Greinar miðvikudaginn 19. apríl 2006

Fréttir

19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 167 orð | 1 mynd

324 æðplöntur finnast í flóru Grafarvogs

JÓHANN Pálsson, fyrrverandi garðyrkjustjóri Reykjavíkur, hefur að undanförnu rannsakað flóru Grafarvogs með tilliti til uppruna og útbreiðslu tegunda en Umhverfissvið Reykjavíkurborgar gefur skýrsluna út. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 147 orð

390 kærðir vegna hraðaksturs

ALLS voru 390 ökumenn kærðir vegna hraðakstursbrota í Reykjavík frá morgni miðvikudagsins 12. apríl fram til morguns þriðjudaginn 18. apríl. Af þeim voru 166 kærðir fyrir hraðakstur innan borgarmarka og voru 129 ökumenn á yfir 100 km hraða á... Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 124 orð

86% þekkja einhvern sem glímir við áfengis- eða vímuefnavanda

Í NÝRRI könnun sem Nýmiðlun framkvæmdi fyrir SÁÁ kemur fram að 86% svarenda sögðust þekkja einhvern sem á við áfengis- eða vímuefnavanda að etja. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 99 orð

Af vísnasvip

Jón Ingvar Jónsson orti þegar hagyrðingurinn Helgi Zimsen og Rósa eiginkona hans eignuðust dóttur: Núna vil ég Helga hrósa sem hefur á ýmsu lag, föðurbetrung fæddi Rósa í fyrradag. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 189 orð | 1 mynd

Álögur á bensíni og olíu lækki tímabundið

NEYTENDASAMTÖKIN beina þeim eindregnu tilmælum til stjórnvalda að lækka tímabundið vörugjald á bensíni og olíu. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 404 orð | 1 mynd

Blóðgjafar vilja ekki fá greitt fyrir blóðgjöf

Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is BLÓÐGJÖF er hluti af ímyndarsköpun þeirra sem gefa blóð og þeir vilja alls ekki fá greiðslu fyrir gjöfina. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 157 orð | 1 mynd

Boðið að leika á Chicago-blúshátíðinni

BLÚSSÖNGKONAN fræga Zora Young hefur boðið Halldóri Bragasyni gítarleikara að leika með sér og hljómsveit sinni á stóra sviði helstu blúshátíðar í heimi, Chicago-blúshátíðarinnar, laugardagskvöldið 10. júní næstkomandi. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 439 orð | 1 mynd

Doktor í lyfjafræði

* ÞÓRUNN Ósk Þorgeirsdóttir lyfjafræðingur varði doktorsritgerð sína, Development of topical dosage forms for an antimicrobial monoglyceride, Mónóglýseríð til meðferðar á húð- og slímhúðarsýkingum: þróun lyfjaforma. Vörnin fór fram 3. febrúar sl. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 738 orð | 1 mynd

Einangrunin rofin

Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is Búist við að ný áætlun verði sett af stað 2007 Undirbúningsvinna stendur nú yfir fyrir nýtt verkefni sem áætlað er að hefjist á næsta ári, en INTERREG III lýkur á þessu ári. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 391 orð | 1 mynd

Ekki eins vongóð og fyrir fundinn

Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur og Silju Björk Huldudóttur "ÞEIR gleymdu að vinna heimavinnuna sína um páskana. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 601 orð | 1 mynd

Finnst Skagfirðingar almennt hafa áhuga á söng og tónlist

Eftir Örn Þórarinsson Hofsós | "Mér hefur líkað ákaflega vel þessa mánuði sem ég hef átt hér heima. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 303 orð | 1 mynd

Fiskeldi verður eflt og heldur áfram í Mjóafirði

Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ODDEYRI, dótturfélag Samherja, hefur ákveðið að draga minna úr umsvifum sínum í fiskeldi hérlendis en áður var ætlunin og auka hlut sinn í eldi á bleikju og lúðu. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 73 orð

Fjórir sinubrunar á fjörutíu mínútum

SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðisins var kallað út fjórum sinnum frá kl. 19.41 til kl. 20.18 í gærkvöldi vegna sinubruna. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 524 orð | 1 mynd

Fleiri störf í boði á almennum markaði

Eftir Andra Karl andri@mbl.is NEMENDUR á allflestum skólastigum eru nú komnir á fullt við undirbúning fyrir vorprófin sem eru á næsta leiti. Meira
19. apríl 2006 | Erlendar fréttir | 184 orð

Flýr land til að forðast vandarhögg

Riyadh. AFP. | Eigandi veitingastaðar í Sádi-Arabíu hefur flúið land eftir að hafa verið dæmdur til 90 vandarhögga fyrir að ráða tvær konur til starfa. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 89 orð

Fyndnasti Vestfirðingurinn | Gunnar Örn Rögnvaldsson hlaut nafnbótina...

Fyndnasti Vestfirðingurinn | Gunnar Örn Rögnvaldsson hlaut nafnbótina fyndnasti maður Vestfjarða 2006 í keppni um titilinn sem haldin var í þriðja sinn í Krúsinni á Ísafirði á dögunum. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 121 orð | 1 mynd

Færði Vesturbyggð málverk af Einari Benediktssyni

Patreksfjörður | Magnús Jóhannsson kaupmaður færði nýlega Vesturbyggð að gjöf málverk. Um er að ræða málverk Gunnlaugs Blöndals af Einari Benediktssyni. Myndin er máluð í Herdísarvík þar sem Einar bjó síðustu æviár sín. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 29 orð

Færeyskt rokk | Færeyska hljómsveitin Déja vu leikur í kvöld á Græna...

Færeyskt rokk | Færeyska hljómsveitin Déja vu leikur í kvöld á Græna hattinum. Tónleikarnir hefjast kl. 21. Þeir Déja vu-menn segjast rokkarar í anda Pink Floyd, Coldplay og... Meira
19. apríl 2006 | Erlendar fréttir | 180 orð

Gagnrýna skýrslu um Tsjernobyl

Berlín. AFP. | Samtök grænfriðunga gagnrýndu í gær harðlega skýrslu Sameinuðu þjóðanna um Tsjernobyl-kjarnorkuslysið í Hvíta-Rússlandi og sögðu, að allt of lítið væri gert úr afleiðingum þess. Eftir viku, 26. apríl, verða liðin 20 ár frá slysinu. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 97 orð | 1 mynd

Gleðjast á 100 ára afmæli

MARGRÉT Halldórsdóttir, vistmaður á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri, varð 100 ára annan í páskum og af því tilefni var haldið kaffisamsæti á Hlíð síðdegis. Margrét, sem fæddist á Tréstöðum í Hörgárdal 17. apríl 1906, hefur áratugum saman búið á... Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 126 orð | 1 mynd

Gríðarlegar tekjur af fíkniefnasölu á Litla-Hrauni

UNGIR fangar í fangelsinu Litla-Hrauni eru sumir hverjir aðgangsharðir fíkniefnasölumenn innan fangelsisveggjanna samkvæmt lýsingu eldri fanga í nýjasta tölublaði Hraunbúans sem gefið er út af föngum. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 61 orð

Haldið og sleppt

TVEIR menn voru handteknir í gær í tengslum við rannsókn á innflutningi á rúmlega tveimur tugum kílóa af fíkniefnum, en var sleppt að loknum yfirheyrslum. Fjórir menn voru sl. föstudag úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna málsins. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 239 orð

Hert eftirlit með eignum gerði sitt gagn um páskana

LÖGREGLAN í Reykjavík telur að sérstakur undirbúningur hennar fyrir páskahelgina vegna innbrota hafi skilað sér eins og til var ætlast. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 398 orð | 2 myndir

Hlaupið, hjólað og skautað frá sveit til sjávar

MANNRÆKTIN Atorka stendur sumardaginn fyrsta fyrir ferð frá Gljúfrasteini í Mosfellsbæ í gegnum Reykjavík, að Gróttu á Seltjarnarnesi. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 431 orð | 1 mynd

Hætt við að starfsáhugi fjölmargra lækna minnki

LÆKNUM gengur afar vel að reka eigin lækningastofur sem verða sífellt stærri og fullkomnari án þess að miðstýrt stjórnkerfi þenjist þar út. Þeir eru nefnilega fagmenn og þekkja sitt fag út og inn og eru því óumdeilanlega leiðtogar lækninganna. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 271 orð | 1 mynd

ÍE hefur einangrað fimmtán gen á tíu árum

KÁRI Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, ræðir í nýlegu viðtali við bandaríska tímaritið MIT Tecnology Review um starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE), meðal annars um genaleit og lyfjaþróun. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 74 orð

Íþróttir og tómstundir niðurgreiddar

ÁKVEÐIÐ var á fundi íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsráðs Akureyrar á dögunum að niðurgreiða þátttöku barna fæddra 1995 til og með 2000 í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi að upphæð 10.000 kr. á árinu á þessu ári. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 179 orð

Jákvætt ungt fólk sem vill aka um á jeppa

Ungt fólk á Íslandi er almennt jákvætt í garð hnattvæðingar, alþjóðlegrar samkeppni og framtíðar Íslands. Þetta kemur fram í könnun sem Samtök atvinnulífsins gerðu meðal 19-20 ára ungmenna. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 345 orð | 1 mynd

Kaupmaður segir kortin hækka vöruverð um 5-25%

Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is KREDITKORT hækka smásöluverð mun meira en um þau 2,5%, sem kemur fram í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um kostnaðarhækkun vegna korta, að mati Sigurðar Lárussonar, kaupmanns í Dalsnesti í Hafnarfirði. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 145 orð | 2 myndir

Kirkjugólfið verður flísalagt

BÚSTAÐAKIRKJU hefur verið lokað í mánuð þar sem verið er að flísaleggja kirkjuna en að auki verður ráðist í frekari endurbætur. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 592 orð | 1 mynd

Kropp í kuldanum

"Ég hefði ekki viljað standa niðri á bakka hér á föstudaginn langa, það var snjókoma; en þeir sögðu að veðrið hefði verið fínt og þeir veiddu vel, einar níu bleikjur," sagði Aðalheiður Jóhannesdóttir, húsfreyja á Spóastöðum í Biskupstungum,... Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 49 orð | 1 mynd

Krónan ekki lægri frá 2002

GENGISVÍSITALA krónunnar hefur ekki verið hærri frá því í maí árið 2002, en gengisvísitala hækkaði um 1,75% í gær og veiktist krónan sem því nemur. Við upphaf viðskipta var gengisvísitalan 128,80 og við lokun var hún 131,10. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 95 orð

Leiðir á pastanu

"Fjármál einstaklinga eru misjöfn," segir í frétt frá lögreglunni á Akureyri, þar sem greint er frá því að aðfaranótt þriðjudagsins 18. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 68 orð

Leiðrétt

Neyðaraðstoðarsími fyrir fuglana Í pistli sínum í Tímariti Morgunblaðsins, síðastliðinn sunnudag, gaf Auður Jónsdóttir í skyn að strembið væri að finna hjálp fyrir veika fugla við Tjörnina vegna skorts á Dýrahjálparlínu í Reykjavík. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 183 orð

Leikskólagjöld lækka í Hafnarfirði

Hafnarfjörður | Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í gær að lækka verulega leikskólagjöld í leikskólum bæjarins. Tekur lækkunin gildi frá 1. maí nk. Almenn gjöld miðað við átta tíma vist á dag lækka úr 28. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 37 orð | 1 mynd

Lést í slysi á Madeira

MAÐURINN sem lést í slysi í gönguferð á portúgölsku eyjunni Madeira á sunnudag hét Árni G. Stefánsson, til heimilis í Brautarlandi 15 í Reykjavík. Hann fæddist 3. nóvember 1932 og lætur eftir sig eiginkonu og fjögur... Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 225 orð

Lyflæknar geti einnig vísað á hjartalækna

STJÓRN Félags íslenskra lyflækna gerir athugasemd við það ákvæði reglugerðar heilbrigðisráðherra frá 31. mars sl. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 245 orð

Lýsir yfir Íslandsdegi í Victoria

Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ALAN Lowe, borgarstjóri í Victoria í Bresku Kólumbíu í Kanada, hefur undirritað yfirlýsingu þess efnis að dagurinn í dag, 19. apríl 2006, sé sérstakur Íslandsdagur í borginni. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 162 orð

Lýtalæknir í sjálfboðavinnu á Indlandi

TVISVAR á ári fer Elísabet Guðmundsdóttir lýtalæknir í sjálfboðavinnu til Indlands í þeim tilgangi að gera aðgerðir á indverskum börnum sem hafa meðfædd lýti eins og skarð í vör eða góm. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 143 orð

Meðalfjöldi íbúa er 3.800 manns

SMÆRRI sveitarfélögum hefur fækkað mjög á undanförnum árum. Þannig eru þrjátíu sveitarfélög af þeim 79 sem kosið verður í í sveitarstjórnarkosningunum í næsta mánuði með færri en 500 íbúa, eða 38% sveitarfélaganna. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 423 orð

Methagnaður Sparisjóðs Norðlendinga

HAGNAÐUR af starfsemi Sparisjóðs Norðlendinga nam rúmlega 186 milljónum króna árið 2005, samanborið við 126 milljónir króna árið áður og er þetta fjórða árið í röð sem hagnaður eykst milli ára. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 95 orð

Missti leyfið vegna ofsaaksturs

UNGUR ökumaður í Borgarnesi hefur verið sviptur ökuleyfi fyrir ofsaakstur í uppsveitum Borgarfjarðar að morgni páskadags. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 62 orð | 1 mynd

Morgunblaðið á Akureyri flytur á Tryggvabraut 12

Skrifstofa Morgunblaðsins á Akureyri er flutt í húsnæði Hölds á Tryggvabraut 12 og hefur Höldur tekið að sér afgreiðslu og dreifingu blaðsins á Akureyri. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 126 orð

Níu sjóræningjaskip

VORBOÐUM á Reykjaneshrygg heldur áfram að fjölga og hafði Landhelgisgæslan í gær aflað upplýsinga um 42 karfaskip á hinu svokallaða NEAFC-svæði á Reykjaneshrygg. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 174 orð | 1 mynd

Nýr björgunarbíll til Sæbjargar

Björgunarsveitin Sæbjörg í Ólafsvík hefur fest kaup á nýjum björgunarbíl. Mun hann leysa af hólmi Ford Econoline bifreið sem sveitin seldi á dögunum, sá bíll hafði þá þjónað sveitinni frá árinu 1983. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 391 orð

Nýr íbúðabanki verði bakhjarl á íbúðamarkaði

Eftir Örnu Schram arna@mbl. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 92 orð | 1 mynd

Nýr viðlegukantur skemmtiferðaskipa

FRAMKVÆMDIR eru í fullum gangi við Skarfabakka, sem er vestan athafnasvæðis Eimskips í Sundahöfn. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 284 orð | 1 mynd

Nær væri að gera úttekt á vörugjöldum og tollum

HALLA Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, segir að nær væri að gera úttekt á þeim vörugjöldum og tollum sem halda matvælaverði háu hér á landi en að gera úttekt á samþjöppun á matvörumarkaðnum. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 212 orð

Opnar dyr hjá aðilum í ferðaþjónustu

Dagskráin Ferðalangur á heimaslóð verður haldin í þriðja sinn á morgun, sumardaginn fyrsta, á höfuðborgarsvæðinu. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 830 orð | 2 myndir

"Þurfum ekki að vera sammála um leiðir"

Meginþema ráðstefnunnar Tengslanet - Völd til kvenna í ár er staðalímynd kvenna, kynbundinn frami, fyrirtækjamenning og samskipti kvenna. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 575 orð | 1 mynd

Reynslan af vélunum góð

Eftir Árna Helgason og Andra Karl "OKKAR skoðun hefur verið sú í langan tíma að það þurfi að fjölga eftirlitsmyndavélum í miðbænum," segir Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, en á dögunum kynnti hópur á vegum dómsmálaráðuneytisins... Meira
19. apríl 2006 | Erlendar fréttir | 218 orð

Rússar sakaðir um mikla rányrkju í Barentshafi

Ósló. AP. | Gífurleg rányrkja Rússa í Barentshafi er ekki aðeins beint tilræði við fiskstofnana, heldur einnig við afkomu sjómanna í Norður-Noregi. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu frá norska sjávarútvegsráðuneytinu. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 156 orð

Samningur um málaskrárkerfi undirritaður

BJÖRN Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Ólafur Daðason, forstjóri Hugvits, hafa undirritað þróunar- og samstarfssamning um GoPro málaskrárkerfi fyrir stofnanir ráðuneytisins. Meira
19. apríl 2006 | Erlendar fréttir | 213 orð | 1 mynd

Segir her Írans geta hrundið árás

Moskvu. AFP. | Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði í gær að her landsins myndi hrinda hvers konar árásum á landið ef hervaldi yrði beitt vegna deilunnar um kjarnorkuáætlun Írana. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 49 orð

Sektaðir í símanum

LÖGREGLAN í Hafnarfirði sektaði tíu ökumenn í gær fyrir að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar og aka bíl samtímis. Vekur lögreglan athygli á því að sérstakt eftirlit verður með farsímanotkun ökumanna í umdæminu næstu daga. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 41 orð | 1 mynd

Síðasti dagur vetrar

Vetur konungur kveður landsmenn í dag og spurning hvort sólarlagið í gærkvöldi gefur tóninn fyrir sumarið sem fer í hönd. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 248 orð | 1 mynd

Skátamessur, fjör og skrúðgöngur

SUMARDAGURINN fyrsti hefur lengi verið í hávegum hafður hjá skátum landsins og fagna þeir ævinlega komu sumarsins af miklum móð. Engin undantekning verður á því þetta árið og munu skátarnir á höfuðborgarsvæðinu taka virkan þátt í hátíðarhöldum dagsins. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 72 orð | 1 mynd

Skemmtu sér á skautum

LÍF og fjör ríkti í Skautahöllinni í Laugardal þegar börn og ungmenni frá frístundaheimilinu Vesturhlíð heimsóttu iðkendur úr listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur í gær. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 105 orð

Skipaljósmyndir á sýningu | Útiljósmyndasýning verður opnuð í skrúðgarði...

Skipaljósmyndir á sýningu | Útiljósmyndasýning verður opnuð í skrúðgarði Þorlákshafnar sumardaginn fyrsta, klukkan 15. Á sýningunni verða 34 ljósmyndir af skipum og bátum sem gerðir hafa verið út frá Þorlákshöfn. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 56 orð | 1 mynd

Skuggaverk

Þau eru ýmis handtökin í landlegunni og þarf að gera að afla og dytta að einu og öðru fyrir næsta túr eins og gengur. Skuggar brugðu á leik við sjóarann knáa í Djúpavogshöfn, sem í aftanskininu mundaði amboð sín fimlega í lognkyrrunni. Meira
19. apríl 2006 | Erlendar fréttir | 276 orð | 1 mynd

Spá frekari hækkunum olíuverðs

Olíuverð á heimsmarkaði fór í gær í 72,64 dollara fatið í London og 71,60 dollara í New York og er ástæðan einkum sögð áhyggjur af hugsanlegum átökum Írana og Bandaríkjamanna, en nýlegar yfirlýsingar Mahmouds Ahmadinejads Íransforseta hafa aukið... Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 169 orð | 1 mynd

Sr. Skúli Sigurður skipaður sóknarprestur

BJÖRN Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði í gær sr. Skúla Sigurð Ólafsson í embætti sóknarprests í Keflavíkurprestakalli. Umsóknarfrestur rann út hinn 15. febrúar síðastliðinn og embættið veitist frá 1. maí næstkomandi. Meira
19. apríl 2006 | Erlendar fréttir | 260 orð

Stjórn Ísraels kennir Hamas um hryðjuverkið

Jerúsalem. AFP, AP. | Stjórn Ísraels kenndi í gær palestínsku hreyfingunni Hamas um sprengjutilræði sem kostaði níu manns lífið í Tel Aviv í fyrradag, mannskæðustu árás í Ísrael í tuttugu mánuði. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 94 orð

Stórskotalið hagyrðinga | Hagyrðingakvöld verður síðasta vetrardag í...

Stórskotalið hagyrðinga | Hagyrðingakvöld verður síðasta vetrardag í Félagsheimilinu á Blönduósi. Á svæðið mætir stórskotalið hagyrðinga sem láta í sér heyra um málefni líðandi stundar. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 119 orð | 1 mynd

Sturla Böðvarsson í heimsókn í Kanada

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra heimsækir Kanada dagana 19. til 23. apríl. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 185 orð

Styður kröfur um bætt launakjör

Aðstandendafélag aldraðra, AFA, vill tafarlausar úrbætur í launamálum starfsfólks á sjálfseignarstofnunum aldraðra sem mótmæla lágum launum sínum ítrekað. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 241 orð

Styrkir til rannsókna á Öræfajökli

Austur-Skaftafellssýsla | Úthlutað hefur verið þremur milljónum kr. úr Kvískerjasjóði. Styrkt voru sjö verkefni en fimm þeirra lúta að víðtækum rannsóknum á Öræfajökli og áhrifum hans á landmótun, byggð og mannlíf í Öræfum. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 283 orð

Tveir kæra gæsluvarðhaldsúrskurði

TVEIR menn voru handteknir í gær í tengslum við rannsókn á innflutningi á rúmlega tveimur tugum kílóa af fíkniefnum og var þeim sleppt að yfirheyrslum loknum. Fjórir menn voru sl. föstudag úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna málsins. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 356 orð | 1 mynd

Tvær þyrlur til landsins fyrir lok september

Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is LEIGÐAR verða tvær björgunarþyrlur af sambærilegri gerð og nú eru í rekstri hjá Landhelgisgæslu Íslands til bráðabirgða, til að ekki dragi úr björgunargetu með þyrlum hér á landi við brotthvarf varnarliðsins. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 196 orð

Um 72% endurkrafna vegna ölvunaraksturs

ENDURKRÖFUNEFND vegna umferðarmála bárust samtals 70 ný mál til úrskurðar í fyrra. Af þeim samþykkti nefndin endurkröfu að öllu leyti eða að hluta í 66 málum. Meira
19. apríl 2006 | Erlendar fréttir | 432 orð | 2 myndir

Verð á olíu líklega mjög hátt áfram

Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is OLÍUVERÐ á heimsmarkaði var í hæstu hæðum í gær þegar það fór í 72,64 dollara fatið í London og í 71,60 dollara í New York. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 123 orð

Verðlaun afhent á sumardagshátíð

Ölfus | Opið hús verður í starfsstöð Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi á sumardaginn fyrsta, 20. apríl, eins og hefð var orðin hjá Garðyrkjuskólanum. Í ár eru það starfsmenn skólans sem standa fyrir þessum degi. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 93 orð | 1 mynd

Viðskipti með raforku í gagnagrunn

NETORKA HF. hefur tekið í notkun upplýsingakerfi sem mun gera upp orkunotkun milli seljenda og kaupenda og halda utan um allar breytingar á viðskiptum raforkuseljenda og -kaupenda. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 179 orð

Víkin tekur að sér varðveislu muna frá Siglingastofnun Íslands

Í DAG kl. 16.00 verður undirritaður í Víkinni, Sjóminjasafninu í Reykjavík, Grandagarði 8, samningur milli Siglingastofnunar Íslands og Víkurinnar um varðveislu gripa frá Siglingastofnun. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 96 orð

Þrír handteknir í Hafnarfirði

LÖGREGLAN í Hafnarfirði tók um 100 grömm af ætluðu amfetamíni og 10-15 grömm af kannabisefnum við húsleit í bænum 12. apríl sl. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 306 orð | 1 mynd

Þróaði sælgæti sem eyðir ekki glerungi

Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ÍSLENSKUR vísindamaður, dr. Þorbjörg Jensdóttir, hefur þróað nýja aðferðafræði við rannsóknir á glerungseyðingu tanna af völdum súrra drykkja og fastrar fæðu á borð við sælgæti. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 54 orð | 1 mynd

Þröngt í búi hjá snjótittlingunum

Mývatnssveit | Það er ástæða til að minna fólk fyrir vestan, norðan og austan á að það er þröngt í búi hjá snjótittlingunum. Þrálát ótíð að undanförnu hefur valdið því að nú þurfa þeir að herða sultarólina. Meira
19. apríl 2006 | Erlendar fréttir | 255 orð | 1 mynd

Öld frá skjálftanum mikla í San Francisco

San Francisco. AP, AFP. | Þess var minnst í San Francisco í gær, að þá voru liðin 100 ár frá landskjálftanum mikla, sem lagði borgina að mestu leyti í rúst. Meira
19. apríl 2006 | Innlendar fréttir | 106 orð | 1 mynd

Örtröð á dekkjaverkstæðum

LANGAR raðir mynduðust við dekkjaverkstæði á höfuðborgarsvæðinu strax í gærmorgun, og ljóst að margir hafa ákveðið að bíða þar til eftir páska með að skipta út vetrardekkjunum. Meira

Ritstjórnargreinar

19. apríl 2006 | Leiðarar | 849 orð

Er Framsóknarflokkurinn í vörn?

Á skírdag birtist hér í Morgunblaðinu athyglisvert viðtal við Guðna Ágústsson, varaformann Framsóknarflokksins og landbúnaðarráðherra. Viðtalið vekur athygli fyrir tvennt. Meira
19. apríl 2006 | Staksteinar | 283 orð | 1 mynd

Staksteinar þjóðarinnar

Ef til vill kinka margir kolli þegar Framsóknarflokkurinn talar um þjóðarsátt um flugvöll á Lönguskerjum og hugsa með sér að það sé göfugt markmið. Hvernig getur þjóðarsátt verið annað? Meira

Menning

19. apríl 2006 | Bókmenntir | 130 orð | 1 mynd

Auður Jónsdóttir flytur sig til JPV

AUÐUR Jónsdóttir rithöfundur hefur ákveðið að flytja sig til JPV útgáfu en bækur hennar hafa áður komið út hjá Máli og menningu. Auður hefur þegar skipað sér á bekk með helstu rithöfundum landsins. Meira
19. apríl 2006 | Bókmenntir | 134 orð

Árleg smásagnasamkeppni Mannlífs

TÍMARITIÐ Mannlíf, í samvinnu við Hið íslenska glæpafélag, beinir sjónum sínum að sakamálum í smásagnasamkeppni ársins 2006. Í fyrra gaf Mannlíf út fylgirit með sex hrollvekjum sem valdar höfðu verið bestu innsendu sögurnar. Meira
19. apríl 2006 | Fjölmiðlar | 113 orð | 1 mynd

Bandarísk klassík

SJÓNVARPIÐ sýnir í kvöld heimildarmynd um bandaríska tónskáldið John Adams, en verk hans eru oftar flutt í Ameríku en verk nokkurs annars lifandi tónskálds. Meira
19. apríl 2006 | Tónlist | 426 orð | 1 mynd

Eins og klettur

SÖNGKONAN Pink óð inn á sjónarsviðið um árþúsundamót sem einskonar "vonda" Madonna. Þetta var árið 2000 og platan var Can't take me home . Meira
19. apríl 2006 | Fólk í fréttum | 595 orð | 2 myndir

Enginn venjulegur Karl

Fatahönnuðurinn Karl Lagerfeld hefur svo sannarlega stimplað sig inn í tískuheiminn. Meira
19. apríl 2006 | Kvikmyndir | 357 orð | 1 mynd

Hraðsoðin spennumynd

Leikstjórn: Paul McGuigan. Aðalhlutverk: Josh Hartnett, Morgan Freeman, Ben Kingsley, Lucy Liu, Stanley Tucci, Bruce Willis. Bandaríkin, 110 mín. Meira
19. apríl 2006 | Fjölmiðlar | 338 orð | 1 mynd

Hugarfarsbreyting

Einu sinni var sú hefð í heiðri höfð hjá Ríkissjónvarpinu að flytja páskaleikrit á samnefndri hátíð og var það reyndar í kjölfarið á því að jólaleikrit hafði verið flutt á jólum þar á undan. Meira
19. apríl 2006 | Kvikmyndir | 166 orð | 1 mynd

Í föðurhúsum á fertugsaldri

KVIKMYNDIN Failure to Launch er rómantísk gamanmynd sem fjallar um hinn rúmlega þrítuga Tripp sem hefur ekki enn flutt að heiman. Hann hefur hreinlega aldrei haft neina sérstaka ástæðu til þess að gera það því honum líður vel heima hjá foreldrum sínum. Meira
19. apríl 2006 | Tónlist | 482 orð | 1 mynd

Leikur á stóra sviði Chicago-blúshátíðarinnar

Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is HALLDÓRI Bragasyni gítarleikara hefur verið boðið að koma fram með blússöngkonunni frægu Zoru Young og hljómsveit hennar á stóra sviði Chicago-blúshátíðarinnar laugardagskvöldið 10. júní næstkomandi. Meira
19. apríl 2006 | Tónlist | 353 orð | 1 mynd

Litla flugan varð til á átta mínútum

Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is SIGFÚSARHÁTÍÐ verður haldin á Reykhólum á morgun, sumardaginn fyrsta. Tíu ár eru liðin frá andláti Sigfúsar Halldórssonar tónskálds og er hátíðin tileinkuð honum. Meira
19. apríl 2006 | Tónlist | 161 orð | 1 mynd

Með Norrænu frá Færeyjum

FÆREYSKA hljómsveitin Deja Vu kom hingað til lands í gær með ferjunni Norrænu, en sveitin mun halda tónleika á Akureyri, í Reykjavík og Reykjanesbæ. Deja Vu var stofnuð í Færeyjum í september árið 2000. Meira
19. apríl 2006 | Bókmenntir | 71 orð

Nýjar bækur

Út er komin á vegum Háskólans á Akureyri bókin Andans arfur . Tíu erindi um manninn, fræðimanninn, menntafrömuðinn, sálfræðinginn og bókfræðinginn Guðmund Finnbogason. Ritstjórar eru Trausti Þorsteinsson og Bragi Guðmundsson. Meira
19. apríl 2006 | Tónlist | 451 orð

Skaf kveður sér hljóðs

Opnunartónleikar Blúshátíðar í Reykjavík þar sem fram komu Andrea Gylfadóttir, Páll Rósinkranz, Skaf, The Bumcats og Blússveit Þollýar. Þriðjudagskvöldið 11. apríl kl. 21. Meira
19. apríl 2006 | Kvikmyndir | 144 orð | 1 mynd

Svöl teiknimynd

TEIKNIMYNDIN svala, Ísöld 2 , hélt toppsætinu aðra helgina í röð með um 8.500 manna aðsókn. Guðmundur Breiðfjörð hjá Senu bendir á að þetta sé aðeins 28% minni aðsókn en á opnunarhelginni, sem þykir gott. Meira
19. apríl 2006 | Tónlist | 59 orð | 1 mynd

Söngperlur í Salnum

Salurinn | Í kvöld verða fluttar í Salnum í Kópavogi perlur amerískrar 20. aldar sönglistar. Meira
19. apríl 2006 | Tónlist | 477 orð

Tvö sjaldheyrð kirkjuverk

Mozart: Vesperae solennes de Confessore K339. Haydn: Stabat mater. Hulda Björk Garðarsdóttir sópran, Nanna María Cortes alt, Jónas Guðmundsson tenór og Davíð Ólafsson bassi. Söngsveitin Fílharmónía ásamt hljómsveit. Stjórnandi: Magnús Ragnarsson. Þriðjudaginn 11. apríl kl. 20. Meira
19. apríl 2006 | Fjölmiðlar | 252 orð

Útvarp | Orð skulu standa

GESTIR þáttarins Orð skulu standa í dag eru Gísli Már Gíslason bókaútgefandi og Stefán Baldursson fyrrverandi þjóðleikhússtjóri. Þeir kljást við þennan fyrripart: Krónan okkar kyndug er kastast upp og niður. Meira
19. apríl 2006 | Menningarlíf | 664 orð | 2 myndir

Vetur kvaddur og sumri fagnað á ýmsan hátt

ftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is LENGI hefur tíðkast að gera sér glaðan dag á sumardaginn fyrsta og að kvöldi síðasta vetrardags. Meira
19. apríl 2006 | Bókmenntir | 556 orð | 1 mynd

Þúsund krónur inn á hvert heimili

Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is Í DAG, við upphaf viku bókarinnar, fá öll íslensk heimili ávísun að andvirði 1.000 kr. senda heim. Að framtakinu standa Félag íslenskra bókaútgefenda, bóksalar vítt og breitt um landið og bankinn Glitnir. Meira

Umræðan

19. apríl 2006 | Aðsent efni | 374 orð | 1 mynd

Alþjóðleg samkeppni krefst réttrar þekkingar og hæfni

Sigurður Jónsson skrifar um samkeppnishæfni atvinnulífsins: "Allt þetta fólk þarf að bæta við menntun sína og viðhalda stöðugt þekkingu sinni og færni í gegnum skipulagða fræðslustarfsemi." Meira
19. apríl 2006 | Aðsent efni | 787 orð | 1 mynd

Á að setja verðmiða á líf og limi þeirra sem fara um Keflavíkurflugvöll?

Vilhjálmur Karl Karlsson fjallar um framtíð slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli: "Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli á ekki að einkavæða né á að setja ávöxtunarkröfu því til höfuðs. Það myndi örugglega koma niður á þjónustu liðsins." Meira
19. apríl 2006 | Aðsent efni | 352 orð | 1 mynd

Bylting fyrir áhorfendur og "Ísland altengt"

Sturla Böðvarsson fjallar um fjarskipta- og fjölmiðlamarkað: "Með þessum samningi verða viss þáttaskil í dreifingu sjónvarpsefnis á Íslandi." Meira
19. apríl 2006 | Bréf til blaðsins | 415 orð

Bætt lágmarkslaun og góð þjónusta við aldraða

Frá Sigrúnu Á. Reynisdóttur: "ÉG VAR bæði reið og hneyksluð er ég horfði á viðtal í Kastljósi 30. mars síðastliðinn þar sem rætt var við Einar Odd Kristjánsson og Ástu R. Jóhannesdóttur alþingismenn. Umræðuefnið var setuverkfall starfsfólks á öldrunardeildum." Meira
19. apríl 2006 | Bréf til blaðsins | 163 orð

Ginseng gerir gæfumuninn!

Frá Birni Margeirssyni: "MEÐ HÆKKANDI sól vaknar náttúran og við mannfólkið um leið. Aukin birta fyllir okkur orku til að takast á við verkefni hversdagsins og flestir eiga auðveldara með að fara fram úr á morgnana." Meira
19. apríl 2006 | Aðsent efni | 641 orð | 2 myndir

Horfur í fjármálum Reykjavíkurborgar

Davíð Ólafur Ingimarsson skrifar um fjármálastjórn Reykjavíkurborgar: "Það sem vekur undrun mína er að á uppgangstíma sem þessum skuli Reykjavíkurborg ekki spara og greiða niður skuldir..." Meira
19. apríl 2006 | Aðsent efni | 322 orð

Kompás réttur af

ÞAÐ er staðreynd að Þorsteinn J. Vilhjálmsson er einn besti sjónvarpsmaður landsins. Enginn er hins vegar fullkominn. Sannaðist það í fréttaskýringaþættinum Kompás sem sýndur var á Stöð 2 á páskadag. Meira
19. apríl 2006 | Aðsent efni | 497 orð | 1 mynd

Leiðréttingu strax

Sigurður T. Sigurðsson fjallar um kjaramál: "Lækkun á skattprósentu tekjuskatts um 4% skilar sér ekki til almennings á meðan stjórnvöld halda á málum eins og þau gera nú." Meira
19. apríl 2006 | Aðsent efni | 310 orð | 1 mynd

Mannafli á heilbrigðisstofnunum

Kristín Á. Guðmundsdóttir fjallar um manneklu á öldrunarstofnunum: "Allt ber að sama brunni, heilbrigðisyfirvöld í nokkurs konar blindingsleik og tilvistarkreppu..." Meira
19. apríl 2006 | Aðsent efni | 752 orð | 1 mynd

Málsvari stóriðjustefnunnar

Gunnlaugur Sigurðsson svarar Jakobi Björnssyni: "Er ekki nóg að þurfa að þola afleiðingar stóriðjustefnunnar fyrir íslenskt náttúrufar þótt Jakob láti það vera að menga umræðuna um hana með rökleysum?" Meira
19. apríl 2006 | Velvakandi | 473 orð

Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is

Blöskrar bensínverðið ÉG fór á bensínstöð sl. miðvikudag, 12. apríl, og blöskraði bensínverðið en það var komið upp í 124,30 kr. Ég er félagsmaður í FÍB og finnst mér einkennilegt hvað þeir eru máttlausir í svona málum. Meira
19. apríl 2006 | Aðsent efni | 793 orð | 1 mynd

Það er hægt að laga Ríkisútvarpið án háeffsins

Ögmundur Jónasson skrifar um Ríkisútvarpið: "Ég hvet áhugafólk um framtíð Ríkisútvarpsins að kynna sér frumvarp þingflokks VG um Ríkisútvarpið." Meira

Minningargreinar

19. apríl 2006 | Minningargreinar | 1223 orð | 1 mynd

GESTUR GUÐJÓNSSON

Gestur Guðjónsson fæddist á Gvendarnesi við Fáskrúðsfjörð 24. október 1929. Hann lést á St. Jóssefsspítala í Hafnarfirði 8. apríl síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
19. apríl 2006 | Minningargreinar | 1546 orð | 1 mynd

HELGI JÓHANNESSON

Helgi Jóhannesson fæddist á Hafþórsstöðum í Norðurárdal 11. október 1915. Helgi lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ að morgni 11. apríl síðastliðins. Hann fluttist barnungur með foreldrum sínum að Svínhóli í Miðdölum þar sem hann ólst upp. Meira  Kaupa minningabók
19. apríl 2006 | Minningargreinar | 1402 orð | 1 mynd

HREGGVIÐUR HERMANNSSON

Hreggviður Hermannsson fæddist í Hrísey á Eyjafirði 22. júlí 1931. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi laugardaginn 8. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigfús Hermann Jónasson, sjómaður í Hrísey á Eyjafirði, f. 8. Meira  Kaupa minningabók
19. apríl 2006 | Minningargreinar | 1245 orð | 1 mynd

SIGÞRÚÐUR JÓRUNN TÓMASDÓTTIR

Sigþrúður Jórunn Tómasdóttir fæddist í litla skólanum við Skólaveg í Keflavík 15. janúar 1917. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 9. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jórunn Tómasdóttir húsfrú, f. á Járngerðarstöðum í Grindavík 31. mars 1890, d. Meira  Kaupa minningabók
19. apríl 2006 | Minningargreinar | 1417 orð | 1 mynd

UNNUR ERLENDSDÓTTIR

Unnur Erlendsdóttir fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1922. Hún lést á Landakotsspítala að morgni 11. apríl síðastliðins. Foreldrar hennar voru Unnur Helgadóttir, f. á Flateyri í Önundarfirði 20. feb. 1903, d. 10. okt. 1976, og Lárus Pálmi Lárusson, f. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

19. apríl 2006 | Viðskiptafréttir | 134 orð | 1 mynd

Aðstæður á fjármálamarkaði hömluðu sölu

EKKERT verður af sölu Danól og Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar þar sem þau tilboð sem bárust í fyrirtækin reyndust ekki viðunandi, að mati núverandi eigenda. Fyrirtækin voru sett í söluferli í lok febrúar. Meira
19. apríl 2006 | Viðskiptafréttir | 93 orð | 1 mynd

Atorka eykur við sig í Interbulk

ATORKA Group hefur aukið við hlut sinn í flutningafyrirtækinu Interbulk Investments plc. og er orðinn stærsti hluthafinn með rúm 23% hlutafjár í félaginu. Markaðsverðmæti hlutarins eru rúmar 800 milljónir króna. Meira
19. apríl 2006 | Viðskiptafréttir | 55 orð

Gengið frá Saltur

VINNU við áreiðanleikakannanir vegna kaupa Icelandic Group á dönsku saltfiskvinnslunni Saltur A/S er lokið. Meira
19. apríl 2006 | Viðskiptafréttir | 211 orð | 1 mynd

Gengi krónunnar ekki lægra í tæp fjögur ár

GENGISVÍSITALA krónunnar hefur ekki verið hærra frá því í maí árið 2002, en gengisvísitala hækkaði um 1,75% í gær, samkvæmt upplýsingum frá Glitni, og veiktist krónan sem því nemur. Meira
19. apríl 2006 | Viðskiptafréttir | 373 orð | 1 mynd

Krónubréfin munu reynast íslensku krónunni erfið

GENGI Evru gæti orðið 105-110 krónur við næstu áramót, gangi spár Royal Bank of Scotland (RBS) eftir, en í nýrri skýrslu um ástand efnahagsmála hér á landi spáir greiningardeild bankans því að gengi krónunnar eigi enn eftir að lækka um sem nemur 15-20%... Meira
19. apríl 2006 | Viðskiptafréttir | 117 orð

Samkeppni við Dagsbrún hafin

DANSKA fréttastofan Ritzau segir að samkeppni þarlendra fjölmiðla um auglýsingatekjur sé komin á fulla ferð vegna áforma Dagsbrúnar um að hleypa nýju ókeypis blaði af stokkunum í haust. Meira
19. apríl 2006 | Viðskiptafréttir | 189 orð

Skoðun gerir yfirtökutilboð í Kögun

SKOÐUN, dótturfélag Dagsbrúnar, sem nýverið keypti 51% hlutafjár í Kögun, hefur gert öllum hluthöfum í Kögun yfirtökutilboð í hluti þeirra í félaginu. Meira
19. apríl 2006 | Viðskiptafréttir | 62 orð

Úrvalsvísitalan niður um 2,09%

HLUTABRÉF lækkuðu töluvert í verði í Kauphöll Íslands í gær. Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,09% og var 5.535 stig við lok viðskipta. Bréf tveggja félaga hækkuðu, Nýherja um 2,16% og Granda um 1,25%. Meira

Daglegt líf

19. apríl 2006 | Daglegt líf | 360 orð | 2 myndir

Cesar-salatið slær öll met

Vinsældir Cesar-salatsins vestanhafs virðast engan enda ætla að taka og nú er svo komið að salat þetta er á matseðli 75% bandarískra veitingastaða, allt frá skyndibitastöðum upp í dúkaða fínni staði. Meira
19. apríl 2006 | Daglegt líf | 875 orð | 3 myndir

Lagfærir meðfædd lýti á indverskum börnum

Elísabet Guðmundsdóttir lýtalæknir fer tvisvar á ári til Indlands og gefur vinnu sína við að gera aðgerðir á indverskum börnum sem fæðst hafa með skarð í vör eða góm. Meira

Fastir þættir

19. apríl 2006 | Fastir þættir | 286 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is

Íslandsmótið. Meira
19. apríl 2006 | Í dag | 106 orð | 1 mynd

Byggðasafnið í Skógum - sumardagurinn fyrsti

HIN árlega söngstund í Skógum verður sumardaginn fyrsta, 20. apríl, kl. 20.30. Dagskráin hefst með helgistund í Skógakirkju sem séra Haraldur M. Kristjánsson, prófastur í Vík, annast. Meira
19. apríl 2006 | Í dag | 20 orð

Orð dagsins: Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur...

Orð dagsins: Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið. (Lúk. 12, 32. Meira
19. apríl 2006 | Fastir þættir | 239 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is

1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 Bb4+ 4. Rbd2 b6 5. a3 Bxd2+ 6. Dxd2 Bb7 7. e3 d6 8. Be2 Rbd7 9. 0-0 0-0 10. b4 Re4 11. Dd3 f5 12. Rd2 Dh4 13. f3 Rg5 14. f4 Re4 15. d5 Df6 16. Rxe4 fxe4 17. Dd2 exd5 18. Bb2 Df7 19. cxd5 Bxd5 20. Hac1 c6 21. Hfd1 Had8 22. Meira
19. apríl 2006 | Í dag | 559 orð | 1 mynd

Víkingahugsjónir Percy Grainger

Bruce Clunies Ross ólst upp í Adelaide í Ástralíu. Þar nam hann ensku og bókmenntir. Hann lauk framhaldsnámi í enskum bókmenntum frá Balliol College, Oxford, og hlaut lektorsstöðu við Kaupmannahafnarháskóla 1970 þar sem hann kenndi ensku. Meira
19. apríl 2006 | Fastir þættir | 300 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

Víkverji elskar að ferðast og kíkja í góða bíltúra þegar hann á frí. Hann tók unnustu sína með sér í skemmtilega bílferð um helstu viðkomustaði Suðurlands á skírdag. Komu þau víða við í hinu eðla "gluggaveðri" sem ríkti; gengu m.a. Meira

Íþróttir

19. apríl 2006 | Íþróttir | 373 orð | 1 mynd

* ÁSTHILDUR Helgadóttir og Dóra Stefánsdóttir léku báðar allan leikinn...

* ÁSTHILDUR Helgadóttir og Dóra Stefánsdóttir léku báðar allan leikinn fyrir Malmö þegar liðið tapaði fyrir meisturum Umeå , 2:0, í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Dóra lék í stöðu vinstri bakvarðar en Ásthildur í framlínunni. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 113 orð

Einar skoraði sjö mörk í stórsigri

EINAR Hólmgeirsson var markahæstur hjá Grosswallstadt með sjö mörk þegar liðið tók Guðjón Val Sigurðsson, Róbert Gunnarsson og samherja þeirra hjá Gummersbach í kennslustund í þýsku 1. deildinni í handknattleik og vann með 12 marka mun, 32:20. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 744 orð | 1 mynd

Enn betri úrslitakeppni

ÞAÐ er óhætt að segja að úrslitakeppnin í körfuknattleik karla vakti mikla athygli og spennandi viðureignir settu svip sinn á keppnina. Njarðvíkingar fögnuðu sigri á Íslandsmótinu, í 13. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 254 orð

Fyrsti sigur Baddeley

"MÉR líður betur en áður eftir sigurinn enda er það draumi líkast að ná markmiðinu. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 477 orð | 1 mynd

Giuly afgreiddi AC Milan

MARK Frakkans Ludovic Giuly fyrir Barcelona gegn AC Milan á Stadio Giuseppe Meazza í Mílanóborg í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gær getur reynst Barcelona gulls ígildi. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 386 orð | 1 mynd

* HEIMIR Örn Árnason og Guðlaugur Arnarsson , handknattleiksmenn hjá...

* HEIMIR Örn Árnason og Guðlaugur Arnarsson , handknattleiksmenn hjá Fylki , hafa framlengt samninga sína við félagið og leika því með liði þess á næsta keppnistímabili. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 102 orð

HM-dómarar fá launahækkun

DÓMARARNIR sem dæma á HM í Þýskalandi í sumar fá 100% launahækkun. Þeir koma til með að fá 40.000 dollara í laun á viku sem samsvarar rúmum 3 milljónum íslenskra króna en á HM í Japan og S-Kóreu fyrir fjórum árum fengu dómararnir 20. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 14 orð

Í kvöld

KNATTSPYRNA Deildabikarkeppnin A-deild kvenna: KR-völlur: KR - FH 19. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 253 orð

Jónas Grani hættur með FH-ingum

Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is JÓNAS Grani Garðarsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Íslandsmeistara FH í knattspyrnu. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 228 orð | 1 mynd

Kári Árnason úr leik næstu vikurnar hjá sænska meistaraliðinu Djurgården

Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is KÁRI Árnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, sem leikur með sænska meistaraliðinu Djurgården, verður frá æfingum og keppni næstu þrjár vikurnar. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 280 orð

KNATTSPYRNA Deildabikar karla B-deild, 1. riðill: HK - Víðir 2:1 Staðan...

KNATTSPYRNA Deildabikar karla B-deild, 1. riðill: HK - Víðir 2:1 Staðan: Leiknir R. 431011:610 ÍR 430113:79 HK 430111:59 Víðir 41125:54 ÍH 41036:103 Reynir S. 40042:150 *Efsta liðið kemst í undanúrslit. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 195 orð

LA Lakers í úrslitin

KOBE Bryant skoraði 43 stig þegar LA Lakers tryggði sér sæti í úrslitakeppni bandarísku NBA körfuboltadeildarinnar í fyrrakvöld með sigri á Phoenix Suns, 109:89. Lakers er nú öruggt með 7. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 990 orð | 3 myndir

"Ísland er góður kostur"

"ÉG veit ekki alveg hvernig mér líður eftir að hafa fagnað titli í fyrsta sinn sem leikmaður. Meira
19. apríl 2006 | Íþróttir | 572 orð | 1 mynd

Síðasti Evrópuleikur Arsenal á Highbury

ARSENAL leikur í kvöld síðasta Evrópuleik sinn á Highbury þegar liðið tekur á móti spænska liðinu Villarreal í fyrri viðureign félaganna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Sigurliðið úr þessari rimmu mætir annaðhvort Barcelona eða AC Milan í úrslitaleik í París 17. maí. Meira

Úr verinu

19. apríl 2006 | Úr verinu | 743 orð

Ákvörðun um róður alltaf vandlega íhuguð

Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing til birtingar: Hjörtur Gíslason ritstjóri sjávarútvegskálfs Morgunblaðsins "Úr verinu" er höfundur bryggjuspjallsins hinn 12. þ.m. Fyrirsögn greinar hans er "Einstakt glóruleysi". Meira
19. apríl 2006 | Úr verinu | 318 orð | 1 mynd

Bæjarstóri Siglufjarðar í víking á Suðurnesjum

Eftir Kristin Benediktsson krben@internet. Meira
19. apríl 2006 | Úr verinu | 1372 orð | 3 myndir

Erum sannfærð um að hægt sé að auka fiskneyslu

Fyrirtækið Fjörfiskur er nú orðið hið öflugasta í smásölu á fiskafurðum á landinu. Það selur fisk í neytendaumbúðum í öllum helstu verslunum landsins og til stóreldhúsa. Meira
19. apríl 2006 | Úr verinu | 207 orð | 1 mynd

Fiskafli dregst saman um 40%

Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu var heildaraflinn í nýliðnum mars 132.095 tonn en aflinn var 214.668 tonn í mars 2005. Heildarafli marsmánaðar 2006 er því 82.573 þúsund tonnum minni en í mars 2005. Meira
19. apríl 2006 | Úr verinu | 589 orð | 1 mynd

Hafa skal það sem sannara reynist

Í Verinu í dag er birt yfirlýsing frá þremur skipstjórum smábáta frá Vestfjörðum. Þeir eru ósáttir við skrif í síðasta Bryggjuspjalli. Samkvæmt yfirlýsingunni hafa þeir nokkuð til síns máls. Meira
19. apríl 2006 | Úr verinu | 178 orð | 1 mynd

Mettúr hjá Gnúpnum

Veiðin helst enn mjög góð hjá frystitogurunum sem halda sig á miðunum suðvestur af landinu og metin falla hjá þeim hvert af öðru. Frystitogarinn Gnúpur GK 11, eitt af skipum Þorbjörns-Fiskaness hf. Meira
19. apríl 2006 | Úr verinu | 162 orð | 2 myndir

Pönnusteikt rauðspretta

Þá er komið að rauðsprettunni. Hún er sérlega ljúffengur fiskur með sérstöku bragði, sem engan svíkur. Hana má, eins og annan fisk, elda á óteljandi vegu en hún er alltaf góð steikt á pönnu. Meira
19. apríl 2006 | Úr verinu | 664 orð | 1 mynd

Sérstakar fjárveitingar til stuðnings fiskeldi

RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt sérstakar aðgerðir til stuðnings fiskeldis í landinu. Þær felast m.a. í sérstökum fjárveitingum til kynbóta á eldisþorski og -bleikju og til markaðssetningar á bleikju. Meira

Annað

19. apríl 2006 | Prófkjör | 239 orð | 1 mynd

B-listinn leggur til frístundakort

Eftir Marsibil Sæmundardóttur: "B-LISTINN í Reykjavík vill að öll börn í borginni, 5 til 18 ára, fái frístundakort að upphæð 40 þúsund kr. á ári sem þau geta notað til að greiða fyrir þátttöku í viðurkenndum íþróttum, tómstundum eða listnámi." Meira
19. apríl 2006 | Prófkjör | 417 orð | 1 mynd

Fegrunaraðgerðir Gunnars Birgissonar

Eftir Ólaf Þór Gunnarsson: "Í MORGUNBLAÐINU síðastliðinn miðvikudag, í miðri dymbilvikunni, birtist grein eftir dr. Gunnar Birgisson bæjarstjóra og verkfræðing ("Hagkvæmast fyrir barnafólk að búa í Kópavogi", Mbl. 12.4. '06 bls. 35)." Meira
19. apríl 2006 | Prófkjör | 555 orð | 1 mynd

Við gerum betur - um málefni eldri borgara

Eftir Júlíus Vífil Ingvarsson: "Í GREIN í Morgunblaðinu bar ég saman framkvæmdir í Reykjavík er lúta að uppbyggingu þjónustuíbúða, þjónustu- og félagsmiðstöðva og hjúkrunarrýma fyrir aldraða, í valdatíð sjálfstæðismanna og síðan R-listans. Þar er ólíku saman að jafna." Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.