kristján Örn Sigurðsson, KR og Guðni Rúnar Helgason, Fylki. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 7 orð

í kvöld

HANDKNATTLEIKUR Íslandsmót karla, undankeppni, Norðurriðill: Ásvellir: Haukar - HK... Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 144 orð

Jóhannes ekki í "frystinum"

MICKY Adams, knattspyrnustjóri liðsins, sagði mér að nota þessa viku til þess að koma mér í gang eftir tveggja vikna fjarveru vegna leikja hjá landsliðinu. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 278 orð | 1 mynd

* LANDSLIÐSMENNIRNIR Brynjar Björn Gunnarsson og...

* LANDSLIÐSMENNIRNIR Brynjar Björn Gunnarsson og Heiðar Helguson voru báðir í byrjunarliði Watford sem sótti Cardiff heim í Wales í ensku 1. deildinni í knattspyrnu. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 63 orð

Lemgo fékk skell

LOGI Geirsson skoraði eitt mark fyrir Lemgo sem steinlá fyrir Gummersbach, 31:18, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Staðan var jöfn í hálfleik, 9:9, en í síðari hálfleik fór allt út böndunum hjá stjörnuliði Lemgo. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 246 orð

Markaleikur í Eyjum

BREIÐHYLTINGAR gerðu góða ferð til Eyja í gær þegar þeir lögðu heimamenn, 38:40, í fyrsta leik liðanna í 1. deild karla. Þeir byrjuðu betur og voru yfir eitt til fjögur mörk allan fyrri hálfleik. Varnarleikur liðanna var slappur í fyrri hálfleik en enn lélegri í þeim síðari. Bæði lið virtust eiga greiða leið í gegnum varnir andstæðinganna og þegar upp var staðið voru skoruð 78 mörk í leiknum. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 154 orð

Meistaradeildin erfiðari en HM

BRASILÍUMAÐURINN Gilberto Silva telur að það sé erfiðara að vinna Meistaradeild Evrópu en heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu, en Silva hefur reynslu af hvoru tveggja. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 309 orð | 1 mynd

*ÓLAFUR Ingi Skúlason lék allan leikinn...

*ÓLAFUR Ingi Skúlason lék allan leikinn í vörninni með varaliði Arsenal, sem lagði Derby að velli, 3:0. Hinn 17 ára Ítali Arturo Lupoli skoraði tvö mörk og lagði upp það þriðja, sem Sebastian Larsson skoraði. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 217 orð

Ólafur Már byrjaði vel

FYRSTA keppnisdegi af fjórum á úrtökumótunum fyrir evrópsku mótaröðina í golfi lauk í gær en fimm íslenskir kylfingar taka þátt að þessu sinni. Um er að ræða fyrsta stig úrtökumótsins en alls eru stigin þrjú að tölu. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 178 orð

Óskabyrjun hjá leikmönnum Gróttu/KR

LEIKMENN Gróttu/KR byrjuðu tímabilið í handknattleik karla vel í gærkvöldi þegar þeir sigruðu Stjörnuna með tólf mörkum, 32:20, á heimavelli sínum í fyrsta leiknum á Íslandsmótinu. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 472 orð | 1 mynd

Tveir 18 ára strákar stálu senunni

FRAM átti ekki í vandræðum með að leggja slakt lið KA að velli í Safamýrinni í gærkvöld. Framarar lönduðu níu marka sigri, 35:26, þar sem tveir ungir nýliðar í liði þeirra bláklæddu, leikstjórnandinn Sigfús Sigfússon og skyttan Guðmundur Arnarsson, 18 ára gamlir, voru í aðalhlutverki og áttu ekki lítinn þátt í góðum leik liðsins. Meira
15. september 2004 | Íþróttir | 152 orð

Uppselt á leik Bandaríkjanna og Íslands

MIKILL áhugi er í Bandaríkjunum fyrir kvennalandsleikjum Bandaríkjanna og Íslands í knattspyrnu sem fram fara síðar í mánuðinum en leikirnir er liður í hátíðarhöldum bandaríska liðsins sem varð Ólympíumeistari í Aþenu í síðasta mánuði. Meira

Bílablað

15. september 2004 | Bílablað | 196 orð

FÍB minnir bílasala á ástandslýsingu

FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda hefur af skrifað bréf til bílasala til að minna þá sem stunda verslun og viðskipti með notaða bíla, á að láta ástandslýsingu seljanda liggja frammi þegar kaup eru gerð. Meira
15. september 2004 | Bílablað | 669 orð | 3 myndir

Haraldur komst einn yfir mýrina

Fimmta og síðasta umferð Íslandsmeistaramótsins í torfæruakstri var haldin á Hellu síðastliðinn laugardag. Haraldur Pétursson á Musso, sem var búinn að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn fyrir keppnina, var ekki á þeim buxunum að gefa neitt eftir. Meira
15. september 2004 | Bílablað | 97 orð

Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni

Íslandsmeistarakeppnin í Ökuleikni hefst um næstu helgi, en á þessu ári er Ökuleiknin 26 ára og mun keppnin verða með breyttu sniði. Ekki voru haldnar sérstakar undankeppnir eins og oft undanfarin ár heldur verður öllum heimilt að taka þátt í keppninni. Meira
15. september 2004 | Bílablað | 64 orð

Kia Cerato 1,6 EX-hlaðbakur

Vél: Fjórir strokkar, 1.599 rúmsentimetrar, 16 ventl ar. Afl: 104 hestöfl við 5.800 snúninga. Tog: 146 Nm við 4.500 snúninga. Gírskipting: Fjögurra þrepa sjálfskipting. Hröðun: 13 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Meira
15. september 2004 | Bílablað | 888 orð | 5 myndir

Kia Cerato - til marks um framfarir

ÞAÐ hefur verið athyglisvert að fylgjast með þróun kóreskra bíla á undanförnum árum og misserum. Ekki er langt síðan að menn settu vissan stimpil á kóreska bíla, oft að ósekju en stundum af ástæðu. Meira
15. september 2004 | Bílablað | 214 orð | 2 myndir

Lexus RX400h - 272 hestafla tvinnjeppi

LEXUS RX400h er heimsins fyrsti tvinnbíll í flokki lúxusjeppa. Bíllinn er keimlíkur Lexus RX300 í útliti en aflrásin er allt önnur en menn eiga að venjast í svona bíl og meira í ætt við Toyota Prius tvinnbílinn. Meira
15. september 2004 | Bílablað | 64 orð | 1 mynd

Nýr Swift

NÝR Suzuki Swift verður frumsýndur á bílasýningunni í París síðar í þessum mánuði. Bíllinn verður keimlíkur S-Concept sem frumsýndur var í Frankfurt í fyrra og verður boðinn með 1,3 og 1,5 lítra bensínvélum. Meira
15. september 2004 | Bílablað | 830 orð | 8 myndir

Vandaður og sportlegur V50

MEÐ nýrri kynslóð Volvo S40 og V50 hefur sænski bílaframleiðandinn endanlega sýnt fram á að nýir tímar og stefnur eru í hávegum hafðar, jafnt í hönnunardeild fyrirtækisins sem og tæknideildinni. Meira
15. september 2004 | Bílablað | 95 orð

Volvo V50 1.8i

Vél: Fjórir strokkar, 1.798 rúmsentimetrar, 16 ventl ar. Afl: 125 hestöfl við 6.000 snúninga á mínútu. Tog: 165 Nm við 4.000 snúninga á mínútu. Hröðun: 11 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Hámarkshraði: Gírskipting: Fimm gíra hand skiptur. Meira
15. september 2004 | Bílablað | 282 orð

Þrýstingur á vaxtalækkun á bílalánum

Á sama tíma og vextir til fasteignalána hafa lækkað verulega hafa vextir á bílakaupalánum staðið í stað. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.