Greinar miðvikudaginn 9. mars 2005

Fréttir

9. mars 2005 | Minn staður | 383 orð

Af og frá að verið sé að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi

Vatnsmýrin | Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir af og frá að verið sé að festa flugvöllinn í sessi í kjölfar samkomulags borgarinnar og ríkisins um lagningu Hlíðarfótar, brautar sem fer undir Öskjuhlíð, og felur í sér að ein flugbraut... Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 402 orð

Allir sænskir stjórnmálaflokkar með áætlun um kynjahlutföll

ÍSLAND er í sautjánda sæti á lista yfir hlutfall kvenna á þjóðþingum heimsins. Aðeins 30,2% þingmanna eru konur. Rúanda skipar sér í efsta sætið en þar eru 48,8% þingmanna konur. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 133 orð

Áhugi á að halda ráðstefnu um Surtsey

Vestmannaeyjar | Vestmannaeyjabær hefur áhuga á að halda ráðstefnu um málefni Surtseyjar. Meira
9. mars 2005 | Erlendar fréttir | 236 orð | 1 mynd

Ákærður fyrir stríðsglæpi

RAMUSH Haradinaj sagði af sér í gær sem forsætisráðherra Kosovo eftir að hafa greint frá því að stríðsglæpadómstóllinn í Haag hefði gefið út ákæru á hendur honum fyrir ódæðisverk gegn Serbum í Kosovo-stríðinu 1998-1999. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 147 orð | 1 mynd

Barist fyrir friði og jafnrétti í Ráðhúsinu

RÖPPUÐ Bússaþula og fyrirlestur undir heitinu Það er ekkert að óttast var meðal þess sem boðið var upp á á opnum fundi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í gær í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 107 orð

Barn getið

Lesa mátti á Mbl.is að tyrkneskir fangar boruðu gat á níu sentímetra þykkan vegg með þeim afleiðingum að barn kom undir. Það var fóður fyrir hagyrðinga. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 121 orð | 1 mynd

Blikur á lofti í veðrinu

VEÐRIÐ hefur leikið við Akureyringa síðustu daga og vorilmur í lofti. Hins vegar eru blikur á lofti fyrir helgina og flest sem bendir til þess að Norðlendingar og fleiri eigi eftir að verða minntir á það að veturinn er enn við völd. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 66 orð | 1 mynd

Breytt ásýnd Hafnarfjarðar

Hafnarfjörður | Ásýnd Hafnarfjarðar hefur breyst, séð frá innsiglingunni í Hafnarfjarðarhöfn í átt að Norðurbakka, eftir að hús gömlu Bæjarútgerðarinnar hafa verið rifin. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 492 orð

Brotin stóðu með hléum öll unglingsárin

KYNFERÐISBROT sem Héraðsdómi Reykjaness þótti sannað að tæplega sextugur karlmaður hefði framið gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var yngri en 14 ára var fyrnt og var hann því ekki dæmdur til refsingar vegna þess. Meira
9. mars 2005 | Erlendar fréttir | 65 orð | 1 mynd

Brottflutningi mótmælt

HUNDRUÐ þúsunda manna komu í gær saman í Beirút, höfuðborg Líbanons, til að mótmæla kröfum um brottflutning sýrlensks herliðs frá landinu. Meira
9. mars 2005 | Erlendar fréttir | 77 orð

Clinton í aðra aðgerð

BILL Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem gekkst undir hjartaaðgerð í september, þarf að fara aftur í aðgerð á morgun, fimmtudag. Verður þá vökvi og örvefur fjarlægður úr bringunni. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 114 orð | 1 mynd

Eiður skoraði og Chelsea komst áfram

EIÐUR Smári Guðjohnsen og samherjar hans í Chelsea komust í gærkvöldi í 8 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar þeir lögðu Barcelona, 4:2, á heimavelli í hreint frábærum knattspyrnuleik. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 696 orð | 1 mynd

Eldri lán greidd upp

Endurskoða þarf stoðkerfi atvinnulífsins úti á landi "Það er vissulega búið að setja í gang vinnu við að meta stöðuna og hvernig sé rétt að bregðast við þessu," segir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, um breytingar á... Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 68 orð | 1 mynd

Eve Ensler hitti þingkonur

LEIKRITASKÁLDIÐ og baráttukonan Eve Ensler fór í hádegismat með alþingiskonum í gær en það voru V-dagssamtökin sem skipulögðu viðburðinn. Ensler er einna þekktust fyrir leikrit sitt Píkusögur sem sett var upp hér á landi við fádæma vinsældir. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 158 orð

Fagna ákvörðun um þjóðgarð

SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar í janúar sl. um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls. "Með stofnun þjóðgarðsins verður til þjóðgarður eða kerfi þjóðgarða frá Öxarfirði suður í Öræfi. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 216 orð | 1 mynd

Farfuglarnir koma sífellt fyrr á vorin

FYRSTU sílamávarnir, skúmarnir og álftirnar eru þegar komnar til landsins en óvenjulegra þykir að steindeplar, margæsir og nú síðast í gær helsingjar, hafa sést hér á landi en þetta eru farfuglar sem vanir eru að vera seinna á ferðinni. Meira
9. mars 2005 | Erlendar fréttir | 42 orð | 1 mynd

Fiskisæll skarfur í Kína

KÍNVERSKUR veiðimaður fylgist með einum af fuglum sínum, skarfi, veiða fisk í Jiang-fljóti, nálægt borginni Xingping. Kínverskir veiðimenn hafa notað skarfa í margar aldir við fiskveiðar. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 910 orð | 1 mynd

Fréttamenn hvetja til faglegra vinnubragða

MEIRIHLUTI útvarpsráðs mælti í gær með því að útvarpsstjóri skipi Auðun Georg Ólafsson í starf fréttastjóra Útvarps. Minnihluti ráðsins sat hjá. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 111 orð | 1 mynd

Fréttaritarar á námskeiði í stafrænni ljósmyndun

ÞRETTÁN fréttaritarar Morgunblaðsins á landsbyggðinni sóttu helgarnámskeið í stafrænni ljósmyndun í Morgunblaðshúsinu í Kringlunni um helgina. Félag þeirra, Okkar menn, stóð fyrir námskeiðinu. Fréttaritarar Morgunblaðsins annast jafnframt myndatökur. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 82 orð

Fræðsla um einelti

Grunnskólarnir í Vestmannaeyjum vinna nú að innleiðingu Olweusaráætlunarinnar gegn einelti. Felst verkið meðal annars í því að fræða starfsfólk og samhæfa vitund og viðhorf gegn einelti auk þess að þjálfa færni starfsfólksins til að takast á við... Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 346 orð

Gjafir ættu aldrei að vera nema hógværar

GJAFIR lyfjafyrirtækja til lækna ættu aldrei að vera nema hógværar og smávægilegar og í nálægum löndum hefur stundum verið miðað við að gjafir af þessu tagi ættu ekki að vera hærri að verðgildi en sem nemur um það bil eitt þúsund krónum, segir Sigurður... Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 247 orð

Grímseyingar uggandi vegna hafíss

"VIÐ erum uggandi út af þessu, við vitum af þessum ógnvaldi hér rétt norður af okkur," segir Gylfi Þ. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 332 orð

Halli og aukið álag þrátt fyrir færri kynferðisbrot

RÚMLEGA 9% færri þolendur kynferðisofbeldis leituðu til Stígamóta á síðasta ári. Þetta er í fyrsta sinn í sex ár sem þolendum fækkar. Þrátt fyrir fækkunina jókst vinnuálag á starfsmenn auk þess sem halli á rekstri samtakanna var á fjórðu milljón króna. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 169 orð

Háskólasetrið flyst að Reykjum

Hveragerði | Háskólasetrið í Hveragerði hefur flutt aðsetur sitt frá Heiðmörk 32 í Hveragerði í húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 695 orð | 4 myndir

Hefja sókn í réttindamálum fatlaðra

Opið hús var hjá sambandsaðilum Samtaka um vinnu- og verkþjálfun í gær, í tilefni af opnun vefsíðu þeirra á slóðinni www.hlutverk.is . Blaðamaður og ljósmyndari litu við á þremur stöðum. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 76 orð

HÉÐAN OG ÞAÐAN -

Salan tvöfaldaðist | Sala á niðursneiddum ostum hjá Osta- og smjörsölunni tvöfaldaðist á síðasta ári. Ný sóknarfæri sköpuðust í sölu slíkra osta með tilkomu nýrrar sneiðpökkunarvélar fyrirtækisins. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 230 orð | 1 mynd

Hlutabréf í Bakkavör Group hækkuðu um 9,3% í gær

HLUTABRÉF í Bakkavör Group hækkuðu um 9,3% í Kauphöll Íslands í gær í kjölfar mikilla viðskipta eftir að spurðist að bindandi tilboði fyrirtækisins í breska matvælafyrirtækið Geest plc. hefði verið tekið. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 114 orð

Húsdýragarður | Bæjarstjórn Blönduóss hefur samþykkt teikningar af...

Húsdýragarður | Bæjarstjórn Blönduóss hefur samþykkt teikningar af húsdýragarði, sem fyrirhugað er að verði á svæðinu vestan við Heilbrigðisstofnunina. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 340 orð

Hvar eru karlarnir?

HVERS vegna skipta jafnfáir karlar sér af jafnréttisumræðunni og raun ber vitni? Þessari spurningu velti mannfræðineminn Gísli Hrafn Atlason upp í erindi sínu á jafnréttisráðstefnu í Norræna húsinu í gær. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 191 orð | 1 mynd

Íslensk stjórnvöld styðja flóttamenn frá Króatíu

ÁRNI Magnússon félagsmálaráðherra afhenti Sigrúnu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Rauða kross Íslands, rúmar fjórar milljónir króna í gær. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 63 orð | 1 mynd

Íslenskt "fönn" með Sinfó

Suðurnes | Nemendur yngstu bekkja grunnskólanna á Suðurnesjum fyldust af áhuga með á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Íþróttahúsi Keflavíkur. Tónleikarnir eru liður í verkefninu Tónlist fyrir alla. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 133 orð

Jarðböð spennandi kostur

ÆVINTÝRAFERÐ til Íslands í þeim tilgangi að baða sig í heitum jarðböðum þykir spennandi ferðakostur meðal miðaldra Bandaríkjamanna ef marka má niðurstöður könnunar iExplore-ferðavefsíðunnar. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 68 orð

Keyptu hótel | Glaðheimar ehf. keyptu fyrir skömmu Hótel Blöndu á...

Keyptu hótel | Glaðheimar ehf. keyptu fyrir skömmu Hótel Blöndu á Blönduósi. Nafni hótelsins verður breytt í Hótel Blönduós sem var hið upphaflega nafn þess. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 40 orð

LEIÐRÉTT

Sjávarafurðadeildin stofnuð 1957 Rangt var farið með ártal í umfjöllun um íslensku fisksölufyrirtækin í Bandaríkjunum í blaðinu í gær. Sjávarafurðadeild Sambands ísl. samvinnufélaga varð formlega til árið 1957 en ekki 1975 eins og ritað var. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 248 orð

Leiðrétta ber skerðingu á endurgreiðslu

SKERÐING á endurgreiðslu til skipasmíða og skipaviðgerða, sem gerð var árið 1998, átti sér engar forsendur og ber að leiðrétta hana þannig að endurgreiðslan verði hækkuð aftur, að mati nefndar sem iðnaðarráðherra skipaði til að kanna breytingar á... Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 398 orð | 1 mynd

Leiga bæjarins mun hækka um 160 millj.

Reykjanesbær | Bæjarsjóður Reykjanesbæjar greiddi tæpar 400 milljónir króna í húsaleigu á síðasta ári. Áætlað er að leiga þeirra eigna sem verið er að byggja fyrir Reykjanesbæ og teknar eru í notkun á þessu ári verði liðlega 160 milljónir kr. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 96 orð

Leikur í Blóðbrullaupi í London

LEIKARANUM Birni Hlyni Haraldssyni hefur verið boðið hlutverk brúðgumans í Blóðbrullaupi eftir Federico Garcia Lorca í Almeida-leikhúsinu í London. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 74 orð

Loksins tannlæknir | Tannlæknir hefur ekki verið með fasta búsetu á...

Loksins tannlæknir | Tannlæknir hefur ekki verið með fasta búsetu á Hvammstanga í nokkur ár og tannlæknaþjónusta aðeins verið til staðar fjóra til fimm daga í mánuði. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 190 orð | 1 mynd

Margir buðu í Svalbarðsá í Þistilfirði

Hátt í tuttugu tilboð bárust í veiðiréttinn í Svalbarðá í Þistilfirði frá og með sumrinu 2006. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 257 orð

Mikill áhugi á ferðum til Mexíkó

FERÐASKRIFSTOFAN Trans - Atlantic á Akureyri, sem stofnuð var sl. haust, býður upp á sólarlandaferðir til Mexíkó og ævintýraferðir til þriggja landa, Mexíkó, Gvatemala og Belize. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 297 orð | 1 mynd

Mismunandi fyrirkomulag milli einstakra fiskiskipa

SAMNINGAR milli Sjómannafélags Eyjafjarðar og Félags skipstjórnarmanna annars vegar og Samherja hf. hins vegar, um breytt fyrirkomulag á hafnarfríum skipverja þriggja ísfisktogara félagsins voru undirritaðir í gær. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 317 orð | 1 mynd

Nýmjólkurlítri á eina krónu

STÖÐUGT er verið að breyta verði í lágvöruverðsverslunum þessa dagana. Viðskiptavinir í gær gátu t.d. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 295 orð | 1 mynd

Ofbeldi algengara með almennri vopnaeign

ÁÆTLAÐ er að um 650 milljónir smávopna séu til í heiminum. Um 60% þessara vopna eru til á heimilum. Með smávopnum er átt við skammbyssur og smærri gerðir skotvopna. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 96 orð

Opinn fundur um miðborgina og Laugaveg

Miðborgin | Borgarstjóri efnir til opins fundar um miðborgina, uppbyggingu og verndun við Laugaveginn í dag, miðvikudag. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur milli kl. 17 og 19. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 190 orð | 1 mynd

ÓLAFUR SVERRISSON

ÓLAFUR Sverrisson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri, lést í Reykjavík í gær á 82. aldursári. Hann var fæddur 13. maí 1923. Foreldrar hans voru Sigurlaug Guðmundsdóttir og Sverrir Gíslason í Hvammi í Norðurárdal í Borgarfirði. Meira
9. mars 2005 | Erlendar fréttir | 660 orð | 1 mynd

"Það er ekki nóg að tala"

ALDREI hefur verið jafnmikið um stuðning við femínisma í Noregi, segir í grein í blaðinu Aftenposten nýverið. Minnt er á að Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra, úr Kristilega þjóðarflokknum, hafi sagt að hann teldi sig vera femínista. Meira
9. mars 2005 | Erlendar fréttir | 161 orð | 1 mynd

Ráðherravandræði í Danmörku

ANDERS Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er í nokkrum vanda staddur eftir að Connie Hedegaard umhverfisráðherra neitaði að upplýsa um tekjur og fjármál eiginmanns síns. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 30 orð

Ræða réttindi samkynhneigðra

Marsfundur FAS, Norðurlandsdeildar Samtaka foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, verður haldinn á Sigurhæðum á Akureyri fimmtudaginn 10. mars klukkan 20. Fjallað verður um margvísleg mál sem varða réttindi samkynhneigðra og... Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 51 orð

Ræðir um hnattvæðingu

Ingi Rúnar Eðvarðsson prófessor flytur fyrirlestur á Félagsvísindatorgi í dag, miðvikudaginn 9. mars, kl. 16.30 í stofu L201 á Sólborg. Hann nefnist: Staða stéttarfélaga í hnattrænum heimi. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 284 orð | 1 mynd

Sátt ríkir um sóknardagakerfið í Færeyjum

JÖRGEN Niclasen, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Færeyja, lofaði sóknardagakerfi Færeyinga á landsþingi Frjálslynda flokksins um helgina. Sóknardagakerfið var tekið upp í Færeyjum árið 1996. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 280 orð

Senda samkeppnisráði kvörtun vegna aðgerðaleysis ráðuneytis

SÁLFRÆÐINGAFÉLAG Íslands (SÍ) hefur sent kvörtun til samkeppnisráðs vegna þess að heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið og Tryggingastofnun ríkisins (TR) hafi ekki virt niðurstöðu samkeppnisráðs frá árinu 1999. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 63 orð

Sex sóttu um | Umsækjendur um stöðu skólastjóra Akurskóla sem tekur til...

Sex sóttu um | Umsækjendur um stöðu skólastjóra Akurskóla sem tekur til starfa í Tjarnahverfi í Innri-Njarðvík í haust voru alls sex en umsóknarfrestur rann út 1. mars síðastliðinn. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 790 orð

Skýrt brot á lögum að framfylgja ekki jafnréttisáætlun

Fundað var um jafnréttismál og jafnrétti á vinnumarkaði á alþjóðlegum baráttudegi kvenna sem haldinn var hátíðlegur í gær. Fundurinn var einn af mörgum dagskrárliðum sem stóðu fólki til boða í tengslum við daginn. Meira
9. mars 2005 | Minn staður | 81 orð | 1 mynd

Spenntir fyrir sumarið

Margir stuðningsmenn Víkings í Ólafsvík mættu á herrakvöld félagsins sem haldið var á Hótel Höfða. Liðið komst upp í fyrstu deild í haust og tekst því á við ný verkefni á komandi sumri. Er mikill áhugi meðal bæjarbúa á komandi leiktíð. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 481 orð | 1 mynd

Stjórnarandstæðingar segja breytingar veikja samkeppnislög

ÞINGMENN stjórnarandstöðunnar sögðu á Alþingi í gær að með frumvarpi viðskiptaráðherra til nýrra samkeppnislaga væri verið að veikja samkeppnislög frá því sem nú væri. Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 162 orð

Ströng lög um skotvopn á Íslandi

JÓHANNA K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, segir samtökin leitast við að fá þjóðir heimsins til að sammælast um harðari lög gegn vopnaeign einstaklinga. Meira
9. mars 2005 | Erlendar fréttir | 224 orð | 1 mynd

Taívanar mótmæla kínversku frumvarpi

STJÓRNVÖLD í Kína kynntu í gær nýtt lagafrumvarp sem veitir hernum lagalega heimild til að ráðast á Taívan ef þarlend stjórnvöld lýsa formlega yfir sjálfstæði. Taívanar mótmæltu frumvarpinu og sögðu það stefna friði í hættu. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 279 orð | 2 myndir

Tveir nýir kjörnir í stjórn Samskipa

LILJA Dóra Halldórsdóttir, aðjúnkt við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, og Flemming R. Jacobs voru kjörin í stjórn Samskipa á aðalfundi félagsins í gær. Þau voru kjörin í stað Jóns Kristjánssonar og Jóns Þórs Hjaltasonar. Meira
9. mars 2005 | Erlendar fréttir | 141 orð | 1 mynd

Vara við blóðugri átökum

TALSMAÐUR skæruliða í Tétsníu sagði í gær, að baráttunni gegn rússneskum yfirráðum yrði fram haldið þrátt fyrir, að leiðtogi þeirra, Aslan Maskhadov, væri fallinn. Sagði hann hættu á, að átökin yrðu nú enn blóðugri og grimmilegri en áður. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 96 orð | 1 mynd

V-dagurinn í Íslensku óperunni

Í TILEFNI V-dagsins, sem haldið var upp á í gær, var boðið upp á fjölbreytta dagskrá í Íslensku óperunni. Á dagskránni voru m.a. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 67 orð | 1 mynd

V fyrir V-daginn

EVE Ensler, baráttukona og leikritaskáld, var heiðursgestur við hátíðarhöld V-dagssamtakanna í Íslensku óperunni í gærkvöldi. V-dagssamtökin hafa m.a. Meira
9. mars 2005 | Erlendar fréttir | 740 orð

Vilja að banamönnum Caliparis verði refsað

GIANFRANCO Fini, utanríkisráðherra Ítalíu, krafðist þess í gær að bandarísk stjórnvöld "greindu frá og refsuðu" þeim liðsmönnum Bandaríkjahers sem á föstudag skutu til bana ítalskan leyniþjónustumann í Írak, Nicola Calipari. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 282 orð | 1 mynd

Viss um að lögsókn leiði til að Fischer fái að fara

MASAKO Suzuki, lögmaður bandaríska skákmannsins Bobbys Fischers, sagði í gær að hún væri viss um að ef mál yrði höfðað á hendur japönskum innflytjendayfirvöldum myndi loksins fást jákvæð niðurstaða í máli Fischers, sem nú hefur íslenskt vegabréf en ekki... Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 150 orð

Vænta svars á fundi í dómsmálaráðuneyti í dag

BOBBY Fischer hringdi í Sæmund Pálsson í gærkvöldi að staðartíma og var áhyggjufullur að sögn Sæmundar. Meira
9. mars 2005 | Innlendar fréttir | 288 orð | 1 mynd

Þrjátíu ára ræður eiga enn við

RÆÐUR um jafnrétti sem Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður og nú forseti Norðurlandaráðs, flutti fyrir þrjátíu árum er hún settist á þing, eiga enn við í dag. Baráttumálin eru enn þau sömu; að konur fái jöfn laun á við karla og tækifærin séu jöfn, t.d. Meira

Ritstjórnargreinar

9. mars 2005 | Staksteinar | 330 orð | 1 mynd

Innflutningsógnin

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, hélt ræðu við setningu Búnaðarþings um helgina. Haraldur fjallaði þar m.a. um horfur á auknum innflutningi landbúnaðarvara. Meira
9. mars 2005 | Leiðarar | 474 orð

Ný tegund gjaldtöku?

Nefnd á vegum Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra hefur lagt til að tekin verði upp notendagjöld til að fjármagna vegakerfi landsins, fremur en núverandi benzín- og olíugjald. Nefndin vísar í skýrslu sinni m.a. Meira
9. mars 2005 | Leiðarar | 510 orð

Staða kvenna

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna og V-dagurinn gegn ofbeldi á hendur konum voru í gær, 8. mars. Á þessum degi er sérstaklega vakin athygli á stöðu kvenna um heim allan, þótt baráttan fyrir réttindum kvenna fari fram allan ársins hring. Meira

Menning

9. mars 2005 | Tónlist | 256 orð | 1 mynd

Athyglisverðir tónleikar í 15:15-röðinni

Tónlist eftir Hindemith í flutningi Ármanns Helgasonar, Hildigunnar Halldórsdóttur, Sigurðar Halldórssonar, Sigurlaugar Eðvaldsdóttur, Guðrúnar Þórainsdóttur og Hallfríðar Ólafsdóttur. Laugardagur 5. mars. Meira
9. mars 2005 | Tónlist | 520 orð

Barokkhátíð í Akureyrarkirkju

Kór- og hljómsveitarverkin: Come Ye Sons of Art eftir Henry Purcel og Gloria eftir Antonio Vivaldi. Flytjendur: Kór og Hljómsveit Tónlistarskólans á Akureyri. Meira
9. mars 2005 | Myndlist | 48 orð | 1 mynd

Belgískur bjúgnakrækir?

ÞETTA ágæta verk eftir belgíska listamanninn Franck Maieu getur að líta á samtímalistsýningunni Belgía í mynd í Fine Arts Palace-safninu í Brussel þessa dagana. Meira
9. mars 2005 | Dans | 62 orð | 1 mynd

Dans Díönu

BALLETTINN Díana prinsessa var frumsýndur í Palace-leikhúsinu í Manchester í gærkvöldi en hann fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um Díönu heitna prinsessu af Wales og misheppnað hjónaband hennar og Karls ríkisarfa í Bretlandi. Meira
9. mars 2005 | Tónlist | 287 orð | 1 mynd

Finnur frumsýnir Albert Herring

FINNUR Bjarnason tenórsöngvari þreytti frumraun sína í hlutverki Alberts Herring í samnefndri óperu Benjamins Brittens, sem var frumsýnd í Komische Oper í Berlín í fyrrakvöld. Meira
9. mars 2005 | Tónlist | 67 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Fyrri hluti tvíleiks frá System Of a Down , platan Mezmerize , kemur út 17. maí. Á undan kemur út smáskífan "B.Y.O.B. (Bring Your Own Bombs)" sem fer að heyrast síðar í þessum mánuði. Seinni hluti tvíleiksins, Hypnotize , kemur út í haust. Meira
9. mars 2005 | Fólk í fréttum | 299 orð | 3 myndir

Fólk folk@mbl.is

Iceland Airwaves -hátíðin verður haldin 19.-23. október næstkomandi. Þorsteinn Stephensen , forsvarsmaður hátíðarinnar, segir að ekkert sé komið í ljós varðandi hvaða listamenn og hljómsveitir muni skemmta hátíðargestum. Meira
9. mars 2005 | Bókmenntir | 635 orð | 1 mynd

Helgisögur

Maríusögur frá tuttugustu öld. Þýð. Gunnar Dal. 182 bls. Útg. Lafleur. Reykjavík, 2004. Meira
9. mars 2005 | Bókmenntir | 184 orð | 1 mynd

Kápa blendingsprinsins

NÝRRAR bókar um ævintýri galdradrengsins Harry Potters er beðið með mikilli eftirvæntingu um heim allan. Meira
9. mars 2005 | Myndlist | 524 orð | 1 mynd

Kom starfi sýningarstjórans á stjörnuhimininn

Einn áhrifamesti sýningarstjóri heims, Harald Szeemann, lést fyrir skömmu og hefur hans verið minnst víða í hinum alþjóðlega listheimi undanfarna daga. Meira
9. mars 2005 | Leiklist | 345 orð | 1 mynd

Leikur Brúðgumann í Almeida-leikhúsinu í vor

LEIKARANUM Birni Hlyni Haraldssyni hefur verið boðið hlutverk Brúðgumans í Blóðbrullaupi eftir Federico Garcia Lorca í Almeida-leikhúsinu í London. Meira
9. mars 2005 | Fjölmiðlar | 109 orð | 1 mynd

Líf og tregi Brandon Teena

ÞAÐ fer vel á því að Sjónvarpið skuli sýna hina áhrifaríku heimildarmynd The Brandon Teena Story , í sömu viku og vakin er athygli á réttindabaráttu kvenna um heim allan. Meira
9. mars 2005 | Tónlist | 169 orð | 1 mynd

Lyla á leiðinni

OASIS -bræður og fylgissveinar þeirra munu syngja um systur Sally úr "Don't Look Back in Anger" í laginu "Lyla" sem verður fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu sem kemur út í maí. Meira
9. mars 2005 | Bókmenntir | 200 orð | 1 mynd

Nýjar bækur

Út er komin hjá Bókafélaginu Uglunni Kastað í Flóanum eftir Ásgeir Jakobsson. Meira
9. mars 2005 | Bókmenntir | 119 orð | 1 mynd

Nýjar bækur

Bókaforlagið Bjartur hefur gefið út smásagnasafnið Eftir skjálftann eftir japanska rithöfundinn Haruki Murakami í þýðingu Ugga Jónssonar. Meira
9. mars 2005 | Tónlist | 146 orð

"Hljóðrænt brjálæði"

EIN virtasta öfgarokksveit heims, Converge, heimsækir nú Ísland öðru sinni og heldur tónleika í Hellinum, Tónleikaþróunarmiðstöðinni (TÞM) í kvöld. Meira
9. mars 2005 | Tónlist | 562 orð | 1 mynd

"Missti aldrei af kvöldi"

ÞÁ er tveimur kvöldum af fimm lokið í undanúrslitum Músíktilrauna, sem nú eru haldnar í 23. skipti. Meira
9. mars 2005 | Tónlist | 540 orð | 8 myndir

Rokk var málið

Músíktilraunir, tónlistarhátíð í Tjarnarbíói. Fyrsta tilraunakvöld af fimm, haldið 7. mars. Þátt tóku The Killjoy, Hello Norbert, The Beautifuls, Uforia, Torsio Testis, Talsmenn kanslarans, Mania Locus, Jakobínarína, Concrete og Burning Hamsters. Meira
9. mars 2005 | Tónlist | 35 orð | 1 mynd

Saga Saltans

ÓPERA Nikolais Rimsky-Korsakovs, Sagan af Saltan keisara, var frumsýnd í Mariinsky-leikhúsinu í Pétursborg í gærkvöldi. Af myndinni, sem tekin var á lokaæfingu, að dæma er um litríka uppfærslu að ræða. Óperan var samin árið... Meira
9. mars 2005 | Fjölmiðlar | 367 orð

Tuttugu ár á Albertstorgi

BRESKA sápuóperan East Enders fagnaði á dögunum tuttugu ára afmæli sínu, tuttugu ár síðan fyrsti þátturinn var sýndur. Nær allar götur síðan hefur þátturinn verið vinsælasta sjónvarpsefni sem tjallanum er boðið upp á. Meira
9. mars 2005 | Fólk í fréttum | 357 orð | 1 mynd

Tvífari Jacksons hefur nóg að gera

EDWARD Moss nýtur góðs af myndavélabanni í réttarhöldunum yfir Michael Jackson. Moss hefur síðasta áratuginn haft drjúgan hluta lifibrauðs síns af því að herma eftir söngvaranum, og nú leikur hann Jackson í þáttum E! -sjónvarpsstöðvarinnar bandarísku. Meira

Umræðan

9. mars 2005 | Aðsent efni | 612 orð | 3 myndir

Af gjaldþrotatíðni í ferðaþjónustu

Edda Rós Karlsdóttir og Björk Ólafsdóttir fjalla um erfiðleika í ferðaþjónustu: "...tölur frá Lánstrausti sýna að gjaldþrot í ferðaþjónustu voru fleiri á síðustu tveimur árum en áður hafa sést í greininni." Meira
9. mars 2005 | Aðsent efni | 505 orð | 1 mynd

Afnemum fyrningarfresti í kynferðisafbrotum gegn börnum

Ágúst Ólafur Ágústsson fjallar um kynferðisafbrot gegn börnum: "Það er einfaldlega rangt að láta kynferðisbrot gegn börnum fyrnast." Meira
9. mars 2005 | Aðsent efni | 808 orð | 2 myndir

Arðsemi starfsendurhæfingar

Berglind Nanna Ólínudóttir og Jón Ari Arason fjalla um endurhæfingu öryrkja: "Langvirkasta leiðin til fækkunar öryrkjum er starfsendurhæfing og þjálfun..." Meira
9. mars 2005 | Bréf til blaðsins | 356 orð

Grundvöllur öflugs rannsóknarháskóla

Frá Davíð Bjarnasyni, Kristínu Erlu Harðardóttur og Kristjönu Stellu Blöndal: "UNDANFARIN ár hefur Háskóli Íslands í auknum mæli lagt áherslu á uppbyggingu rannsóknartengds framhaldsnáms við hinar ýmsu deildir og í dag stunda um 140 nemendur doktorsnám við skólann." Meira
9. mars 2005 | Aðsent efni | 395 orð | 2 myndir

Jón Torfi Jónasson kröftugur stjórnandi með menntahugsjón

Ásdís Ýr Arnardóttir og Valgerður Sigurveig Bjarnadóttir fjalla um rektorskjör við Háskóla Íslands: "Með áhuga sínum og drifkrafti hrífur hann fólk með sér og dregur fram það besta í hverjum og einum." Meira
9. mars 2005 | Aðsent efni | 624 orð | 2 myndir

Kjósum Ágúst Einarsson í embætti rektors Háskóla Íslands

Íris Hrönn Andrésdóttir og Stefanía Sigurðardóttir fjalla um rektorskjör í Háskóla Íslands: "Við vitum því af eigin raun að Ágúst mun sem rektor fylkja háskólasamfélaginu öllu saman í kraftmikilli baráttu fyrir hagsmunum Háskólans." Meira
9. mars 2005 | Aðsent efni | 386 orð | 1 mynd

Laun fremur en lán í rannsóknatengdu framhaldsnámi

Einar Stefánsson fjallar um rektorskjörið í HÍ: "Alþjóðlega samkeppnishæfur rannsóknaháskóli er ein meginforsenda samkeppnishæfni íslensks samfélags á komandi öld." Meira
9. mars 2005 | Aðsent efni | 779 orð | 1 mynd

Meira um grunnnetið

Örn Orrason fjallar um samkeppni á fjarskiptamarkaði: "Meginatriðið er þetta; það er mjög auðvelt sem eigandi grunnnetsins að hindra keppinauta sína." Meira
9. mars 2005 | Aðsent efni | 516 orð | 1 mynd

Reykjavík með sjálfstraust í lagi

Stefán Jón Hafstein fjallar um Listahátíð, sem verður í vor: "Listahátíð er nú loks árlegur viðburður sem er í sjálfu sér fagnaðarefni." Meira
9. mars 2005 | Aðsent efni | 459 orð | 1 mynd

Síðasta útkall til varnar Þjórsárverum?

Halla Guðmundsdóttir fjallar um Þjórsárver: "Ég skora á almenning að senda athugasemdir og mótmæli til samvinnunefndar um skipulag miðhálendisins og Skeiða- og Gnúpverjahrepps." Meira
9. mars 2005 | Velvakandi | 326 orð | 1 mynd

Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is

Ósátt við IDOL-úrslitin SÍMAKERFIÐ virðist hafa brugðist í IDOL-keppninni um sl. helgi. Ég er ein af þeim sem ætlaði að kjósa Davíð Smára og reyndi ég að hringja úr heimasíma en númerið var á tali allan tímann. Meira

Minningargreinar

9. mars 2005 | Minningargreinar | 149 orð

Aðalheiður Ósk Jónsdóttir

Elsku amma, þú varst alltaf svo góð við mig. Ég sakna þín svo mikið og sakna þess að geta ekki spilað meira við þig. Ég setti spilin þín í kistuna þína svo þú gætir spilað við englana. Ég elska þig. Meira  Kaupa minningabók
9. mars 2005 | Minningargreinar | 1052 orð | 1 mynd

AÐALHEIÐUR ÓSK JÓNSDÓTTIR

Aðalheiður Ósk Jónsdóttir fæddist í Keflavík 10. nóvember 1930. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson frá Stapakoti í Innri-Njarðvík, f. 19.12. 1879, d. 3.4. Meira  Kaupa minningabók
9. mars 2005 | Minningargreinar | 645 orð | 1 mynd

GÍSLI TEITUR KRISTINSSON

Gísli Teitur Kristinsson fæddist á Akranesi 29. ágúst árið 1921. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akraneskirkju 8. mars. Meira  Kaupa minningabók
9. mars 2005 | Minningargreinar | 802 orð | 1 mynd

GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR

Guðbjörg (Gugga) Guðmundsdóttir fæddist í Kóngsgerði við Hellisgötu í Hafnarfirði 25. september 1922. Hún lést á heimili sínu, Sólvangi í Hafnarfirði, 24. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Þ. Magnússon, f. 26.10. 1900, d. 25.4. Meira  Kaupa minningabók
9. mars 2005 | Minningargreinar | 1295 orð | 1 mynd

JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR

Jóhanna Björnsdóttir fæddist á Steindyrum á Látraströnd við austanverðan Eyjafjörð 14. ágúst 1921. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 2. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Björn Kristjánsson útvegsbóndi, f. 27. 9. 1886, d. 22. 11. Meira  Kaupa minningabók
9. mars 2005 | Minningargreinar | 236 orð | 1 mynd

KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR

Kristín Kristjánsdóttir fæddist í Tungu í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, 26. janúar 1926. Hún lést á St. Jósefsspítala 28. febrúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 8. mars. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

9. mars 2005 | Sjávarútvegur | 253 orð

Hiti og selta áfram yfir meðallagi

NIÐURSTÖÐUR vetrarmælinga Hafrannsóknastofnunarinnar á ástandi sjávar í kringum landið sýna almennt að hiti og selta sjávar eru áfram vel yfir meðallagi fyrir sunnan, vestan og norðan land. Meira
9. mars 2005 | Sjávarútvegur | 336 orð | 1 mynd

Vilja ekki blása vertíðina af

FREMUR lítið var um að vera á loðnumiðunum í gær en sjómenn eru þó ekki enn búnir að gefa vertíðina upp á bátinn. Flotinn var í gær að leita að loðnu í Breiðafirði en Ólafur Einarsson, skipstjóri á Faxa RE, sagði lítið að sjá. Meira

Viðskipti

9. mars 2005 | Viðskiptafréttir | 68 orð

Bakkavör hækkaði um 9% í Kauphöllinni

HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu 7,9 milljörðum króna . Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir 4,4 milljarða . Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7% og er lokagildi hennar 3.805 stig . Meira
9. mars 2005 | Viðskiptafréttir | 194 orð

Hagnaður Samskipa nærri tvöfaldast

HAGNAÐUR Samskipa á árinu 2004 nam 708 milljónum króna eftir skatta. Árið áður var hagnaðurinn 366 milljónir. Jókst hagnaðurinn því um 90% á milli ára. Heildartekjur félagsins á liðnu ári námu 23 milljörðum króna og hækkuðu um rúm 33% frá árinu áður. Meira
9. mars 2005 | Viðskiptafréttir | 49 orð | 1 mynd

Hrund formaður SVÞ

Á aðalfundi SVÞ í gær, sem er alþjóðlegur baráttudagur kvenna, var Hrund Rúdólfsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu, kjörin formaður stjórnar samtakanna. Meira
9. mars 2005 | Viðskiptafréttir | 232 orð

Markar þáttaskil

Yfirtaka Bakkavarar á Geest skiptir gríðarlegu máli fyrir Bakkavör að sögn Lýðs Guðmundssonar. Hann segir í samtali við Morgunblaðið að með þessu verði til stærsta fyrirtækjasamsteypa Íslandssögunnar, með 13.500 starfsmenn. Meira
9. mars 2005 | Viðskiptafréttir | 606 orð | 1 mynd

Miklar breytingar í smásöluverslun

FÆRRI og stærri aðilar munu verða ráðandi í matvöruverslun í heiminum á næstu árum og áherslan á verðlag mun aukast. Tækninýjungar munu stuðla að hagkvæmni í verslunarrekstri, s.s. Meira
9. mars 2005 | Viðskiptafréttir | 329 orð | 2 myndir

Verður stærsta fyrirtækið

MEÐ yfirtöku Bakkavarar Group á breska matvælafyrirtækinu Geest plc verður til stærsta fyrirtæki sem skráð er í Kauphöll Íslands, hvað varðar veltu. Meira

Daglegt líf

9. mars 2005 | Daglegt líf | 731 orð | 1 mynd

Að gefa af sér er það besta

Hann nýtur þess að glíma við orð og hugsanir og koma þeim í ljóð. Kristín Heiða Kristinsdóttir var á hátíð sem haldin var til heiðurs Ívari Björnssyni skáldi frá Steðja. Meira
9. mars 2005 | Daglegt líf | 597 orð | 3 myndir

Börnin stíga inn í loftbólu

Tíu lítil leikskólabörn í afklipptum afaskyrtum sitja í hring og eru að búa til útpæld listaverk. Það er ótrúleg ró yfir litlu krílunum enda hefur Margrét H. Blöndal einstakt lag á því að skapa einfalda og rólega stemningu. Meira
9. mars 2005 | Daglegt líf | 114 orð

Sigurgangan

Ég horfi til fjallanna hæstu er hef ég minn dag. Það gefur mér gleðina stærstu til göngu' í þann slag sem útheimta átökin næstu við örlög og hag. Fjöll eru fögur og ginna, freistandi sýn. Meira

Fastir þættir

9. mars 2005 | Árnað heilla | 31 orð | 1 mynd

60 ÁRA afmæli . Í dag, 9. mars, er sextug Sigrún Þorláksdóttir. Sigrún...

60 ÁRA afmæli . Í dag, 9. mars, er sextug Sigrún Þorláksdóttir. Sigrún er að heiman í dag, en nk. föstudagskvöld fagnar hún þessum tímamótum ásamt fjölskyldu sinni og nánasta... Meira
9. mars 2005 | Í dag | 523 orð | 1 mynd

Áhugi fjölmiðla á sakamálum vex ört

Elín Sigrún Jónsdóttir fæddist í Sandgerði árið 1960. Hún lauk stúdentsprófi 1979 frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og embættisprófi í lögum frá HÍ 1986. Hún hefur starfað m.a. Meira
9. mars 2005 | Fastir þættir | 148 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is

Terence Reese. Meira
9. mars 2005 | Í dag | 86 orð | 1 mynd

Fjörulalli við Seltjörn

Seltjarnarnes | Mikið blíðviðri hefur ríkt hér á landi undanfarið en við Miðjarðarhaf er kalsaveður á köflum svo flestum þykir nóg um. Meira
9. mars 2005 | Fastir þættir | 129 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Be2 e5 7. Rb3 Be6 8. Bg5 Be7 9. Dd3 O-O 10. O-O-O Rb4 11. Dg3 Hc8 12. Bxf6 Bxf6 13. a3 Bh4 14. Df3 Rc6 15. Rd5 a5 16. Bb5 f5 17. Dh3 Bd7 18. g3 Bg5+ 19. f4 fxe4 20. Dh5 Bh6 21. Kb1 Be6 22. Meira
9. mars 2005 | Í dag | 90 orð | 1 mynd

Sónötur Mozarts í Norræna húsinu

WOLFGANG Amadeus Mozart verður í aðalhlutverki á háskólatónleikum í Norræna húsinu í dag kl. 12. Meira
9. mars 2005 | Viðhorf | 820 orð

Tíminn

"Góðan daginn, Hannes," sagði Brynjólfur á móti. "Við verðum að fara yfir innihaldslýsingu á rauðum eplum í dag. Eigum við ekki að halda fund klukkan 14.30?" Meira
9. mars 2005 | Í dag | 28 orð

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. (Sálm. 16, 1.) Ver...

Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. (Sálm. 16, 1.) Ver eigi fjarri mér, því að neyðin er nærri, og enginn hjálpar. (Sálm. 22, 12.) Meira
9. mars 2005 | Fastir þættir | 290 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

Víkverji getur ekki orða bundist yfir draslinu sem blasir við honum víðs vegar um höfuðborgina. Nú hefur verið snjólaust um alllangt skeið og ekki lengur hægt að bera fyrir sig vetrarveður að taka ekki ærlega til hendinni. Meira

Íþróttir

9. mars 2005 | Íþróttir | 202 orð

Breytingar á innkastsreglum í knattspyrnu

FRÁ og með 1. júlí í sumarverða reglum varðandi innköst í knattspyrnu breytt nokkuð. Þá geta varnarmenn aðeins staðið í það minnsta tvo metra frá þeim leikmanni sem tekur innkast. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 430 orð | 1 mynd

Chelsea áfram en United úr leik

EIÐUR Smári Guðjohnsen kom Chelsea á bragðið í Meistaradeild Evrópu í gær þegar liðið vann Barcelona 4:2 og samanlagt 5:4 og komst þar með áfram í átta liða úrslitin. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 258 orð | 1 mynd

Crespo sá um United

HERNAN Crespo, sem er í láni hjá AC Milan frá Chelsea, sá um að skjóta Manchester United út úr Meistaradeildinni. Crespo skoraði eina mark leiksins á San Siro leikvanginum í Mílanó í gærkvöldi og hann gerði líka eina mark leiksins þegar AC Milan vann á Old Trafford fyrir hálfum mánuði. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 143 orð

Dauðsföll í Vasagöngu

HIN árlega Vasaganga í Svíþjóð, þar sem keppendur ganga á skíðum um 90 km í einni lotu, fór fram um helgina en gangan þykir vera gríðarlega erfið. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 194 orð

Doug Wrenn kominn til Njarðvíkur

BIKARMEISTARALIÐ Njarðvíkur í körfuknattleik karla hefur samið við bandaríska leikmanninn Doug Wrenn og kom hann til landsins í gær. Wrenn er annar leikmaðurinn sem kemur til liðsins í þessari viku en Alvin Snow samdi við liðið um sl. helgi. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 416 orð | 1 mynd

* EINAR Hólmgeirsson skoraði sex mörk og var markahæstur hjá...

* EINAR Hólmgeirsson skoraði sex mörk og var markahæstur hjá Grosswallstadt þegar liðið tapaði 28:25, fyrir Kiel á útivelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 299 orð

Enn tapa Þórsarar

ÞÓR tók á móti ÍBV í gær og þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að krafla sig upp úr botnsætinu. Það tókst ekki. Liðið var slakt og leikmenn afar mistækir og ÍBV þurfti ekki að sýna mikið til að tryggja sér sigurinn. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 108 orð

Fullyrt að Birkir Ívar fari ekki til Hamburg

ÞÝSKA blaðið Hamburger Abendblatt greindi frá því í gær að þýska handknattleiksliðið Hamburg ætlaði að semja við markvörðinn Henning Wiechers en ekki Birki Ívar Guðmundsson landsliðsmarkvörð úr Haukum. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 617 orð | 1 mynd

Fyrirliðinn bjargvættur

CHELSEA vann Barcelona 4:2 í síðari leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær og tryggði sér það með sæti í næstu umferð, 5:4. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 423 orð

HANDKNATTLEIKUR Þór A. - ÍBV 27:31 Höllin Akureyri, úrvalsdeild karla...

HANDKNATTLEIKUR Þór A. - ÍBV 27:31 Höllin Akureyri, úrvalsdeild karla, DHL-deildin, þriðjudagur 8. mars 2005. Gangur leiksins: 1:0, 8:8, 12:11, 12:14, 15:15 , 17:19, 21:22, 24:27, 25:31, 27:31 . Mörk Þórs : Árni Þór Sigtryggsson 8/1, Bjarni G. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 62 orð

í kvöld

HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, DHL-deildin Digranes: HK - ÍR 19.15 Ásvellir: Haukar - Valur 20 KA-heimilið: KA - Víkingur 19.15 1. deild kvenna, DHL-deildin Ásvellir: Haukar - Fram 18 Seltjarnarnes: Grótta/KR - Stjarnan 19. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 162 orð

Jón Arnór sígur niður listann

JÓN Arnór Stefánsson, körfuknattleiksmaður úr Dynamo St. Pétursborg í Rússlandi, er ekki lengur efstur í vali fyrir stjörnuleik Evrópudeildarinnar sem fram fer á Kýpur hinn 14. apríl nk. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 342 orð | 1 mynd

* KRISTJÁN Andrésson skoraði 3 mörk fyrir GUIF þegar liðið sigraði Heid...

* KRISTJÁN Andrésson skoraði 3 mörk fyrir GUIF þegar liðið sigraði Heid , 33:26, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. GUIF er í sjötta sæti af 14 liðum með 27 stig. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 339 orð | 1 mynd

Næsta verkefni er HM í Madríd

BJÖRN Þ. Þorleifsson, taekvondómaður úr Björkunum, náði mjög góðum árangri á Opna bandaríska mótinu um helgina, en kappinn gerði sér þá lítið fyrir og sigraði í -78 kílóa flokki. Auk þess að sigra í sínum flokki var Björn valinn maður mótsins. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 779 orð | 1 mynd

Orrustur enskra og þýskra liða

FJÖRIÐ heldur áfram í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 149 orð

Óvíst hvort McShane leiki með Grindavík

ÓVÍST er hvort skoski knattspyrnumaðurinn Paul McShane leiki með Grindavíkurliðinu í knattspyrnu í sumar. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 380 orð | 1 mynd

* PÁLL Axel Vilbergsson , körfuknattleiksmaður, var kjörinn íþróttamaður...

* PÁLL Axel Vilbergsson , körfuknattleiksmaður, var kjörinn íþróttamaður ársins í Grindavík á hófi sem haldið var í fyrrakvöld í Grindavík . Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 143 orð

Silja klár inn á meistaramót NCAA

SILJA Úlfarsdóttir, hlaupakona úr FH, keppir í tveimur greinum á bandaríska meistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss, NCAA, sem fram fer í Fayetteville í Arkansas um næstu helgi. Þetta er annað árið í röð sem hún tekur þátt í mótinu. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 131 orð

Skylmingakonur í eldlínunni

GUÐRÚN Jóhannsdóttir og Þorbjörg Ágústsdóttir, úr íslenska landsliðinu í skylmingum með höggsverði, komust í 32 manna úrslit á heimsbikarmóti sem fram fór í London um sl. helgi. Guðrún og Þorbjörg eru báðar úr Skylmingafélagi Reykjavíkur. Meira
9. mars 2005 | Íþróttir | 95 orð | 1 mynd

Stefán Gíslason samdi við Lyn

FORSVARSMENN norska úrvalsdeildarliðsins Lyn sendu frá sér fréttatilkynningu í gær þess efnis að knattspyrnumaðurinn Stefán Gíslason hefði komist að samkomulagi við félagið og væri búinn að skrifa undir samning til þriggja ára. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.