Greinar þriðjudaginn 19. október 2004

Fréttir

19. október 2004 | Innlendar fréttir | 90 orð

201 kíló af heimilissorpi á íbúa 2003

HEIMILISÚRGANGUR í Reykjavík minnkaði um 5,5% milli áranna 2000 og 2003, að því er fram kemur í Umhverfisvísum Reykjavíkur, eftir nokkra aukningu árin á undan. Árið 2003 henti hver Reykvíkingur 258 kílóum af sorpi. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 79 orð

45% fjölgun ökutækja síðustu 8 ár

HEILDARFJÖLDI ökutækja í Reykjavík jókst um 45% milli áranna 1996 og 2003, úr 55.860 í 80.147. Þar af fjölgaði dísilknúnum ökutækjum um 100% en bensínknúnum um 37 prósent. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 255 orð

97% leikskólakennara eru óánægð með launin

GRUNNLAUN leikskólakennara hækkuðu um 33,2% frá janúar 2000 til janúar 2001 og heildarlaun hækkuðu um 26,6% á sama tíma. Meira
19. október 2004 | Innlent - greinar | 1271 orð | 1 mynd

Aftur gæti komið til kasta hæstaréttar

David W. Rohde, prófessor í stjórnmálafræði frá Michigan, segir í viðtali við Kristján Jónsson að margt geti orðið til að á ný verði deilt um úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 74 orð

Af yrkisefnum

Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd orti við lestur á Morgunblaðinu: Teygja á Kerry tunguna tölur efnisríkar. Meðan Bush með bunguna brosi skökku flíkar! Meira
19. október 2004 | Minn staður | 225 orð | 1 mynd

Allar lóðir seldar í Fosslandi

Selfoss | Allar lóðir eru seldar í svonefndu Fosslandi á Selfossi sem Fossmenn ehf. hafa skipulagt og selt einkaaðilum og fyrirtækjum til húsbygginga. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 263 orð | 1 mynd

Áhersla á sérstöðu náttúrunnar

UM 90 manns tóku þátt í íbúaþingi á Álftanesi um helgina í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Áftaness sem ráðgert er að liggi fyrir upp úr næstu áramótum. Meira
19. október 2004 | Minn staður | 381 orð

Ávallt rétt á að sitja fundi

TILTEKNIR áheyrnarfulltrúar eiga rétt til setu í fræðsluráði samkvæmt grunnskólalögum og er hann ekki takmarkaður með lögum. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 116 orð | 1 mynd

Banaslys skammt frá Varmahlíð

PÓLSKUR karlmaður lést er jeppi sem hann var farþegi í valt í hálku við bæinn Brekku skammt frá Varmahlíð í Skagafirði rétt fyrir miðnætti á sunnudagskvöld. Er talið að maðurinn hafi látist samstundis, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Sauðárkróki. Meira
19. október 2004 | Erlendar fréttir | 279 orð | 1 mynd

Bandarískir biskupar hvattir til að biðjast afsökunar

BISKUPAKIRKJAN birti í gær skýrslu þar sem leiðtogar kirkjunnar í Bandaríkjunum eru hvattir til að biðjast afsökunar á því að hafa vígt samkynhneigðan biskup. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 112 orð

Bílum stolið á Egilsstöðum

TVEIM bílum var stolið á Egilsstöðum á laugardagskvöld, og ók þjófur annars bílsins utan í fjölda bíla á leið sinni um bæinn. Bílarnir voru báðir ólæstir og með lyklunum í þegar þeim var stolið. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 134 orð | 1 mynd

Brak úr þakinu þeyttist yfir miðbæinn

STÓRHÆTTA skapaðist í miðbæ Vestmannaeyjabæjar þegar talsverður hluti af þaki Ímexhússins, sem hefur verið notað sem veiðarfærageymsla, sviptist af í einu lagi. Brak þeyttist víða um bæinn og þykir mildi að enginn skyldi slasast. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 359 orð

Bregðast við ógnunum og hlýða ræningjum

SAMTÖK ferðaþjónustunnar hafa látið útbúa ítarlega forvarnahandbók fyrir gististaði þar sem útlistað er hvernig bregðast skuli við margvíslegri ógn s.s. hryðjuverkum, náttúruhamförum og fleiru. Meira
19. október 2004 | Minn staður | 148 orð

Desjarárstífla | Undirbúningur að Desjarárstíflu við...

Desjarárstífla | Undirbúningur að Desjarárstíflu við væntanlegt Hálslón Kárahnjúkavirkjunar gengur vel. Búið er að grafa mikinn skurð eftir stíflustæðinu endilöngu og fer í hann svokallaður miðjukjarni stíflunnar. Meira
19. október 2004 | Erlendar fréttir | 116 orð

Eiturefni ollu Flóaveikinni

STJÓRNSKIPUÐ nefnd í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að eiturefni hafi valdið svokallaðri Flóaveiki sem hrjáð hefur fyrrverandi hermenn er börðust í Persaflóastríðinu 1991. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 355 orð | 1 mynd

Enn stórsigur hjá konunum

FJÓRÐA umferð var tefld á Ólympíuskákmótinu á Mallorca í gær. Karlalið Íslands vann Suður-Afríku, 2,5-1,5. Arnar var sá eini, sem komst yfir jafnteflismúra andstæðinganna, en Hannes Hlífar, Helgi og Stefán gerðu jafntefli. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 122 orð | 1 mynd

Fagnaðarfundur í Digranesskóla

"MAÐUR sá það á andlitum nemenda að þeim fannst gott að vera komnir í skólann sinn aftur. Sum börnin glöddust mikið og það má því segja að það hafi orðið fagnaðarfundur þegar nemendur mættu til starfa upp úr kl. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 200 orð | 1 mynd

Fór yfir viðmiðunarmörk í fimmtán daga í fyrra

SVIFRYKSMENGUN í Reykjavík (PM¹º) fór fimmtán sinnum yfir viðmiðunarmörk á síðasta ári og hefur mengunin ekki verið hærri á síðustu tíu árum samkvæmt mælingum sem gerðar hafa verið á svifryki og fram koma í nýrri skýrslu Umhverfis- og heilbrigðisstofu,... Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 66 orð

Fundað vestra

Bæjarráð Vesturbyggðar fól í gær Guðmundi Guðlaugssyni bæjarstjóra að óska eftir því við sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps að sveitarstjórnirnar hittust á óformlegum fundi til að ræða tillögur nefndar félagsmálaráðuneytisins um sameiningu... Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 92 orð | 1 mynd

Fylgist með flugslysarannsókn í Kanada

FULLTRÚI Rannsóknarnefndar flugslysa, RNF, fylgist með rannsókn á flugslysinu í Kanada sl. fimmtudag þegar Boeing 747-fraktþota MK-flugfélagsins fórst við Halifax. Félagið er í eigu Íslendinga. Meira
19. október 2004 | Erlendar fréttir | 84 orð

Fyrsta kínverska einkaflugfélagið

FYRSTA einkarekna flugfélagið tekur til starfa í Kína fyrir árslok að því er fram kemur í frétt frá kínversku fréttastofunni Xinhua . Flugfélagið, sem heitir Okay Airways, verður aðallega í vöruflutningum og leiguflugi innan Kína. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 154 orð | 1 mynd

Fyrstu samgöngufyrirtækin sem hljóta vottunina

HÓPBÍLAR og Hagvagnar fengu á dögunum viðurkenningu þess efnis að umhverfisstjórnun fyrirtækjanna uppfylli kröfur sem settar eru fram í alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 147 orð | 1 mynd

Gott verð á minkaskinnum

SÖLUVERTÍÐINNI á loðskinnum hjá uppboðshúsinu í Kaupmannahöfn lauk með glæsibrag, að því er fram kemur í fréttabréfi Sambands íslenskra loðdýraræktenda. Þarf að fara aftur til ársins 1996 til að finna betra verða á minkaskinnum. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 177 orð

Hagar fengu ekki að reka matvörubúð í Grafarholti

HAGAR hf. sem reka m.a. Bónus, Hagkaup og 10-11 verslanirnar hafa ekki fengið leyfi til að reka matvöruverslun í Grafarholtinu. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 84 orð

Hálfur milljarður í árlegan ávinning

ÁRLEGUR ávinningur Vestlendinga vegna tilkomu Hvalfjarðarganga nemur hálfum milljarði króna og eru þá ótalin ýmis önnur jákvæð áhrif á búsetu á Vesturlandi að því er fram kemur í rannsókn sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa látið gera. Meira
19. október 2004 | Minn staður | 183 orð | 2 myndir

Hetjurnar fimm ára

ÞAÐ var mikið fjör í Glerárkirkju um helgina þegar haldið var upp á fimm ára afmæli Hetjanna, félags aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 179 orð

Hnullungar og þakplötur fuku upp

HNULLUNGAR tókust á loft í vindhviðum í Vík í Mýrdal í gær og brotnuðu bílrúður í yfir tug bíla þegar grjót þeyttist í þær. Meira
19. október 2004 | Erlendar fréttir | 31 orð | 1 mynd

Hópbrúðkaup í Kína

KÍNVERSK brúðhjón kyssast við hópbrúðkaup í borginni Hangzhou í austanverðu Kína í gær. Hundrað og fimm pör gengu þá í hjónaband og ferðuðust saman um borgina og nágrenni hennar í... Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 227 orð | 1 mynd

Hringbraut neðan LSH lokað

ÁTAKSHÓPUR Höfuðborgarsamtakanna og Samtaka um betri byggð (ÁHS) hefur gert tillögu um að leggja niður Hringbrautina á milli Snorrabrautar og Barónsstígs og byggja þess í stað nýtt hringtorg á mótum Snorrabrautar og Eiríksgötu, nýjan rampa fyrir hægri... Meira
19. október 2004 | Erlendar fréttir | 182 orð

Húsbrot Ísraela gagnrýnt

YFIRMAÐUR Hjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu og kunn mannréttindasamtök gagnrýndu Ísraelsstjórn mjög harðlega í gær og sögðu hana hafa brotið alþjóðalög með framferði sínu á Gaza. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 183 orð

Lagasetning ekki rædd í stjórnarflokkunum

GUNNAR Ingi Birgisson, formaður menntamálanefndar Alþingis, segist ekki vita til þess að stjórnarflokkarnir hafi rætt þann möguleika að setja lög sem stöðva verkfall grunnskólakennara. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 493 orð | 3 myndir

Lagðir verði háir skattar á allt áfengi

HEILBRIGÐIS- og félagsmálaráðherrar Norðurlandanna samþykktu á fundi í Kaupmannahöfn um áfengismál að beina því til norrænu ráðherranefndarinnar að lagðir verði háir skattar á áfengi á Norðurlöndunum. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 181 orð | 1 mynd

Lífslíkur hefðu verið góðar með læknishjálp

AÐALMEÐFERÐ í líkfundarmálinu svokallaða hófst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og er reiknað með að henni ljúki í dag. Meira
19. október 2004 | Minn staður | 94 orð

Lögfræðitorg | Þóra Gylfadóttir flytur fyrirlestur...

Lögfræðitorg | Þóra Gylfadóttir flytur fyrirlestur á lögfræðitorgi í dag, þriðjudaginn 19. október kl. 12 í stofu L103, Sólborg en hann nefnist "Leiðsögn í frumskóginum - Hvað er EDC? Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 560 orð | 1 mynd

Lög um olíuauðlindir til endurskoðunar

LÖG og reglugerðir um leit og vinnslu olíuauðlinda eru nú til endurskoðunar hjá samráðsnefnd um olíuleitarmál á vegum iðnaðarráðuneytis, utanríkisráðuneytis og Orkustofnunar. Aðspurður segir Tómas H. Meira
19. október 2004 | Erlendar fréttir | 161 orð

Makedónskir gíslar líflátnir?

VOPNUÐ hreyfing í Írak, Íslamski herinn svokallaði, kvaðst í gær hafa líflátið tvo makedónska gísla sem hefðu njósnað fyrir Bandaríkjaher. Hreyfingin greindi ekki frá nöfnum gíslanna. Þriggja Makedóníumanna hefur verið saknað í Írak frá 21. ágúst. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 62 orð

Ný gangbrautarljós á Kringlumýrarbraut

UNNIÐ er að uppsetningu á nýjum gangbrautarljósum á Kringlumýrarbraut í Reykjavík til móts við Hamrahlíð og er áformað að kveikja á þeim á fimmtudag, 21. október nk. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 89 orð | 1 mynd

Olís styrkir ólympíufara

ÓLYMPÍUFARARNIR Kristín Rós Hákonardóttir, Jóhann Kristjánsson og Jón Oddur Halldórsson fengu á dögunum 100 þúsund króna styrk hvert frá Olís, en fyrirtækið hefur undanfarin ár veitt Íþróttasambandi fatlaðra stuðning. Meira
19. október 2004 | Erlendar fréttir | 158 orð | 1 mynd

Pútín hallar sér að Bush

VLADÍMÍR Pútín, forseti Rússlands, lýsti óbeint yfir stuðningi við endurkjör George W. Bush sem forseta Bandaríkjanna í gær. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 85 orð

Rannsókn hafin á nafnbirtingu

LÖGREGLAN í Reykjavík hefur hafið rannsókn á því hvers vegna nafn lögreglumanns í fíkniefnadeild er birt á vefsíðunni dopsalar.tk. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 119 orð

Rannsóknir vegna jarðganga um Vaðlaheiði

Vaðlaheiði | Nú er unnið að jarðfræðirannsóknum vegna jarðganga um Vaðlaheiði á vegum Jarðfræðistofunnar í samstarfi við Vegagerðina en það er Greið leið ehf. sem stendur að verkefninu. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 170 orð

Rætt um rafskautameðferð

ÁRLEGUR fræðslufundur Parkinsons-samtakanna verður haldinn föstudaginn 22. október frá kl. 10-15 í Sunnusal Radisson SAS hótels. Fundurinn er tileinkaður rafskautaígræðslu, bæði aðgerðinni sjálfri og einnig for- og eftirmeðferð. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 276 orð

Samfylkingin gagnrýnir nefndaskipan

TIL SNARPRAR orðasennu kom milli þingmanna Samfylkingarinnar og Geirs H. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 143 orð | 1 mynd

Samið við tvö fyrirtæki um farsímagreiðslur í stöðumæla

BÍLASTÆÐASJÓÐUR Reykjavíkur hefur undirritað tilraunasamninga um rekstur greiðslu- og eftirlitskerfa, sem gerir ökumönnum kleift að greiða með farsíma í stað myntar í gjaldskyld bílastæði borgarinnar. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 697 orð | 1 mynd

Samstarf í uppnámi

Mannréttindaskrifstofa Íslands (MRSÍ) gerði árið 1998 munnlegt samkomulag við utanríkisráðuneytið með fulltingi þáverandi dómsmálaráðherra að ráðuneyti þeirra myndu veita skrifstofunni fastan rekstrarstyrk. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 253 orð | 2 myndir

Sá stærsti í haust

ÞÆR fregnir hafa borist frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, að rúmlega 20 punda sjóbirtingur hafi veiðst í Tungufljóti laust fyrir helgi og eftir því sem næst verður komist er það stærsti birtingurinn sem veiðst hefur á haustvertíðinni, en á vorvertíðinni... Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 123 orð | 1 mynd

Sáttatilraunum haldið áfram

FUNDI samninganefndar Kennarasambands Íslands og Launanefndar sveitarfélaganna, sem hófst klukkan 13 í gær, lauk um fjögurleytið. Fundur hefur verið boðaður eftir hádegi í dag. "Menn ræddu saman í dag og munu ræða aftur saman á morgun. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 97 orð

Senda tölvupóst og krefjast svara

LANDSSAMTÖKIN Heimili og skóli hvetja foreldra grunnskólabarna til að senda tölvupóst á sína kjörnu fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum og krefjast svara um það hvernig þeir ætla að axla þá ábyrgð að halda skóla fyrir öll börn og unglinga. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 92 orð | 1 mynd

Síldarstemning á Djúpavogi

Djúpivogur | Það ríkti sannkölluð síldarstemning á Djúpavogi þegar um áttahundruð tonn af síld bárust að landi síðastliðinn sunnudagsmorgun. Súlan EA 300 kom með fjögur hundruð og fimmtíu tonn og Bjarni Sveinsson ÞH 322 um þrjú hundruð og fimmtíu tonn. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 40 orð | 1 mynd

Steig sín fyrstu spor

Trúbadorahátíð Íslands var haldin í Neskaupstað fyrir nokkru. Yngsti keppandinn sem sté á stokk var Auðunn Bragi Kjartansson og þótti honum takast býsna vel upp á tónleikunum, innan um sjóaða söngfugla sem fyrir löngu hafa lagt landið að fótum... Meira
19. október 2004 | Innlent - greinar | 1613 orð | 2 myndir

Stífla myndaðist í görnum Jucevicius vegna uppskurðar

Aðalmeðferð í líkfundarmálinu svokallaða hófst í gær fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, en þrír menn eru ákærðir m.a. fyrir innflutning á fíkniefnum og brot gegn lífi Litháans Vaidas Jucevicius í febrúar síðastliðnum. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 691 orð | 2 myndir

Stjórnarandstæðingar saka stjórnvöld um andvaraleysi

ÞINGMENN stjórnarandstöðunnar sögðu á Alþingi í gær að íslensk stjórnvöld hefðu sýnt andvaraleysi varðandi æfingar rússneskra herskipa norðaustur af Íslandi síðustu vikur. Þau hefðu brugðist of seint við veru skipanna hér við land. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 172 orð

Stórtjón í eldsvoða á Knerri

GRÍÐARLEGT tjón varð í eldsvoða á bænum Knerri í Snæfellsbæ í gærkvöld og brunnu hundruð fjár inni. Eldurinn var tilkynntur klukkan 19.55 til lögreglunnar í Snæfellsbæ og var Slökkvilið Grundarfjarðar og Ólafsvíkur kvatt á vettvang. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 53 orð

Strokufangi handtekinn

LÖGREGLAN í Reykjavík lýsti í gær eftir Arnþóri Jökli Þorsteinssyni, fæddum 1985, sem strauk frá fangelsinu við Skólavörðustíg um hádegisbil. Leitað var að honum í gær en án árangurs en hann var ekki talinn hættulegur. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 104 orð

Styttist í lyktir olíumáls

MUNNLEGUR málflutningur fór fram fyrir samkeppnisráði í gær vegna rannsóknar samkeppnisyfirvalda á meintu verðsamráði olíufélaganna þriggja, Olíufélagsins, Olíuverslunar Íslands og Skeljungs. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 141 orð

Sveitarfélögin styðja Launanefndina

STJÓRN Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi fyrir helgi bókun um kjaradeilu sveitarfélaganna og Kennarasambands Íslands þar sem lýst er fullum stuðningi við störf samninganefndar Launanefndar sveitarfélaganna. Meira
19. október 2004 | Minn staður | 142 orð | 2 myndir

Syngjandi á ferð og flugi

Egilsstaðir | Tenórsöngvarinn Þorbjörn Rúnarsson, sem búsettur á Egilsstöðum, tekur um þessar mundir þátt í uppfærslu Íslensku óperunnar á söngleik Stephens Sondheims, Sweeney Todd. Meira
19. október 2004 | Erlendar fréttir | 141 orð | 1 mynd

Sögulegar sættir?

RÚSSINN Vladímír Kramník varði í gær heimsmeistaratitil sinn í skák er hann vann síðustu skákina í einvíginu við Ungverjann Peter Leko. Skildu þeir jafnir í 14 skákum. Meira
19. október 2004 | Minn staður | 382 orð | 2 myndir

Unnið að umhverfismati framkvæmdarinnar

Vestfirðir | Fyrirtæki áhugafólks er að láta vinna umhverfismat væntanlegs vegar milli Stranda og Reykhólahrepps, um Arnkötludal og Gautsdal, og hefur meðal annars tekið erlent lán til að standa undir kostnaði. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 383 orð

Úr sveitinni

Sumarið sem nú er að kveðja er um margt eftirminnilegt og einkum fyrir að það kom ekkert hret. Besta heyskapartíð í áratugi kom sér mjög vel fyrir bændur sem nú eiga mjög vel verkaða töðu hvort sem er í hlöðum sínum eða rúllum. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 264 orð | 1 mynd

Vindhvellir á Suðurlandi og stórhríð austanlands

NÆRFELLT allir fjallvegir á Austurlandi lokuðust í aftakaveðri og hríð sem gekk þar yfir í gær og lentu margir ökumenn í vandræðum á leið milli byggða. Meira
19. október 2004 | Minn staður | 349 orð | 1 mynd

Vinnu við snjóflóðagarða og höfn að ljúka

Seyðisfjörður | Nú sér fyrir endann á einu stærsta verkefni Seyðisfjarðarkaupstaðar til þessa, gerð snjóflóðavarnargarðs í Bjólfinum. Því er að ljúka og gengið verður frá svæðinu næsta vor. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 458 orð | 2 myndir

Þráttað um þjóðbraut

DEILUR hafa risið á Austurlandi vegna ummæla samgönguráðherra þess efnis að hugsanlega verði þjóðvegur 1 látinn liggja um Fagradal, Fáskrúðsfjarðargöng og um svonefnda Suðurfirði, þ.e. Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð. Meira
19. október 2004 | Innlendar fréttir | 114 orð

Þrýst verði á ríkisvaldið til lausnar

BORGARFULLTRÚI F-listans leggur í dag fram tillögu á fundi borgarstjórnar vegna kennaraverkfallsins. Meira
19. október 2004 | Erlendar fréttir | 313 orð | 1 mynd

ÖSE gagnrýnir þjóðaratkvæðið í Hvíta-Rússlandi

VESTRÆNIR kosningaeftirlitsmenn gagnrýndu í gær þingkosningar og þjóðaratkvæðagreiðslu í Hvíta-Rússlandi um hvort breyta ætti stjórnarskránni til að gera Alexander Lúkashenko forseta kleift að gegna embættinu lengur en í tvö kjörtímabil. Meira

Ritstjórnargreinar

19. október 2004 | Leiðarar | 313 orð | 1 mynd

Hrein mismunun

Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær er ekki útlit fyrir að sálfræðiþjónusta verði niðurgreidd á næstunni, líkt og viðtöl við geðlækna eru greidd niður af Tryggingastofnun, enda þótt Alþingi hafi breytt lögum á þann veg að það sé heimilt. Meira
19. október 2004 | Leiðarar | 435 orð

Skynsamlegar hugmyndir samfylkingarfólks

Athyglisverð hugmyndaleg endurnýjun fer nú fram innan Samfylkingarinnar í hinum svokallaða framtíðarhópi, sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður flokksins, stýrir. Meira
19. október 2004 | Leiðarar | 347 orð

Vaxandi þrýstingur

Það er erfitt að átta sig á því hvaða lögmálum viðræður í kennaradeilunni lúta. Viðsemjendur virðast fastir í fari og ekki sjá neina leið til þess að komast upp úr því. Meira

Menning

19. október 2004 | Tónlist | 366 orð | 1 mynd

Allir eru þeir rokk

Life Is Killing My Rock 'n' Roll, önnur (þriðja) breiðskífa Singapore Sling. Hljómsveitina skipa Henrik Björnsson söngvari og gítarleikari, Einar Þór Kristjánsson gítarleikari, Helgi Örn Pétursson gítar- og hljómborðsleikari, Þorgeir Guðmundsson bassaleikari, Bjarni Friðrik Jóhannsson trommuleikari og Sigurður M. Finnsson hristuleikari. Lög og textar eftir Henrik. Sheptone Records gefur út. 51,30 mín. Meira
19. október 2004 | Menningarlíf | 222 orð | 1 mynd

Djassað í Sjanghæ

ÍSLENSKA tríóið Guitar Islancio er í hópi rúmlega 600 listamanna frá yfir 40 löndum sem taka þátt í sjöttu árlegu listahátíðinni í Sjanghæ í Kína. Meira
19. október 2004 | Menningarlíf | 304 orð | 3 myndir

Fólk folk@mbl.is

Gavin Rossdale , söngvari Bush og eiginmaður Gwen Stefani úr No Doubt , á unglingsdóttur á laun. Hann hefur viðurkennt að hin 15 ára gamla fyrirsæta Daisy Lowe sé dóttir hans. Þetta kom í ljós með aðstoð DNA-prófs. Meira
19. október 2004 | Kvikmyndir | 172 orð | 1 mynd

Hákarlar enn hæstir

KVIKMYNDIN Hákarlasaga ( Shark Tale ) var aðsóknarmesta kvikmynd helgarinnar í Bandaríkjunum, þriðju vikuna í röð. Myndin halaði inn um 1.570 milljónir króna um helgina en heildartekjur af myndinni nema nú tæpum 8,5 milljörðum króna. Meira
19. október 2004 | Myndlist | 524 orð | 1 mynd

Himneskt tákn í Brooklyn

Kröftugur og samheldinn hópur ungra myndlistarmanna sem kallar sig Himneskt tákn stendur fyrir þremur samtengdum sýningum í New York í samvinnu við Gallerí Boreas í Brooklyn. Hulda Stefánsdóttir segir frá hugmyndinni að baki verkefninu og fyrsta hluta sýningarinnar sem nú stendur yfir. Meira
19. október 2004 | Menningarlíf | 518 orð | 1 mynd

Hlustendavænt skrýtipopp

Gísli Kristjánsson virtist koma af himnum ofan fyrir um einu ári. Enginn í popp- og rokkkreðsunni hérlendis kannaðist við kauða, sem kallar sig einfaldlega Gísla, og menn undruðust enn frekar þegar þeir heyrðu tónlistina. Meira
19. október 2004 | Menningarlíf | 293 orð | 1 mynd

Hugleiðingar um lífsstíl

MIKILL áhugi er á allri hönnun í þjóðfélaginu í dag og lífsstílsþættir njóta vinsælda í sjónvarpi. Tveir slíkir þættir eru á dagskrá SkjásEins í kvöld, Queer Eye for the Straight Guy og Innlit/Útlit . Meira
19. október 2004 | Menningarlíf | 665 orð | 1 mynd

Íslenzkunámskeið á Netinu

Vefsetur Háskóla Íslands um íslenzkt mál og menningu býður nú upp á vefnámskeiðið Icelandic Online; gagnvirkt íslenzkunám á Netinu, en efni þess á að jafngilda heils misseris námi í íslenzku fyrir útlendinga. Freysteinn Jóhannsson hitti forsvarsmenn námskeiðsins að máli. Meira
19. október 2004 | Menningarlíf | 109 orð | 1 mynd

Kraftur þriggja

HEILLANORNIRNAR Phoebe, Paige og Piper hafa nú fært sig í tíma. Þær ætla ekki að fara á tímaflakk í þessum þætti af Charmed heldur eru þær komnar á nýjan sýningartíma á SkjáEinum. Núna eru þættirnir frumsýndir á laugardagskvöldum klukkan 20. Meira
19. október 2004 | Tónlist | 110 orð | 1 mynd

Lenti í mótorhjólaslysi

MARC Almond, söngvari Soft Cell, lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi í miðborg Lundúna síðdegis á sunnudag. Hann var farþegi á hjólinu og kastaðist af því við árekstur við bifreið og hlaut alvarlega áverka á höfði er hann skall í jörðina. Meira
19. október 2004 | Tónlist | 540 orð | 2 myndir

Með augun opin

Alveg einstaklega farsælt ár í lífi bresku hljómsveitarinnar Keane er brátt á enda. Sveitin treður upp á Iceland Airwaves á laugardaginn og ræddi Arnar Eggert Thoroddsen við söngvarann Tom Chaplin. Meira
19. október 2004 | Menningarlíf | 144 orð | 1 mynd

Pamela opnar sig

BAYWATCH-stjarnan Pamela Anderson hefur viðurkennt að ný metsöluskáldsaga eftir hana sé byggð á hennar eigin lífi. Sagan hefur vakið athygli fyrir opinskáar lýsingar á frjálslegum lifnaði; framandi kynlífsathöfnum og viltum partíum. Meira
19. október 2004 | Menningarlíf | 241 orð | 6 myndir

Stefano Pilati tekur við YSL

HÖNNUÐURINN Stefano Pilati sýndi sína fyrstu kvenfatalínu fyrir Yves Saint Laurent Rive Gauche um helgina, undir lok tískuviku í París en hönnuðir sýndu tísku næsta vors og sumars. Meira
19. október 2004 | Kvikmyndir | 132 orð | 1 mynd

Söngelskar skyttur

Leikstjóri Donovan Cook.Í slenskir talsetjarar Örn Árnason, Sigurður Sigurjónsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Karl Ágúst Úlfsson o.fl. Meira
19. október 2004 | Leiklist | 848 orð | 1 mynd

Tekist á við tilfinningar

Höfundur: Kristján Þórður Hrafnsson. Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason. Leikarar: Rúnar Freyr Gíslason, Sólveig Arnardóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Friðrik Friðriksson. Leikmynd: Jón Axel Björnsson. Búningar: Margrét Sigurðardóttir. Lýsing: Ásmundur Karlsson. Litla sviðið, 17. október 2004 Meira
19. október 2004 | Kvikmyndir | 222 orð

Tennisást á Wimbledon

Leikstjórn: Richard Locraine. Aðalhlutverk: Kirsten Dunst, Paul Bettany og Sam Neill. Bandaríkin/Bretland/Frakkland, 98 mín. Meira

Umræðan

19. október 2004 | Aðsent efni | 403 orð | 1 mynd

Af úrillum kennara!

Kristinn Þór Jakobsson svarar Ragnhildi I. Guðmundsdóttur: "Þeir sem tapa mestu á kennaraverkfalli eru börnin okkar. Kennarar og sveitarfélögin ,,hagnast" á verkfallinu." Meira
19. október 2004 | Aðsent efni | 745 orð | 1 mynd

Blaðaskrif um stofnun Cargolux

Jóhannes Einarsson fjallar um sögu Cargolux: "Í stjórnartíð Sigurðar hjá Flugleiðum afskrifaði félagið hlutabréf sín í Cargolux...sem seldi sömu hlutabréf til Lufthansa með milljón dollara hagnaði." Meira
19. október 2004 | Aðsent efni | 435 orð | 1 mynd

Frá hugmynd að veruleika

Gunnar I. Birgisson fjallar um spænska menningarhátíð í Kópavogi: "Kópavogsbær hefur fullan hug á að framvegis verði þematengdir menningardagar fastur liður..." Meira
19. október 2004 | Aðsent efni | 703 orð | 1 mynd

Garðabær - hamingjuóskir?

Eyjólfur Bragason skrifar um sveitarstjórnarmál: "Nú er mál að linni. Við Garðbæingar viljum ekki bæ sem byggist upp af tilviljun." Meira
19. október 2004 | Aðsent efni | 205 orð

Lágt er lagst

Sumir þeirra sem halda úti vefsíðum skrifa þar hraðar en þeir hugsa og nema. Svo er um Hjálmar Árnason, formann þingflokks Framsóknarflokksins, sem leggur út af hugmyndaríkum og þróttmiklum flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar, á heimasíðu sinni 17. Meira
19. október 2004 | Bréf til blaðsins | 523 orð

Opið bréf til Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra 30. september 2004

Frá Steinunni Jóhannesdóttur:: "Virðulegi ráðherra. Jón Steinar Gunnlaugsson, nýskipaður hæstaréttardómari, birti grein í Morgunblaðinu 28. mars 2002 undir fyrirsögninni "Áfall fyrir tjáningarfrelsi"." Meira
19. október 2004 | Aðsent efni | 518 orð | 1 mynd

Sterk bein með aðstoð kalks og D-vítamíns

Ólafur G. Sæmundsson skrifar vegna alþjóðlega beinverndardagsins 20. október: "Að verða fórnarlamb beinþynningar er harla óskemmtilegt enda um afar sársaukafullan sjúkdóm að ræða." Meira
19. október 2004 | Aðsent efni | 243 orð | 1 mynd

Sveitarstjórnir og kennaraverkfall

Hjörleifur Guttormsson skrifar um kennaraverkfallið: "Þessa dagana eru sveitarstjórnarmenn í landinu að gera sig að viðundri..." Meira
19. október 2004 | Bréf til blaðsins | 229 orð | 1 mynd

Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is

Firnagóð sýning í Iðnó TENÓRINN í Iðnó er sýning sem ég vissi ekki ýkja mikið um. Ég þekkti Guðmund Ólafsson að góðu einu sem leikara og barnabókahöfund, en finn mig knúna til að lýsa yfir gleði og undrun yfir fjölhæfninni sem hann sýnir í Tenórnum. Meira

Minningargreinar

19. október 2004 | Minningargreinar | 5694 orð | 1 mynd

GUÐMUNDUR ÓFEIGSSON

Guðmundur Ófeigsson fæddist í Ráðagerði í Leiru í Gullbringusýslu 8. nóvember 1915. Hann lést í Reykjavík hinn 7. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jóhanna Guðrún Frímannsdóttir, f. 16. des. Meira  Kaupa minningabók
19. október 2004 | Minningargreinar | 1908 orð | 1 mynd

SIGRÍÐUR S. JAKOBSDÓTTIR

Sigríður S. Jakobsdóttir fæddist að Þverá í Fremri-Torfustaðahreppi í V-Húnavatnssýslu 27. janúar 1927. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík 7. október síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

19. október 2004 | Sjávarútvegur | 247 orð | 1 mynd

Bannað að flytja út þurrkaða hausa með önglum í

ÚTFLUTNINGUR á þurrkuðum þorskausum með önglum í er bannaður í Noregi. Fyrir vikið geta Norðmenn ekki selt slíka hausa til Nígeríu, þrátt fyrir mikla spurn eftir þeim. Algengt er að þurrkaðir þorskhausar séu skírnargjafir í Nígeríu. Meira
19. október 2004 | Sjávarútvegur | 205 orð | 1 mynd

Hver einasta "padda" í vinnslu

ÞAÐ ríkir sannkölluð síldarstemmning á Austfjörðum þessa dagana. Mikið hefur borist af síld til vinnslu undanfarna daga og allir sem vettlingi geta valdið hafa verið kallaðir til vinnu. Meira
19. október 2004 | Sjávarútvegur | 64 orð

Þrjú skip svipt leyfi

FISKISTOFA svipti þrjú skip leyfi til veiða í atvinnuskyni í síðasta mánuði. Sigurvin SH var sviptur veiðileyfi í sex vikur þar sem afli var ekki færður til vigtunar á hafnarvog við löndun. Meira

Viðskipti

19. október 2004 | Viðskiptafréttir | 276 orð

Árleg ávöxtun verði 20%

HLUTHAFAFUNDUR Flugleiða hf. gaf í gær stjórn félagsins heimild til að auka hlutafé í félaginu um allt að 40%, eða 922,8 milljónir hluta, og skal stjórnin nýta þá heimild innan 5 ára. Meira
19. október 2004 | Viðskiptafréttir | 264 orð | 2 myndir

Engin innherjasvik hjá Walker

BRESK yfirvöld hafa hreinsað Malcolm Walker, stofnanda og fyrrverandi stjórnarformann bresku matvörukeðjunnar Iceland, af ásökunum um meint innherjasvik. Meira
19. október 2004 | Viðskiptafréttir | 82 orð

Flugleiðir afhuga Malév

FLUGLEIÐIR munu ekki gera tilboð í ungverska ríkisflugfélagið Malév , að því er ungverskir fjölmiðlar hafa eftir Guðjóni Arngrímssyni, talsmanni félagsins. Meira
19. október 2004 | Viðskiptafréttir | 81 orð

Heimilt að auka hlutafé Burðaráss

HLUTHAFAR í Burðarási veittu í gær stjórn félagsins heimild til að auka hlutafé þess um rúman fjórðung , eða 1.119 milljónir hluta, til nota í tengslum við kaup á tæplega 77% hlut í Kaldbaki hf. í síðasta mánuði. Meira
19. október 2004 | Viðskiptafréttir | 43 orð

Í dag

Morgunverðarfundur Landsbanka Íslands undir yfirskriftinni: Hver er hræddur við hagvöxt? verður haldinn í dag kl. 8 til 10 á Grand Hótel. Meira
19. október 2004 | Viðskiptafréttir | 64 orð | 1 mynd

Íslandsbanki með 99,4% í KredittBanken

HLUTHAFAR í norska bankanum KredittBanken , sem hafa yfir að ráða 99,4% hlutafjár, hafa samþykkt yfirtökutilboð Íslandsbanka. Tilboðstímabil Íslandsbanka í hlutafé KredittBanken rann út síðastliðinn föstudag. Meira
19. október 2004 | Viðskiptafréttir | 72 orð

Verð hlutabréfa lækkar

HLUTABRÉF halda áfram að lækka í Kauphöll Íslands, líkt og var í síðustu viku. Úrvalsvísitalan lækkaði í gær um 0,25% en fyrstu fjóra daga sl. viku lækkaði hún um alls 2,5%. Meira
19. október 2004 | Viðskiptafréttir | 219 orð | 1 mynd

Verkafólk frá Portúgal

TUTTUGU og fimm manns frá Portúgal hafa hafið störf hér á landi fyrir milligöngu nýrrar alþjóðlegrar atvinnumiðlunar, Intjob. Verið er að ganga frá fleiri ráðningum en fyrst og fremst er um að ræða verkafólk í byggingariðnaði. Meira
19. október 2004 | Viðskiptafréttir | 68 orð

Verslun jókst í september

SMÁSÖLUVELTA dagvöru jókst um 4,9% að raunvirði í september sl. miðað við sama tíma í fyrra, samkvæmt smásöluvísitölu Samtaka verslunar og þjónustu. Meira

Daglegt líf

19. október 2004 | Daglegt líf | 76 orð

Fjölskyldan mikilvægust

Samkvæmt norskri könnun sem sagt er frá í Dagbladet telja flestir fjölskylduna gefa lífinu mestan tilgang eða 51%. Vinnan er næstmikilvægust en hún skiptir mestu hjá 43% aðspurðra en 30% telja vinina mikilvægasta. Meira
19. október 2004 | Daglegt líf | 546 orð | 4 myndir

Síðustu forvöð að setja niður lauka

Margir fyllast bjartsýni og gleðjast þegar fyrstu blómin skjóta upp kollinum snemma vors. Oftast eru þetta krókusar eða vetrargosar sem fyrirhyggjusamt fólk hefur komið fyrir í beðum og görðum á haustin. Meira

Fastir þættir

19. október 2004 | Dagbók | 63 orð | 1 mynd

Airwaves undirbúið

Hressó | Senn líður að hinni árlegu tónlistarhátíð Iceland Airwaves, þar sem íslenskar jafnt sem erlendar hljómsveitir og tónlistareinyrkjar keppa meðal annars um athygli erlendra blaðamanna og fulltrúa tónlistariðnaðarins. Meira
19. október 2004 | Dagbók | 95 orð | 1 mynd

Almanak

HIÐ Íslenska þjóðvinafélag hefur gefið út Almanak sitt fyrir árið 2005, en um er að ræða 131. árgang ritsins. Meira
19. október 2004 | Dagbók | 47 orð | 1 mynd

Árnaðheilla dagbók@mbl.is

50 ÁRA afmæli . Í dag, 19. október, er fimmtug séra Agnes M. Sigurðardóttir í Bolungarvík. Í tilefni af afmæli sínu hefur séra Agnes mælst til þess að þau sem vilja gleðja hana í tilefni dagsins láti Hólskirkju njóta þess. Meira
19. október 2004 | Fastir þættir | 272 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is

Evrópubikarinn. Meira
19. október 2004 | Fastir þættir | 183 orð | 1 mynd

BRIDS - Umsjón Arnór G. Ragnarsson

Brynjar Jónsson Íslandsmeistari í einmenningi Brynjar Jónsson sigraði af öryggi í Íslandsmótinu í einmenningi sem fram fór um helgina en 64 spilarar tóku þátt í mótinu að þessu sinni. Raðað var í fjórar 16 manna slöngur skv. Meira
19. október 2004 | Fastir þættir | 766 orð | 3 myndir

Dagur og Jón Viktor efstir á Haustmóti TR

Október 2004 Meira
19. október 2004 | Dagbók | 470 orð | 1 mynd

Kynna starfið fyrir leikskólabörnum

Gissur Guðmundsson er fæddur í Reykjavík árið 1963. Hann lauk kokkanámi 1987 og meistarnámi í matreiðslu árið 1989. Gissur hefur starfað sem yfirkokkur auk þess sem hann hefur verið eigandi veitingastaða. Hann er nú eigandi veitingastaðarins Tveir... Meira
19. október 2004 | Viðhorf | 868 orð

Lestur góðra bóka

Bækur örvuðu ímyndunarafl mitt og kímnigáfu og vöktu hjá mér drauma um að komast einhvern tíma í kynni við alvöru ævintýri, hver sem þau væru. Engu að síður var ég óttaleg mús hið innra, dvaldi lengi við að skipuleggja og gera miklar áætlanir um ævintýra- og svaðilfarir sem aldrei voru farnar. Meira
19. október 2004 | Dagbók | 36 orð | 1 mynd

Matargerðarlist

Hjá Vöku-Helgafelli er komin út bókin "Súkkulaði" eftir danska súkkulaðifræðinginn Morten Heiberg, í þýðingu Nönnu Rögnvaldardóttur. Meira
19. október 2004 | Dagbók | 40 orð

Orð dagsins: Gjörið ekkert af eigingirni...

Orð dagsins: Gjörið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillátir og metið aðra meira en sjálfa yður. (Fil. 2, 3.) Meira
19. október 2004 | Fastir þættir | 197 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. d3 Bc5 5. O-O d6 6. a4 O-O 7. Bg5 Be6 8. c3 Bxc4 9. dxc4 a5 10. Rbd2 De7 11. Re1 h6 12. Bxf6 Dxf6 13. Rd3 Bb6 14. Db3 Rd8 15. Had1 Re6 16. Db5 Dd8 17. Hfe1 c6 18. Db3 Dc7 19. Rf1 g6 20. He2 Kh7 21. Dc2 Had8 22. Meira
19. október 2004 | Fastir þættir | 303 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

Víkverji er einn af þeim sem vilja leggja sitt af mörkum til að vernda umhverfið. Og eitt af því sem hann telur sér skylt að gera - sem borgarbúi fyrst og fremst - er að keyra á vetrardekkjum sem eru ónegld. Meira

Íþróttir

19. október 2004 | Íþróttir | 181 orð | 1 mynd

Allardyce samdi við Bolton á ný

SAM Allardyce, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, hefur framlengt samning sinn við félagið um fimm ár en félagið er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 272 orð | 1 mynd

Annika Sörenstam var með stáltaugar

SÆNSKI kylfingurinn Annika Sörenstam náði að landa sigri á óopinberu heimsmeistaramóti atvinnukvenna í golfi, Samsung World Championship, sem lauk á sunnudaginn í Palm Desert í Bandaríkjunum. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 105 orð

Echols farinn frá KR

CAMERON Echols hefur óskað eftir því að verða leystur undan samningi sínum við úrvalsdeildarlið KR í körfuknattleik en Bandaríkjamaðurinn bar fyrir sig heimþrá og óánægju með dvöl sína í Reykjavík. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 139 orð | 1 mynd

Einar Logi fær hrós

EINAR Logi Friðjónsson, handknattleiksmaður, sem gekk til liðs við þýska 2. deildarliðið Friesenheim í sumar frá KA, hefur staðið sig vel það sem af er keppnistímabilinu, en Friesenheim leikur í suðurhluta 2. deildar. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 9 orð

Í KVÖLD

KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Kennaraháskólinn: ÍS - Keflavík 19. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 376 orð | 1 mynd

* JÓHANNES Valgeirsson er á meðal...

* JÓHANNES Valgeirsson er á meðal dómara og Sigurður Óli Þórleifsson á meðal aðstoðardómara í undanriðli Evrópumóts drengjalandsliða í knattspyrnu sem leikinn er í Hollandi og hefst í dag. Í riðlinum eru, auk Hollendinga, lið Tyrklands, Wales og Armeníu... Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 370 orð | 1 mynd

* KRISTJÁN Andrésson gerði eitt mark...

* KRISTJÁN Andrésson gerði eitt mark fyrir IF GUIF þegar liðið tapaði á útivelli, 31:25, fyrir Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik á sunnudagskvöldið. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 166 orð

Lárus Orri á leiðinni heim

"JÚ, það er rétt, ég er búinn að gera starfslokasamning við West Bromwich Albion og stefnan er að flytja heim eftir jólin," sagði Lárus Orri Sigurðsson í samtali við Morgunblaði í gærkvöldi. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 175 orð

Mourinho stólar á Arjen Robben

JOSE Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, vonast til að geta teflt Hollendingnum Arjen Robben fram í fyrsta sinn þegar liðið mætir Everton 6. nóvember næstkomandi. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 97 orð

Neuville skoraði og fékk tveggja leikja bann

AGANEFND þýska knattspyrnusambandsins hefur úrskurðað Oliver Neuville, leikmann Borussia Monchengladbach, í tveggja leikja bann eftir að hann viðurkenndi að hafa skorað mark með handleggnum gegn Kaiserslautern á sunnudaginn. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 219 orð

Pétur í slagsmálaleik í Stokkhólmi

"ÞETTA var alveg ferlegt. Þegar við skoruðum ruddust áhangendur AIK inn á völlinn og lögreglan kom til að skakka leikinn. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 236 orð | 1 mynd

Ragnar Ingi mættur til leiks

Ragnar Ingi Sigurðsson úr FH fagnaði sigri á Íslandsbikarmótinu í skylmingum með höggsverði sem fram fór í Hagaskóla á laugardaginn. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 252 orð | 1 mynd

Rúmenski sóknarmaðurinn Mutu neitar fréttum um að hafa fallið á lyfjaprófi

ADRIAN Mutu, sóknarmaður Chelsea og rúmenska landsliðsins í knattspyrnu, segir að fréttir um að hann hafi fallið á lyfjaprófi séu rangar. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 96 orð

Sigurbjörn Árni illa meiddur

SIGURBJÖRN Árni Arngrímsson, millivegalengdahlaupari úr UMSS, meiddist illa á sinni fyrstu æfingu í byrjun síðasta mánaðar. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 335 orð | 1 mynd

* SIGURÐUR Þorvaldsson, leikmaður Snæfells og...

* SIGURÐUR Þorvaldsson, leikmaður Snæfells og íslenska landsliðsins í körfuknattleik, gerði sér lítið fyrir og hitti úr öllum 6 tilraunum sínum fyrir utan 3-stiga línuna í viðureign liðsins gegn Íslands- og bikarmeistaraliði Keflavíkur í fyrrakvöld. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 672 orð | 1 mynd

Tekst Real að hrista af sér slenið?

ÞRIÐJA umferð Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu hefst í kvöld með átta leikjum og eftir þá leiki gætu línur farið að skýrast hvaða lið komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Real Madrid, Bayern München og Manchester United, sem öll hafa hampað Evrópumeistaratitlinum á undanförnum árum, verða í eldlínuni í kvöld sem og Ítalíumeistarar Juventus og Liverpool. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 77 orð

Tveir hlauparar létust í Peking

TVEIR keppendur sem tóku þátt í maraþonhlaupi í Peking í Kína létust í miðri keppni og 11 voru fluttir á sjúkrahús en frá þessu er greint í Peoples Daily. Alls tóku 25.000 þátt í hlaupinu og lést tvítugur háskólanemi eftir að hafa hlaupið 17 km. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 168 orð

ÚRSLIT

KÖRFUKNATTLEIKUR Grindav. - Hamar/Self. 134:111 Grindavík, úrvalsdeild karla, Intersport-deildin, mánudaginn 18. október 2004. Gangur leiksins: 20:12, 32:26, 39:31, 51:40, 60:57, 71:60 , 92:73, 97:78, 104:82 , 123:96, 128:111, 134:111. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 275 orð | 2 myndir

Viggó til Þýskalands

VIGGÓ Sigurðsson, nýráðinn þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik, fer út til Þýskalands í byrjun nóvember og ætlar að fylgast með Íslendingunum sem þar leika. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 267 orð

Þriggja stiga stórskotahríð

LEIKUR Grindavíkur og Hamars/Selfoss varð aldrei rishár þó að bæði lið spiluðu ágætan sóknarleik. Heimamenn sigruðu örugglega 134:111 sem er örugglega stigamet í Röstinni og þó víðar væri leitað. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 337 orð

Þrír íslenskir kylfingar fara á HM áhugamanna í Púertó Ríkó

ÞRÍR íslenskir kylfingar halda í dag til Bandaríkjanna þar sem þeir munu dvelja við æfingar í þrjá daga áður en þeir halda til Púertó Ríkó þar sem heimsmeistaramót áhugamanna í golfi fer fram 28. til 31. þessa mánaðar. Meira
19. október 2004 | Íþróttir | 88 orð

Þær finnsku lögðu Rússa

FINNLAND gerði sér lítið fyrir og sigraði Rússland nokkuð óvænt, 1:0, í fyrri úrslitaleik þjóðanna um sæti í úrslitakeppni Evrópumóts kvennalandsliða í knattspyrnu sem fram fór í Jakobstad í Finnlandi á laugardaginn. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.